Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslenskur karlmaður um fimmtugt fórst í Jökulsá í Lóni Íslenskur karlmaður um fimmtugt sem féll í Jökulsá í Lóni á áttunda tímanum í gærkvöldi, fannst látinn upp úr miðnætti. 4.9.2012 06:27
Flokksþing Demókrata hefst í kvöld Flokksþing Demókrata hefst í borginni Charlotte í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum í kvöld. 4.9.2012 14:57
Enn allt á huldu vegna barnaárásar í Bökkunum Enn hefur ekkert spurst til foreldra sem hlut eiga að máli í árás sem átti að hafa átt sér stað í Bökkunum í Breiðholti um helgina. Fréttablaðið greindi frá því á mánudaginn að fjórir piltar á aldrinum 12-13 ára hefðu gengið illilega í skrokk á sex ára gömlum dreng. Rætt var við Þórarinn Engilbertsson knattspyrnuþjálfara sem sagðist hafa komið að piltunum þar sem þeir voru að misþyrma drengnum. 4.9.2012 13:41
Fær tvíhólfa hjálparhjarta Hann er fyrsti Íslendingurinn sem fær svokallað tvíhólfa hjálparhjarta sem komið hefur verið fyrir utan á líkama hans. Tækið er svo sannarlega ekki af minni gerðinni eða hljóðlaust en fyrir Ágúst Þór Benediktsson er ekki annað í boði en að ferðast með það hvert sem hann fer. Ágúst bíður nú eftir að fá nýtt hjarta en hvenær kallið kemur er enn óvitað. Hann lætur þessa erfiðleika þó ekki á sig fá eins og Sindri Sindrason komst að þegar hann hitti þennan ótrúlega mann á dögunum. 4.9.2012 10:47
Reynir á ráðherrann Sú tímabæra breyting tók gildi um mánaðamótin að nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti tók til starfa. Hin gamla skipan mála var orðin löngu úrelt. Þar áttu fornir undirstöðuatvinnuvegir, sjávarútvegur og landbúnaður, auk iðnaðarins "sín“ráðuneyti og aðrar atvinnugreinar fengu takmarkaða eða handahófskennda athygli. 4.9.2012 09:01
Hestamenn andvígir deiliskipulagi fyrir Heiðmörk Hestamenn í Fáki eru mjög andvígir drögum að nýju deiliskipulagi fyrir Heiðmörk og telja að með því séu hestamenn útilokaðir frá stórum hluta svæðisins. 4.9.2012 07:00
Tveir menn slösuðust í bílveltu Tveir menn slösuðust þegar bíll þeirra valt út af Vatnaleið á Snæfellsnesi í gærkvöldi. Þeir vour fyrst fluttir á heilsugæslustöðina í Stykkishólmi til aðhlynningar, en síðan áfram með sjúkrabíl á slysadeild Landsspítalans í Reykjavík. Fréttastofu er ekki nánar kunnugt um líðan þeirra eða hvernig slysið atvikaðist. 4.9.2012 06:53
Ósammála um hvort bókað var Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra minnist þess ekki að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hafi óskað eftir sérstakri bókun í ríkisstjórn varðandi fyrirvara sína gagnvart samningsmarkmiðum Íslendinga í viðræðum við Evrópusambandið (ESB). 4.9.2012 06:30
Fáheyrt að ráðherra segi frá fundargerðum ríkisstjórnar FRÉTTASKÝRING: Hvað þýða fyrirvarar innanríkisráðherra varðandi ESB? 4.9.2012 06:15
Sum barnatannkrem veita ónóga vernd Borið hefur á því að tannkrem sem markaðssett eru sérstaklega fyrir börn hafi minni flúorstyrk en almennt er mælt með. Veita þau því minni vernd fyrir tannskemmdum en ráðlagt er. 4.9.2012 06:00
Árásin ekki tilkynnt til lögreglu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú árás á sex ára dreng síðastliðinn föstudag. Lögreglumenn lásu um það í Fréttablaðinu í gærmorgun að þrír piltar hefðu ætlað að stela bolta af dreng í Breiðholti og ráðist á hann. Þeir hefðu sparkað í kvið hans og andlit. 4.9.2012 05:45
Ósáttir við breytingar í Heiðmörk Stjórn Fáks blæs nú til sóknar gegn fyrirhuguðum breytingum á deiliskipulagi Heiðmerkur. „Þar eru hestamenn settir til hliðar og ekki virt áratuga hefð hestamanna um notkun svæðisins til útivistar,“ segir stjórn Fáks í ákalli til félagsmanna. 4.9.2012 05:30
