Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yoko Ono tendraði ljós Friðarsúlunnar Yoko Ono kom sjálf út í Viðey í kvöld og var viðstödd þegar kveikt var á Friðarsúlunni. Fjölmennur hópur fólks var viðstaddur en hópurinn samanstóð af stærstum hluta af erlendum ferðamönnum og fjölmiðlamönnum. 9.10.2012 20:31
Aðgerðir gegn hraðakstri bera árangur Vel hefur gengið að sporna við hraðakstri við Melaskóla eftir að nýjum hraðahindrunum var komið upp á veginum við skólann. Margir foreldrar höfðu áður kvartað undan hraðakstri þar, sérstaklega á morgnanna. 9.10.2012 19:48
Yfir 450 off-venue tónleikar á Airwaves Skipuleggjendur Iceland Airwaves hafa kynnt hina svokölluðu off-venue dagskrá sem fer fram samhliða Airwaves hátíðinni. Á dagskrá eru yfir 450 tónleikar á 31 stað víðsvegar um borgina. 9.10.2012 19:28
Fjölmenni á leið út í Viðey Fjölmenni hefur nú safnast saman á Skarfabakkanum á leið út í Viðey til að fylgjast með tendrun Friðarsúlunnar. Hundruð gesta bíða þess nú að verða ferjaðir út í eyjuna til að fylgjast með þegar kveikt verður á súlunni. 9.10.2012 19:09
Undanþágur inni í myndinni fyrir Nubo Í drögum að samningi sveitarfélaga á Norðurlandi við fyrirtæki Huang Nubo kemur fram að hægt er að veita ýmsar undanþágur til nýtingar auðlinda. Fréttastofa hefur þessi óbirtu drög undir höndum. 9.10.2012 18:53
Kallar eftir sýnum frá öllum kúabúum landsins Matvælastofnun hefur ákveðið að kalla eftir sýnum frá öllum kúabúum landsins á næstu dögum vegna sjúkdóms sem greindist á kúabúi á Egilsstöðum. 9.10.2012 17:57
Kominn tími á Snilldarlausnir Hin árvissa keppni, Snilldarlausnir Marel, er nú að hefjast í fjórða sinn. Snilldarlausnir er hugmyndasamkeppni milli framhaldsskólanema sem snýst um að búa til verðmæta vöru úr verðlausu drasli. 9.10.2012 17:22
Fallhífarstökkvarinn hætti við heimsmetið Fallhífarstökkvarinn Felix Baumgartner hætti við tilraun sína við heimsmet í fallhífarstökki sem átti að fara fram í dag. Ástæðan er sú að veðurskilyrði voru ekki hagstæð en stefnt er á að framkvæma stökkvið á næstu dögum. 9.10.2012 15:47
Verðlaunaafhendingunni lokið Verðlaunaafhendingu Lennon/Ono sjóðsins í Hörpu lauk núna um þrjúleytið. Fjölmörg ungmenni biðu fyrir utan húsið í von um að berja söngstjörnuna Lady Gaga augum, en hún var einjn af fimm handhöfum verðlaunanna að þessu sinni. Hátíðarhöldunum er þó ekki lokið því að í kvöld verður athöfn í Viðey þegar kveikt verður á friðarsúlunni. Yoko Ono bíður Íslendingum í Eyjuna, eins og áður hefur fram komið. 9.10.2012 15:16
Lady Gaga vill fleiri borgarstjóra eins og Jón Lady Gaga tók við friðarverðlaunum LennonOno í Hörpu nú fyrir stundu, en það var Yoko Ono, ekkja bítilsins John Lennon, og Jón Gnarr borgarstjóri, sem afhentu henni verðalaunin. 9.10.2012 14:52
Jón Gnarr mætti í Star Wars búningi Á meðal gesta í Hörpunni, þar sem friðarverðlaun Lennon/Ono verða afhent í dag eru Jón Gnarr borgarstjóri og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands. 9.10.2012 14:08
Umkringja Hótel Borg - vilja eiginhandaráritun frá Gaga Fjöldi fólks er nú fyrir utan Hótel Borg við Austurvöll í miðborg Reykjavíkur. Tilefnið er að reyna fá eiginhandaráritun frá söngkonunni Lady Gaga sem dvelur þar. Gaga kom hingað í morgun en klukkan tvö hefst verðlaunarafhending í Hörpu en þar mun Lady Gaga taka á móti verðlaunum frá Lennon-Ono sjóðnum. 9.10.2012 13:44
