Dæmdur fyrir hrottafengna árás á sambýliskonu sína Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 6. nóvember 2014 17:04 vísir/getty
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi yfir karlmanni sem réðist á sambýliskonu sína á heimili þeirra í september 2011. Við ákvörðun refsingarinnar var litið til þess að árásin var tilefnislaus og hrottafengin en samkvæmt úrskurði Hæstaréttar reyndi konan ítrekað að komast undan. Þá var hann einnig fundinn sekur um að hafa haft í vörslu sinni heimabrugg, sem er brot gegn áfengislögum, ásamt því að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann var sviptur ökurétti í átján mánuði og gert að greiða 160 þúsund króna sekt.Leið sem hún væri að kafna Manninum var gefið að sök að hafa slegið sambýliskonu sína, tekið höndum um háls hennar og sest klofvega ofan á brjóstkassa hennar með þeim afleiðingum að hún hlaut eymsli, marbletti, bólgur og sár víðsvegar um líkamann. Konan lýsir því í dómi héraðsdóms að henni hafi fundist sem hún væri að kafna en hún hafi náð að slá sambýlismann sinn með grjóthnullungi í höfuðið. Við það hafi hún losnað úr greipum hans.„Búinn að biðja hana endalaust fyrirgefningar“ Í skýrslutöku lögreglu neitaði maðurinn að hafa lagt hendur á konuna en þar kemur fram að hann hafi verið mjög ölvaður. Á enni hans voru áverkar sem blæddi úr. Hann sagði fyrir dómi að hann og sambýliskona hans hafi slegist umræddan dag og vildi ekki rengja þá áverka sem lýst var í ákæru. Konan hafi fengið þá af hans völdum. Kvaðst hann: ,,iðrast allavega mjög mikið ... ég er búinn að biðja hana endalaust fyrirgefningar.“ Áfrýjaði dómur héraðsdóms var óraskaður. Manninum var gert að greiða allan sakarkostnað og yfirlit vegna áverkavottorðs ásamt málsvarnarlaun verjanda síns, alls 434.995 krónur.
Mest lesið Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent Sammála því að erfitt haust sé í vændum Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Fleiri fréttir Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Sjá meira