Samstaða mest í Garðabæ og Álftanesi Gunnar Leó Pálsson skrifar 7. nóvember 2014 07:00 Á Álftanesi og í Garðabæ verjast menn betur en aðrir gegn innbrotum. NordicPhotos/Getty
Íbúar í Garðabæ, á Álftanesi, í Grafarvogi og Grafarholti eru virkastir í því að standa vörð um nágranna sína gegn innbrotum. Íbúar í Hlíðunum eru hins vegar óvirkastir í því að standa vörð um nágrannana. „Það er erfitt að segja í hverju munurinn felst, en ég held að samfélagið sé mögulega nánara í Garðabæ og á Álftanesi en í öðrum þéttbýlum hverfum á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Jónas Orri Jónasson félagsfræðingur hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 12,5 prósent íbúa í Garðabæ tóku þátt í formlegri nágrannavörslu í fyrra. Í Hlíðunum tóku hins vegar aðeins 0,8 prósent íbúa þátt í formlegri nágrannavörslu. Þetta kemur fram í nýútkominni könnun sem unnin var af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands fyrir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.Vinalegir í Grafarvogi og Grafarholti Íbúar í Grafavogi og Grafarholti eru virkastir í vinalegu skipulagi á milli nágranna eða um 19,0 prósent en aðeins 3,3 prósent taka þátt í formlegri nágrannavörslu. Íbúar í Garðabæ og á Álftanesi voru einnig duglegastir við að setja upp þjófavörn eða öryggiskerfi á síðasta ári en um 15,3 prósent settu slíkt upp. Hins vegar voru einungis 2,4 prósent íbúa Hlíðahverfisins sem settu upp þjófavörn eða öryggiskerfi á sama tíma. Um 75,6 prósent íbúa Hlíðahverfisins gripu ekki til neinna aðgerða til að verja heimili sitt á síðasta ári á meðan tæplega helmingur íbúa Garðabæjar og Álftaness greip ekki til neinna aðgerða eða 49,2 prósent íbúa.Mismiklar áhyggjur Þess má til gamans geta að um 45,3 prósent íbúa Garðabæjar og Álftaness höfðu mjög litlar áhyggjur af því að brotið yrði gegn þeim á síðasta ári en 38,5 prósent íbúa í Hlíðunum höfðu mjög litlar áhyggjur af því að brotið yrði gegn þeim á sama tíma. Ótti við afbrot hafði áhrif á daglegt líf um 3,9 prósenta íbúa Hlíðahverfis en einungis 1,8 prósent íbúa Garðabæjar og Álftaness höfðu sömu áhyggjur.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira