Forsetinn hóf söluna á Neyðarkallinum Stefán Árni Pálsson skrifar 6. nóvember 2014 17:22 vísir/vilhelm
Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, hóf sölu Neyðarkalls björgunarsveita í Smáralind í dag. Bauð hann þar gestum og gangandi Neyðarkall og seldi vel eftir því sem kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg. Um helgina munu sjálfboðaliðar björgunarsveita svo vera á ferðinni um land allt og selja Neyðarkall björgunarsveita. Er þetta níunda árið sem farið er í slíka fjáröflun og er óhætt að segja að almenningur hafi tekið björgunarsveitafólki afar vel og er þessi sala farin að skipta björgunarsveitir verulegu máli í fjármögnun starfsins. Neyðarkall björgunarsveita í ár er með línubyssu. Í bókinni Mannslíf í húfi, sögu Slysavarnafélags Íslands, segir að á þeim rúmu 85 árum sem Slysavarnafélagið Landsbjörg og forverar þess hafa starfað hefur nálægt 2500 manns verið bjargað með fluglínutækjum þess af erlendum sem innlendum skipum sem strandað hafa hér við land. Fyrsta slíka björgunin var í mars 1931, tæpum fimm mánuðum eftir að slysavarnadeildin Þorbjörn í Grindavík var stofnuð og aðeins viku eftir að heimamenn höfðu fengið tilsögn í meðferð fluglínutækja, strandaði franski togarinn Cap Fagnet við bæinn. 38 skipverjum var bjargað í land með fluglínutækjum.vísir/vilhelmErlendis hefur notkun fluglínutækja víða verið hætt og þar treysta menn á þyrlur til björgunar þegar skipsströnd verða. Notkunin hefur líka minnkað hér á landi en talið er mikilvægt að tækin, og þekking til að nota þau, séu til staðar. Aðstæður eða veður getur t.d. verið með þeim hætti að þyrlur komist ekki á strandstað eða geti ekki athafnað sig þar. Það gerðist t.d. þegar bátur með fimm manna áhöfn strandaði í Vöðlavík á Austfjörðum árið 1993. Þá brutust björunarsveitamenn á staðinn í vonskuveðri og skutu línu út í bátinn og drógu mennina í land. Síðast voru fluglínutæki notuð við björgun árið 2001 en þá strandaði línuskipið Núpur BA við Patreksfjörð. Björgunarsveitirnar Blakkur og Tálkni björguðu þá 14 manna áhöfn skipsins með þeim.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira