Fleiri fréttir

Spyr hvort forsvarsmenn Valitors og Borgunar hafi logið að Alþingi

Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, segir á Facebook-síðu sinni að Valitor og Borgun hafi hugsanlega verið tvísaga þegar þeir voru kallaðir fyrir á fund Allsherjarnefndar þegar fyrirtækin ákváðu að loka fyrir greiðslugátt WikiLeaks á síðasta ári. Áður hafði danska fyrirtækið Teller gert slíkt hið sama.

Koss fyrir heilsuna

Kossar eru ekki aðeins góðir fyrir sambandið við makann heldur geta þeir einnig verið góðir fyrir heilsu fólks ef marka má rannsóknir á þessu saklausa athæfi.

Níu fíkniefnamál á Eistnaflugi

Níu fíkniefnamál hafa komið upp á rokkhátíðinni Eistnaflugi í Neskaupsstað samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Um 1300 manns eru staddir á hátíðinni. Þá hefur einn ökumaður verið stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Létu eyða tveimur fóstrum - vildu vera örugg

Hjónin Paulina Garcia Romero og Friðfinnur Finnbjörnsson hafa eytt tveimur fóstrum af fimm af læknisráði, en þau eru í viðtali í Fréttatímanum í dag. Þar segja hjónin sögu sína en Paulina átti von á fimmburum líkt og Fréttatíminn greindi frá í síðasta mánuði. Í Fréttatímanum kemur fram að sérfræðingur hafi sagt þeim að hann mælti ekki með fimmburameðgöngu nema með mjög reyndu og færu teymi lækna.

Þingforseti segir hótel óboðlegt löggjafanum

„Ég hef verulegar áhyggjur af þessum tillögum og því sem þær bera með sér gagnvart Alþingi. Það verður að taka tillit til löggjafans,“ segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, um vinningstillögu í samkeppni um hótel í Landsímahúsinu gegnt þinginu. Hún hefur sent Reykjavíkurborg bréf þar sem athugasemdum þingsins við tillöguna er komið á framfæri. Þá hefur forsætisnefnd þingsins rætt málið og mun taka það fyrir á sumarfundi sínum í ágúst.

Húseiningar standa á víðavangi

Húseiningar hafa um nokkra hríð staðið við Reykjanesbraut. Einingarnar eru á nokkuð áberandi stað enda blasa þær við vegfarendum sem keyra Reykjanesbrautina.

Segir vörður skemma náttúru og stemningu

„Náttúran er ekki ósnortin lengur því þar eru allar þessar fjandans vörður,“ segir Ingó Herbertsson leiðsögumaður, sem telur þann sið ferðalanga að hlaða vörður út um hvippinn og hvappinn vera til mikillar óþurftar.

Slasaðist í bílveltu á Suðurlandsvegi

Einn slasaðist þegar bíll valt á Suðurlandsvegi við skíðaskálann í Hveradölum í morgun. Viðkomandi mun ekki vera alvarlega slasaður en bíllinn er ónýtur eftir veltuna. Þrír sjúkrabílar eru á staðnum, tveir frá Reykjavík og einn frá Selfossi.

Þjóðhátíð nær þolmörkum

Búið er að selja um sjö þúsund miða á Þjóðhátíð í Eyjum. Svo mikil aðsókn var í miða í vikunni að netsíðan sem hýsir miðasöluna hrundi.

Telja að makríllinn kunni að valda búsifjum sjófugla

Erpur Snær Hansson, sviðsstjóri vistfræðirannsókna hjá Náttúrustofu Suðurlands, segir að margir hallist að þeirri kenningu að ágangur makrílsins geti að miklu leyti útskýrt þær búsifjar sem lundinn og aðrir sjófuglar hafi orðið fyrir síðustu ár.

Ekki tilefni til verðlækkunar

Steingrímur J. Sigfússon iðnaðarráðherra telur ekki tilefni til að endurskoða verðstefnu Landsvirkjunar varðandi raforku. Fréttablaðið sagði frá því í gær að raforkuverð hefði lækkað víða um heim, einkum í Bandaríkjunum, og stóriðjufyrirtæki væru að hugleiða enduropnun lokaðra verksmiðja.

