Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jón Gnarr: Stærsta vandamál borgarinnar eru bílar "Ég tel að stærsta vandamál Reykjavíkur og þá sérstaklega miðbæjarins, sé bílaumferð,“ sagði Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkur í viðtali við Sigurjón M. Egilsson í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. 19.8.2012 11:50
Uppblásna íþróttahúsið vígt í dag Fyrsta uppblásna íþróttahúsið sem hefur verið reist, hér á landi, eða blásið upp öllu heldur, verður vígt í Hveragerði klukkan þrjú í dag. Húsið er 5.100 fermetrar og er fjölnota íþróttahús. Íþróttahúsið kostaði 300 milljónir. 19.8.2012 10:37
Braust inn og réðst á húsráðanda Brotist var inn í hús í Reykjanesbæ í nótt. Karlmaður braut glugga á útihurð og komst þannig inn. Húsráðandi vaknaði við lætin og mætti manninum í anddyrinu. Sá sem braust inn réðst þá á húsráðandann og urðu nokkur átök inn í húsinu. Húsráðandanum tókst svo að stökkva manninum á flótta. Lögreglan hefur ekki fundið manninn og er hans enn leitað. Ekki er vitað hvað honum gekk til með athæfi sínu. 19.8.2012 10:01
Mikið um líkamsárásir eftir Menningarnótt Alls voru níu líkamsárásir tilkynntar til lögreglunnar í nótt. Allar árásirnar áttu sér stað í miðborg Reykjavíkur eftir Menningarhátíðina í gærkvöldi. Einn ofbeldismaður var vistaður í fangageymslu eftir líkamsárás á gatnamótum Laugavegs og Klapparstígs. 19.8.2012 09:51
"Veðrið er svo gott og það eru bara allir í góðu skapi“ "Þetta er alveg frábært,“ segir Guðmundur Birgir Halldórsson, viðburðarstjórnandi Menningarnætur um hátíðina sem hefur heppnast einstaklega vel. Um fimmtíu þúsund manns voru í miðbænum síðdegis og ekki óvarlega áætlað að fjöldinn nái hundrað þúsund þegar hátíðin nær hápunkti með flugeldasýningu klukkan ellefu í kvöld. 18.8.2012 22:00
Byrjendalæsið er skemmtilegra fyrir kennara og nemendur Ný aðferð í lestrarkennslu ungra barna hefur smám saman verið að skjóta rótum í menntakerfi landsins. Kennarar segja að aðferðin hafi góð áhrif á lesskilning ungra barna. 18.8.2012 21:00
Leitað að franskri ferðakonu sem féll tíu metra við Geitafell Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni á Höfn til þess að aðstoða við leit að franskri ferðakonu sem var á gangi á Hoffellsjökli en hún virðist hafa hrapaði um tíu metra við Geitafell og meiðst nokkuð á höfði. 18.8.2012 19:01
Skjálftahrina í Krísuvík Skjálftahrina hefur verið á Krísuvíkursvæðinu. Um er að ræða smáa skjálfta en þeir eru allir undir einum á richter samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.Skjálftarnir eru á annan tug og byrjaði hrinan skömmu fyrir fjögur í dag. Skjálftavirkni á svæðinu er mikil og skjálftahrinan nú þykir ekki óeðlileg. Sérfræðingar á veðurstofunni munu hinsvegar fylgjast vel með framgangi mála. 18.8.2012 18:30
Borgartréð 112 ára gamall Gljávíðir Jón Gnarr, borgarstjóri, útnefndi 112 ára gamlan Gljávíði sem borgartré við athöfn í garði Hressingarskálans við Austurstræti í dag. Garðurinn við Hressingarskálann er einn þekktasti einkagarður frá lokum nítjándu aldar og stóð við hús Árna Thorsteinssonar landfógeta í Reykjavík frá 1862. Garðurinn var nýttur til skrauts og nokkurra nytja og var jafnan kallaður Landfógetagarðurinn. 18.8.2012 17:50
Um fimmtíu þúsund manns í miðbænum Um fimmtíu þúsund manns eru komnir niður í miðbæ Reykjavíkur að sögn lögreglumannsins Ágústs Svanssonar, sem sér meðal annars um samhæfingu aðgerða lögreglu og björgunarsveita. 18.8.2012 17:11
Íslandsmót í hrútaþuklun Í dag hefst Íslandsmót í hrútaþuklun á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum. Keppt er bæði í flokki reyndra þuklara og þeirra sem eru óvanir. Með hrútaþukli reyna menn að meta gæði hrúta með hendurnar einar að vopni. 18.8.2012 17:00
