Klámráðstefna fyrirhuguð í næstu viku 9. október 2012 09:23
Fjallað verður um klám út frá lagalegu og samfélagslegu sjónarmiði á ráðstefnu næstkomandi þriðjudag í Háskóla Íslands samkvæmt tilkynningu sem finna má á vefsíðu innanríkisráðuneytisins. Að ráðstefnunni standa fyrrgreint ráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneytið og velferðarráðuneytið í samvinnu við lagadeild Háskóla Íslands. Heiti ráðstefnunnar er: Klám: Lög, kynferði, (ó)menning, sjálfsmynd og nánd. Meginefni snýst um spurninguna hvert sé hlutverk löggjafans og stjórnvalda og hvernig skilgreina eigi klám. Ráðstefnan fer fram þriðjudaginn 16. október í hátíðasal HÍ í aðalbyggingunni og stendur frá kl. 13 til 17. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra setur ráðstefnuna og Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, slítur henni. Lykilfyrirlesari ráðstefnunnar er Gail Dines, prófessor við Wheelock College í Boston, en hún hefur rannsakað og ritað um klám í rúma tvo áratugi. Í fyrirlestri sínum mun Dines m.a. fjalla um hvernig fjölmiðlafræðingar, femínistar og félagsfræðingar hafa skilgreint áhrif kláms og klámfengis efnis á samfélagið annars vegar og á sjálfsmynd fólks hins vegar. Dines notast við dæmi af fjölsóttum klámsíðum og úr tónlistarmyndböndum til að greina þá ólíku mynd sem dregin er upp af konum annars vegar og körlum hins vegar og þá ímynd sem sett er fram um samskipti kynjanna. Loks fjallar Dines um hvernig bregðast eigi við klámvæðingu. Aðrir fyrirlesarar á ráðstefnunni eru Jón Þór Ólason, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, Sigríður Hjaltested, saksóknari hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, Þorbjörg Sveinsdóttir, starfsmaður hjá Barnahúsi, Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta og Guðjón H. Hauksson, kennari við Menntaskólann á Akureyri. Ráðstefnan er liður í samráðsferli ráðuneytanna þriggja um málaflokkinn og markmiðið er að efna til umræðu um hvert hlutverk stjórnvalda eigi að vera þegar kemur að klámi, með tilliti til dreifingar, notkunar og einstaklingsbundinna og samfélagslegra áhrifa. Samkvæmt almennum hegningarlögum er dreifing, innflutningur, sala, útbýting og prentun kláms refsiverð á Íslandi. Í seinni tíð hefur sjaldan verið refsað fyrir brot á þessum lögum og takmörkuð umræða hefur farið fram um hvar mörkin liggja á milli kláms og kynferðislega opinskás efnis. Frá árinu 2010 hefur innanríkisráðuneytið (áður dómsmála- og mannréttindaráðuneyti) staðið fyrir umræðu um meðferð kynferðisbrota í réttarkerfinu og efnt til ráðstefnuhalds um ýmsa þætti þessa málaflokks í samstarfi við lagadeild Háskóla Íslands. Í því ferli hefur ítrekað verið bent á að klámnotkun hafi færst í aukana og að hún hafi bein áhrif á viðhorf ungs fólks til kynlífs og kynfrelsis. Þannig sé hætta á að klám hafi áhrif á kynferðisbrot. Skráning fer fram með því að senda póst á netfangið skraning@irr.is en ráðstefnan er öllum opin.
Mest lesið Segja gengið á birgðirnar og hætta við vopnasendingar til Úkraínu Erlent Játaði fjárdrátt og endurgreiðir samkvæmt samkomulagi Innlent Vill fá að vita hvers vegna ákvarðanir stofnana eru ekki undirritaðar Innlent Þingfundi slitið klukkan hálf fimm í nótt Innlent Versta og besta nýtingin á frístundakortinu á Kjalarnesi Innlent Hommar mega enn ekki gefa blóð Innlent Ísraelsmenn hafi gengist við skilyrðum vopnahlés Erlent Matargjöfum Fjölskylduhjálpar hætt: „Stingur okkur í hjartastað“ Innlent Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ Viðskipti erlent Tekjur af bjórsölu orðnar meiri en af miðasölu Innlent Fleiri fréttir Þingheimur minnist Magnúsar Þórs Vill fá að vita hvers vegna ákvarðanir stofnana eru ekki undirritaðar Versta og besta nýtingin á frístundakortinu á Kjalarnesi Þingfundi slitið klukkan hálf fimm í nótt Umræðum haldið áfram eftir langan fund þingflokksformanna Hommar mega enn ekki gefa blóð Hvammsvirkjun bíður dóms Hæstaréttar Játaði fjárdrátt og endurgreiðir samkvæmt samkomulagi Matargjöfum Fjölskylduhjálpar hætt: „Stingur okkur í hjartastað“ Tekjur af bjórsölu orðnar meiri en af miðasölu Hryssan Hlökk er „Dekurprinsessa“ hjá Ásmundi Erni Taka þurfi ákvörðun um sameiningu vinstrisins fyrr en síðar Samfélagið fari ekki á hliðina án tíufrétta Yfir helmingur drengja í sjötta bekk lent í slagsmálum Þjónusta sérgreinalækna við börn nú án endurgjalds Mesta fylgi síðan 2009 Börn í slagsmálum, arðbær bjórsala og dekurprinsessa Beðið eftir krufningarskýrslu Stefna á að þrefalda fjölda hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ Vill tryggja bráðaviðbragð í Öræfum allan ársins hring Lágkúra og della að mati ráðherra Ræðurnar verði nógu margar til að taka veiðigjöldin af dagskrá Ræddu við sextíu manns í tengslum við hvarf Jóns Þrastar Magnús Þór lést við strandveiðar Seinkun fréttatímans seinkað Andlát í Garðabæ: Úrskurðuð í gæsluvarðhald umfram hámarkslengd Tvöfalt siðgæði EBU mikið áhyggjuefni Landris heldur áfram í Svartsengi Með barnaníðsefni í símanum þegar hann var „laminn í stöppu“ Samstöðin hafi aldrei verið í hættu Sjá meira