Fleiri fréttir

12 ára og yngri mega vera úti til 22
Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum 1. maí. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 22.00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 24.00.

Breytingar á Veiðivísi
Aukinn kraftur verður settur í umfjöllun um veiði á Veiðivísi frá og með deginum í dag. Fjórir blaðamenn hafa verið fengnir til að sinna vefnum. Þetta eru þeir Garðar Örn Úlfarsson (gar@frettabladid.is), Kristján Hjálmarsson (kristjan@frettabladid.is), Svavar Hávarðsson (svavar@frettabladid.is) og Trausti Hafliðason (trausti@frettabladid.is).

Til skoðunar að taka Star Trek upp á Íslandi
Til greina kemur að taka upp atriði fyrir nýja Star Trek-mynd á Íslandi í sumar. Ef að líkum lætur mun íslenska framleiðslufyrirtækið Saga Film hafa umsjón með tökunum hérlendis. Þegar samband var haft við Saga Film vildi Kristinn Þórðarson framleiðandi ekki tjá sig um málið.

Átján milljarða sveifla milli ára
Reykjavíkurborgar er um 4,7 milljörðum lakari en fjárhagsáætlun fyrir árið 2011 sagði til um. Þá er sveiflan frá síðasta ári neikvæð er nemur um 18 milljörðum króna.

Þingmaður undrandi
Þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur Stjórnlagaráðs að breytingum á stjórnarskránni mun fara fram í haust samkvæmt breytingartillögu sem lögð var fram á Alþingi í gær. Þingmaður minnihlutans undrast hversu langan tíma það tók að taka ákvörðun um feril málsins.

Brýnasta verkefnið að halda atvinnustiginu uppi
Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambands Íslands segir í fyrsta maí ávarpi sínu að brýnasta verkefni stjórnvalda sé að halda atvinnustiginu uppi.

Femínistafélagið: Kjör kvenna hafa versnað
Femínistafélag Íslands hefur sent frá sér ályktun í tilefni dagsins, 1. maí, en þar segir að launamunur kynjanna sé viðvarandi og kjör kvenna hafi versnað. Áhrif kreppunnar ógni þeim ávinningi sem kynslóðir kvenna hafi barist fyrir. Þá krefst félagið þess að jafnrétti og mannréttindi verði skilyrðislaust virt í íslensku samfélagi.

Dani skammar Íslendinga - gefið stefnuljós
Hin danska Rikke Arnes sendi fréttastofu skeyti í morgunsárið undir fyrirsögninni "Ferðamannastaðurinn Ísland“. Rikke sem segist vera mikill aðdáandi bæði lands og þjóðar furðar sig á því hversvegna ekkert sé skrifað um íslenska bílamenningu í kynningarbæklinga um landið. Hann segist aldrei vita hvert bílarnir ætla að fara og aldrei hafi hann kynnst þjóð sem "spari" jafn mikið stefnuljósið og íslendingar.

Kom í heiminn á heimili sínu
Lítið stúlkubarn var aldeilis að flýta sér í heiminn í nótt og gaf ekki einu sinni foreldrum sínum tækifæri til að komast upp á fæðingardeild.

Ofsaakstur á Sæbraut - á tvöföldum hámarkshraða
Tuttugu og tveggja ára gamall ökumaður var stöðvaður við akstur bifreiðar á Sæbraut um klukkan tíu í gærkvöldi. Bifreið hans mældist á 147 kílómetrahraða á klukkustund en á Sæbrautinni er hámarkshraði 60 km/klst. Má úr því lesa að ökumaðurinn hafi ekið á rúmlega tvöföldum hámarkshraða. Hann var sviptur ökuréttindum sínum vegna ofsakstursins og bíður nú ákæru og dóms vegna málsins.

Pústrar í miðbænum
Tveir ökumenn voru teknir grunaðir um ölvun við akstur og einn ökumaður var tekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkninefna á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Nóttin var annars róleg hjá lögreglu en þó var eitthvað um pústra í miðbænum, en ekkert alvarlegt, að sögn lögreglu.

"Sælgæti“ fyrir máva stráð á velli í Kópavogi
"Munurinn liggur í því að kjötmjölið er kögglað núna en var meira duft í fyrra. Þá er þetta eins og ég sé að dreifa sælgæti á völlinn,“ segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi og forstöðumaður íþróttavalla í Kópavogsbæ um mávaplágu á íþróttavöllum bæjarins.

Björgólfi meinað að rífa aðalstigann
Hvorki Húsafriðunarnefnd né borgarminjavörður telja koma til greina að heimila niðurrif aðalstigans í hinu sögufræga húsi Fríkirkjuvegi 11. Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar sem keypti húsið fyrir hrun, vill gera breytingar á innra skipulagi þess. Við fyrri endurbætur sem borgin stóð fyrir á húsinu var leitast við að færa það í upprunalegt horf að innan sem utan. Ytra byrði hússins var friðað 1978.

