Fleiri fréttir

Breiðholtshrottarnir játuðu sök

Tveir karlmenn sem réðust inn á heimili aldraðs karlmanns í Breiðholti fyrr í sumar játuðu sakargiftir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Mennirnir eru ákærðir fyrir að svipta manninn frelsi sínu í rúmlega sex klukkustundir og neyða hann til að millifæra pening af bankareikningi sínum yfir á þeirra bankareikning. Þá hótuðu þeir honum með skotvopni en fallið var frá ákæru hvað það varðar hjá öðrum manninum.

Laugalandsskógur verður opinn skógur

Frú Vigdís Finnbogadóttir mun opna Laugalandsskóg sem "Opin skóg“ sunnudaginn 26. ágúst næstkomandi. Markmið verkefnisins er að opna skógræktarsvæði við alfaraleiðir, sem eru í umsjón skógræktarfélaga.

Nýja brúin fær vegtengingu á næsta ári

Vegagerðin hefur boðið út lagningu vega að nýrri brú yfir Reykjadalsá í Reykholtsdal í Borgarfirði og samkvæmt útboðsauglýsingu eiga þeir að vera tilbúnir 15. júlí næsta sumar. Nýja brúin, sem lokið var við í vor, mun því standa ónotuð án vegtengingar í heilt ár áður en vegfarendur fá að aka yfir hana.

Ökumaður í vímu með þýfi

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í fyrradag ökumann sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann heimilaði leit í bifreið sinni. Í farangurgeymslu hennar fundust fimm verkfæratöskur og tvö iðnaðarvesti.

Segja meirihluta borgarstjórnar skattleggja að óþörfu

Í tillögu um endurskoðun útsvarstekna sem lögð var fram á borgarráðsfundi í dag kemur í ljós að enn og aftur innheimta borgaryfirvöld meiri skatta en gert er ráð fyrir í áætlun. Þetta kemur meðal annars fram i tilkynningu frá borgarstjórnarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins.

"Fólk brosir bara að þessu öllu"

"Það þarf ekkert að halda víni frá þessu fólki. Þetta er fullorðið fólk sem kann sínum fótum forráð." Þetta segir Sigurður Einarsson, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara.

Hjálmlaus, í símanum á ljóslausri vespu

Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gær afskipti af ungri stúlku á rafmagnsvespu, sem ekki fór alveg að þeim reglum sem gilda um akstur slíkra farartækja.

Hjólbarði undan rútu skall á bíl

Það óhapp varð á Reykjanesbrautinni í gær að hjólbarði losnaði undan rútu, sem ekið var áleiðis til Reykjavíkur. Hjólbarðinn kastaðist yfir veginn og lenti á afturhorni nálægrar bifreiðar samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum. Engin slys urðu á fólki vegna þessa atviks.

Henti sígarettu og velti bíl

Ökumaður á þrítugsaldri missti stjórn á bifreið sinni í fyrradag, þegar hann var að henda sígarettu út um þaklúgu bílsins með þeim afleiðingum að bíllinn valt tvo hringi og stórskemmdist. Sauma þurfti á annan tug spora í höfuð ökumannsins og allmörg í hægri hendi hans.

Hvað skal gera ef barnið kemur að innbroti á heimili sínu

Sjóvá hefur gefið út leiðbeiningar fyrir foreldra og börn varðandi atriði eins og þjófnað, öryggi fatnaðar og fleira. Það er Fjóla Guðjónsdóttir, forstöðumaður forvarna hjá Sjóvá sem bendir á nokkur góð ráð nú í skólabyrjun.

Bændur vilja ferðamenn í réttir

Bændur eiga sumstaðar í erfiðleikum að manna gangnamannaflokka til að fara á fjall í haust til smalamennsku. sú hugmynd hefur kviknað að virkja jafnvel erlenda ferðamenn til aðstoðar, í formi ævintýraferða.

