Vatnstjón á íslenskum heimilum 1,5 milljarður á tveimur árum 9. október 2012 10:34 Vatnstjón. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.
Fimm tilkynningar um vatnstjón bárust tryggingafélaginu VÍS að jafnaði á degi hverjum í fyrra samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Bætur vegna slíkra tjóna námu 760 milljónum króna á síðasta ári og 800 milljónum króna árið þar á undan. Tjón vegna vatns á íslenskum heimilum nema því samanlagt um einum og hálfum milljarði síðustu tvö ár. Húseigendatrygging tekur á því tjóni sem verður á húseigninni sjálfri en innbústrygging ef skemmdir verða á innanstokksmunum. Nokkur tilfelli koma upp á hverju ári hjá VÍS þar sem íbúar í fjölbýli telja ranglega að húsfélagið sé með sameiginlega húseigendatryggingu fyrir allt húsið. Þetta þarf hver og einn að kanna í sínum ranni. Og þeir sem flytja úr fjölbýli í einbýli þurfa að huga sérstaklega að því að taka þessa tryggingu. Ástæður vatnstjóna geta verið mjög margar. Mannleg mistök eins og að gleyma að skrúfa fyrir krana eiga sinn þátt í óhöppunum en oftar gefa lagnir sig vegna ytri og/eða innri tæringar eða að samskeyti gefa sig vegna óvandaðra vinnubragða. Rétt viðbrögð við leka geta skipt sköpum. Nauðsynlegt er að vita hvar á að skrúfa fyrir vatnsinntakið á lagnagrindinni svo hægt sé að stöðva lekann strax ef vatn streymir stöðugt út. Jafnframt þarf að þurrka eins hratt og auðið er. Leki getur líka ágerst hægt og rólega. Þá skiptir miklu að þekkja möguleg einkenni eins og lykt, breytingu á málningu, bæði lit hennar og áferð og taka eftir lausum flísum. Gott viðhald og eftirlit er besta forvörnin. Hreinsa þarf niðurföll, ganga vel frá affalli þvottavéla, fylgjast með samskeytum lagna í þvottahúsi, við vatnstengda ísskápa, vaska, nuddbaðkör og sturtur. Huga jafnframt að þéttingum við vaska, böð og sturtur. Hafa þvottavélar ekki í gangi þegar enginn er heima eða á nóttunni, skrúfa fyrir vatn að þvottavélum þegar þær eru ekki notkun og lofta vel húsnæðið. Nánari upplýsingar um vatnstjónavarnir er að finna á forvarnarsíðu tryggingafélagsins.
Mest lesið Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira