Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lítið mál að flokka sorp - Fréttaskýring Það er lítið mál að umbylta ruslamálum þjóðarinnar, aðalatriðið er að fræða almenning. Þessu heldur Agnes Gunnarsdóttir fram. Hún er framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs hjá Íslenska gámafélaginu sem þjónar fjöldamörgum sveitarfélög um allt land. 12.7.2012 06:30
Fjórir handteknir eftir rán og innbrot Lögreglan handtók fjóra menn í tveimur málum í gærkvöldi og nótt. Í öðru málinu var um rán að ræða og innbrot í hinu. 12.7.2012 06:19
Bændum bannað að gera ógerilsneyddan ost Kúabændur furða sig á nýrri reglugerð sem heimilar ferðalöngum að flytja til landsins takmarkað magn af ógerilsneyddum ostum. Samkvæmt reglugerðum er íslenskum kúabændum óheimilt að framleiða ógerilsneyddar mjólkurvörur. 12.7.2012 06:00
Erfðabreytileiki hefur áhrif á Alzheimer Rannsóknir vísindamanna hjá Íslenskri erfðagreiningu hafa sýnt fram á erfðabreytileika í mönnum sem minnkar mjög líkur á Alzheimer-sjúkdómnum og öðrum elliglöpum. 12.7.2012 05:00
Sjómenn og bændur frjórri en skrifstofufólk Ófrjósemi í heiminum virðist fara sívaxandi. Engin rannsókn hefur verið gerð hér á landi, en Danir eru verulega uggandi yfir þessu, enda það norræna ríki þar sem mest dregur úr fjórsemi karlmanna. 11.7.2012 21:00
Sækja fótbrotna konu í Landmannalaugum Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið í Landmannalaugar að sækja slasaðan ferðamann. Um er að ræða konu sem virðist hafa fótbrotnað. Líklega verður konan flutt á Landspítalann í Fossvogi, þó það sé ekki endanlega útséð með það. 11.7.2012 21:20
Jón Magnússon: Yfirmaður öryggismála ætti að vera settur af "Það er ósköp eðlilegt að menn reyni að koma sér undan ábyrgð, en þetta er með því aumkunarverðasta sem maður hefur séð,“ segir hæstaréttarlögmaðurinn og fyrrverandi þingmaðurinn Jón Magnússon, sem gagnrýnir viðbrögð Isavia harkalega fyrir að hafa brugðist öryggishlutverki sínu. Jón ræddi við Reykjavík síðdegis í dag um málefni tveggja hælisleitenda sem komust inn á Keflavíkurflugvöll og um borð í flugvél Icelandair. Þar fundust þeir skömmu síðar á klósettinu. 11.7.2012 20:00
Gilenya tekið í notkun á Landspítalanum á næstunni MS-lyfið Gilenya verður tekið í notkun á Landspítalanum á næstunni. Formaður MS félags Íslands segir það ánægjuefni og hafa mikla þýðingu fyrir þá sjúklinga sem fá lyfið. 11.7.2012 19:45
Allir sjúkrabílar úti í verkefnum á sama tíma Annir urðu í sjúkraflutningum á sjötta tímanum í dag hjá Slökkviliði Akureyrar. Tveir bílar fóru í neyðarflutning fram í Eyjafjörð. 11.7.2012 19:39
Segir innanríkisráðherra þurfa að virða skipulagsvald Reykjavíkur Reykjavíkurborg fer með skipulagsvald á flugvallarsvæðinu og það verður innanríkisráðherra að virða eins og aðrir. Þetta segir formaður borgarráðs sem telur að áætlanir um íbúabyggð í Vatnsmýrinni standist og flugvöllurinn verði farinn þaðan árið 2024. 11.7.2012 19:30