Fjöldi fólks kom saman fyrir utan Hótel Borg Mikill fjöldi ungs fólks var saman kominn fyrir framan Hótel Borg nú eftir hádegi eftir að fjölmiðlar höfðu greint frá því að hin fræga söngkona Lady Gaga væri stödd þar. Hún mun taka á móti friðarverðlaunum úr Ono/Lennon sjóðnum í Hörpu í dag. Söngkonan kom í morgun til landsins frá London, en þar hafði hún meðal annars haldið tónleika og hitt Julian Assange. 9.10.2012 13:31
Vilja vita hvort Alþingi var gert viðvart um tafir á Oracle-málinu Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ætlar að senda Sveini Arasyni, ríkisendurskoðanda bréf, síðar í dag vegna Oracle málsins svokallaða. Málið snýst um launa- og bókhaldskerfi ríkisins, en kostnaður við innleiðingu þess fór algjörlega úr böndunum. Skýrsla sem Ríkisendurskoðun var falið að vinna um verkefnið hefur verið fjölda ára í vinnslu. 9.10.2012 13:08
Ekki tekin ákvörðun um áfrýjun í máli barnaníðings Maður á fertugsaldri, sem var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að misnota stjúpdóttur sína kynferðislega ítrekað og gróflega yfir margra ára tímabil, hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort að dómnum verður áfrýjað til Hæstaréttar, að sögn verjanda hans. Áfrýjunarfrestur í málinu rennur út á mánudaginn næstkomandi. 9.10.2012 12:57
Samband komið aftur á - gætir þurft að endurræsa símann Farsímasamband er aftur komið á hjá farsímafyrirtækinu Nova en sambandið datt út í einn og hálfan klukkutíma í morgun. Í tilkynningu frá Nova er beðist afsökunar á óþægindunum sem sambandsleysið kann að hafa valdið viðskiptavinum fyrirtækisins sem og öðrum. 9.10.2012 12:03
Daði nýr formaður Vg í Reykjavík Daði Heiðrúnarson Sigmarsson var kjörinn formaður Vinstri grænna í Reykjavík í gærkvöldi. Fráfarandi formaður er Líf Magneudóttir. 9.10.2012 11:45
Bilun í farsímakerfi Nova Bilun kom upp í farsímakerfi Nova klukkan 10.30 í morgun og hefur staðið yfir í um eina klukkustund. Samkvæmt upplýsingum frá Nova hefur vandinn verið greindur og er unnið að viðgerð. 9.10.2012 11:37
Mikil öryggisgæsla í Hörpu vegna Gaga Mikil öryggisgæsla verður í Hörpu í dag þegar að Lady Gaga tekur við verðlaunum frá Lennon/Ono sjóðnum klukkan tvö. Halldór Guðmundsson, forstjóri Hörpu, segir að aukin öryggisgæsla verði í tónleikahöllinni af þessu tilefni en hann vildi ekki tjá sig meira um málið. 9.10.2012 11:07
Lady Gaga loksins komin Lady Gaga mætti til landsins í morgun. Hún dvelur á Hótel Borg á meðan hún er á landinu. Gaga er hér til þess að taka á móti verðlaunum frá Lennon/Ono sjóðnum. Athöfnin fer fram í Hörpu í dag. Hún gaf sér tíma til þess að tala við aðdáanda fyrir framan Borg og gaf honum eiginhandaráritun. Sá heitir Manny og er bandarískur. Manny fékk líka mynd af sér með henni, sem birt er með meðfylgjandi frétt. Tíu manna fylgdarlið hennar er með í för. Gaga vildi ekkert tala við fjölmiðla við komuna. 9.10.2012 10:36
Vatnstjón á íslenskum heimilum 1,5 milljarður á tveimur árum Fimm tilkynningar um vatnstjón bárust tryggingafélaginu VÍS að jafnaði á degi hverjum í fyrra samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Bætur vegna slíkra tjóna námu 760 milljónum króna á síðasta ári og 800 milljónum króna árið þar á undan. Tjón vegna vatns á íslenskum heimilum nema því samanlagt um einum og hálfum milljarði síðustu tvö ár. 9.10.2012 10:34
Klámráðstefna fyrirhuguð í næstu viku Fjallað verður um klám út frá lagalegu og samfélagslegu sjónarmiði á ráðstefnu næstkomandi þriðjudag í Háskóla Íslands samkvæmt tilkynningu sem finna má á vefsíðu innanríkisráðuneytisins. Að ráðstefnunni standa fyrrgreint ráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneytið og velferðarráðuneytið í samvinnu við lagadeild Háskóla Íslands. 9.10.2012 09:23