Vinnuveitendur komi til móts við barnafjölskyldur
Reykjavíkurborg vill uppbyggilegt samstarf við atvinnulífið um hvernig best verður komið til móts við þarfir barnafólks. Þetta segir Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs. Samtök atvinnulífsins (SA) hafa gagnrýnt fjölgun starfsdaga á leikskólum borgarinnar og segja hana bitna á foreldrum og vinnustöðum þeirra.

Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu ekki verið rædd í nefndinni
Ný tillaga meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis og Guðmundar Steingrímssonar um að þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar fari fram í haust hefur ekki verið rædd í nefndinni. Þetta segir Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nefndinni. Hann segir þó að tillagan komi ekki á óvart, en upphaflega vildi meirihlutinn að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram samhliða forsetakosningum. Ekki náðist samkomulag um þá tillögu þegar um hana var rætt í lok mars.

Vilja þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir 20. október
Þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur Stjórnlagaráðs að breytingum á stjórnarskránni mun fara fram í síðasta lagi þann 20. október næstkomandi verði tillaga meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að veruleika. Tillögunni var dreift á Alþingi í dag. Upphaflega stóð til að þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram samhliða forsetakosningum. Ekki náðist samkomulag um það á Alþingi og því hefur ný tillaga að dagsetningu verið lögð fram.

Tekinn með 3 kíló af marijúana
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann marijúana við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í dag. Um var að ræða tæplega 3 kílógrömm en marijúanað var ætlað til sölu. Karl um þrítugt var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu.

Enginn glæpur að selja lúðu
Þrátt fyrir lúðuveiðibann er ekki erfitt að finna lúðu hjá fisksölum, en kílóverð á henni hefur hækkað um fimmtíu prósent frá því fyrir bann. Sumir viðskiptavinir verða þó undrandi að sjá lúðu í fiskborðinu og telja fisksalana hina mestu glæpamenn.

Lýsa yfir vonbrigðum með stöðu iðnnáms
Hallveig, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar í Reykjavík, lýsir yfir miklum vonbigðum með stöðu iðnnáms í grunnskólum Reykjavíkurborgar í ályktun sem send var fjölmiðlum i kvöld. Félagið segir að Iðnnám í grunnskólum sé nánast ekkert þar sem gríðarlegur niðurskurðar hafi átt sér stað og áhugaleysi borgaryfirvalda hafi leikið þessar mikilvægu greinar grátt. Segjast Hallveigarmenn telja að skortur á iðnnámsgreinum í grunnskólum sé ein af megin orsökum þess að ekki sæki fleiri í að fara í iðnnám eftir að grunnskólanámi hefur verið lokið.

Stefnt að ákvörðun um kísilver á Húsavík fyrir áramót
Stefnt er að því að bindandi samningar um 66 þúsund tonna kísilver á Húsavík verði undirritaðir fyrir áramót. Ráðamenn þýska félagsins PCC eru væntanlegir til landsins í næstu viku til að þoka málinu áfram. Ráðamenn PCC flugu til Norðurlands fyrir síðustu jól til að kynna íbúum Húsavíkur og nærsveita áform sín og þeir eru aftur væntanlegir í næstu viku til að móta betur rammann utan um verkefnið og setja niður tímaáætlun.

"Leigusalar verða að vanda valið"
"Þetta er svakalegt mál og eitt það versta sem ég hef séð,“ segir Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag og ræddi við þáttastjórnendur um réttindi leigusala og þeirra sem taka húsnæði á leigu.

Tveir gefa kost á sér
Framboðsfrestur til kjörs vígslubiskups að Hólum í Hjaltadal rann út í dag og hafa tvö boðið sig fram. Það eru þau sr. Kristján Björnsson sóknarprestur í Vestmannaeyjaprestakalli og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir sóknarprestur á Möðruvöllum í Hörgárdal. Enn er þó möguleiki á að tilkynning um framboð sé í pósti og því ekki ljóst fyrr en síðar í vikunni hversu margir gefa endanlega formlega kost á sér.

Heræfing vegna Ólympíuleikanna í Lundúnum
Yfirvöld í Bretlandi vinna nú að undirbúningi fyrir Ólympíuleikana sem haldnir verða í Lundúnum í sumar. Að því tilefni munu land- og sjóher Bretlands standa fyrir hernaðaræfingu í Lundúnum og Weymouth í þessari viku.