Einn handtekinn á mótmælunum - segir lögregluna hafa farið offari "Það var sérkennilegt að sjá hversu mikill viðbúnaður var þarna,“ segir María Lilja Þrastardóttir, sem ásamt hópi mótmælenda tóku sér stöðu fyrir framan rússneska sendiráðið í dag til þess að sýna hljómsveitinni Pussy Riot samhug. Konurnar í hljómsveitinni voru handteknar í Rússlandi í mars síðastliðnum fyrir að halda pönktónleikar í kirkju þar sem þær kröfðust þess að Vladimar Pútin, forsætisráðherra Rússlands, yrði settur af. 11.7.2012 18:23
Breiðholtshrottanir: Rændu hálfri milljón af manni á sjötugsaldri Mennirnir tveir sem ruddust inn á heimili karlmanns á sjötugsaldri í Breiðholti á dögunum skulu sæta gæsluvarðhaldi til 13. júlí. 11.7.2012 17:28
Mótmæltu meðferðinni á Pussy Riot Hópur fólks kom saman við rússneska sendiráðið við Garðastræti í Reykjavík í dag til að mótmæla því að þrír af meðlimum rússnensku pönksveitarinnar Pussy Riot hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í Moskvu. 11.7.2012 16:46
Sjúklingar gleðjast yfir ákvörðun yfirvalda "Við hjá félaginu erum afskaplega glöð með að þetta fékk svona skjóta og góða afgreiðslu,“ segir Berglind Guðmundsdóttir, formaður MS félagsins. Ákveðið hefur verið að ríkið taki þátt í greiðslukostnaði vegna lyfsins Gilenya. Gilenya-meðferð verður veitt þeim MS sjúklingum sem hafa nú þegar reynt MS-lyfið Tysabri og orðið að hætta notkun þess. 11.7.2012 15:38
Langt í mikla timburframleiðslu Það verður ekki fyrr en eftir um 20 ár að almennilegur skriður kemst á timburframleiðslu á Íslandi að sögn Brynjólfs Jónssonar, framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Íslands. Brynjólfur er þó viss um að þegar fram líða stundir verði hægt að framleiða timbur á Íslandi. Það tekur hins vegar langan tíma. 11.7.2012 15:31
Karlmaður tekinn ölvaður á reiðhjóli Karl á fimmtugsaldri var stöðvaður í austurborginni í gærmorgun. Sá var á reiðhjóli en ófær um að stjórna því enda ölvaður. Sami maður kom svo aftur við sögu lögreglu í hádeginu, en þá var hann kominn í miðborgina og var til ófriðar í ónefndri verslun. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu, en sleppt nokkru síðar. Afskiptum af manninum var hins vegar ekki lokið þann daginn því í gærkvöldi varð hann aftur á vegi lögreglunnar. Þá virtist reyndar verið runnið af honum, en það breytti því ekki að hann hafði tekið ýmsa hluti. Grunur lék á því að um þýfi væri að ræða og var manninum gert að afhenda hlutina, sem og hann gerði mótþróalaust. 11.7.2012 15:00
Verðlaunahafar í ljósmyndakeppni Vísis og WOW Gríðarleg þátttaka var í ljósmyndakeppni Vísis og WOW Air sem fór fram í júní. Alls bárust inn um fjögurþúsund myndir og skiptust þær í þrjá flokka, náttúru, fólk og húmor. Þær tíu myndir sem fengu flest like í hverjum flokki fóru í úrslit og það var fagnefnd skipuð ljósmyndadeild Fréttablaðsins og Vísis, fulltrúum Vísis og WOW Air sem valdi á milli þeirra. 11.7.2012 14:27
Brynjar rassskellir fjölmiðla Brynjar Níelsson, fyrrverandi formaður Lögmannafélagsins, hellir sér yfir fjölmiðla í bloggi á Pressunni í dag. Tilefnið er upphrópanir í fjölmiðlum í kjölfar niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu um að íslenska ríkið hefði brotið mannréttindi á tveimur blaðakonum. 11.7.2012 14:47
