Fleiri fréttir

Sjálfsagt að hjálpa öðrum

Pauline McCarthey hefur aldrei talið eftir sér að rétta öðrum hjálparhönd. Pauline, sem er frá Glasgow, hefur búið á Íslandi um árabil og ætíð sinnt góðgerðarmálum af miklum krafti. Sigríður Björg Tómasdóttir hitti Pauline yfir kaffibolla í vikunni.

Gæti bætt gæði stórra útsendinga á netinu

Lektor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík vinnur nú að lausn sem talin er geta dregið úr álagi á netþjóna og þar með bætt gæði stórra útsendinga á veraldarvefnum. Alþjóðlegu tæknirisarnir Intel og Netflix hafa þegar sýnt verkefninu áhuga.

Allt að átta milljóna munur á verðmati

Ásett verð íbúðar getur haft afgerandi áhrif á endanlegt söluverð hennar. Í nýrri íslenskri rannsókn voru fasteignasalar beðnir um að meta sömu íbúðina og var allt að átta milljóna munur á mati þeirra.

Kynna nýtt kvótafrumvarp á morgun

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ætla að kynna nýtt frumvarp um stjórn fiskveiða og veiðigjöld. Fundurinn verður haldinn í Víkinni - Sjóminjasafni klukkan 16 á morgun. Jóhanna og Steingrímur munu fara yfir efni frumvarpanna.

Björn styður ekki Ólaf Ragnar í forsetakosningunum

Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra, vill að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, láti af embætti. Þetta segir Björn á Facebook-síðu sinni. Hann segir að það sé mikill misskilningur að hann styðji Ólaf Ragnar í komandi forsetakosningum. Hann telji þvert á móti að hann eigi að hverfa til annarra verkefna líkt og hann sagði í nýársávarpi sínu. Forsetakosningarnar fara fram í júní á þessu ári, en þrír hafa lýst yfir framboði. Þeir Ástþór Magnússon, Jón Lárusson, lögreglumaður og Ólafur Ragnar.

Hallgrímur í 8. sæti á Amazon

Bók Hallgríms Helgason, The Hitman's Guide to Housecleaning, eða 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp, er í áttunda sæti á vinsældalista Amazon yfir bækur í Kindle-rafbókarformi. Bókin er gefin út af Amazon bæði í Kindle- og kiljuformi og kom inn á sölusíðuna á í lok janúar á þessu ári.

Jón Bjarnason segir Dani ekki ráða við makríldeiluna

Nánast engar líkur eru taldar á því að Danir ráði við að opna á aðildarviðræður ESB við Íslendinga um sjávarútvegsmál. Þetta segir Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Til stóð að opna umræðurnar í haust en þeim hefur ítrekað verið frestað og nú síðast vegna deilna um rétt Íslendinga til markrílveiða.

Þóra Arnórs íhugar forsetaframboð

Sjónvarpskonan Þóra Arnórsdóttir íhugar að bjóða sig fram gegn sitjandi forseta. Ný könnun sýnir að flestir þeirra sem vilja sjá nýjan forseta á Bessastöðum styðja Þóru.

Þvottavél brann yfir

Tilkynnt var um eld í húsi í Mosfellsbæ klukkan hálf ellefu í morgun. Í ljós kom að þvottavél hafði brunnið yfir og var mikill reykur í þvottahúsinu. Slökkviliðið sá um að reykræsta húsið. Engin slys urðu á fólki.

Leituðu að manni í Reykjavíkurhöfn

Kafarar lögreglunnar og slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu leituðu í nótt að manni sem talið var að hefði hent sér í sjóinn. Björgunarbátar frá Landsbjörgu leituðu sömuleiðis meðfram ströndinni. Félagi mannsins hafði samband við lögreglu og taldi manninn hafa steypt sér í sjóinn. Leitaraðgerðirnar stóðu í tæpa þrjá klukkutíma en þegar farsími mannsins var miðaður út kom í ljós að maðurinn var heima hjá sér, bæði þurr og heill á húfi.