The Avengers slógu 10 ára gamalt met
Ofurhetjumyndin The Avengers kom sá og sigraði á Íslandi um helgina. Ljóst er að Iron Man, Thor, Captain America og félagar heilli Íslendinga enda hópaðist fólk á öllum aldri í þá þrettán kvikmyndasali sem sýndu myndina.

Kræklingabændur kafna í eftirlitsgjöldum
Eftirlits- og leyfisveitingakerfi, sem stjórnvöld eru að setja upp í kringum kræklingarækt, stefnir í að kæfa greinina í fæðingu. Uppskeruleyfi eitt og sér gæti kostað allt að 280 þúsund krónur á viku sem hjá flestum er meira en verðmæti uppskerunnar. Bóndinn á Gróustöðum við Gilsfjörð, Bergsveinn Reynisson, er einn þeirra sem fóru af stað og hann er nú orðinn formaður Skelræktar, hagsmunasamtaka kræklingaræktenda.

Andrea hyggur á forsetaframboð
Andrea Jóhanna Ólafsdóttir mun greina frá ákvörðun sinni og áformum um framboð til embættis forseta íslenska lýðveldisins á blaðamannafundi í Norræna húsinu klukkan korter yfir fjögur á morgun. Andrea er fædd 2. ágúst 1972 á Húsavík. Andrea er þriggja barna móðir sem býr ásamt manni sínum, Hrafni H. Malmquist, í Skerjafirðinum.

Fundu 30 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í miðborginni um helgina.

Blómlegar göngugötur í miðborginni í sumar
Umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkurborgar samþykkti einróma á fundi sínum í morgun tillögu um göngugötur í Reykjavík í sumar. Að mati samgönguráðs hafa göngugötur í miðborg Reykjavíkur síðastliðin sumur gefið góða raun. Þá telur ráðið að borgarbúar hafi almennt verið ánægðir með það fyrirkomulag að breyta vinsælum götum miðborgarinnar í göngugötur yfir sumartímann.

Smygluðu mörgum kílóum af amfetamíni - áfram í gæsluvarðhaldi
Fjórir karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 14. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna en mennirnir sem eru allir erlendir ríkisborgarar, eru grunaðir um aðild að innflutningi á umtalsverðu magni af fíkniefnum, eða 8,5 kg af amfetamíni. Í tilkynningu frá lögreglu segir að tveir mannanna hafi kært úrskurðinn til Hæstaréttar.

Jóhanna viss um að álit þjóðarinnar á ESB muni batna
Jóhanna Sigurðardóttir segist viss um að álitið á Evrópusambandsaðild Íslands muni batna þegar nær dragi að samningsniðurstöðu í málinu. Þetta sagði hún í svari til Sigurðar Inga Jóhannssonar alþingismanns Framsóknarflokksins sem spurði forsætisráðherra að því í dag á Alþingi hvort ekki væri kominn tími til að setja aðildarviðræðurnar við ESB í bið.

Fangelsi fyrir landabrugg og kannabisrækt á sama staðnum
Karlmaður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í héraðsdómi í átta mánaða fangelsi fyrir kannabisræktun og fyrir að brugga landa, á sama stað í íbúð í Breiðholti. Maðurinn játaði sök að því er varðaði framleiðslu á kannabis og landa en hann neitaði því hinsvegar að framleiðslan væri hugsuð til sölu og dreifingar.

Tveir handteknir fyrir innbrot og árás á húsráðanda
Lögreglan á Suðurnesjum handtók snemma í gærmorgun tvo karlmenn á þrítugsaldri eftir að hópur manna hafði ruðst inn hjá karlmanni á fertugsaldri, með því að brjótast í gegnum framhurð húsnæðisins þar sem hann býr. Að sögn lögreglu leikur grunur á að þeir sem brutust þar inn hafi misþyrmt húsráðandanum, meðal annars barið hann með spýtu sem fannst á vettvangi.

Sex skipulagsdagar algjört lágmark
Formaður félags stjórnenda leikskóla segir að atvinnulífið þurfi að virða gildi fjölskyldunnar og veita foreldrum svigrúm til að sinna börnum sínum. Hún segir sex skipulagsdaga leikskólakennara á ári algjört lágmark.

Tugir látnir eftir sjóslys í Indlandi
Að minnsta kosti 35 drukknuðu þegar farþegaferja fórst í Brahmputra ánni í norðausturhluta Indlands fyrr í dag.

Fjörutíu stöðvaðir fyrir að tala í símann undir stýri
Fjölmargir ökumenn hafa undanfarið verið stöðvaðir fyrir að tala í síma án þess að nota handfrjálsan búnað. Í tilkynningu frá lögreglu segir að fjörutíu ökumenn hafi til að mynda verið stöðvaðir vegna þessa á höfuðborgarsvæðinu og eiga þeir allir fimm þúsund króna sekt yfir höfði sér. "Lögreglan hvetur ökumenn til að láta af þessu í umferðinni, bæði til þess að koma í veg fyrir auka útgjöld og ekki síst til að stuðla að meira öryggi í umferðinni,“ segir þar.

