Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Björgólfur Thor fær ekki að breyta húsinu Húsið við Fríkirkjuveg 11 í Reykjavík hefur nú verið friðað að öllu leyti. Mennta- og menningarmálaráðherra friðaði á mánudag innra byrði hússins að tillögu Húsafriðunarnefndar. Ytra byrðið var friðað 25. apríl 1978. 11.7.2012 04:00
Íslenskir dómstólar brutu á blaðakonum Íslenska ríkið braut gegn tjáningarfrelsi blaðamannanna Bjarkar Eiðsdóttur og Erlu Hlynsdóttur, þegar þær voru dæmdar til að bera ábyrgð á ummælum viðmælenda sinna og fundnar sekar um meiðyrði árið 2009. Þetta er niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu, sem dæmir ríkið til að greiða þeim báðum milljónir í skaða- og miskabætur og málskostnað. 11.7.2012 03:00
Eyfirðingar þjónusta olíuleitarflota af Drekasvæðinu Floti fjögurra olíurannsóknarskipa kom inn til Akureyrar í dag af Drekasvæðinu til að sækja sér vistir og þjónustu sem og til áhafnaskipta. Eyfirðingar fá þarna forsmekkinn af þeim umsvifum sem vaxandi olíuleit í Norðurhöfum gæti skapað á Íslandi á næstu árum. Rannsóknarskipið Nordic Explorer fer fyrir flotanum en með því eru þrjú fylgdarskip, tvö færeysk og eitt íslenskt, Valberg VE. 10.7.2012 20:00
Skemmdu upplýsingavita Skemmdir voru unnar á upplýsingavita við setlaugina á Gróttu um hádegið í dag samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt upplýsingum starfsmanns Seltjarnarnesbæjar er tjónið nokkur hundruð þúsund krónur. 10.7.2012 23:16
Færri rannsóknir með niðurskurði auka hættu á að sýkingar fari leynt Rannsóknum Landspítalans á blóðsýkingum með ræktun hefur fækkað samhliða niðurskurði. Það skapar aukna hættu á að sýkingar greinist seint eða aldrei. 10.7.2012 21:00
Útilokað að flugvöllurinn fari án samþykkis ríkisins Innanríkisráðherra segir útilokað að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýri án samþykkis ríkisins, enda eigi ríkið landið að mestu. Það sé því óráð hjá borgarstjórn að skipuleggja þar íbúðahverfi, auk þess vilji yfirgnæfandi meirihluti borgarbúa halda flugvellinum. Borgarstjórn Reykjavíkur boðar nú þéttingu byggðar með fjórtán þúsund nýjum íbúðum á næstu 18 árum, þar af á helmingurinn, eða um sjö þúsund íbúðir, að rísa í Vatnsmýri. 10.7.2012 20:15
Konan í Landmannalaugum fundin Konan, sem leitað var að í Landmannalaugum í dag, er fundin. Samkvæmt tilkynningu frá gæslunni fannst konan rétt fyrir klukkan sex í kvöld, en þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNA, fór í loftið um klukkan þrjú í dag til þess að leita hennar. Konan var í símasambandi við starfsmenn gæslunnar. Þar sem ekki var hægt að lenda á staðnum þar sem konan var, seig sigmaður niður eftir konunni og var hún hífð upp í þyrluna. 10.7.2012 19:56
Vantaði allan rökstuðning í niðurstöðu héraðsdómara Umræða um mansal og nektardansstaði á erindi við alla Evrópubúa, þetta kemur fram í dómi Mannréttindadómstóls Evrópu sem komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn tjáningarfrelsi blaðamannanna Björk Eiðsdóttur og Erlu Hlynsdóttur. 10.7.2012 19:30
Fórnarlamb segist ekki ætla að láta óþokka hrekja sig að heiman Karlmaður á sjötugsaldri sem var bundinn og keflaður á eigin heimili í sex tíma segist ekki ætla að láta hræðsluna við óþokkana eyðileggja fyrir sér heimilið. Hann féllst á að lýsa atburðarrásinni en af tillitsemi við öryggi mannsins verður nafn hans ekki birt. 10.7.2012 18:45
Evrópskir kvikmyndagerðarmenn skrásetja líf íslenska bóndans Það eru ekki bara kvikmyndagerðarmenn frá draumaborginni sem hafa áhuga á Íslandi þessi dægrin. Arthúr Björgvin Bollason er hér á landi að lóðsa þýska kvikmyndageðarmenn um íslenskar sveitir. Umfjöllunarefni kvikmyndagerðarmannanna er ekki trylltar geimverur eða dökk framtíðarsýn Tom Cruise og félaga í kvikmyndinni Oblivion, heldur hinn jarðtengdi íslenski sauðfjárbóndi. 10.7.2012 17:57
