Innlent

Íslandsmót í hrútaþuklun

BBI skrifar
Mynd/Stefán Karlsson
Í dag hefst Íslandsmót í hrútaþuklun á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum. Keppt er bæði í flokki reyndra þuklara og þeirra sem eru óvanir. Með hrútaþukli reyna menn að meta gæði hrúta með hendurnar einar að vopni.

Keppendur reyna að komast að sömu niðurstöðu og dómnefnd sem hefur þegar metið gæðin með nútíma tækjum og tólum.

Íslandsmeistaramótið er haldið í tíunda sinn í dag en frá þessu er greint á vef Bæjarins Besta á Ísafirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×