Fleiri
Mót á hverjum föstudegi í júlí 29.6.2012 04:30 Fleiri stelpur í hestaíþróttinni Þátttaka stelpna í hestaíþróttum hefur farið vaxandi. Hér á landi hafa strákar verið duglegri við að stunda íþróttina þótt kynjahlutföll skráðra meðlima í hestamannafélögum á Íslandi séu nokkuð jöfn. 29.6.2012 04:15 Forsíðumynd og flugmiðar með Wow-air í fyrstu verðlaun Útivist er þema fyrstu ljósmyndasamkeppni sumarsins sem Fréttablaðið efnir til meðal lesenda sinna. Þeir eru hvattir til að senda sem fjölbreytilegastar myndir af viðfangsefnum sem tengjast útivist með einum eða öðrum hætti. 29.6.2012 04:15 Sjá næstu 50 fréttir
Þóra notaði Facebook mest - Ólafur Ragnar svaraði sjaldnast Þekkingarfyrirtækið Cloud Engineering hefur tekið saman virkni og notkun forsetaframbjóðanda á samskiptavefnum Facebook. Um er að ræða nokkuð óvísindalega könnun en engu að síður ágætis vísir að því hvernig frambjóðendur notuðu þennan nýja miðil sem aldrei hefur verið nýttur í forsetakosningum hér á landi. 30.6.2012 15:47
Betsson veðjar á íslenska hesta Veðmálasíðan betsson.com býður í fyrsta skipti uppá það að hægt sé að veðja til um úrslit á Landsmóti hestamanna. Um tvo flokka er að ræða en það eru stærstu viðburðir mótsins, A flokkur gæðinga og B flokkur gæðinga en úrslit fara fram á morgun sunnudag. 30.6.2012 15:33
Hvernig sem fer ætlar Ari að slá grasið á morgun „Ég skynja það þannig að ég mun fá betri kosningu en kannanir sýna," segir Ari Trausti Guðmundsson forsetaframbjóðandi sem er bjartsýnn á gengi sitt í kosningunum í dag. 30.6.2012 15:30
Hannes eyðir kosningadeginum í Skagafirði "Þetta leggst ljómandi vel í mig,“ svarar Hannes Bjarnason forsetaframbjóðandi, sem eyðir kosningdeginum í Skagafirði ásamt fjölskyldu sinni í dag. Þar mun hann einnig kjósa og í kvöld mun hann halda kosningavöku í Miðgarði í Varmahlíð. Hannes er ættaður frá Skagafirði en hefur, eins og kunnugt er, verið búsettur í Noregi síðastliðin ár. 30.6.2012 14:36
Sjúkir án þess að vita það Talið er að stór hluti þeirra sem hafa langvinna lungnateppu (LLT), jafnvel þeir sem hafa langt genginn sjúkdóm, hafi ekki verið greindir og hafi þar af leiðandi ekki fengið neina meðhöndlun. Sjúkdómurinn er engu að síður talinn verða þriðja algengasta dánarorsökin á Íslandi árið 2020 og ein algengasta orsök örorku. 30.6.2012 07:00
Stundvísast í allri Evrópu Icelandair var stundvísast allra evrópskra flugfélaga sem eru í AEA, Evrópusambandi flugfélaga, í langflugi í maí. Flugfélagið var með 91,1 prósents stundvísi og er einnig í efsta sæti þegar fyrstu fimm mánuðir ársins eru skoðaðir, með 89,9 prósent. 30.6.2012 06:30
„Dálítið skrýtin uppákoma“ Þrír pólskir menn sem ákærðir eru fyrir að flytja til landsins tæp níu kíló af amfetamíni í sápubrúsum í apríl tóku sér í gær frest fram í næstu viku til að taka afstöðu til ákærunnar. 30.6.2012 06:00
Sér hnúfubakinn út um stofugluggann „Það er ódýrt að fara í hvalaskoðun á Patreksfirði skal ég segja þér,“ segir Bríet Arnardóttir sem býr á Patreksfirði. Þar geta vegfarendur hæglega séð hnúfubaka frá götum bæjarins. Bríet telur að um fimm skepnur svamli um fjörðinn. 30.6.2012 03:15
Engar athugasemdir við Þorláksbúð Ríkisendurskoðun hefur lokið athugun sinni á því hvernig félagið utan um byggingu Þorláksbúðar í Skálholti hefur ráðstafað styrkjum sínum. Könnunin gefur ekki tilefni til athugasemda, að því er segir í bréfi Ríkisendurskoðunar til forseta Alþingis. 30.6.2012 03:00
Endurvinnslan á Akureyri flutt Endurvinnslustöðin við Réttarhvamm á Akureyri verður flutt að Furuvöllum 11 á næstu dögum. Móttakan lokaði á miðvikudag vegna flutninganna og opnar aftur næsta miðvikudag. 30.6.2012 02:30