Lögreglan mun hafa sérstakt eftirlit með unglingadrykkju í kvöld Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu minnir á að lögreglumenn munum hafa sérstakt eftirlit með unglingadrykkju á Menningarnótt. 18.8.2012 16:28
Tíu og tólf ára drengir kveiktu óvart í Fellaskóla Tveir tíu og tólf ára gamlir drengir kveiktu í Fellaskóla á áttunda tímanum í gærkvöldi. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út þegar tilkynning barst um eldsvoðann en það tók slökkviliðsmenn stuttan tíma að ráða niðurlögum eldsins. 18.8.2012 16:10
Titringur í tösku reyndist vera rafmagnsrakvél Í morgun óskaði stjórnstöð öryggisgæslu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eftir lögreglu vegna titrings í tösku. 18.8.2012 15:44
Mikil hætta af lögbrjótum í miðbænum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill beina því til fólk að nýta sér strætó í dag en ókeypis er í vagnana í dag. Lögreglan brýnir einnig fyrir ökumönnum að virða lokanir á götum, en brögð eru af því að fólk hafi ekið gegn lokunum og þannig skapað mikla hættu. 18.8.2012 15:41
Tveir hlauparar fluttir á sjúkrahús Það er töluverður reytingur hjá slökkviliðnu á höfuðborgarsvæðinu en samkvæmt varðstjóra þá hefur Menningarnótt gengið stóráfallalaust fyrir sig enn sem komið er. 18.8.2012 14:26
Latabæjarhlaupið hafið Latabæjarhlaupið hófst 13:30 þegar íþróttaálfurinn sjálfur ræsti hlaupið. Fjöldi barna tekur þátt en tveggja til fimm ára gömul börn hlaupa 550 metra en sex til átta ára gömul börn hlaup 1,3 kílómetra. 18.8.2012 14:17
Russell Crowe spilar meðal annars í Hörpunni Stórleikarinn Russel Crowe mun spila á þrennum tónleikum á Menningarnótt í dag og í kvöld. Fyrst mun hann stíga á stokk í Norðurljósasal Hörpunnar. 18.8.2012 12:13
Arnar vann aftur í heilu maraþoni Metfjöldi þátttakenda tók þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í morgun en yfir þrettán þúsund manns hlupu hinar ýmsu vegalengdir. Arnar Pétursson sigraði annað árið í röð í heilu Maraþoni eftir ótrúlegan endasprett. Arnar var tæpri einni og hálfri mínútu á eftir Piotr Karolczak frá Póllandi þegar fimm kílómetrarar voru eftir. Arnar kom í mark á tveimur klukkustundum, 41 mínútu og tveimur sekúndum og var 10 sekúndum á undan næsta manni. 18.8.2012 12:11
Ben Stiller myndaði íslenska maraþonhlaupara Stórstjarnan Ben Stiller var við Reykjavíkurhöfn í morgun þegar hann sá hlaupara í Reykjavíkurmaraþoni hlaupa framhjá. Leikarinn segir á Twitter síðu sinni að hann hafi verið að fara að finna hentuga tökustaði fyrir kvikmynd sína, The secret life of Walter Mitty þegar hann sá hóp maraþonhlaupara fara hjá. Hann greip því farsímann og tók meðfylgjandi mynd af hlaupurunum, sem brostu vingjarnlega til stórleikarans. 18.8.2012 10:44
Russell Crowe spilar meðal annars á Gamla Gauknum í kvöld Stórleikarinn og tónlistarmaðurinn Russell Crowe mun ásamt samstarfsfélaga sínum, Alan Thomas Doyle, koma fram á afmælisballi Gamla Gauksins á Menningarnótt. Þetta er líklega í fyrsta skiptið sem stórstjarna úr kvikmyndageiranum heldur tónleika á Menningarnótt í Reykjavík. 18.8.2012 10:16
Ölvaður ökumaður velti bíl og slasaðist Bílvelta varð um miðnætti í gær á Skeiðavegi við bæinn Bitru. Ungur ökumaður missti stjórn á bifreið sem fór fjórar veltur áður en hún stöðvaðist. Ökumaður var ásamt þremur farþegum í bílnum. Allir sluppu án stórfelldra áverka og voru komnir út úr bílnum þegar lögreglu bar að garði. Þeir voru þó sendir til aðhlynningar á slysadeild í Reykjavík. 18.8.2012 09:57
Kári Steinn ræsti hlaupið Reykjavíkur Maraþon Íslandsbanka hófst klukkan skömmu fyrir klukkan níu í morgun, en þá var hálfmaraþon og boðhlaup ræst. 18.8.2012 09:51