Væntingavísitalan ekki hærri síðan fyrir hrun

Væntingavísitala Capacent Gallups mælist nú rösklega 84 stig og hefur hækkað fjóra mánuði í röð, en hún mælir meðal annars væntingar fólks til atvinnu- og efnahagslífs. Flestar undirvísitölur væntingavísitölunnar hækka frá fyrri mánuði og hefur hún ekki mælst hærri síðan í maí árið 2008, eða fyrir hrun.

Púuðu á skólameistarann - busun lögð af á Suðurlandi

Eldri nemendur fjölbrautaskóla Suðurland púuðu á skólameistara sinn, Olgu Lísu Garðarsdóttur, þegar hún setti formlega skólastarf í morgun. Hún naut aftur á móti stuðnings yngri nemanda sem klöppuðu fyrir ræðu hennar.

Lilja vill ekki verða formaður Samstöðu

Lilja Mósesdóttir, stofnandi Samstöðu - flokks lýðræðis og velferðar, ætlar ekki að gefa kost á sér í embætti formanns flokksins á landsfundi flokksins í byrjun október. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hún sendi fjölmiðlum í morgun. Hún segist ætla að axla þannig ábyrgð á fylgistapi flokksins undanfarna mánuði. Hún verður þó áfram félagsmaður í Samstöðu. Fram að næstu alþingiskosningum ætlar hún að einbeita sér að störfum sínum á þingi sem hún segist hafa leitast við að nýta fagþekkingu sína til að bæta stöðu almennings á Íslandi í kjölfar efnahagshrunsins. Yfirlýsinguna má sjá í heild sinni hér fyrir neðana.

Réttarhöldin kostað 3,3 milljarða

Kostnaðurinn vegna réttarhaldanna yfir hryðjuverkamanninum Anders Behring Breivik í Osló síðustu vikur er kominn upp í 165 milljónir norskra króna, eða um 3,3 milljarða íslenskra króna. Fjallað er um málið á vef Aftenposten í morgun.

Búist við að 600 þúsund fjár verði slátrað í haust

Bændur eru nú farnir að undirbúa göngur og smalamennsku og verða fyrstu fjárréttir annan september. Rösklega 580 þúsund fjár var slátrað í fyrrahaust og er búist við að sú tala hækki upp í 600 þúsund fjár í haust, meðal annars vegna þess að einhverjir bændur munu fækka fé sínu í haust umfram áætlanir, að því er fram kemur í Bændablaðinu í dag.

Hækkuðu verð á bensíni í gær

Íslensku olíufélögin hækkuðu öll verð á bensíni og Dísilolíu í gær um nokkrar krónur og er algengt bensínverð nú röskar 252 krónur fyrir lítrann og Dílillítrinn kostar hátt í 255 krónur. Olíufélögin bera við hækkandi verði á heimsmarkaði, en benda má á að krónan hefur verið að styrkjast gagnvart bandaríkjadollar að undanförnu og öll olíuviðskipti eru gerð í dollurum.

Námsefni tengt kjarnorkuárásum

Um þrjú hundruð tíundu bekkingar hafa verið bókaðir á Ljósmynda- og fræðslusýningu um kjarnorkuárásirnar á Hírósíma og Nagasaki sem stendur yfir í Borgarbókasafninu við Tryggvagötu til 13. september. Nýr námsvefur er til í tengslum við hana.

Heilsuefling verðlaunuð

Verzlunarskóli Íslands skaraði fram úr í heilsueflingu á síðasta skólaári að mati Embættis landlæknis.

Sýður gulrætur í hver á Flúðum

„Þetta hefur verið ótrúlega spennandi,“ segir hinn heimsþekkti norski sjónvarpskokkur Andreas Viestad sem er staddur hér á landi við upptökur á tíundu þáttaröð af þætti sínum New Scandinavian Cooking.