Fyrsta útskriftin Útskriftarathöfn Döffmenntaskólans fór í gær. Um er að ræða fyrsta námskeið sinnar tegundar á landinu og snýr að símenntun fyrir heyrnarlausa á þeirra móðurmáli, táknmáli. 30.6.2012 02:15
Siðareglur háðar túlkunum Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar ítrekar athugasemd sína um nauðsyn þess að settur verði á fót vettvangur til umræðu um siðareglur starfsmanna og borgarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn Vinstri grænna og Sjálfstæðismanna í borgaráði. 30.6.2012 02:15
Tæplega fjögur þúsund greitt atkvæði í Suðvesturkjördæmi Tæplega fjögur þúsund manns, eða 3837 höfðu greitt atkvæði í Suðvesturkjördæmi klukkan ellefu í morgun. Á kjörskrá eru rétt rúmlega 62 þúsund manns. Kjörsóknin er því 6,2 prósent sem er um prósenti minna en í síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu sem snérist um Icesave. Og töluvert minna en í síðustu tveimur þingkosningum. 30.6.2012 11:41
Sprelligosi handtekinn á Landsmóti - myndir Á miðri ræktunarbússýningu á Landsmóti hestamanna í kvöld hljóp maður inn á reiðvöllinn með spýtu milli lappanna og þóttist vera á hesti. Hann lét öllum illum látum á vellinum við mikinn fögnuð áhorfenda og knapa. Hann vakti hins vegar ekki jafnmikla lukku hjá lögreglunni sem handtók hann fyrir uppátækið. Ljósmyndarinn Daníel Rúnarsson náði bráðskemmtilegum myndum af atvikinu. 29.6.2012 22:46
Vegurinn að Látrabjargi þarfnast viðhalds Ferðafélag V-Barðastrandasýslu skorar á Vegagerð Ríkisins að sjá til þess að viðgerð á veginum út að Látrabjargi verið kláruð. 29.6.2012 22:20
Hannes á ferð og flugi Hannes Bjarnason segir mikla hörku hafa verið í bloggheimum í aðdraganda kosninganna. Mikilvægt sé að þeir eldri sýni gott fordæmi því börn geti lesið það sem skrifað er. Hann notaði síðasta daginn fyrir kosningar til að hitta starfsfólk nýsköpunarfyrirtækis. 29.6.2012 21:44
Krummakaup er gleðisprengja fyrir Norðfjörð Verslunin Krummakaup var opnuð í Neskaupstað á dögunum. Verslunin er á vef Fjarðabyggðar nefnd stemningsverslun en þar er boðið upp á fjölbreytt vöruúrval og skemmtilega þjónustu. 29.6.2012 21:31
Ástþór ætlar ekki að kjósa Ástþór Magnússon ætlar ekki að kjósa á morgun og lítur svo á að kosningarnar séu skrípaleikur. 29.6.2012 18:00
Nasa ekki rifið - ASK vann miðbæjarsamkeppnina Engar byggingar verða rifnar niður við uppbyggingu á Austurvelli og á Ingólfstorgi, samkvæmt tillögu um uppbyggingi í miðborginni sem fékk fyrstu verðlaun í arkitektasamkeppni sem efnt var til. Verðlaunaafhendingin fór fram nú síðdegis. Samkvæmt tillögunni stendur ekki til að rífa veitingastaðinn Nasa en húsinu verður gjörbreytt. 29.6.2012 16:34
Fyrstu myndirnar af Cruise í tökum á Íslandi Ítarleg umfjöllun er um myndina Oblivion á vef Daily Mail í dag. Þar segir frá því að Tom Cruise hafi verið staddur á virku eldfjalli í gær við tökur á myndinni en hann mun vera staddur í nágrenni við Veiðivötn. Í fréttinni segir að Cruise virðist hafa skemmt sér gríðarlega vel við tökurnar. Hann hafi gengið um og spjallað um tökurnar við kvikmyndatökuliðið. Söguþráður myndarinnar er á þá leið að stutt er í að mannkyninu á jörðu verði útrýmt. Persóna Cruise er ein af fáum lifandi og hann verst árásum frá geimverum. 29.6.2012 13:38
Mun stinga upp á þjóðaratkvæðagreiðslu í þriðja sinn Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, mun í haust leggja til að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíðarskipan fiskveiðistjórnar Íslands. Ólína skrifar grein í Fréttablaðið í dag um málið en hún hefur tvisvar lagt fram slíka tillögu áður. Í bæði skiptin dagaði hún uppi í þinginu. 29.6.2012 19:20
