Fleiri fréttir

Lundur í minningu fórnarlamba

Gróðurreitur til minningar um þá sem voru myrtir í Ósló og Útey 22. júlí 2011 verður í jaðri friðlandsins í Vatnsmýrinni; í nánd við Norræna húsið og Háskóla Íslands.

Þóra heillaðist af krafti Grindavíkur

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi hélt framboðsfund á Sjómannastofunni Vör í Grindavík á dögunum. Á framboðsfundinum var Þóru gefið orkerað hálsmen, eftir listakonuna Toggu, en hálsmenið ber nafnið Brynja.

Boðar sölu á Landsbankahlut í ár

Til stendur að hefja sölu á hlut ríkisins að því er Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í viðtali við fréttastofuna Reuters. Salan er ekki að öllu í samræmi við framtíðarstefnu Bankasýslu ríkisins frá í mars síðastliðnum, þar sem segir að stofnunin geri ekki ráð fyrir því að leggja til að sala eignarhluta í Arion banka og Landsbankanum geti hafist fyrr en á næsta ári.

Þjórshátíð fer fram næstu helgi

"Missum ekki tökin" er yfirskrift tónlistarhátíðarinnar Þjórshátíð sem fer fram um næstu helgi en markmiðið með henni er að vekja fólk til umhugsunar um náttúruna og afleiðingar óafturkræfra framkvæmda. Hugrún Halldórsdóttir hitti þrjá tónglaða og umhverfissinnaða skipuleggjendur í dag.

Þurfa að gangast undir ítarlega leit fyrir framan eftirlitsmyndavél

Allir starfsmenn íþróttavöruverslunarinnar Sports Direct þurfa að gangast undir ítarlega leit fyrir framan eftirlitsmyndavél þegar þeir yfirgefa vinnustaðinn. Kvartað hefur verið til VR vegna fyrirkomulagsins. Framkvæmdarstjórinn segir sömu reglur gilda í öllum verslunum keðjunnar.

Síbrotamaður í gæsluvarðhald

Síbrotamaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 6. júlí næstkomandi. Maðurinn var handtekinn fyrir helgi grunaður um fjölmörg afbrot, meðal annars bílaþjófnað, innbrot, og fleira.

Meintum barnaníðingi sleppt úr gæsluvarðhaldi

Karlmaður, sem hefur verið ákærður fyrir að misnota ellefu ára dóttur sína, hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi. Hæstiréttur Íslands staðfesti úrskurð Héraðsdóms Vesturlands sem hafnaði því að maðurinn yrði áfram í gæsluvarðhaldi, en hann hefur setið inni síðan hann var handtekinn grunaður um verknaðinn í byrjun desember á síðasta ári.

Óskar Hrafn hættir á Fréttatímanum

Óskar Hrafn Þorvaldsson, fréttastjóri Fréttatímans, mun láta af störfum á morgun, en hann hefur fylgt Fréttatímanum frá stofnun blaðsins. Jón Kaldal hætti einnig störfum á blaðinu fyrir skömmu en Óskar segir þær hræringar ekkert tengjast sínum starfslokum.

Frumvarp um Vaðlaheiðargöng afgreitt í nefnd

Alþingi samþykkti síðdegis í dag að vísa frumvarpi um fjármögnun Vaðlaheiðarganga í nefnd, en þrjátíu og einn þingmaður samþykkti frumvarpið í atkvæðagreiðslu.

Tom Cruise á leið til landsins

Kvikmyndastjarnan Tom Cruise dvelur á Íslandi í nokkrar vikur nú í júní og júlí við tökur á Hollywood-myndinni Oblivion. Á fréttavefnum dfs.is segir að tvö hundruð manna tökulið fylgi leikarnum til landsins en myndin verður meðal annars tekin upp á svæðinu á Jökulheimaleið á Suðurlandi.

