Kostnaðarsamt að taka með sér aukaferðatösku 23. ágúst 2012 04:00 Reglur flugfélaga um farangur eru mismunandi. fréttablaðið/pjetur
Reglur flugfélaga um innritaðan farangur og handfarangur eru mismunandi. Mörg rukka fast gjald fyrir yfirvigt en önnur fyrir hvert umfram kíló. Gjöld fyrir aukaferðatösku nema þúsundum króna. Það getur þess vegna reynst dýrkeypt að hafa of mikinn farangur. Farþegar Icelandair geta nú haft tíu kíló í handfarangri í stað sex kílóa áður. Gjald er nú innheimt fyrir aukaferðatösku. Ekki er greitt fyrir hvert umfram kíló í innrituðum farangri eins og áður. Greiða á hins vegar ákveðið gjald eftir flugsvæði ef taska er þyngri en 23 kg. Yfirvigtargjaldið getur numið allt að 14.800 krónum. Þetta er meðal þess sem breyst hefur með nýjum reglum um farseðla sem gefnir hafa verið út frá 1. apríl síðastliðnum. Samkvæmt nýjum reglunum um innritaðan farangur þarf að greiða 5.700 til 16.000 krónur eftir flugsvæði fyrir aukatösku sem er eitt til 23 kíló. Fast yfirvigtargjald er 4.900 til 14.800 krónur eftir flugsvæði. Á vefsíðu Iceland Express segir að hver farþegi megi sér að kostnaðarlausu innrita eina tösku með að hámarki 20 kílóum af farangri. Gjaldið er 7.500 krónur fyrir umframþyngd tösku. Hægt er að kaupa heimild fyrir aukatösku hjá Iceland Express. Sé heimildin bókuð um leið og flugið býðst allt að 20 prósenta afsláttur. Verð fyrir eina tösku er 6.900 krónur með 20 prósenta afslætti samkvæmt upplýsingum á vefsíðunni. Heildarhandfarangur má ekki vera umfram tíu kíló. Hjá Wow Air er hámarksþyngd handfarangurs átta kíló. Farangursheimild fyrir ferðatösku án handfarangurs er ekki innifalin í fargjaldi. Ef farangursheimild er pöntuð um leið og flugmiði er bókaður er gjaldið 2.900 krónur fyrir eina tösku en fyrir tvær er gjaldið 5.900. Ef greitt er við innritun er gjaldið fyrir eina tösku 4.500 krónur en 9.000 krónur fyrir tvær töskur. Miðað er við að taska sé tuttugu kíló. Hvert umfram kíló kostar 1.400 krónur hjá Wow Air. ibs@frettabladid.is
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Sjá meira