Vilja fá að framleiða ógerilsneydda osta

Beint frá býli, félag bænda sem stunda sjálfstæða sölu eigin afurða, hefur óskað formlega eftir því við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið að framleiðsla osta úr ógerilsneyddri mjólk verði heimiluð í takmörkuðu magni.

Lágmark að halda illgresi í skefjum

„Það er lágmarkskrafa að sá meirihluti sem hér er við völd standi undir því einfalda verkefni að láta slá græn svæði í borginni og halda illgresi í skefjum,“ segir í bókun sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram á borgarráðsfundi í gær

Augun svíkja ekki lygarann

Breskir vísindamenn segjast hafa afsannað þá kenningu að merkja megi lygar af augnagotum fólks. Vísindamennirnir tóku upp myndband með sjálfboðaliðum þar sem þeir ýmist lugu eða sögðu satt.

Færri ráðnir án auglýsinga

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir mjög hafa dregið úr ráðningum án auglýsinga hjá ríkinu. Fréttablaðið greindi frá bréfi Umboðsmanns Alþingis, þar sem hann hvatti til að slíkum ráðningum yrði fækkað og sagði það myndu efla traust á ríkisvaldinu.

Fagnar umræðu um Landssímahúsið

"Við verðum að tryggja það að sýndur verði metnaður við skipulagningu á Landssímareitnum." Þetta segir Dagur B. Eggertsson, formaður Borgarráðs.

Klifraði nokkru sinnum upp girðingu áður en öryggisvörður birtist

Eftirlit hefur verið eflt við girðingu á flugvallarsvæðinu í Keflavík eftir að tveimur mönnum tókst að smygla sér um borð í flugvél. Unnið var að því að setja upp gaddavír á ákveðnum svæðum í dag þar sem áður var auðvelt að komast yfir girðinguna.

Gefur svínum áfengi og lætur þau éta rusl

Bjarni í Bjarnabúð í Reykholti hefur fundið góða leið til að spara sér kostnað við að farga sorpi og nýta það sem til fellur í búðinni og á heimilinu. Svínin sjá um sorpið, éta afgangana og skola þeim svo niður með einum svellköldum.

Human Woman troða upp á Faktorý

Íslensk Nýdanska dúóið Human Woman mun heiðra Íslendinga með nærveru sinni næstu helgi þegar þeir munu troða upp á Faktorý á laugardaginn næsta. Þrátt fyrir danskar tengingar þá er hljómsveitin alíslensk, en það eru þeir Gísli Galdur og Jón Atli sem skipa hið ofursvala dúó.

Pétur Blöndal vill stöðva peningahringekjuna

Hægt er að breyta milljónum í innistæðulausa milljarða með tiltölulega einföldum eignatilfærslum á milli hlutafélaga. Karen Kjartansdóttir fékk Pétur Blöndal þingmann til að útskýra hvernig er hægt að koma í veg fyrir slíkar eignabólur, en Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu hefur samþykkt tillögur hans sem miða að því.

Sveinn Andri: Aðför kortafyrirtækjanna að málfrelsi stöðvuð

Wikileaks getur starfað óhindrað af fullum krafti verði dómur Héraðsdóms Reykjavíkur gegn Valitor fordæmisgefandi annars staðar í heiminum, segir lögmaður Datacell. Vísa þarf að opna aftur greiðslugátt fyrir Datacell sem kortarisinn lokaði vegna tengsla við Wikileaks.

Rúta með eldri borgurum hafnaði utan vegar

Rúta með 50 eldri borgurum fór út af þjóðvegi 1 við Másvatn, leiðina á milli Lauga og Mývatns, um fimm leytið í dag. Lögreglan á Húsavík fékk tilkynningu um umferðaróhappið skömmu síðar.

Snorri í Betel rekinn vegna skoðana sinna

Snorra Óskarssyni, sem oft er kenndur við Betel söfnuðinn í Vestmannaeyjum, hefur verið sagt upp störfum sem kennari á Akureyri. Snorri bloggar um málið og segir að hann hafi verið kallaður á fund fræðslustjóra Akureyrarbæjar fyrr í dag. Þar hafi honum verið tilkynnt að honum hefði verið sagt upp.

Hluturinn á botni Eystrasaltsins sagður verða vopn

Talið er að dularfulli hluturinn sem sænsku kafararnir fundu á botni Eystrasaltsins fyrir nokkrum árum sé í raun leifar frá seinni heimsstyrjöld. Nánar tiltekið áður óséð tæki úr vopnabúri nasista.