Farsímar meira notaðir í útlöndum Netnotkun Íslendinga á ferðalögum erlendis í gegnum farsíma hefur aukist gríðarlega á síðustu misserum. 4.9.2012 05:15
Þurfa að lágmarki 28 metra á sekúndu „Það þarf einfaldlega kolvitlaust veður,“ segir Hrafnkell Sigtryggsson, sem annast mál Red Bull Storm Chase-seglbrettakeppninnar hér á Íslandi. 4.9.2012 05:00
Ríkisendurskoðun skortir fé til að kanna styrki til flokka Styrkveitingar sjávarútvegsfyrirtækja til stjórnmálaflokka verða teknar fyrir á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis eftir þingsetningu í næstu viku. Enn á eftir að finna dagsetningu fyrir fundinn. 4.9.2012 04:30
Sigurvíma sundkappans Jóns Margeirs Jón Margeir fagnaði vel og innilega eftir að hafa tryggt sér gullið í 200 metra skriðsundi. Þetta eru fyrstu verðlaun Íslendings á Ólympíumóti síðan í Aþenu 2004. Íslenska þjóðin samfagnaði Jóni Margeiri Sverrissyni þegar hann tryggði sér gullverðlaunin í 200 metra skriðsundi í flokki hreyfihamlaðra með nýju heimsmeti á Ólympíumóti fatlaðra í London á sunnudag. 4.9.2012 03:30
Handverksbrugg í stöðugum vexti Lítil brugghús spretta fram hvert á fætur öðru hér á landi. Brugghúsin eru nú sex á landinu og starfrækja öll svonefnt handverksbrugg að meira eða minna leyti, en það felst í því að prufa eitthvað nýtt og þróa sérkenni í sínum afurðum. 3.9.2012 23:49
Leita manns sem féll í Jökulsá Björgunarsveitir voru kallaðar út í kvöld til að leita að manni sem féll í Jökulsá í Lóni fyrr í kvöld. Eins og stendur eru björgunaraðgerðir í hámarki. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á svæðinu auk leitarhunda og fjölmennra björgunarsveita frá Höfn í Hornafirði, Djúpavogi og Fáskrúðsfirði. 3.9.2012 23:24
Ótrúlegt hve hratt Google lærði íslensku Í síðasta mánuði gátu Íslendingar byrjað að tala íslensku við Google leitarvélina. Fyrrverandi starfsmaður fyrirtækisins og lektor við Háskólann í Reykjavík eru mennirnir á bakvið hugmyndina, sem þeir segja í upphafi hafa verið líkasta draumi. Í raun sé ótrúlegt hversu fljótt þeir náðu að kenna íslenskuna. 3.9.2012 22:51
Lögregluforingjar kvöddu Geir Jón Lögregluforingjar af höfuðborgarsvæðinu heimsóttu í dag samstarfsmann sinn til margra ára, Geir Jón Þórisson, til Vestmannaeyja og kvöddu hann. Þeir eyddu deginum í Eyjum, fóru í siglingu og eyddu kvöldinu á veitingastaðnum Einsa kalda á Hótel Þórshamri. 3.9.2012 21:50
Ósáttur við hvernig jafnréttislögin eru túlkuð Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sagði í Kastljósi fyrr í kvöld að hann væri ósáttur við hvernig jafnréttislögin eru túlkuð. Fram kom einnig að nú væri til skoðunar í ráðuneytinu hvort höfða bæri mál til að fá úrskurði kærunefndar jafnréttismála hnekkt. 3.9.2012 20:51
Ögmundur þarf að bregðast við úrskurðinum Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra verður að víkja úr embætti ef dómstólar komast að sömu niðurstöðu og kærunefnd Jafnréttisstofu. Þetta segir, formaður þingflokks Vinstri grænna. Lögmaður konunnar segir að enn hafi ekki verið ákveðið hvort krefjast eigi skaðabóta, en konan hafi bæði orðið fyrir fjárhagstjóni og miska. 3.9.2012 20:38
Herjólfur siglir í kvöld Stefnt er að því að Herjólfur sigli síðustu ferð í dag, þ.e. frá Eyjum kl 20:30 og frá Landeyjahöfn 22:00. 3.9.2012 20:10
Einstaka kennarar virðast gera lítið úr nemendum 15% nemenda í 5.-7. bekk í grunnskóla telja að kennarar geri oft eða stundum lítið úr einhverjum nemanda í skólastofunni. Hlutfallið hefur aukist á einu ári. Þetta kemur fram í skýrslu sem Umboðsmaður barna vann um starfsemi sína árið 2011. 3.9.2012 20:01