Lést í umferðarslysi

Maðurinn sem lést í umferðarlysi í Hrútafirði á föstudag hét Knútur Trausti Hjálmarsson. Hann var fæddur 19. febrúar 1988 og var búsettur í Reykjavík. Knútur var ókvæntur og barnlaus. Bíll sem Knútur ók valt síðdegis á föstudaginn í Hrútafjarðarhálsi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi kastaðist hann út úr bílnum. Akstursskilyrði voru góð þegar slysið varð. Þetta er fyrsta banaslysið í umferðinni á árinu.

Manni hótað með exi

Ráðist var að ungum manni í Kópavogi um áttaleytið í gærkvöld, honum hótað með exi og rændur. Árásarmannanna er nú leitað, eftir því sem fram kemur í samantekt lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Tvöfaldur næst

Enginn var með allar fimm tölurnar réttar og verður 1. vinningur því tvöfaldur í næstu viku. Bónusvinningur gekk ekki heldur út og verður hann líka tvöfaldur í næstu viku.

Flugfreyjufélagi Íslands stefnt fyrir Félagsdóm

Samtök atvinnulífsins hafa fyrir hönd Iceland Express stefnt Flugfreyjufélagi Íslands fyrir Félagsdóm vegna ólögmætrar verkfallsboðunar af hálfu félagsins. Er gert ráð fyrir að niðurstaða Félagsdóms liggi fyrir eftir helgi og því verði engin röskun á starfsemi félagsins.

Vélsleðamaður fór niður um ís

Vélsleðamaður fór niður um ís á Svínavatni á Húnavöllum á fjórða tímanum í dag. Björgunarsveitirnar Blanda á Blönduósi og Strönd á Skagaströnd voru kallaðar út, þar sem óttast var um að maðurinn myndi kólna hratt niður í vatninu. Þó fór betur en á horfiðst og náði maðurinn í land og voru björgunarsveitirnar afturkallaðar um 15 mínútum síðar. Þær fóru þó á staðinn til að reyna að ná sleðanum upp úr vatninu.

Lenti með veikan farþega

Boeing 747 farþegaþota frá flugfélaginu Lufthansa lenti á Keflavíkurflugvelli upp úr klukkan hálf fjögur í dag með veikan farþega um borð. Vélin lagði af stað frá Frankfurt fyrr í dag en hún var á leið til Bandaríkjanna. Farþeganum var komið undir læknishendur í Reykjanesbæ en sjúkrabíll beið eftir honum á flugvellinum. Hann er ekki alvarlega veikur. Flugvélin er farin aftur í loftið og lendi í Bandaríkjunum í kvöld.

Veikindi ekki vegna mengunar

Veikindi hrossa á bænum Kúludalsá í Hvalfirði eru ekki af völdum mengunar iðjuveranna á Grundartanga, er niðurstaða rannsóknar Matvælastofnunar og Tilraunastöðvarinnar á Keldum. Veikindi hrossanna má rekja til efnaskiptaröskunar.

Undirbúa uppsetningu Svanavatnsins

Nemendur Listdansskóla Íslands leggja nú nótt við dag við undirbúning stórsýningarinnar Svanavatnið í Svartaskógi sem flutt verður í Borgarleikhúsinu á mánudag klukkan fimm og átta.

Stefnir í þriðja stjórnsýslustigið

Aukið hlutverk landshlutasamtaka sveitarfélaga í tengslum við yfirtöku verkefna frá ríkinu stefnir í að upp byggist þriðja stjórnsýslustigið á Íslandi, sagði Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, á landsþingi sambandsins á föstudag.

Tveir af hverjum þremur vilja nýjan forseta

Tveir af hverjum þremur vilja nýjan forseta á Bessastaði, eða rúm 66 prósent landsmanna. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar Capacent Gallup. Tæplega 34 prósent þeirra sem tóku afstöðu í könnunni vildu helst sjá Ólaf Ragnar Grímsson gegna embætti forseta Íslands áfram.

Perlan verði Náttúruperlan

Hópur fjárfesta sem bauð hæst í Perluna í útboði Orkuveitunnar hefur óskað eftir afstöðu skipulagsráðs til tillögu sem felur í sér tvær viðbyggingar við húsið sem bera muni nafnið Náttúruperlan.