CCP er besti sjálfstæði leikjaframleiðandi Evrópu

CCP var í gærkvöldi valið besti sjálfstæði leikjaframleiðandi Evrópu á Develop Awards. Eldar Ástþórsson telur verðlaunin "heilmikla viðurkenningu fyrir CCP sem fyrirtæki, enda þungavigtarmenn í tölvuleikjaiðnaðinum í dómnefnd."

Veðurblíðan og leyndardómur íssalans

Veðurblíðan leikur nú við landsmenn. Hiti hefur skriðið yfir 20 stig á nokkrum stöðum og heiðskírt er víðast hvar. Eins og svo oft áður þá er mikið um að vera hjá íssölum þegar viðrar vel — Fríða í Ísbúð Vesturbæjar brosir að minnsta kosti hringinn.

Mjög dapurlegt að svindla á eldri borgurum

"Þetta er auðvitað mjög dapurlegt," segir Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, kynningarfulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, um tilvik þar sem óþekktur aðili hringdi í eldri borgara og bauð þeim ókeypis heimilisþjónustu. Grunur leikur á um að viðkomandi aðili hafi haft eitthvað misjafnt í hyggju. "En því miður er ekkert sem kemur manni lengur á óvart," segir hann og beinir þeim tilmælum til eldra fólks og aðstandenda að vera á varðbergi.

Grunur á að óprúttnir aðilar blekki eldri borgara með gylliboðum

Svo virðist sem óprúttnir aðilar séu farnir að bjóða eldri borgurum heimilishjálp þeim að kostnaðarlausu. Lögreglan varar við slíkum gylliboðum. Ellilífeyrisþegi fékk hringingu af þessu tagi, en hringjandi sagði þjónustuna í boði tiltekinna samtaka. Hringt var úr leyninúmeri, en þegar haft var samband við umrædd samtök kannaðist enginn við málið og þjónustan var ekki á þeirra vegum.

MS sjúklingar eygja von

Ingunn Jónsdóttir fagna því að lyfið Gilenya verði innleitt hér á landi, en lyfið er við MS sjúkdómnum.

Vill fella niður tolla af innfluttum ostum

Stjórnvöld ættu að fella niður tolla af innfluttum ostum sem eru ekki framleiddir hér á landi. Slíkt væri fyrsta skrefið í átt að aukinni samkeppni á íslenskum búvörumarkaði, segir í nýjum pistli á vef Neytendasamtakanna í dag. Ástæða umfjöllunarinnar eru breyting á reglugerð þar sem dregið er úr innflutningshömlum á landbúnaðarvörur en greint var frá reglugerðinni á þriðjudag.

Valitor þarf að opna greiðslugátt fyrir WikiLeaks

Valitor þarf að opna greiðslugátt fyrir Datacell og WikiLeaks innan fjórtán daga, ellegar greiða 800 þúsund krónur í dagsektir á hverjum degi, samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í dag.

Stendur ekki til að semja við blaðakonuna

Í innanríkisráðuneytinu hefur ekki komið til tals að reyna að ná sáttum við blaðakonuna Erlu Hlynsdóttur um tvö dómsmál sem þegar hafa verið send út til Mannréttindadómstóls Evrópu. Samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu stendur ekki til að setjast að samningaborðinu í bili en þó er ekki útilokað að ákvörðun um það verði tekin síðar.

Magnús sest í bæjarstjórastólinn eftir helgi

Magnús Stefánsson fyrrverandi félagsmálaráðherra hefur störf sem bæjarstjóri í Garði strax eftir helgi. Bæjarstórnarfundur var haldinn fyrir hádegi þar sem gengið var formlega frá ráðningu hans. Magnús á að baki langa sögu í pólitísku starfi og stjórnsýslustörfum en hann var þingmaður Framsóknarflokksins um árabil og ráðherra til skamms tíma.

Stærsta skemmtiferðaskipið sem kemur

Skemmtiferðaskipið Celebrity Eclipse fór frá bryggju í Reykjavík í gær eftir að hafa verið í sólarhring á Íslandi. Skipið er stærsta skemmtiferðaskipið sem kemur til Íslands þetta sumar. Skipið er einungis tveggja ár gamalt, en það var vígt í apríl 2010, og er hið allra glæsilegasta eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. Samkvæmt áætlun mun skipið koma aftur þann 7. ágúst næstkomandi og vera hér í sólarhring.