Þeir sem misstu af veiðunum fá uppbót Þeir sem töldu að strandveiðar á svæði A væru óheimilar í dag og réru ekki fá í staðinn viðbótardag til strandveiða í ágúst mánuði. 10.7.2012 16:02
Þyrla leitar ferðamanns við Landmannalaugar Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrr í dag til aðstoðar við leit að erlendum ferðamanni sem er villtur á hálendinu. Talið er að hann sé í nágrenni Landmannalauga. Það var lögreglan á Hvolsvelli sem óskaði eftir aðstoð þyrlunnar. Þyrlan fór í loftið um þrjúleytið í dag, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni. 10.7.2012 15:32
Fríkirkjuvegur 11 friðaður Húsið að Fríkirkjuvegi 11 hefur verið friðað í heild sinni. Ytra byrði hússins var friðað á áttunda áratug síðustu aldar en að tillögu Húsafriðunarnefndar var innra byrðið friðað sömuleiðis. Húsið þykir eðalsteinn íslenskrar byggingalistar. Athafnamaðurinn Thor Jenssen fékk Einar Erlendsson arkitekt til að teikna fyrir sig íbúðarhús sem hann reisti við Fríkirkjuveg 11 árið 1907. 10.7.2012 14:43
Söfnun undirskrifta hafin fyrir Ingólfstorg og Nasa Undirskriftasöfnun til bjargar Ingólfstorgi og Nasa hófst á netinu í dag. Ætlunin er að mótmæla fyrirhuguðum byggingarframkvæmdum á Ingólfstorgi og því að hótel rísi þar sem nú er skemmtistaðurinn Nasa. 10.7.2012 14:34
Allt slökkvilið kallað að Þverholti Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað að Þverholti 19 fyrir stundu. Þar var nokkur eldur en búið er að ná tökum á honum að mestu leyti. 10.7.2012 14:18
Strandveiðar heimilar í dag fyrir mistök Strandveiðar voru óvart heimilar í dag á svonefndu A svæði vestanmegin á landinu. Sjávarútvegsráðuneytið hafði auglýst að strandveiðum yrði lokað á svæðinu frá og með deginum í dag. Eitthvað virðist hins vegar hafa farið úrskeiðis í samskiptum ráðuneytisins og starfsmanna Stjórnartíðinda með þeim afleiðingum að auglýsingin birtist ekki í B-deild Stjórnartíðinda. Auglýsingin tók því ekki gildi í dag og um leið og sjómenn urðu þess áskynja þustu þeir aftur út á miðin. 10.7.2012 14:09
Síbrotamaður í fangelsi Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í tíu mánaða fangelsi í dag fyrir fjölda brota, svo sem innbrot, nytjastuldi gripdeildir og fleiri brot sem framin voru í ár og í fyrra. Tveir nítján ára gamlir piltar voru dæmdir í þriggja mánaða skilorðsbundin fangelsi fyrir að hafa tekið þátt í hluta af þessu brotum. Mennirnir voru meðal annars fundnir sekir um að hafa stolið bíl þann 8. júní síðastliðinn í Hafnarfirði og dælt bensíni á hann án þess að greiða fyrir. Þá brutust þeir inn í íbúð í Helluvaði og fóru inn um ólæstar dyr á íbúð í Kambavaði. Tveir mannanna hafa ítrekað gerst brotlegir við lög en ekki sá þriðji. 10.7.2012 13:14
Réðst á lögreglumenn Kona á sextugsaldri var í morgun dæmd í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir eignarspjöll og brot gegn valdstjórninni. Konan var fundin sek um að hafa brotið tvær rúður á bakhlið íbúðarhúss í Vesturbæ og eina á framhlið þess, auk þess að valda skemmdum á útidyrahurð hússins. Hún sparkaði svo í bringu lögreglumanns og stuttu síðar í andlit lögreglukonu sem höfðu afskipti af konunni. Konan á sér nokkra brotasögu og hefur gengist undir lögreglusátt vegna líkamsárásarmáls og hlotið dóma fyrir ölvunarakstur. 10.7.2012 12:44
Skýrt og einbeitt markmið að sigra nektarhlaupið Pétur Geir Grétarsson fór á Hróarskeldu með það skýra og einbeitta markmið að sigra nektarhlaupið. Sem hann og gerði með miklum sóma. Hann sigraði með tíu metra forskoti, sem verður að teljast nokkuð gott. 10.7.2012 12:02