Vélsleðamaðurinn kominn í sjúkrabíl

Vélsleðamaðurinn sem slasaðist sunnan við Hrauneyjalón í Hrauneyjum er kominn í sjúkrabíl. Fimm björgunarsveitarmenn sóttu manninn rétt fyrir hádegi í dag. Hann kvartaði yfir eymslum í baki og samkvæmt upplýsingum frá flugbjörgunarsveitinni verður hann fluttur í bæinn til frekari skoðunar. Maðurinn var í hópi manna þegar snjór hrundi skyndilega undan sleðanum með þeim afleiðingum að hann féll af sleðanum.

Óljóst með makrílinn

Sátt er að nást um nýtt frumvarp um stjórn fiskveiða en frumvarp Steingríms J. Sigfússonar, sjávarútvegsráðherra, var rætt og samþykkt í ríkisstjórn í gær. Enn er togast á um einstök atriði milli stjórnarflokkanna; hlutfall afla í leigupotti og hvernig farið verður með aflaheimildir í nýjum tegundum eins og makríl.

Opinn fundur um ímynd bifhjólafólks

Opinn fundur um ímyndarmál bifhjólafólks verður haldinn á Grand hóteli í Reykjavík á þriðjudaginn næstkomandi. Á vefsíðu bifhjólasamtakanna Sniglanna, segir að tilurð fundarins sé sú umræða sem skapast hefur í samfélaginu að undanförnu og tengir bifhjól og bifhjólamenningu við skipulagða glæpastarfsemi.

Skiptir máli að kona verði næsti biskup

Það skiptir máli að kona verði næsti biskup Íslands bæði vegna ásýndar kirkjunnar og jafnréttisstefnu. Þetta segir Agnes Sigurðardóttir prestur í Bolungarvík sem hlaut flest atkvæði í fyrri umferð biskuskjörsins í gær.

Sækja slasaðan vélsleðamann

Fimm björgunarsveitarmenn frá Flugbjörgunarsveitinni á Hellu eru nú á leið inn að Hrauneyjum til þess að ná í slasaðan vélsleðamann. Ekki er talið að hann sé alvarlega slasaður en sjúkrabíll hefur verið settur í viðbragðsstöðu. Vélsleðamaðurinn er staddur sunnan við Hrauneyjalón, samkvæmt upplýsingum frá flugbjörgunarsveitinni.

Kynna réttindi fatlaðra um land allt

Sjö einstaklingar hafa frá síðasta sumri gegnt stöðu sendiherra samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hér á landi og hafa gert víðreist.

Þjófar fótgangandi með flatskjá

Tveir menn stálu flatskjá úr versluninni Nettó í Mjóddinni á áttunda tímanum í gærkvöldi. Lögreglan fékk tilkynningu um að mennirnir væru fótgangandi á leið í Kópavog og voru handteknir stuttu síðar á Smiðjuvegi. Þeir voru vistaðir í fangageymslu á meðan mál þeirra var rannsakað en var svo sleppt að lokinni skýrslutöku.

Líkamsárás í heimahúsi

Maður handtekinn í heimahúsi í austurborginni grunaður um líkamsárás. Hann er enn í fangageymslu en sökum áfengisvímu var ekki hægt að yfirheyra hann í nótt. Það verður gert þegar líða tekur á daginn.

Ölvaður maður datt af hestbaki - hrækti blóði á vegfaranda

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk í nótt tilkynningu um ölvaðan mann á hesti á Vesturlandsvegi við Öskju en sá hafði dottið af baki. Vegfarandi bauð fram aðstoð sína en ekki vildi betur til en svo að maðurinn hrækti blóði á þann hjálpsama. Hinn ölvaði var fluttur á slysadeild til blóðsýnatöku og aðhlynningar en þangað var vegfarandinn, sem ætlaði að hjálpa, einnig fluttur þar sem blóðið fór í munn hans.

Eldur í bíl á Akureyri

Lögreglan á Akureyri var kölluð til á þriðja tímanum í nótt þegar það kviknaði í bíl í bænum. Þegar hún kom á svæðið stóðu eldtungur upp úr bílnum en hann er gjörónýtur. Ekki er ljóst hver eldsupptök voru en bílinn hafði staðið óheyfður frá því á miðnætti.