Dýrðlegt veður í dag Veðrið á Íslandi er í einu orði sagt dýrðlegt í dag, hvert sem farið er. Eins og meðfylgjandi mynd ber með sér var víðast heiðskírt í hádeginu. Helga Ívarsdóttir veðurfræðingur segir þó að það sé örlítið skýjað fyrir austan, aðeins við Eyjafjörðinn og við Höfn sé hálfskýjað. Veðurspáin fyrir næstu daga lítur vel út. "Við gefum út spá fram á þriðjudag og það er í raun og veru bara mjög fín spá, hæglætisveður og hlýtt í veðri,“ segir Helga. Hún segir að hugsanlega verði fólk vart við einstaka dropa á stöku stað en það verði minniháttar. Víðast hvar verði bjart. 11.7.2012 14:40
Brátt hægt að framleiða timbur úr íslenskum skógum Skógarbætur gætu framleitt timbur fyrir um milljarð króna á ári áður en langt um líður. Þetta kom fram í fréttum Ríkissjónvarpsins í gær. Framleiðslan ætti að geta hafist strax á næsta ári. 11.7.2012 14:13
Nýtt MS lyf samþykkt Greiðsluþátttaka ríkisins í MS lyfinu Gilenya hefur verið samþykkt, en Landspítalinn óskaði eftir flýtimeðferð á afgreiðslu umsóknar um innleiðingu lyfsins þann 28. júní síðastliðinn. 11.7.2012 14:12
Sakar stjórnvöld um að þverbrjóta reglur varðandi flóttamenn Íslensk stjórnvöld hafa þverbrotið alþjóðlegar reglur um meðhöndlun flóttamanna. Þetta segir formaður nýstofnaðra samtaka sem hafa það að markmiði að varpa ljósi á málefni flóttafólks og hælisleitenda á Íslandi. 11.7.2012 13:10
Slökkviliðsstjóri hefur áhyggjur af þurrkum Slökkviliðsstjórinn í Árnessýslu hefur vaxandi áhyggjur af langvarandi þurrkum á Suðurlandi. Hann segir slökkviliðið vera skíthrætt við einnota grill og önnur ný tæki sem geta verið mjög varasöm úti í náttúrunni. 11.7.2012 12:53
Hringtorg við Rauðavatn lokað í kvöld Í kvöld eru fyrirhugaðar malbikunarframkvæmdir í hringtorgi við Rauðavatn á mótum Suðurlandsvegar og Breiðholtsbrautar. Vegna þessa verður hringtorgið lokað að hluta frá klukkan 21 og fram eftir nóttu. Opið verður fyrir umferð að austan til vesturs fram eftir kvöldi, svo verður lokuninni snúið við. Um eða eftir miðnætti gæti orðið um tímabundna lokun að ræða. Settar verða upp merktar hjáleiðir í gegnum Norðlingaholt og Árbæ. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát. 11.7.2012 12:13
Hallveigarliðar harma fyrirhugaðar breytingar á miðbænum Ungir Jafnaðarmenn í Reykjavík harma fyrirhugaðar endurbætur á Ingólfstorgi, Fógetagarðinum og Austurvelli. 11.7.2012 11:42
Segir ráðningar án auglýsinga grafa undan trausti á ríkinu Umboðsmaður Alþingis vill að þeir sem hafa ráðningarvald hjá hinu opinbera gæti betur að því sem býr að baki lögum um auglýsingaskyldu. Hann telur að með því sé hægt að auka traust á stjórnsýslunni. Þá telur hann mikilvægt að þegar auglýst er, sé ráðið í störfin í samræmi við þau sjónarmið sem fram koma í auglýsingu. 11.7.2012 11:30
Bílastæði gert vistvænna Við sportvöruverslunina Tri við Suðurlandsbraut getur nú að líta venju fremur vistvænt bílastæði. Eigendur verslunarinnar ákváðu að tími væri til kominn að gera hjólafólki hátt undir höfði og lögðu eitt bílastæði undir hjólagrind. Stæðið hefur vakið lukku meðal hjólafólks en stæðið er beint fyrir framan innganginn. Að sögn eiganda var hugmyndin sú að veita hjólafólki besta aðgengið að búðinni enda er hún ætluð m.a. fyrir hjólreiðarmenn. 11.7.2012 11:29