Blaðamenn geti fjallað um málefni á borð við mansal og nektardansstaði Það er tími til kominn að menn átti sig á því hvað tjáningarfrelsið skiptir miklu máli hér á íslandi og því sé gefið svigrúm til að vinna fyrir samfélagið, segir Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands. Mannréttindadómstóll Evrópu komst í morgun að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn tjáningarfrelsisákvæði 10.7.2012 11:55
Tillitsleysi í miðborginni Bílstjórar gerast sí og æ sekir um átakanlegt tillitsleysi með því að leggja ökutækjum sínum langt upp á gangstéttir að sögn lögreglu. Talsvert er um stöðubrot og þá á lögreglan um fátt annað að velja en að láta fjarlægja ökutæki á kostnað eigenda. 10.7.2012 15:19
Uppbygging í Frankfurt er Reykvíkingum áminning Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, stimplar sig inn í umræðuna um uppbygginguna við Ingólfstorg og Kvosinni á bloggsíðu sinni í dag. Hann rifjar upp uppbyggingu í gamla miðbæ Frankfurt eftir síðari heimsstyrjöldina. 10.7.2012 13:44
Himinn og jörð loga á verðlaunaljósmynd Bæði jörðin og himinninn loga í mynd sem ljósmyndarinn Sigurður Hrafn Stefnisson tók af Heklugosinu árið 1991. Myndin var valin ein af 100 bestu ljósmyndum 113 ára hjá National Geographic árið 2001. 10.7.2012 11:18
Fundu 70 kannabisplöntur Rúmlega 70 kannabisplöntur fundust á ýmsum stigum ræktunar þegar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Grafarholti um helgina. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, viðurkenndi aðild sína að málinu. 10.7.2012 11:11
Stórsigur fyrir blaðamenn "Ég er í skýjunum yfir þessu," segir Björk Eiðsdóttir, ritstjóri Séð og heyrt og fyrrverandi blaðamaður á Vikunni. Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu í morgun að íslenska ríkið hefði brotið gegn henni og Erlu Hlynsdóttur blaðamanni þegar þær voru gerðar ábyrgar fyrir ummælum viðmælenda sinna á tveimur dómsstigum á Íslandi. "Þetta er frábært. Fyrir hönd okkar allra í blaðamannastéttinni, þá er þetta bara stórsigur," segir hún. 10.7.2012 10:52
Tjáningarfrelsið var fótum troðið - dómurinn reifaður Það sem skipti höfuðmáli í dómum Mannréttindadómstóls Evrópu sem féllu í dag, þar sem íslenska ríkið var talið hafa brotið gegn tjáningafrelsi tveggja blaðamanna, er það hlutverk sem fjölmiðlar gegna í lýðræðissamfélagi, þeir eru varðhundar lýðræðisins. Og þó pressan megi ekki ganga út fyrir ákveðin mörk og verði að bera virðingu fyrir orðspori fólks er það engu að síður skylda fjölmiðla að miðla upplýsingum og hugmyndum um málefni sem snerta almenning. Og almenningur hefur rétt til að njóta þeirra. 10.7.2012 10:34
„Stórkostlegur sigur fyrir tjáningarfrelsið“ Ég held að þetta hafi verið stórkostlegur sigur fyrir tjáningarfrelsið í landinu sem hefur verið í nauðvörn síðustu ár fyrir dómstólnum, segir Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður blaðmannanna Bjarkar Eiðsdóttur og Erlu Hlynsdóttur. 10.7.2012 09:58
Erla og Björk unnu báðar mál sín hjá Mannréttindadómstólnum Erla Hlynsdóttir fréttamaður á Stöð 2 og Björk Eiðsdóttir ritstjóri Séð og Heyrt unnu báðar dómsmál sín gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. 10.7.2012 08:38
Sir Anthony Hopkins á leið til Íslands Breski stórleikarinn sir Anthony Hopkins er væntanlegur til landsins síðar í sumar. Hann hefur fallist á að taka að sér hlutverk í myndinni Noah sem tekin verður upp að hluta til hér á landi. 10.7.2012 08:15
Fimm ferðamenn slösuðust við Búrfell Umferðarslys varð á Landvegi til móts við Búrfell í gærkvöldi. Fimm erlendir ferðamenn voru í bílnum og slasaðist einn alvarlega, annar minna og þrír urðu fyrir minniháttar hnjaski. 10.7.2012 07:06