Typpi lofuð í hástert
Leit stofnanda Hins íslenska reðasafns að mannslim til að fullkomna safnið er umfjöllunarefni nýrrar heimildarmyndar sem verður frumsýnd á Hot Docs Canadian International Documentary Festival á morgun.

Hannes forsetaframbjóðandi: Vonbrigði hversu fáir mæta á fundi
Hannes Bjarnason forsetaframbjóðandi segir það vonbrigði hversu fáir mæta á framboðsfundi sem hann heldur nú víða um land. Enginn mætti á fund Hannesar á Eskifirði í gær nema blaðamaður Austurgluggans, ekki einu sinni Hannes sjálfur.

Guðbjartur: Tókst að verja lágtekjuhópana á kostnað hinna
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir skýrslu Þjóðmálastofnunar Háskóla Íslands um áhrif hrunsins á lífskjör þjóðarinnar staðfesta árangur stjórnvalda í tekjujöfnun. Tekist hafi að verja lágtekjuhópa á kostnað hinna.

Brutust inn og stálu kartöfluflögum - gripnir með kámuga fingur
Þrír drengir laumuðust inn lager í verslun á Akranesi í vikunni og stálu þaðan kassa af kartöfluflögum. Í tilkynningu frá lögreglu segir að árvökull borgari hafi séð til þeirra látið lögreglu vita.

Mæður sem missa börn fái betri aðstöðu
„Ég man að ég þurfti alltaf að hafa gluggana lokaða á herberginu svo ég heyrði ekki barnagrátinn yfir til mín. Það var mjög erfitt,“ segir Kristín Guðmundsdóttir handboltakona sem var gengin 19 vikur þegar hún missti tvíburadrengi sína.

Kreppan beit mest á hátekjuhópa - áhrifin minni á lágtekjufólk
Ný úttekt sem Þjóðmálastofnun Háskóla Íslands gerði að beiðni velferðarráðuneytisins á stöðu lágtekjuhópa í kreppunni og hvernig tekist hafi að ná markmiðum stjórnvalda um að milda áhrif kreppunnar meðal fólks með lágar og millitekju var kynnt í ráðuneytinu í dag. Úttektina unnu þeir Stefán Ólafsson prófessor og Arnaldur Sölvi Kristjánsson hagfræðingur. Niðurstöðurnar sýna að sú kjaraskerðing sem hlaust af hruninu var óvenju stór í sögulegu samhengi. "Umtalsverður árangur náðist þó í að milda áhrif kreppunnar á afkomu lægri og milli tekjuhópa, um leið og hlutfallslega meiri byrðar lögðust á hærri tekjuhópa.

Keppni um stað undir „nýja Valhöll“
„Ég held að fáir hafi áttað sig á hvað þeir áttu fyrr en þeir voru búnir að missa Valhöll,“ segir Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar, sem nú undirbýr samkeppni um staðarval fyrir „nýja Valhöll“.

1.maí haldinn hátíðlegur um allt land
Hátíðarhöld á 1. maí, baráttudegi verkalýðsins verða vítt og breitt um landið í ár eins og undanfarna áratugi. ASÍ hefur birt lista yfir allar þær samkomur sem sambandið hefur vitneskju um og verða samkomur og kaffisamsæti að minnsta kosti á 37 stöðum á landinu. Í Reykjavík verður safnast saman á Hlemmi klukkan eitt og leggur kröfuganga af stað hálftíma síðar niður Laugaveginn. Útifundur hefst síðan á Ingólfstorgi klukkan 14:40.

Kannanir benda til aukinnar streitu
Átta af tíu samevrópskum skoðanakönnunum sýna að fólk hefur áhyggjur af vinnutengdri streitu. Að könnuninnni stóð Ipsos MORI fyrir hönd Vinnuverndarstofnunar Evrópu. Könnuð voru viðhorf 35 þúsund manns í 36 Evrópulöndum til málefna sem tengjast vinnuvernd.

Ósáttir við samskipti við ráðuneytin
Fleiri forstöðumenn ríkisstofnana eru óánægðir með samskipti sín við ráðuneyti nú en árið 2007. Verulega hefur dregið úr ánægju stofnananna með samskipti við fjármálaráðuneytið. Þetta kemur fram í könnun á störfum og starfsskilyrðum forstöðumanna ríkisstofnana, sem var gerð á vegum fjármálaráðuneytisins, Félags forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands.