Segja meirihluta borgarstjórnar skattleggja að óþörfu 23. ágúst 2012 13:01
Í tillögu um endurskoðun útsvarstekna sem lögð var fram á borgarráðsfundi í dag kemur í ljós að enn og aftur innheimta borgaryfirvöld meiri skatta en gert er ráð fyrir í áætlun. Þetta kemur meðal annars fram i tilkynningu frá borgarstjórnarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Þar segir að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi ítrekað bent á það að útsvar í Reykjavík þurfi ekki að vera í hámarki og að svigrúm sé til skattalækkana. Annað árið í röð kemur í ljós að skatttekjur í fjárhagsáætlun eru langt umfram það sem þörf er á í rekstri borgarinnar eða um 2 milljarðar, að því er greint er frá í tilkynningu sjálfstæðismanna. „Það er algerlega óverjandi að á sama tíma og almenningur hefur mátt þola verulega kaupmáttarrýrnun og endalausar hækkanir af hálfu hins opinbera, skuli borgarstjórn innheimta meiri skatta af borgarbúum en þörf er á. Hófleg skattheimta og aðhald í rekstri nægir til að tryggja öfluga grunnþjónustu í borginni. Þannig var haldið á málum í Reykjavík. Þær forsendur eru enn til staðar og meirihlutinn í Reykjavík á að nýta svigrúmið sem til staðar er í þágu borgarbúa og draga til baka skattahækkanir síðustu tveggja ára." Sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á fundinum í dag. Tillagan sem lögð var fram á fundinum verður tekin til endanlegrar afgreiðslu á borgarstjórnarfundi þann 4. september en borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram eftirfarandi bókun á fundinum í dag:„Enn og aftur er upplýst að áform í fjárhagsáætlun standast ekki . Nú kemur, með svipuðum hætti og í síðustu fjárhagsáætlun, í ljós umtalsvert vanmat skatttekna sem staðfestir að álögur á Reykvíkinga eru umfram þörf. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa ítrekað bent á þessa staðreynd, gagnrýnt hækkanir meirihlutans og flutt tillögur um að stilla skattheimtu í hóf. Þessi breyting á fjárhagsáætlun gefur tilefni til að endurtaka það."
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Sjá meira