Strandveiðar stöðvast á svæði B eftir helgi

Strandveiðar á svæði B munu stöðvast á þriðjudaginn næsta. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið sendi frá sér auglýsingu þess efnis í dag. Svæðið er frá Strandabyggð til Grýtubakkahrepps á norðurlandi.

Fá að kynnast lífsháttum frumbyggja

Almenningi verður um helgina boðið að setja sig í fótspor frumbyggja í Viðey. Skátar í Landnemum munu kenna áhugasömum að reisa skýli, kveikja eld og ýmislegt fleira sem var frumbyggjum lífsnauðsynlegt á árum áður.

Vaxtamöguleikar í skógrækt á Íslandi óendanlegir

Á næstu 20 árum má gera ráð fyrir um 600 ársverkum við grisjun nytjaskóga á Íslandi. Aðalsteinn Sigurgeirsson á Mógilsá, forstöðumaður rannsóknarstöðvar skógræktar á Mógilsá, segir að þó það séu ekki mörg störf séu vaxtamöguleikarnir í greininni í raun óendanlegir.

Björn Friðfinnsson látinn

Björn Friðfinnsson lögfræðingur og fyrrverandi ráðuneytisstjóri lést þann 11. júlí síðastliðinn, 72 ára að aldri. Björn Friðfinnsson lögfræðingur og fyrrverandi ráðuneytisstjóri lést þann 11. Júlí síðastliðinn, 72 ára að aldri. Björn átti að baki langan og farsælan starfsferil í opinberri stjórnsýslu. Hann starfaði sem ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneyti, sameinuðu viðskipta- og iðnaðarráðuneyti og í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Hann var einn af framkvæmdastjórum ESA (EFTA Surveillance Authority) í Brussel, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar og framkvæmdastjóri lögfræði-og stjórnsýsludeildar borgarinnar, fjármálastjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur, framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar í Mývatnssveit og bæjarstjóri á Húsavík, formaður Almannavarnaráðs og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Selurinn Eva fær ekki að koma til Íslands

Dýravinir sem björguðu íslenskum sel sem villtist og synti til Lincolnskíris í Bretlandi vilja senda hann aftur til Íslands. Þau geta það hins vegar ekki vegna andstöðu íslenskra yfirvalda. Það var hópurinn Skegness Natureland sem bjargaði selnum Evu í desember síðastliðnum. Þau fengu þau svör að óttast væri að Eva myndi bera sjúkdóma með sér. Málið hefur vakið athygli í Bretlandi og gerir fréttastofa breska ríkisútvarpsins BBC því ítarleg skil í dag.

Bændur eru sérlegir naglar

Skráð vinnuslys meðal bænda eru mun færri en hjá öðrum stéttum. Yfirlæknir Vinnueftirlitsins telur að fleiri bændur verði fyrir vinnuslysum en tölur gefa til kynna en flestir harki af sér án þess að leita til Vinnueftirlitsins. Þetta kemur fram í Bændablaðinu í dag.

Grímuklæddir menn ógnuðu starfsfólki með hnífi

Tveir karlmenn um tvítugt, ruddust grímuklæddir inn á videoleigu og hótuðu bæði starfsfólki og viðskiptavinum með hnífi. Þetta átti sér stað í Bónusvideo í Fellahverfi í Breiðholti um hálf tíu leytið í gærkvöldi.

Sveinn Andri: Niðurstaða héraðsdóms er "rock solid“

Ef Valitor ákveður að áfrýja dómi, um að fyrirtækinu beri að opna fyrir greiðsluþjónustu við WikiLeaks, verður það ekki á lögfræðilegum forsendum. Þetta segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður DataCell, sem tekur við styrktarframlögum til Wikileaks. Sveinn Andri segir að rökstuðningur héraðsdóms sér "rock solid".

Tónleikar til styrktar strokuþræl

Tónleikar til styrktar strokuþrælnum Mohammed Lo verða haldnir á Faktorý í kvöld, 12. júlí. Fram koma hljómsveitirnar Retro Stefson, Ojba Rasta og Sudden Weather Change.

Sjá næstu 50 fréttir