Innlent

Stærsti nýnemahópur í sögu HR hefur nám

BBI skrifar
Frá nýnemadeginum í gær.
Frá nýnemadeginum í gær. Mynd/HR
Háskólinn í Reykjavík tók í gær á móti stærsta hópi nýnema í sögu skólans. Nýnemadagar voru í skólanum í dag og í gær.

Um 1300 nýnemar hefja nám í HR í haust, en metfjöldi umsókna um skólavist barst í vor.

Nýnemum fjölgar mest í tölvunafræðideild og tækni- og verkfræðideild HR, sem eru gleðitíðindi í ljósi þess að íslenskt atvinnulíf hefur kallað eftir stóreflingu tæknimenntunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×