5% ekki með internet Fimm prósent íslenskra heimila eru ekki með internet og fjögur prósent heimila hafa ekki tölvur. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. 9.10.2012 09:14
Sum úrræði við skuldavanda heimilanna eru gálgafrestur Sum úrræða stjórnvalda til að bregðast við skuldavanda heimilanna hafa einungis virkað sem gálgafrestur og því eru margir að komast á ystu nöf núna, segir meðal annars í ályktun landsfundar Samstöðu. 9.10.2012 06:43
Ekið á gangandi vegfarenda Ekið var á gangandi vegfaranda í Álandi rétt fyrir miðnætti og var hann fluttur á slysadeild. Hann er hugsanlega mjaðmargrindarbrotinn. Lögregla gefur ekki upp nánari málsatik. 9.10.2012 06:40
Ríkisendurskoðun með 15 skýrslur í vinnslu Um þessar mundir eru 15 skýrslur í vinnslu hjá Ríkisendurskoðun. Frá ársbyrjun 2007 hafa samtals átta formlegar skýrslubeiðnir borist stofnuninni frá Alþingi. Einni var hafnað en af hinum sjö hefur öllum nema einni verið svarað með fullbúinni skýrslu. Skýrslan sem var hafnað átti að fjalla um forsendur Vaðlaheiðarganganna. 9.10.2012 06:39
Snýst ekki síst um aðildarferlið sjálft Aðildarferlið að Evrópusambandinu (ESB) nýtist Svartfellingum vel og þeir geta lært mikið af reynslu Íslands í aðildarviðræðunum við ESB. Þetta segir Aleksandar Pejovic, aðalsamningamaður Svartfjallalands í ESB-viðræðunum, í samtali við Fréttablaðið. Hann var hér á landi undir lok síðustu viku þar sem hann hitti fyrir bæði utanríkisráðherra, fulltrúa samninganefndar Íslands og fleiri sem koma að viðræðunum. 9.10.2012 00:00
Undrandi á aðkomu Eiríks að skýrslunni Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segist undrast að Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur (OR), hafi komið að vinnu við úttekt á fyrirtækinu. Eiríkur var aðstoðarmaður tveggja borgarstjóra, þeirra Þórólfs Árnasonar og Steinunnar Valdísar Óskarsdóttir. Þá var hann á lista yfir þá starfsmenn sem áttu að fá kauprétt í REI-málinu. 9.10.2012 00:00
Hefur fimmtán skýrslur í vinnslu Ríkisendurskoðun hefur um þessar mundir fimmtán skýrslur í vinnslu. Þar af eru tvær samkvæmt formlegri beiðni frá Alþingi; skýrsla um framlög til æskulýðsmála og skýrsla um innleiðingu fjárhagsupplýsingakerfis fyrir ríkið. 9.10.2012 00:00
Útigangsmaður laus úr haldi Útigangsmaður á sextugsaldri var í gær leystur úr gæsluvarðhaldi sem hann hafði setið í á Selfossi grunaður um nokkrar íkveikjur undanfarna mánuði. 9.10.2012 00:00
Ekkert nýtt af máli barnsins Rannsókn á máli fjórtán mánaða stúlkubarns sem var tekið úr barnavagni fyrir utan hjá dagmóður í Reykjanesbæ fyrir hálfri annarri viku hefur engu skilað. 9.10.2012 00:00
Grindavík lagi fjárgirðingar Kona sem er eigandi sumarhúss við Ísólfsskála og einn af eigendum Ísólfsskálalands vill að Grindavíkurbær bæti fjárgirðingar sveitarfélagsins fyrir næsta vor svo komist verði hjá meiri skemmdum á gróðri en orðnar séu. 9.10.2012 00:00
Stórlaxar í leit að tökustöðum „Ég held að við höfum heimsótt alla staði á Íslandi fyrir utan Raufarhöfn,“ segir Árni Björn Helgason hjá Saga Film. Hann sá um að lóðsa tvo frægustu tökustaðastjóra í Hollywood, þá Ilt Jones og Dow Griffith, um landið í lok september. Þeir eru með myndir eins og The Dark Knight Rises og The Bourne Legacy á ferilskránni. 9.10.2012 00:00
Metfjöldi ferðamanna á árinu Það sem af er ári hafa 536.957 erlendir ferðamenn farið frá landinu, eða 78.897 fleiri en á sama tímabili í fyrra, sem jafngildir 17,2 prósenta aukningu milli ára. Eru ferðamenn um Keflavíkurflugvöll það sem af er ári því orðnir álíka margir og allt árið 2011, segir í frétt Samtaka ferðaþjónustunnar. 9.10.2012 00:00