Safnaði hálfri milljón og hárið fékk að fjúka

Erna Kristín Stefánsdóttir lét raka af sér hárið í morgun eftir að henni tókst að safna hálfri milljón til styrktar ABC-barnahjálpar. Erna Kristín var í viðtali við Ísland í dag í síðustu viku þar sem hún sagði frá áskoruninni.

Svifdrekamaður brotlenti

Svifdrekamaður brotlenti í Hafrafelli um klukkan tvö í dag og eru fyrstu björgunarsveitarmenn og sjúkraflutningamenn komnir á vettvang. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg virðist maðurinn vera fótbrotinn. Hafrafellið er bratt og því þarf að setja manninn í börur og tryggja hann niður með fjalllínum til að síga honum niður þar sem sjúkrabíll bíður. Ekki er vitað um málið að svo stöddu.

Börnin fá gefins banana á meðan foreldrarnir kaupa í matinn

Yngstu viðskiptavinir Hagkaups geta nú fengið gefins banana á meðan foreldrar eða forráðamenn þeirra kaupa í matinn. Börnunum líður betur í verslunarferðinni og gera má ráð fyrir að sælgætisþörfin minnki segir innkaupastjóri.

Allt stefnir í sumarþing

Við upphaf þingfundar í morgun var hart tekist á um mögulegt sumarþing, en allt stefnir í að það hefjist 2. júlí. Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur gefið út að boðað verði til sumarþings ef ekki náist að afgreiða kvótafrumvarpið.

Færri slys vegna vitundarvakningar ökumanna

Þrjátíu bifhjólamenn slösuðust alvarlega í umferðinni í fyrra miðað við fjörutíu og þrjá árið áður. Fækkunin er meðal annars rakin til vitundavakningar ökumanna.

Verulega dregið úr alvarlegum slysum bifhjólamanna

Verulega hefur dregið úr slysum milli ára og þá sérstaklega alvarlegum slysum meðal bifhjólamanna. Þetta kemur fram í slysaskýrslu Umferðarstofu fyrir árið í fyrra. Heildarfjöldi slasaðra og látinna bifhjólamanna á síðasta ári var 74 en árið áður voru þeir 81 talsins. Þetta er u.þ.b. 9% fækkun og hefur þessi fjöldi stöðugt minnkað frá árinu 2008 þegar slysin voru 107 talsins. Einn maður lét lífið í fyrra á bifhjóli en það slys varð í júlí þegar karlmaður ók léttu bifhjóli út af vegi í Víkum á Skaga í Austur Húnavatnssýslu.

Blindhorn og aðrar slysagildrur á stígum

Víða um höfuðborgarsvæðið má finna sameiginlega göngu- og hjólastíga, sem eru yfirleitt í mikilli notkun á sumrin. Á mörgum stöðum eru blindhorn og aðrar slysagildrur. Pjetur Sigurðsson ljósmyndari tók meðfylgjandi myndir.

Úraræningjar fyrir dóm í dag

Aðalmeðferð fer fram í dag í máli ríkissaksóknara gegn þeim Grzegorz Marcin Nowak og Pawel Jerzy Podburaczynski, sem eru grunaðir um hafa skipulagt úrarán í Michelsen á Laugavegi síðasta haust. Einn maður hefur þegar verið dæmdur í 5 ára fangelsi fyrir aðild sína að ráninu.

ÍSÍ fordæmir ofbeldisfullar busavígslur

„Við munum klárlega senda þá áskorun til okkar sérsambanda að við fordæmum alla slíka hegðun í ljósi þessarar umræðu,“ segir Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ). „Svona á ekki að eiga sér stað.“

Fyrning hefst við 18 ára aldur

Alþingi hefur samþykkt breytingar á almennum hegningarlögum til að efla varnir gegn kynferðislegrimisnotkun barna. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra lagði fram frumvarp þess efnis.