Tvær létust af völdum leghálskrabbameins Tvær ungar konur létust af völdum leghálskrabbameins á síðasta ári. Forstjóri Krabbameinsfélagsins segir það mikið áhyggjuefni að dregið hafi úr því að konur komi í krabbameinsleit. 3.9.2012 19:35
Óskað eftir umsögnum um frumvarp til náttúruverndarlaga Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskaði í dag eftir umsögnum um ný drög að frumvarpi til náttúruverndarlaga. Drögin byggja á Hvítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands, sem fól í sér heildarúttekt á lagaumhverfi náttúruverndar á Íslandi. Tekið hefur verið tillit til athugasemda um Hvítbókina sem bárust. 3.9.2012 19:23
Reglubundin leghálskrabbameinsleit bjargar mannslífum Kona sem greindist með leghálskrabbamein segir það bjarga lífi kvenna að fara nógu snemma í krabbameinsleit. Hún hafi verið kærulaus og dregið það enda hafi henni fundist fráleitt að jafn ung kona og hún gæti fengið slíkt krabbamein. 3.9.2012 18:54
Unglingar eyða meiri tíma með foreldrum sínum Fjöldi þeirra unglinga sem eyða miklum tíma með foreldrum sínum utan skóla hefur aukist töluvert síðustu fimmtán ár. Þetta kemur fram í nýju riti sem unnið var fyrir menntamálaráðuneytið og nefnist 3.9.2012 18:35
Yndislestur unglinga eykst Sífellt fleiri börn í 9. og 10. bekk í grunnskóla lesa sér til skemmtunar utan skólatíma. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýju riti sem unnið var fyrir menntamálaráðuneytið, Ungt fólk 2012, sem birtist í dag. 3.9.2012 18:03
Níu dæmdir á níu dögum Á níu daga tímabili dæmdi Héraðsdómur Reykjaness níu erlenda einstaklinga í þrjátíu daga fangelsi fyrir að framvísa röngu eða fölsuðu vegabréfi í Leifsstöð. Dómarnir féllu frá 21.-29. ágúst en voru birtir í dag. 3.9.2012 17:38
Brutust tvívegis inn hjá golfklúbbi Þorlákshafnar Brotist var inn í vélageymslu við hlið golfskálans í Þorlákshöfn aðfaranótt laugardags og þaðan stolið handverkfærum og fleiru. Auk þess voru skemmdir unnar á húsnæðinu. Nóttina á eftir var svo brotist inn í golfskálann sjálfann og þaðan stolið sjónvarpi, áfengi og nokkru magni af golfhönskum. 3.9.2012 16:54
Makrílviðræðurnar skiluðu engum árangri Viðræður sem fram fóru í dag í London milli Íslands, Færeyja, Noregs og Evrópusambandsins um makríl skiluðu ekki árangri. Þetta kemur fram í yfirlýsingu á vefsíðu atvinnuvegaráðuneytisins. Of mikið ber í milli í deilunni um skiptingu kvótans. 3.9.2012 16:35
Ríkiskaup vilja ógilda úrskurð kærunefndar og segja upp rammasamningi Ríkiskaup hafa ákveðið að höfða mál til ógildingar úrskurðar kærunefndar útboðsmála sem komst að þeirri niðurstöðu í ágúst að Ríkiskaup hafi brotið gegn lögum um opinber innkaup þegar tilboði Icelandair í útboði um flugsæti til og frá Íslandi í mars á síðasta ári var tekið. 3.9.2012 16:21
Mannfall í Norður-Kóreu eftir fellibyl Hátt í fimmtíu manns létust þegar fellibylurinn Bolaven gekk yfir Norður-Kóreu um helgina. Þá eru rúmlega fimmtíu sárir og margir af þeim lífshættulega slasaðir. 3.9.2012 16:05
Lögreglan leitar að gerendum og þolanda í árásarmálinu "Okkur hefur ekki tekist að finna út hverjir þetta eru sem þarna eiga hlut að máli,“ segir Gylfi Sigurðsson, lögreglumaður á lögreglustöðinni í Kópavogi um árás þriggja pilta á sex ára gamlan dreng fyrir helgi. Gylfi segir í samtali við Vísi að málið sé rannsakað af fullri alvöru. 3.9.2012 15:51