Jakob Frímann fær lífsýni úr Davíð Stefánssyni Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður mun fá að gang að lífsýnum Davíðs Stefánssonar skálds frá Fagraskógi og tveggja annarra einstaklinga, samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá í morgun. Þetta kemur fram á mbl.is Jakob hyggst nýta lífsýnin til ættfræðirannsókna 11.7.2012 11:23
Vill gera dómara afturreka Þorvaldur Gylfason, hagfræðiprófessor, viðraði þá hugmynd á bloggi sínu í gær hvort íslenskir dómarar ættu að verða leystir frá störfum ef dómar þeirra reyndust rangir fyrir alþjóðlegum dómstólum. 11.7.2012 10:37
Fjörutíu ár liðin frá Einvígi aldarinnar Fjörutíu ár eru liðin í dag frá því að Einvígi aldarinnar hófst. Þá tefldu þeir Boris Spassky, heimsmeistari í skák, og Bobby Fischer sína fyrstu skák hér í Reykjavík. Skákmenn munu halda upp á daginn með því að nýtt húsnæði skákfélagsins á Suðurlandi verður vígt. Það er helgað minningu Fischers og verður í senn minningarsetur um hann. Gunnar Finnlaugsson skákáhugamaður hefur haft veg og vanda að byggingu hússins. Fischer hvílir, sem kunnugt er, í Laugardælakirkjugarði á Selfossi. 11.7.2012 10:33
Boðað til samstöðumótmæla Þrjár konur, sem eru í rússnesku pönksveitinni Pussy Riot og hafa verið í haldi lögreglu í Moskvu frá því í mars, hafa hafið hungurverkfall. 11.7.2012 10:00
Íþróttir þema ljósmyndakeppni Íþróttir eru þema annarrar ljósmyndakeppni sem Fréttablaðið stendur fyrir í sumar. Vonast er eftir sem fjölbreytilegustu myndum frá þátttakendum en undir íþróttaþema geta fallið myndir frá íþróttamótum barna og fullorðinna, myndir af brennó, badmintonleik úti í garði eða golfi svo fáein dæmi séu tekin. Skilafrestur fyrir íþróttamyndirnar er 18. júlí en myndir skal senda á netfangið Ljosmyndasamkeppni@frettabladid.is. 11.7.2012 10:00
Skurðaðgerðir við lungnakrabba skila góðum árangri Árangur skurðaðgerða vegna lungnakrabbameins hér á landi er mjög góður í alþjóðlegum samanburði og lífslíkur þeirra sem gangast undir slíkar aðgerðir hafa batnað umtalsvert. Þetta kemur fram í grein íslenskra vísindamanna við Háskóla Íslands og Landspítala sem birtist nýverið í einu virtasta tímariti heims á sviði krabbameinslækninga, Journal of Thoracic Oncology. 11.7.2012 09:35
Kúabændur furða sig á ákvörðun landbúnaðarráðherra Landssamband kúabænda furðar sig á þeirri ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að heimila innflutning á ostum unnum úr ógerilsneyddri mjólk en reglugerð þess efnis var undirrituð í vor eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum. 11.7.2012 06:56
Ætlar á snekkju í kringum Ísland, eftir hringveginum Skoskur ævintýramaður, Andrew Baldwin að nafni, ætlar að fara hringinn í kringum Ísland á lítilli snekkju sinni. Þetta væri svo sem vart í frásögur færandi nema að hann ætlar að keyra snekkjuna, sem heitir Scary Marie, eftir hringveginum. 11.7.2012 06:28
Lyfjakostnaður lækkar áfram Lyfjakostnaður Sjúkratrygginga, vegna lyfja annarra en sjúkrahúslyfja, lækkaði árið 2011 frá árinu á undan þrátt fyrir að lyfjanotkun hefði aukist. Lækkunin er einkum til komin vegna breytinga stjórnvalda á greiðsluþátttöku í þunglyndis- og flogaveikislyfjum. 11.7.2012 11:00