Lýst eftir gulum bát Lögreglan lýsir eftir gulum hraðbát. Bátnum var stolið af bílastæði við Faxafen í Reykjavík í nótt sem leið. Báturinn er 3-4 metrar að lengd og u.þ.b. 1,5 metrar á breidd. Botninn er grámálaður að innverðu, gler dökklitað og mælaborð leðurklætt í svörtum lit. Hann var á bátavagni með bláum brettum. 29.6.2012 17:14
Árituð treyja frá Barselóna í styrktarleik UNICEF Íslendingum gefst nú tækifæri til að styrkja UNICEF og taka um leið þátt í happdrætti þar sem árituð treyja frá leikmönnum Barselóna stendur til boða. 29.6.2012 16:49
Slys í reiðtúr efldi ást forsetahjónanna Hesturinn er nátengdur fyrstu kynnum okkar Dorritar, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sem var á rómantísku nótunum þegar hann ávarpaði Landsmót hestamanna við setningu mótsins í gær. 29.6.2012 16:04
Þekktir vísindamenn fræðast um uppruna lífs á Íslandi Nokkrir af fremstu vísindamönnum veraldar á sviði stjörnulíffræði eru væntanlegir til landsins en þeir munu taka þátt í alþjóðlegum sumarskóla sem haldin er í annað sinn hér á landi. 29.6.2012 15:58
Fimm á slysadeild eftir árekstur í Hafnarfirði Fimm manns voru fluttir á slysadeild nú um þrjúleytið eftir að þriggja bíla árekstur varð á mótum Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegur. Ekki hafa fengist upplýsingar um það hvað olli árekstrinum eða hvort fólkið er alvarlega slasað. Við segjum nánar frá þessu á Vísi síðar í dag. 29.6.2012 15:16
Fá ekki upplýsingar frá Seðlabankanum Þórður Snær Júlíusson blaðamaður mun ekki fá afhentar upplýsingar um bókfært virði seljendaláns Seðlabanka Íslands til nýrra eigenda hins danska FIH banka um áramótin 2011 til 2012. Seðlabankinn hafði neitað því að láta blaðamanninum í té þessar upplýsingar og úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti þá synjun Seðlabankans í nýjum úrskurði. Þá vísaði úrskurðarnefnd um upplýsingamál frá kæru vegna kröfu um afhendingu afrits af kaupsamningi sem Seðlabankinn gerði um sölu FIH bankans í október 2010. 29.6.2012 14:45
Meintir fíkniefnasmyglarar fyrir dóm í morgun Þrír pólverjar, sem ákærðir eru fyrir að flytja 8,6 kíló af amfetamíni, til landsins um miðjan apríl tóku sér allir frest til að lýsa yfir afstöðu til sakarefnisins þegar ákæra gegn þeim var þingfest í morgun. 29.6.2012 14:25
"Mannréttindi skulu ávallt vera æðri öllum lagareglum" Öryrkjabandalag Íslands hefur mótmælt því að mannréttindi séu brotin á fötluðu fólki við framkvæmd kosninga. 29.6.2012 13:14
Ólafur undirritaði lög um veiðileyfagjöld Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, undirritaði lög um veiðigjald á útgerðarfyrirtæki á þriðjudaginn síðastliðinn. Þetta fékkst staðfest í forsætisráðuneytinu í morgun. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu bárust forsetanum nær engar áskoranir um að vísa frumvarpinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hin nýsamþykktu lög um veiðigjald þykja umdeild en þau eiga að skila ríkissjóði 12,8 - 13,6 milljarða króna sem útgerðarfyrirtækin þurfa greiða í endurgjald fyrir afnot af sameiginlegri fiskveiðiauðlind þjóðarinnar. 29.6.2012 12:16
Gera heimildarmynd um Guðmund Felix Danska ríkissjónvarpið og RÚV hafa keypt sýningarrétt á íslenskri heimildarmynd um Guðmund Felix Grétarsson, sem er á leiðinni til Frakklands í handaágræðslu. Fleiri erlendir aðilar hafa sýnt verkefninu áhuga. 29.6.2012 12:06
Fór hágrátandi heim frá Gillzenegger Stelpan sem kærði Egil Einarsson fyrir nauðgun í haust fór hágrátandi af heimili Egils nóttina sem hún fullyrðir að hann hafi nauðgað sér. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem réttargæslumaður stúlkunnar hefur sent fjölmiðlum. 29.6.2012 11:25