Banaslys í Hrútafirði

Banaslys varð í Hrútafirði síðdegis í gær. Karlmaður á þrítugsaldri lét lífið þegar bíll sem hann ók valt. Lögreglan á Akureyri fer með rannsókn slyssins.

Fullyrtu að lánið til Kaupþings væri traust - fréttaskýring

Seðlabanki Íslands lánaði Kaupþingi 500 milljón evrur, um 80 milljarða króna, 6. október 2008. Mikill flýtir var við afgreiðslu lánsins en með því átti að reyna að bjarga lausafjárþurrð Kaupþings. Nær allur gjaldeyrisvaraforði Seðlabankans fór í lánið, en Kaupþing féll engu að síður nokkrum dögum síðar. Kaupþing lagði hlutabréf sín í danska bankanum FIH sem veð, en lán Seðlabankans var veitt til fjögurra daga.

Konurnar hafa ekki allar efni á aðgerð

Ekki hafa allar þær konur sem eru með PIP-púða í brjóstum sínum efni á því að láta fjarlægja púðana á Landspítalanum. Þetta segir Saga Ýrr Jónsdóttir, lögfræðingur kvennanna.

Óvissu um kvótakerfið verður að ljúka

Framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri segir að óvissan um kvótakerfið gangi ekki lengur. Stjórnmálamenn verði að fara að ljúka málinu. Hann vonast jafnframt til að stóriðjuframkvæmdir í Þingeyjarsýslum skapi fyrirtækinu veruleg verkefni.

Litlir krimmar fæðast út á götu - þurfum að fara út að hjálpa

"Við erum alltaf að skilgreina vandann í klessu en það er engin úti á götu að vinna, nema lögreglan, sem nennir ekki að eltast við einhverja krakka í neyslu,“ segir Mummi sem var eitt sinn kenndur við Mótorsmiðjuna, í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Dreifbýlissparisjóður byrjar bankaútrás

Eftir 133 ára starfsemi á Grenivík hefur Sparisjóður Höfðhverfinga hafið bankaútrás og stofnað útibú á Akureyri, sem er sennilega það heimilislegasta á Íslandi.

Vigdís brosir út að eyrum vegna netkönnunar

„Þessar niðurstöður eru bara glæsilegar og ég brosi hérna út að eyrum," sagði Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, í viðtali við Reykjavík síðdegis í dag þegar í ljós kom hver niðurstaða könnunar þáttarins sem lesendur Vísis taka þátt í var.

Úraræninginn samþykkti framsal frá Sviss

Hæstiréttur Íslands staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð yfir pólskum karlmanni sem var framseldur hingað til lands frá Sviss vegna úraránsins í Michelsen. Maðurinn hefur játað brotið.

Vilja skattafslætti fyrir tölvuleikjaiðnað á Íslandi

Bretar hafa ákveðið að veita tölvuleikjaiðnaðinum þar í landi umtalsverða skattafslætti. Þrýst hefur verið á að koma svipuðu fyrirkomulagi hér á landi og segir framkvæmdastjóri CCP að slíkt hafi áhrif á hvar fyrirtækið ákveður að stækka við sig í framtíðinni.

Andlegt ástand kvenna með PIP-brjóstapúða slæmt

Lögmaður kvenna sem farið hafa í aðgerð á Landspítalanum til að fjarlæga PIP-brjóstapúða segir andlegt ástand þeirra mjög slæmt. Framkvæmdastjóri lækninga á spítalanum segir greinilegt að gæði púðana er ekki í lagi.

Skoða rammalöggjöf um starfsemi fjármálafyrirtækja

Rammalöggjöf um alla starfsemi íslenskra fjármálafyrirtækja og fjármálastöðugleikaráð er meðal hugmynda sem starfshópur á vegum efnahags- og viðskiptaráðuneytisins mun skoða á næstu mánuðum. Ráðherra vonast til að með slíkum aðgerðum megi styrkja fjármálakerfið og koma í veg fyrir annað hrun.

Sjá næstu 50 fréttir