Rúta skemmdist við Herjólf

Rúta stórskemmdist í Landeyjahöfn á þriðjudag þegar henni var ekið upp undir landgöngubrú Herjólfs. Ekki er talið að brúin hafi skemmst.

Segja brettagarð og breytt bílastæði þrengja að Þrótti

Verið er að ljúka framkvæmdum á brettagarði í Laugardal, á sama stað og Þróttur hafði hugsað sér íþróttahús. Einnig á að lagfæra bílastæðin við gervigrasvöllinn en þá missa Þróttur og Ármann um 50 til 60 stæði.

Féll næstum í gildru alþjóðlegra þrjóta

Auglýsing á íslensku vefsölutorgi rataði fyrir augu erlendra glæpamanna sem reyndu að ræna fé af Einari Skúlasyni, notanda á sölutorginu. Glæpamaðurinn þóttist vera norskur en vildi að Einar borgaði flutningskostnað til Barcelona.

Enn óvissa um Jóhönnu

Samfylkingin heldur flokksstjórnarfund um helgina og Vinstri græn flokksráðsfund. Undirbúningur kosninga verður í forgrunni og rætt verður um hvernig valið verður á lista. ESB-mál rædd, en ekki búist við samþykktum. Ekki er talið að Jóhanna Sigurðardóttir gefi neitt út um framtíð sína.

Aðeins að birta yfir lundanum

Vísbendingar eru um að nokkuð sé að birta yfir lundastofninum í Vestmannaeyjum. Pysjan er ekki að drepast í stórum stíl eins og undangengin ár og þær sem hafa komist upp virðast sprækar.

Axli pólitíska ábyrgð á sjónvarpsgjörningi

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks segir framsóknarmenn, sem hafa meirihluta í bæjarstjórn Hornafjarðar, þurfa að skýra hvernig þeir ætli að axla pólitíska ábyrgð á því að útgjöld sveitarfélagsins í tilefni sjónvarpsþátta margfölduðust.

Nýir foreldrar fá Svanspoka

Umhverfisstofnun býður nýbökuðum foreldrum að koma og sækja svokallaða Svanspoka með bæklingi sem fjallar um umhverfismerkið Svaninn og mikilvægi þess að velja umhverfisvottað fyrir ungbörn. Í pokanum eru einnig vöruprufur.

2.500 króna verðmunur á sögubók

Nýjar skólabækur fyrir framhaldsskóla eru ódýrastar í ritfangaversluninni A4 - Office 1, samkvæmt nýrri könnun ASÍ. Eymundsson í Kringlunni er oftast með hæst verð á nýjum bókum.

Lýsir eftir blárri bjöllu

„Ég er óskaplega óminnugur á smáhluti, föt og annað slíkt,“ segir Ómar Ragnarsson þegar hann er spurður út í hver hafi verið hans bestu og verstu kaup. Hann kveðst hins vegar minntur daglega á bestu bílakaupin. „Upphaflega keypti ég bílinn á 60 þúsund krónur norður á Akureyri og er búinn að keyra hann síðan. Bílinn hefur þjónað mér óskaplega vel, enda sá ódýrasti sem hægt er að hugsa sér í rekstri. Hann er að verða fornbíll og þar að auki einn af allra minnstu bílum í umferð, Daihatsu Cuore 1988 módel.“ Seljandann segir Ómar að hafi verið sá næstbesti sem hægt sé að hugsa sér, gömul kona á Akureyri. „En best væri þá gömul kona á Fljótsdalshéraði því þar er enginn sjór nálægt.“ Bílinn segir Ómar að hafi verið svo lítið ekinn og í svo góðu standi að öll þessi ár hafi hann flogið athugasemdalaust í gegn um skoðun. „Ég sef í honum, hann er vinnustaður, gististaður og farartæki búinn að vera í þessi fimm ár. Ég held að kalla megi þetta vel heppnaða naumhyggju í bifreiðum í efsta stigi.“

Kostnaðarsamt að taka með sér aukaferðatösku

Reglur flugfélaga um innritaðan farangur og handfarangur eru mismunandi. Mörg rukka fast gjald fyrir yfirvigt en önnur fyrir hvert umfram kíló. Gjöld fyrir aukaferðatösku nema þúsundum króna. Það getur þess vegna reynst dýrkeypt að hafa of mikinn farangur.