Vill dýralögreglu sem sérhæfir sig í eftirliti „Eftirlit með dýravelferð hér á landi er í mjög lágum gæðaflokki,“ segir Árni Stefán Árnason, lögfræðingur í dýrarétti. „Málarekstur tekur langan tíma, valdhafar beita ekki inngripum og hagsmunatengsl eru mjög rík.“ 11.7.2012 11:00
Tryggja farsímasamband um allan heim Íslenska fyrirtækið On Waves, sem er að stærstum hluta í eigu Símans, tryggir áhöfn og farþegum á hátt í 600 stórskipum um allan heim farsímasamband. Í þeim hópi er fjöldi skemmtiferðaskipa en eitt þeirra, Celebrity Eclipse, lagðist að bryggju í Reykjavík í gær. 11.7.2012 10:30
Segir úrbóta þörf eftir laumufarþegaatvik Öryggisferlar flugfélaga á Keflavíkurflugvelli eru óbeint tengdir almennu öryggiskerfi á flugvallarsvæðinu. Úrbóta er þó þörf í ljósi atviks um síðustu helgi þegar tveir menn komust inn á öryggissvæði flugvallarins og upp í flugvél Icelandair þar sem þeir fundust. Þetta segir Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Iceland Express, í samtali við Fréttablaðið, aðspurður um yfirlýsingu Isavia um að öryggiskerfi á flugvellinum „hafi virkað“ þrátt fyrir uppákomuna. 11.7.2012 09:00
Frjókorn fleiri í þurrki og hita Mikil frjódreifing var í Reykjavík í júní enda mánuðurinn óvenjuþurr. Heildarfjöldi frjókorna í júní reyndist 1.841 frjó á rúmmetra. Aðeins í fyrra mældust þau fleiri. 11.7.2012 08:00
Fréttablaðið heldur ótvíræðu forskoti Fréttablaðið er sem fyrr langmest lesna blað landsins samkvæmt mælingum Capacent. Nýjasta lestrarkönnunin, fyrir annan ársfjórðung 2012, sýnir að 68,6 prósent höfuðborgarbúa á aldrinum 18 til 49 ára lesa blaðið, sem er lækkun úr 69,3 prósentum frá fyrsta ársfjórðungi. 11.7.2012 08:00
Tekinn með fíkniefni í Hjartargarðinum Lögregla stöðvaði mann í Hjartargarðinum svokallaða við Laugaveg í nótt. Hann reyndist vera með fíkniefni á sér og fær hann á sig kæru fyrir vikið. Einnig var hann kærður fyrir brot á lögreglusamþykkt. 11.7.2012 07:37
Koma má með hrátt kjöt ef það er frosið Ferðamenn geta nú komið með hrátt kjöt til landsins sé það frosið og prófað fyrir salmónellu. Ekki þarf að greiða toll af kjötinu sé magnið undir þremur kílóum. Afla þarf þó leyfis hjá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu fyrir fram. Vottorðakrafa fyrir soðnar vörur hefur verið felld niður, að því er Gísli Sverrir Halldórsson, dýralæknir inn- og útflutningsmála hjá Matvælastofnun (MAST) greinir frá. 11.7.2012 07:30
Gefa 100 kíló af erlendri mynt Forsvarsmenn Strætó afhentu Dóru Elínu Atladóttur, forstöðumanni Vildarbarna Icelandair, yfir hundrað kíló af erlendri mynt nýverið. 11.7.2012 07:00
Fleiri geitungar en voru í fyrra Það sem af er sumri hafa meindýraeyðar Reykjavíkurborgar þurft að eyða mun fleiri geitungabúum en síðastliðin ár. Guðmundur Björnsson, meindýraeyðir hjá Reykjavíkurborg, segir þó að nú sé geitungatímabilið rétt að hefjast svo að enn sé of snemmt að bera árin saman. "Þetta er þó vísbending um að þeim gæti verið að fjölga,“ segir hann. 11.7.2012 06:30