Þyrlu Gæslunnar beitt gegn sinueldum á Snæfellsnesi Mikill sinueldur brann í landi Rauðkollsstaða á Snæfellsnesi síðdegis í gær og fram á nótt. 10.7.2012 06:54
Tvær innbrotstilraunir í nótt Tvær tilraunir til innbrota voru gerðar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Í Hafnarfirði var reynt að brjótast inn í gullsmíðastofu rétt fyrir klukkan tvö og var rúða brotin. Þjófarnir höfðu hinsvegar ekki erindi sem erfiði og komust ekki inn í húsið og því var engu stolið. 10.7.2012 06:32
Þarf að fækka fé ef ekki vöknar í bráð Miklir þurrkar hafa haft veruleg áhrif á bændur víða um land. Gunnar Þórarinsson, bóndi á Þóroddsstöðum í Hrútafirði í Vestur-Húnavatnssýslu, segir að ef fram haldi sem horfir muni hann þurfa að fækka fé. 10.7.2012 11:30
Norðurlöndin í sérflokki Norðurlöndin eru í sérflokki í Evrópu hvað varðar útbreiðslu háhraðatenginga. Þetta kemur fram á vef Póst- og fjarskiptastofnunar. 10.7.2012 11:00
Ruslið hleðst upp við Frakkastíg Það er ófögur sjón sem blasir við vegfarendum sem ganga niður Frakkastíginn neðan við Hverfisgötu í Reykjavík. Þar er autt svæði sem ber merki mikils hirðuleysis. 10.7.2012 10:30
Minna þarf að pissa um nætur Staðfest er að náttúruvaran SagaPro sem unnin er úr íslenskri ætihvönn virki vel við næturþvaglátum. Klínísk rannsókn sem gerð var á vörunni og birt í virtu læknatímariti sýnir fram á að varan eykur blöðrurýmd og dregur úr tíðni næturþvagláta. SagaMedica framleiðir vöruna. 10.7.2012 10:00
Magn frjókorna í lofti birt daglega Á vef Náttúrufræðistofnunar má nú nálgast upplýsingar um magn frjókorna í lofti á hverjum virkum degi. Birtar eru tölur frá mælingastöð í Urriðaholti í Garðabæ. 10.7.2012 09:30
Í fyrra entust kjötbirgðirnar fram í janúar Hrafnreyður ehf. hefur uppi áform um að auka enn frekar hrefnuveiðar. Í fyrra voru veiddar um fimmtíu hrefnur en að sögn Gunnars Bergmanns Jónssonar framkvæmdastjóra er stefnt að því að veiða um áttatíu dýr í ár. Markmiðið er að neytendum standi hrefnukjöt til boða allan ársins hring. 10.7.2012 09:00
Ógerilsneyddir ostar leyfðir Leyfilegt er nú að flytja til landsins osta úr ógerilsneyddri mjólk. Samkvæmt nýrri reglugerð sem tók gildi í maímánuði er hverjum ferðalangi nú leyfilegt að flytja til landsins allt að einu kílói af ostum unnum úr ógerilsneyddri mjólk til einkanota. Landbúnaðarráðherra getur heimilað innflutning á meira magni, en aðeins til einkaneyslu. 10.7.2012 08:30
Ferðamenn fyrirferðarmiklir í símkerfunum Sú mikla aukning á fjölda ferðamanna sem orðið hefur hér á landi síðustu tvö ár hefur áhrif víðar í hagkerfinu en hjá fyrirtækjum í ferðaþjónustu. Eitt dæmi um áhrifin er fjölgun á notendum símkerfa símafyrirtækjanna yfir sumarmánuðina. 10.7.2012 08:00
Mál laumufarþega sagt mjög alvarlegt Isavia mun yfirfara öryggiseftirlit sitt með starfsemi á Keflavíkurflugvelli eftir að tveir menn komust inn á flughlað og upp í vél Icelandair aðfaranótt sunnudags. Í tilkynningu frá Isavia segir að atvikið sé litið mjög alvarlegum augum. 10.7.2012 07:30
Bann við vörubílum í þjóðgarði gagnrýnt Sveitarfélög fyrir austan fjall eru ósátt við nýjar takmarkanir á vöruflutningum um þjóðgarðinn á Þingvöllum. 10.7.2012 07:00
Strandveiðar stöðvaðar Strandveiðar verða stöðvaðar á svæði A frá og með deginum í dag. Um er að ræða landið vestanvert og vestfjarðakjálkann, frá Snæfellsnesi til Súðavíkur. 10.7.2012 06:00
Grunuðum nauðgara sleppt Manninum sem grunaður er um að hafa nauðgað konu á Bestu útihátíðinni hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi fer með málið. 10.7.2012 05:30
Afnám orlofs húsmæðra rætt Samband íslenskra sveitarfélaga boðar til fundar í næsta mánuði til að ræða kosti þess og galla að afnema lög um húsmæðraorlof. 10.7.2012 05:00