Ríkisendurskoðun skortir fé til að kanna styrki til flokka 4. september 2012 04:30 Sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi gefa töluverða peninga til stjórnmálaflokka á Íslandi. Margrét Tryggvadóttir vill láta athuga hvort lög um styrkveitingar hafi verið brotin. fréttablaðið/gva
Styrkveitingar sjávarútvegsfyrirtækja til stjórnmálaflokka verða teknar fyrir á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis eftir þingsetningu í næstu viku. Enn á eftir að finna dagsetningu fyrir fundinn. Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, hefur óskað eftir því að nefndin verði kölluð saman til að fjalla um meint brot Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Framsóknarflokks á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka. Málið snýst um styrki sem flokkarnir þáðu árið 2010 frá Samherja hf., Síldarvinnslunni og Gjögri hf. Samherji átti þá 45 prósenta hlut í Síldarvinnslunni og Gjögur 34 prósenta hlut. Stjórnmálaflokkum er heimilt að þiggja styrki sem nema að hámarki 400 þúsund krónum. Séu eignatengsl milli fyrirtækja mega þau samanlagt aðeins veita þessar 400 þúsund krónur. Sjálfstæðisflokkurinn þáði 900 þúsund krónur árið 2010 frá þessum þremur fyrirtækjum. Árið áður var hámarksstyrkveiting 300 þúsund krónur. Þá gáfu fyrirtækin þrjú 300 þúsund krónur hvert til Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokkurinn þáði 550 þúsund krónur frá fyrirtækjunum og Samfylkingin 600 þúsund. Vinstri grænir þáðu aðeins fimm þúsund krónur frá sjávarútvegsfyrirtækjum árið 2009 og fimmtíu þúsund árið 2010. „Það er fyrst og fremst starfsmanna stjórnmálaflokkanna að tryggja að ekki sé verið að brjóta lög,“ segir Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, spurður hver þurfi að axla ábyrgð á styrkþágu umfram hámarkið. Fjárskortur hamli því hins vegar að hægt sé að vinna verkið eins vel og ætlast sé til hjá Ríkisendurskoðun. „Við reynum að sinna okkar eftirliti eins og við höfum tök á því við höfum aldrei fengið krónu til að sinna þessu verkefni,“ bendir Sveinn á. Ríkisendurskoðandi hefur ekki fengið boð um að koma fyrir eftirlitsnefndina en Sveinn býst við því á næstu dögum.birgirh@frettabladid.is
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Sjá meira