Einn yfirheyrður vegna eldsvoða í Fellaskóla Einn aðili hefur verið yfirheyrður vegna eldsvoða í Fellaskóla í Breiðholti á áttunda tímanum í gærkvöldi. Allt tiltækt slökkvilið var kallað á staðinn en töluverðan reyk lagði frá þaki skólans þegar slökkviliðið bar að. 18.8.2012 09:48
Alma komin í leitirnar Alma, stúlkan sem lýst var eftir í fjölmiðlum í gær, er komin fram, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi. Alma strauk frá Hvammstanga mánudaginn síðasta en er nú sem sagt komin í leitirnar. 18.8.2012 13:05
Þorbergur Ingi vann hálfmaraþon Það var Þorbergur Ingi Jónsson sem vann hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Hann hljóp 21 kílómetra á einni klukkustund og 9 mínútum. Í öðru sæti var Hlynur Andrésson sem hljóp vegalengdina á einni klukkustund, 16 mínútum og 29 sekúndum. 18.8.2012 10:32
Féll af mótórhjóli á ofsahraða Ökumaður á bifhjóli var stöðvaður í gærkvöldi í Ártúnsbrekkunni á rúmlega tvöhundruð kílómetra hraða. Maðurinn, sem ók vestur eftir Ártúnsbrekkunni, hélt fer sinni rakleitt áfram þrátt fyrir að lögreglumenn gáfu honum stöðvunarmerki. 18.8.2012 10:01
Sló tönn úr dyraverði Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn upp úr klukkan eitt í nótt eftir að hafa slegið dyravörð við skemmtistað og brotið í honum tönn þegar hann meinaði honum aðgang að krá í miðbænum. 18.8.2012 09:59
Telja sjaldgæfasta blómið héðan Skoskir grasafræðingar hafa í rannsóknum sínum komist að því að eitt sjaldgæfasta blóm landsins, sem er að finna á eyjunni Hirta við vesturströnd Skotlands, hafi sennilega borist frá Íslandi. Bæði er talið koma til greina að fræ hafi borist með fuglum þó það sé ekki útilokað að komur víkinga til landsins fyrr á öldum geti skýrt tilkomu þess, segir í frétt BBC. Blómið er ekki sjaldgæft hér, enda um túnfífil að ræða. 18.8.2012 10:00
Ekki hægt að lækka gjöld fyrir Hörpu Reykjavíkurborg getur ekki gefið Hörpu afslátt af fasteignagjöldum eins og Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Portusar, eignarhaldsfélags Hörpu, kallaði eftir í Fréttablaðinu fyrr í vikunni. Þetta segir aðstoðarmaður borgarstjóra. 18.8.2012 08:30
Kræklingur úr Hvalfirði getur valdið eitrun Matvælastofnum varar við neyslu á kræklingi sem safnað er í Hvalfirði. Sýni af sjó sem voru tekin í Hvalfirði í lok síðustu viku, til greiningar á eitruðum þörungum, leiddu í ljós að dynophysis-þörungar sem geta valdið eitrun voru yfir viðmiðunarmörkum. 18.8.2012 07:00
„Þið mynduð skilja Gretti betur en ég“ Svissneskur íslenskunemi er farinn að skilja okkar ylhýra mál eftir þriggja vikna nám. Hann hafði reyndar nokkuð forskot því hann kann forníslensku. Hann myndi hins vegar hóa í Íslending ef Grettir Ásmundarson kæmi að spjalla. 18.8.2012 06:00
Russell Crowe verður með tónleika á þremur stöðum á morgun Russell Crowe og stórvinur hans Alan Doyle ætla að koma fram á þremur stöðum annað kvöld. Frá þessu greindi Crowe á Twitter núna í kvöld. "Það lítur út fyrir að við verðum með þrjár sýningar í Reykjavík annað kvöld. Ég tísti smáatriðum síðar,“ segir hann. 17.8.2012 21:42
Stiller kominn aftur - verður hér næstu vikur Ben Stiller er kominn aftur til Íslands en tökur á myndinni The Secret Life of Walter Mitty, sem hann framleiðir og leikstýrir, hefjast í byrjun september. Samkvæmt heimildum Vísis mun Stiller dvelja hér á landi meira og minna þangað til. 17.8.2012 21:04
Slapp vel úr bílveltu Talið er að ökumaður bifreiðar hafi sloppið án teljandi meiðsla þegar bifreið hans valt út af Hellisheiðinni um klukkan níu í kvöld. Að sögn varðstjóra hjá lögreglu var hann einn í bílnum og fluttur á slysadeild til skoðunar. Slysið er í rannsókn. 17.8.2012 22:35