Frönsk kona villtist af leið

Frönsk kona villtist af leið við Hvannagil í Lóni í dag. Björgunarsveitir frá Höfn og Djúpavogi voru kallaðar til leitarinnar sem og leitarhundateymi af Austurlandi. Konan fannst síðan klukkan hálf tíu í kvöld.

Berst gegn einmanaleika

Sunna Rós Baxter er 25 ára gömul einstæð móðir. Hún berst nú gegn einmanaleika í íslensku samfélagi og hefur því stofnað samtökin Bjarta ljósið en þau eru hugsuð fyrir fólk sem hefur einangrast í samfélaginu.

Skólavörur nemenda í fyrsta bekk kosta hátt í átta þúsund krónur

Skólavörur fyrir nemanda í fyrsta bekk í grunnskóla í Reykjavík kosta hátt í átta þúsund krónur. Kaupmaður í ritfangaversluninni Úlfarsfell, sem selt hefur tilbúna skólapakka til grunnskólanema í fimmtán ár, segir verðið hafi hækkað eftir hrun en innihald pakkanna breytist lítið.

Fagna hertari löggjöf um smálán

Meðalaldur þeirra sem taka smálán eru tæp þrjátíu og tvö ár, og meðallánsfjárhæðin rúmar sautján þúsund krónur. Þetta kemur fram í gögnum sem samtök smálánafyrirtækja hafa tekið saman.

Hleypt af byssu í Garðabæ

Karlmaður var handtekinn í Garðabæ á fimmta tímanum í dag. Hafði hann hleypt af skotvopni í íbúðarhúsi við Sunnuflöt. Maðurinn er nú í haldi lögreglu en um þrjátíu lögreglumenn tóku þátt í aðgerðinni. Loka þurfti hverfinu í stuttan tíma á meðan maðurinn var handsamaður. Mikill viðbúnaður var vegna málsins og var sérsveit lögreglunnar kölluð út.

Gengi krónunnar mun ekki falla að mati Seðlabankans

Seðlabankastjóri óttast ekki að gengi krónunnar muni hrynja þegar líða fer á haustið. Aðalhagfræðingur Seðlabankans segir allar greiningar benda til þess að gengið sé of lágt skráð.

Hryllingsmyndameistari heiðursgestur á RIFF

Ítalski kvikmyndagerðarmaðurinn Dario Argento verður heiðursgestur RIFF árið 2012. Kvikmyndahátíðin hefst 27. september næstkomandi og verður úrval mynda Argentos á dagskrá. Þá mun hann einnig ávarpa gesti hátíðarinnar.

A4 - Office 1 oftast með lægsta verðið

A4 - Office 1 var oftast með lægsta verðið á nýjum og notuðum bókum í verðkönnun ASÍ á skólabókum síðasta þriðjudag. Könnunin tók til 33 nýrra titla og var A4 - Office 1 með ódýrasta verðið á 15 titlum. Forlagið á Fiskislóð var í öðru sæti. Eymundsson var aftur á móti oftast með hæsta verðið.

Stundum er eins og tilgangurinn sé að skemma sem allra mest

Miklar skemmdir voru unnar á tveimur bifreiðum í Heiðmörk við Furulund í gærkvöld. Eigendur þeirra höfðu brugðið sér í hjólreiðatúr og skilið bílana eftir á meðan. Ófögur sjón mætti þeim þegar þeir komu til baka. Flestar rúður höfðu verið brotnar og greipar látnar sópa um bílana, m.a. hvarf fartölva úr öðrum þeirra.

Sjá næstu 50 fréttir