Skriðdrekinn verður endurbyggður Til stendur að byggja nýjan skriðdreka í stað þess sem brann í skemmtigarðinum við Gylfaflöt í Grafarvogi. Það voru óprúttnir aðilar sem lögðu eld að skriðdrekanum sem var þó ekki hefðbundið hertól heldur smíðaður úr keflum, símastaur og tréi. 3.9.2012 15:38
Ljósanótt fór vel fram Nýafstaðin Ljósanótt í Reykjanesbæ fór vel fram og gekk þáttur löggæslu í bænum vel að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Hátíðin hófst á fimmtudagsmorgun og náði hámarki á laugardagskvöld þegar um tuttugu þúsund gestir voru saman komnir, meðal annars til að fylgjast með flugeldasýningu. 3.9.2012 15:37
Barnavernd Reykjavíkur hefur ekki fengið tilkynningu um árásina Barnavernd Reykjavíkur hefur ekki verið látin vita af því atviki þegar piltar á aldrinu 12-13 ára réðust á sex ára gamlan dreng fyrir helgi. Drengurinn var með bolta sem þeir ásældust. Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri barnaverndar Reykjavíkur, býst þó fastlega við því að barnavernd verði gert viðvart um málið að því gefnu að gerendurnir séu með lögheimili í Reykjavík. 3.9.2012 14:58
Dæmi um að börn þori ekki út vegna óvæginnar umfjöllunar á netinu Umboðsmanni barna bárust margar ábendingar um umfjöllun fjölmiðla og birtingu mynda og upplýsinga um börn og hagi þeirra að því er fram kemur í ársskýrslu Umboðsmanns barna sem birtist í dag. Umboðsmaður telur að fjölmiðlar, og stundum foreldrar, gangi of langt með umfjöllun um einkamálefni barna sem ættu í raun að njóta friðhelgi. 3.9.2012 14:56
Börn oft send til ofbeldisfulls foreldris - vilja betri lög Umboðsmaður barna telur óumdeilt að ofbeldi ætti að hafa mun meira vægi þegar teknar eru afdrifaríkar ákvarðanir um aðstæður barna fyrir dómsstólum. Í ársskýrslu embættisins fyrir síðasta ár kemur meðal annars fram að dregið sé í efa að börnum sé tryggð fullnægjandi vernd gegn ofbeldi í íslenskri réttarframkvæmd. 3.9.2012 14:29
Sífellt fleiri konur greinast með leghálskrabbamein Sífellt fleiri konur greinast með leghálskrabbamein á alvarlegra stigi en áður. Þannig þurfa tvöfalt fleiri konur að fara í geisla- eða lyfjameðferð vegna krabbameinsins nú en fyrir áratug. Yfirlæknir segir ástæðuna þá að færri konur mæti reglulega í krabbameinsleit. 3.9.2012 13:16
Drengurinn ekki beinbrotinn heldur alvarlega tognaður Drengurinn sem ráðist var á í Bökkunum í Breiðholti um helgina er ekki jafn illa slasaður og í fyrstu var talið. Fjórir piltar á aldrinum 12 - 13 ára réðust á hann á fótboltavelli þar sem þeir ætluðu að taka af honum fótbolta. Fréttablaðið greindi frá því í morgun að drengurinn hefði beinbrotnað í árásinni. Í ljós hefur komið að drengurinn tognaði alvarlega á hendi og fékk að auki miklar blóðnasir. 3.9.2012 13:01
Þór Saari segist hafa verið skilinn útundan Þór Saari þingmaður Hreyfingarinnar segir formann atvinnuveganefndar Alþingis hafa skilið sig útundan í störfum trúnaðarmannahóps um fiskveiðifrumvarpið með því að boða hann ekki á fundi hópsins í ágúst. Formaður nefndarinnar segir Þór Saari hafa gefið í skyn að hann vildi ekki mæta á fundina. 3.9.2012 12:18
Wessman og félagar náðu öðru sætinu í hálfum Járnkarli Lið þeirra Steins Jóhannssonar, Róberts Wessmans og Friðleifs Friðleifssonar náði 2. sæti af 41 í liðakeppni í hálfum Járnkarli í Þríþrautarkeppninni í Köln í gær að því er fram kemur í tilkynningu. 3.9.2012 10:36
Of Monsters and Men beint í þriðja sæti breska vinsældalistans Platan My Head is an Animal með íslensku hljómsveitinni Of Monsters and Men fór beint í þriðja sæti breska vinsældalistans á BBC en listinn var gerðir opinber í gærkvöldi. 3.9.2012 07:52