Lýst eftir Ölmu Lögreglan lýsir eftir Ölmu Maureen Vinson. Alma er fædd 1998, 162 cm að hæð með blá augu og skollitað hár (dökkt í rót). Alma er með húðflúr á innanverðum úlnlið, tattú aftan á hálsi og lokk í tungu. Þegar síðast var vitað var hún klædd í svarta úlpu, gallabuxur, bláa adidas-peysu og í svörtum adidas-skóm. Alma strauk frá Hvammstanga mánudaginn 13.8. sl. Vitað er um ferðir hennar á höfuðborgarsvæðinu eftir þann tíma. Þeir sem vita hvar Alma er niðurkomin eða vita eitthvað um ferðir hennar frá 13.8. sl. eru beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 455 2666. 17.8.2012 20:09
Engin börn inni í skólanum Slökkviliðið hefur náð tökum á eldi sem kom upp í þaki íþróttahússins við Fellaskóla í Breiðholti. Mikill reykur barst frá svæðinu stuttu eftir að eldurinn kom upp um klukkan korter yfir sjö. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu rifu slökkviliðsmenn þakplötur upp til þess að slökkva í síðustu glóðunum. Allt tiltækt slökkvilið var sent á staðinn og eru nú allir slökkviliðsmenn farnir af vettvangi. 17.8.2012 19:49
Ekkert komið fram sem kallar á breytingar á sænsku leiðinni Ekkert hefur komið fram sem kallar á breytingar á Sænsku leiðinni svokölluðu, sem ætlað er að stemma stigu við vændi hér á landi að sögn innanríkisráðherra. 17.8.2012 18:44
Allir átjan ára og yngri fengið skólavist Vel gengur að innrita í framhaldsskóla fyrir haustið. Allir undir átján ára aldri hafa fengið skólavist og menntamálaráðherra er bjartsýn á að allir eldri nemendur fái einnig inni í skóla. 17.8.2012 18:39
Vill að íslenska ríkið höfði mál gegn ESA Fjármálaráðherra hefur lagt til við ríkisstjórnina að íslenska ríkið höfði mál gegn ESA, eftirlitsstofnun EFTA vegna sölu á byggingum til Verne, sem rekur gagnaver í Keflavík. 17.8.2012 18:30
Jarðskjálfti í Mýrdalsjökli Jarðskjáflti af stærðinni 3,8 varð við Austmannsbungu í Mýrdalsjökli rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Ísland fylgdu nokkrir minni skjálftar í kjölfarið. Engar tilkynningar hafa borist um að skjálftinn hafi fundist og ekki fylgir honum mikill órói. 17.8.2012 17:06
Tímavélin Reykjavík Walk opnar í Iðuhúsinu á morgun Margmiðlunarsýningin Reykjavík Walk verður opnuð í Iðuhúsinu í Lækjargötu á Menningarnótt á morgun. Sýningin veitir einstaka innsýn í Reykjavík fyrri tíma þar sem áhorfendur upplifa gamla tíma í bland við nýja. "Áhorfendur setjast inn í klefa með hreyfanlegum sætabúnaði. Leiknu efni, þrívíddarteikningum og ljósmyndum er blandað saman til þess að endurskapa ásýnd Austurstrætis frá árinu 1912 til dagsins í dag. Farið er yfir sögulega viðburði og er einstaklega skemmtilegt að upplifa hvernig miðborgin og aðbúnaður borgarbúa hafa þróast á ekki lengri tíma en einni öld,“ segir í tilkynningu. 17.8.2012 17:00
Geir Haarde í fjölmiðla Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, mun stjórna spjallþætti á ÍNN í vetur. Hann er einn þriggja nýrra þátttastjórnenda á stöðinni en hinir eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Randver Þorláksson, fyrrverandi Spaugstofumaður. Ingvi Hrafn Jónsson sjónvarpsstjóri ÍNN er ánægður með viðbótina og bendir á að Geir og Sigmundur Davíð séu báðir reyndir fjölmiðlamenn. 17.8.2012 16:30
Sjálfstæðisflokkurinn vill gera vínveitingar mögulegar Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu til á borgarráðsfundi að reglum um vínveitingaleyfi verði breytt þannig að þær komi ekki í veg fyrir að dvalarheimili aldraðra geti fengið leyfi til að selja áfengi. Tillögunni var fresta á fundinum. 17.8.2012 16:00
Stærsti nýnemahópur í sögu HR hefur nám Háskólinn í Reykjavík tók í gær á móti stærsta hópi nýnema í sögu skólans. Nýnemadagar voru í skólanum í dag og í gær. 17.8.2012 15:43
Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Innlent