Kosið um Vaðlaheiðargöng í dag

Greidd verða atkvæði í dag um hvort fjármálaráðherra fái heimild til að ábyrgjast 8,7 milljarða króna lán vegna Vaðlaheiðarganga. Umræðum um málið lauk í gær, en andstaða við það er í öllum flokkum.

Kona hætt komin er bíll hennar valt á hvolf ofan í Fnjóská

Kona á fimmtugsaldri, sem var ein i bíl sínum, var hætt komin þegar hún missti bíl sinn út af þjóðveginum við Dalsmynni í Fnjóskadal, austan við Akureyri upp úr klukkan eitt í nótt, og bíllinn valt á hvolf ofan í Fnjóská.

Umræðu lokið um göng en afdrif óljós

Alþingi hefur lokið umræðu um fjármögnun Vaðlaheiðarganga og atkvæðagreiðslan ein er eftir. Óljóst er um stuðning og gengur málið þvert á alla flokka. Tekist er á um hvort taka eigi framkvæmdina fram yfir samgönguáætlun.

Banaslysum barna hefur snarfækkað

Ísland fær næstbestu einkunn í rannsókn á slysavörnum barna í Evrópu. Finnland skorar hæst. Umferðarslys er helsta ástæða dauðsfalla vegna slysa ungmenna á Íslandi. Banaslysum barna hefur fækkað um 65 prósent síðan 1991.

Aldrei meira fuglalíf í Vatnsmýri

Gróðurhús sem stendur fyrir utan Norræna húsið var formlega opnað á dögunum. Úr húsinu er gott útsýni yfir Vatnsmýrina en þaðan gefst fólki kostur á að skoða fuglalífið í mýrinni.

Rándýrum gítar stolið úr bíl

Brotist var inn í bíl við Stórholt í Reykjavík á tólfta tímanum í gærkvöldi og úr honum stolið forláta kassagítar, sem metinn er á 850 þúsund krónur.

Ferðamenn í kröppum dansi í Skyndidalsá

Tveir belgískir ferðamenn komust í hann krappann þegar þeir festu lítinn jeppling sinn í Skyndidalsá á leið sinni eftir lokuðum vegi inn á Lónsöræfi seint í gærkvöldi.

Engin niðurstaða um þinglok

Ekki hefur tekist að ná samkomulagi um þinglok en formenn allra stjórnmálaflokkanna funduðu með Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttir, forseta Alþingis, í kvöld. Þetta kom fram í tíu fréttum sjónvarpsins. Þingfundur stendur enn yfir en Ásta Ragnheiður fundar nú með þingflokksformönnum. Ekki er komin niðurstaða eftir þann fund.

Misstu bílinn ofan í sprungu

Tveir erlendir ferðamenn misstu framenda á jeppa, sem þeir voru á, ofan í litla snjósprungu við Hrafntinnusker í kvöld. Björgunarsveitarmenn frá Hellu eru nú á leið til þeirra og aðstoða þá. Ekkert amar að mönnunum en þeir náðu sambandi við Neyðarlínu og óskuðu eftir aðstoð björgunarsveitar. Ef allt gengur að óskum má reikna með að hópurinn verði komin aftur til byggða undir morgun, milli fjögur og fimm.

Vörður nær í vélarvana bát

Vörður, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Patreksfirði er nú á leið að sækja bát sem er vélarvana. Um er að ræða handfærabát sem er um 17 sjómílur utan við mynni Patreksfjarðar. Báturinn er á reki en spegilsléttur sjór er og því engin hætta á ferðum. Reiknað er með að Vörður komið að bátnum núna á ellefta tímanum. Hann mun taka handfærabátinn í tog og ef allt gengur að óskum munu þeir koma í höfn fyrri hluta nætur.

