Sjúkir án þess að vita það 30. júní 2012 07:00
Talið er að stór hluti þeirra sem hafa langvinna lungnateppu (LLT), jafnvel þeir sem hafa langt genginn sjúkdóm, hafi ekki verið greindir og hafi þar af leiðandi ekki fengið neina meðhöndlun. Sjúkdómurinn er engu að síður talinn verða þriðja algengasta dánarorsökin á Íslandi árið 2020 og ein algengasta orsök örorku. Dóra Lúðvíksdóttir, lungnasérfræðingur á Landspítalanum, segir líklegt að um eða yfir tuttugu þúsund Íslendingar þjáist af LLT. „Hversu margir gera sér grein fyrir því að þeir ganga með þennan hættulega sjúkdóm er hins vegar annað mál. Vandinn liggur í því hversu lúmsk LLT er, og fer stigversnandi með árunum ef ekkert er að gert. Það verður að segjast að við Íslendingar höfum ekki gert okkur grein fyrir því hversu stórt vandamál þetta er og kemur til með að vera á næstu árum." LLT er samheiti yfir langvinna berkjubólgu og lungnaþembu. Þetta eru sjúkdómar sem nær eingöngu miðaldra og eldra fólk þjáist af. Flestir hafa reykt lengi, en þó má í einstaka tilfellum rekja orsakir til atvinnu, mengunar og erfða. LLT er ólæknandi sjúkdómur en margt er hægt að gera til að bæta lífsgæði þeirra sem búa við sjúkdóminn. Tíðni sjúkdómsins fer vaxandi á Íslandi, sem og annars staðar í heiminum. Er það fyrst og síðast vegna þess að fjölmennir árgangar, sem gjarnan reyktu, eru komnir yfir miðjan aldur. „Þetta mun versna áður en þetta batnar aftur," segir Dóra. Niðurstöður rannsóknar sem gerð var hér á landi árið 2007 sýndi að af 755 þátttakendum reyndust 27% vera með LLT á mismunandi stigum sjúkdómsins. Stór hluti þess hóps var grunlaus um ástand sitt. Lungnalyf vega sífellt meira í heildarlyfjakostnaði heilbrigðiskerfisins á Íslandi en til að berjast við LLT þarf daglega notkun dýrra lyfja í langan tíma, jafnvel árum saman. „Eins ber samfélagið mikinn kostnað af öllu því fólki sem fer á örorkubætur langt fyrir aldur fram vegna þessa sjúkdóms," segir Dóra. Dóra hvetur alla sem finna fyrir einkennum frá öndunarfærum til að fara í öndunarmælingu á sinni heilsugæslustöð, hafi þeir ekki þegar fengið greiningu. „Eins á þetta við um alla sem reykja eða hafa reykt. Þeir þurfa að vita hver staðan er."- shá
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Sjá meira