Keyrði á hund og ók af vettvangi Keyrt var á hund á Selvogsgötunni í Hafnarfirði í dag. Ökumaðurinn sá ekki ástæðu til að stöðva bifreiðina en ók brott af vettvangi. 8.10.2012 23:12
Styðja hækkun á gistináttaskatti Verkalýðsfélag Vestfjarða hvetur fjármála- og efnahagsráðherra til að hvika ekki frá hækkun virðisaukaskatts í ferðaiðnaði. Verkalýðsfélagið telur of mikið um svarta atvinnustarfsemi í ferðaiðnaði og telur að skattahækkunin geti verið svar við því. 8.10.2012 22:28
Hlutlægar reglur verða að gilda um fanga Almennt verða að gilda hlutlægar reglur um fanga að mati Brynjars Níelssonar, lögmanns. Hann er því efins um verklagsreglur sem fangelsismálayfirvöld eru að útfæra til að taka á föngum sem tilheyra skipulögðum glæpasamtökum og greint var frá í fréttum Stöðvar 2. Slíkir fangar eiga til að mynda ekki að fá að afplána í opnum fangelsum. 8.10.2012 21:50
Tálbeita á Reykjavíkurflugvelli? Tvennum sögum fer af því hvort það hafi í raun og veru verið Lady Gaga sem lenti á Reykjavíkurflugvelli um sjöleytið í kvöld, eða hvort um eftirhermu hafi verið að ræða. Dyggur aðdáandi beið komu hennar. Hún segist hreint ekki vera viss hvort þarna hefði rétt manneskja hafi verið á ferð. 8.10.2012 21:11
Vill ekki að öll atkvæði hafi jafnt vægi Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er ekki hlyntur því að landið verði eitt kjördæmi og vægi allra atkvæða á landinu verði jafnt. Í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer 20. október næstkomandi verður m.a. kosið um hvort rétt sé að hafa vægi allra atkvæða jafnt á landinu. 8.10.2012 21:11
Tálknfirðingar deila vegna Hjallastefnunnar Menntamálaráðuneytið varaði Tálknafjörð oft við því að gera samning við Hjallastefnuna um rekstur grunnskólans í bænum. Formaður sambands sveitarfélaga segir að bærinn sé í fullum rétti. 8.10.2012 20:36
Leita til Íslands eftir faglærðu starfsfólki Nokkuð hefur borið á því að undanförnu að sveitarstjórnarmenn eða atvinnurekendur frá Noregi horfi til Íslands í leit að faglærðu starfsfólki. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir eðlilegt að norskir aðilar leiti til landsins en þykir alvarlegt að fólk láti lokka sig burt úr landi vegna skorts á tækifærum hérlendis. 8.10.2012 20:12
Samningsdrög vegna Grímsstaða komin í hendur ótengdra aðila Drögum að samningi við Huang Nubo vegna Grímsstaða á Fjöllum var lekið til ótengdra aðila. Talsmaður Nubo segir þennan trúnaðarbrest alvarlegt mál. 8.10.2012 19:33
Lady Gaga lent Vél Lady Gaga er lent á Reykjavíkurflugvelli. Hún lenti klukkan korter yfir sjö. Töluvert umstang er í kringum Reykjavíkurflugvöll vegna komunnar en þar eru tollverðir og þá hefur fréttamaður Stöðvar 2 og Vísis orðið var við lífverði á vellinum. 8.10.2012 19:16
Yoko Ono stressuð yfir morgundeginum Listakonan Yoko Ono og ekkja bítilsins Johns Lennon segir deginum í dag fylgja mikið stress enda skipti hana öllu máli morgundagurinn heppnist vel þegar fólk víða heim heiðrar minningu Lennon. Í tilefni dagsins afhendir hún meðal annars stórstjörnunni Lady Gaga sérstök friðarverðlaun. 8.10.2012 19:12
Vilja efla heimspekikennslu á landinu Nokkrir þingmenn með Þór Saari fremstan í flokki lögðu fram þingsályktunartillögu í dag um að efla heimspekikennslu í grunnskólum og framhaldsskólum landsins. Lagt er til að á grunnskólastigi verði kenndur einn heimspekiáfangi á hverjum tveimur árum en á framhaldsskólastigi verði kenndur einn áfangi á hverju ári. 8.10.2012 19:11