Hugsanlega hætt að refsa hælisleitendum Horfið verður frá því að refsa hælisleitendum á Íslandi fyrir að framvísa fölsuðum skilríkjum, verði tillögur starfshóps innanríkisráðherra sem fjallað hefur um málefni útlendinga utan evrópska efnahagssvæðisins að veruleika. Tillögurnar voru kynntar blaðamönnum í gær. Hópurinn leggur að auki til að komið verði á laggirnar sjálfstæðri úrskurðarnefnd í málefnum hælisleitenda, sem hugsanlega nái til allra kærumála á grundvelli útlendingalaga. 29.6.2012 10:01
Eldur í sorpgeymslu Eldur kom upp í sorpgeymslu við Hótel Marínu, sem er við Slippinn í Reykjavík, um klukkan níu í morgun. Sem betur fer var eldurinn lítill og varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að slökkvistarfið hafi einungis staðið yfir í skamma stund. Engar upplýsingar hafa fengist um skemmdir af völdum elds eða reyks. 29.6.2012 09:55
Erill hjá björgunarsveitum Sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarmenn komu í gærkvöldi ungum manni til hjálpar í hlíðum Esjunnar, sem hafði veikst skyndilega rétt við svonefndan Stein. Þeir báru manninn niður og fluttu hann á Landsspítalann. 29.6.2012 07:20
Um 57% styðja Ólaf Ragnar Nærri sex af hverjum tíu kjósendum ætla að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, í forsetakosningum sem fram fara á morgun. Þetta sýna niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gærkvöldi og fyrrakvöld. 29.6.2012 07:00
Ökumaður bifhjóls mældur á 153 km hraða Ökumaður bifhjóls mældist á 153 kílómetra hraða á Ólafsfjarðarvegi í gærkvöldi. Hann missir ökuréttindi í mánuð og þarf að greiða 130 þúsund krónur í sekt. 29.6.2012 06:53
Þurftu að setja bróður ökumanns í járn Þegar Selfoss lögreglan stöðvaði ökumann í gærkvöldi í uppsveitum Árnessýslu, grunaðan um ölvunarakstur, brást bróðir hans ókvæða við, en hann var farþegi í bílnum. 29.6.2012 06:52
Hróplegur munur á slætti Grasflötin á Eiðisgranda tekur stakkaskiptum við bæjarmörk Reykjavíkur og Seltjarnarness. Flötin Seltjarnarnesmegin er slegin en Reykjavíkurmegin fá njólarnir og úr sér sprottið grasið að vera í friði fyrir sláttuvélunum. 29.6.2012 05:30
Slegin óhug yfir ofbeldisverkum Ísland lýsir yfir óhug og þungum áhyggjum af stöðu mannréttindamála í Sýrlandi og hvetur til þess að mögulegum kerfisbundnum brotum, sem kunni að reynast glæpir gegn mannkyni, verði vísað til Alþjóðlega sakamáladómstólsins. 29.6.2012 05:00
Börsungar gefa áritaða treyju Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF á Íslandi, stendur fyrir happdrætti þar sem einn heppinn þátttakandi fær áritaða treyju Barcelona, knattspyrnuliðsins katalónska. Knattspyrnuliðið gaf landsnefndum UNICEF um allan heim treyjur. Aðeins ein er í boði á Íslandi. 29.6.2012 05:00
Mikilvægt framlag til mannréttinda Stefnt er að því að frumvarp að nýjum heildarlögum um málefni útlendinga verði lagt fram á Alþingi í haust. Þetta kom fram á fundi í gær þar sem skýrsla nefndar, sem fjallað hefur um málefni útlendinga utan Evrópska efnahagssvæðisins, var kynnt. 29.6.2012 04:30
Fleiri stelpur í hestaíþróttinni Þátttaka stelpna í hestaíþróttum hefur farið vaxandi. Hér á landi hafa strákar verið duglegri við að stunda íþróttina þótt kynjahlutföll skráðra meðlima í hestamannafélögum á Íslandi séu nokkuð jöfn. 29.6.2012 04:15
Forsíðumynd og flugmiðar með Wow-air í fyrstu verðlaun Útivist er þema fyrstu ljósmyndasamkeppni sumarsins sem Fréttablaðið efnir til meðal lesenda sinna. Þeir eru hvattir til að senda sem fjölbreytilegastar myndir af viðfangsefnum sem tengjast útivist með einum eða öðrum hætti. 29.6.2012 04:15