Ármann með 1,5 milljón á mánuði - launin bara hækkað um 4,4%

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir að heildalaun bæjarstjóra hafi hækkað um 4,4 prósent frá 1. febrúar árið 2009. Týr, félag ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi, gagnrýndu Ármann í dag fyrir þau ummæli sín að 23 prósent hækkun á eigin launum og launum bæjarfulltrúa sé ekki launa hækkun heldur leiðrétting.

Stefna á engin banaslys eftir 2020

Sænski bílaframleiðandinn Volvo hefur það á stefnuskrá sinni að frá árinu 2020 muni enginn láta lífið í nýjum Volvobílum né slasast alvarlega.

Magnaður flugtúr

Það eru ekki bara golfarar og grillsnillingar sem gleðjast þegar sólin hækkar á lofti. Því sumarið er líka tíminn sem flugáhugamenn draga út græjur sínar og fara út að leika. Sigríður Elva í Íslandi í dag hitti Sigurð Ásgeirsson flugmann og fylgdist með mögnuðum flugtúr.

Þrjátíu keyrðu ofhratt á Reykjanesbrautinni í dag

Þrjátíu ökumenn voru teknir fyrir ofhraðan akstur á Reykjanesbrautinni í dag, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu, en þar er 90 kílómetra hámarkshraði. Á Facebook-síðu lögreglunnar segir: "Vonandi þurfum við ekki að hitta svona marga fyrir þessar sakir aftur.“

Gæti leitt til fækkunar ferðamanna

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, óttast að vandi evruríkjanna muni leiða til fækkunar ferðamanna hér á landi og versnandi viðskiptakjara fyrir íslensk fyrirtæki.

Tvö kísilver og tvær virkjanir í pípunum í Þingeyjarsýslum

Fyrirtækið Thorsil áformar þrjátíu milljarða króna uppbyggingu kísilvers á Bakka og stefnir nú í að tvær slíkar verksmiðjur taki samtímis til starfa við Húsavík eftir þrjú ár. Thorsil ætlaði upphaflega reisa verksmiðjuna í Þorlákshöfn og kaupa rafmagn af Orkuveitu Reykjavíkur og var samningsrammi undirritaður um verkefnið fyrir tveimur árum.

Tíu mánaða gamall veðurfréttatími í loftið

Ríkissjónvarpið bauð upp á endursýningu á 10 mánaða gömlum veðurfréttatíma að loknum tíufréttum í gærkvöld. Trausti Jónsson, veðurfræðingur, greinir frá þessu á bloggsíðu sinni.

Tæplega tíu þúsund sækja um í Háskóla Íslands

Tæplega 9.500 umsóknir um grunn- og framhaldsnám bárust Háskóla Íslands fyrir komandi haustmisseri. Það er fjölgun frá metárinu í fyrra þegar ríflega 9.200 umsóknir bárust skólanum samkvæmt tilkynningu frá skólanum. Ef horft er til ársins 2009 má sjá að umsóknum hefur fjölgað um rúm 40 prósent en þá voru þær um 6.800.

Hátt í 2000 manns hafa kosið utankjörfundar

Alls hafa 1856 kosið utankjörfundar vegna forsetakosninganna sem framundan eru. Þar af hafa 692 kosið í Reykjavík. Utankjörfundaratkvæðagreiðslan hófst 5. maí síðastliðinn.

Iceland Express ódýrastir

Annan mánuðinn í röð sýna verðkannanir fréttasíðunnar Túrista að fargjöld Iceland Express og WOW air til London lækka þegar nær dregur brottför. Farið til borgarinnar í viku 28 (9-15.júlí) er ódýrara í dag en það var fyrir átta vikum síðan hjá báðum félögum.

Símenntun fyrir ungt fólk með geðraskanir

Í morgun var undirritaður samningur Námsflokka Reykjavíkur og Fjölmenntar og um fjölbreytta símenntun fyrir fatlaða, einkum fyrir ungt fólk með geðraskanir. Boðið verður upp á lengri og skemmri námskeið samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Sjá næstu 50 fréttir