Námsefni tengt kjarnorkuárásum 23. ágúst 2012 15:00
Um þrjú hundruð tíundu bekkingar hafa verið bókaðir á Ljósmynda- og fræðslusýningu um kjarnorkuárásirnar á Hírósíma og Nagasaki sem stendur yfir í Borgarbókasafninu við Tryggvagötu til 13. september. Nýr námsvefur er til í tengslum við hana. "Þegar við vorum að undirbúa sýninguna um kjarnorkuárásirnar á Hírósíma og Nagasaki og afleiðingar þeirra kom upp sú hugmynd að fá grunnskólakennara til að útbúa gott námsefni fyrir nemendur í 10. bekk grunnskóla í tengslum við sýninguna. Það þótti ekki ráðlegt að fara neðar í aldri, það eru svo alvarleg atriði sem þar koma fram," segir Margrét Sigrún Björnsdóttir, umsjónarmaður sýningarinnar í Borgarbókasafninu við Tryggvagötu. Hún kveðst hafa frétt af flinkum kennara í námsefnisgerð. Sá heiti Halldór Björgvin Ívarsson og hafi kennt við Vörðuskóla í Mosfellsbæ. "Ég hélt að hann mundi koma með fjögur eða fimm A4-blöð, nei, nei, þá bara bjó hann til heilan kennsluvef í sumar, á milli þess sem hann reri á sjó frá Djúpavogi. Vefurinn er mjög notendavænn og tengist vel námsmarkmiðum aðalnámsskrár í samfélagsfræði, þjóðfélagsfræði, náttúrufræði og umhverfismennt. Markmið kennsluefnisins er að það nýtist til að undirbúa nemendur fyrir sýninguna og að gefa þeim tækifæri til að vinna áfram með efnið þegar komið er í kennslustofuna. Við byrjuðum að kynna skólum þessa nýjung í síðustu viku og höfum fengið mjög góðar undirtektir, nú þegar hafa hátt í þrjú hundruð grunnskólanemendur verið bókaðir. "Sýningin í Borgarbókasafninu við Tryggvagötu kom hingað á vegum The Nagasaki National Peace Memorial Hall for the Atomic Bomb. Hún samanstendur af fimmtíu veggspjöldum með ljós myndum og upplýsandi texta um það sem gerðist í Hírósíma og Nagasaki 1945, um sprengjurnar og um áhrifin á fólk og mannvirki. Einnig um friðarviðleitni og takmörkun á útbreiðslu kjarnorkuvopna. "Aðaláherslan er á kjarnorkuvopnin og hversu skelfileg þau geta verið. Í því felst sú hvatning til þjóða heims að eyða þessum vopnum. Það er tilgangurinn," lýsir Margrét. "Ég reyndi að gera efnið áhugavert," segir Halldór, höfundur námsefnisins sem er á sjó með föður sínum utan við Djúpavog þegar í hann næst. Hann færir sig út að borðstokknum til að ná betra sambandi. Þegar honum er hrósað fyrir vefinn segir hann: "Ef ég tek eitthvað að mér þá vil ég gera það almennilega, það er miklu skemmtilegra þannig. Þetta er efni sem ég þekki og hef kennt í unglingadeild og er mest samfélagsmiðað. Það er mikið unnið ef nemendur fá áhuga á því sem þeir eru að fást við. Ég man það frá því ég var í skóla að ég var mun viljugri til námsins ef ég hafði gaman af viðfangsefnunum. Það hefur ekkert breyst. Líka reyndi ég að hafa verkefnin fjölbreytt þannig að hver og einn gæti fundið þar eitthvað við sitt hæfi og að kennararnir hefðu einhverju úr að velja. Ég held þetta sé aðgengilegt og skýri sig að miklu leyti sjálft." Sýningin verður í Háskóla Íslands frá 14. september til 9. október og á Akureyri frá 13. til 29. október. Slóðin á vef hennar er www.hirosimanagasaki.is og þar er flipi sem nefnist Fræðsla fyrir skóla. Nauðsynlegt er að bóka tíma ef um bekkjarheimsókn er að ræða.gun@frettabladid.is
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Sjá meira