Flugfreyjufélagi Íslands stefnt fyrir Félagsdóm 24. mars 2012 19:15
Samtök atvinnulífsins hafa fyrir hönd Iceland Express stefnt Flugfreyjufélagi Íslands fyrir Félagsdóm vegna ólögmætrar verkfallsboðunar af hálfu félagsins. Er gert ráð fyrir að niðurstaða Félagsdóms liggi fyrir eftir helgi og því verði engin röskun á starfsemi félagsins. Í tilkynningu frá Samtöku atvinnulífsins segir að félagsdómur hafi komist að þeirri niðurstöðu fyrr í mánuðinum að allir flugliðar um borð í vélum Iceland Express skuli vera félagsmenn Flugfreyjufélags Íslands, einnig sú tékkneska flugfreyja sem Iceland Express er skylt að hafa um borð að kröfu tékkneska flugfélagsins og flugmálayfirvalda í Tékklandi. „Iceland Express lýsti því þegar yfir eftir dóminn að honum yrði hlítt og að Flugfreyjufélaginu myndu berast félagsgjöld af tékknesku flugfreyjunum. Er það í fullu samræmi við lög Flugfreyjufélagsins. Flugfreyjufélagið hefur hins vegar krafist þess að flugliðum um borð verði fjölgað sem á sér enga stoð í dómi Félagsdóms. Þar sem kjarasamningur milli Iceland Express og Flugfreyjufélags Íslands er í fullu gildi er verkfallsboðunin ólögmæt. Iceland Express er með samning við tékkneska flugfélagið Holidays Czech Airlines sem er bundið af alþjóðlegum reglum og landslögum í heimalandinu. Eins og öll önnur flugfélög vinnur Holidays Czech Airlines eftir flugrekstrarhandbók sem samþykkt er af flugmálayfirvöldum í Tékklandi. Í henni er gert ráð fyrir að fyrsta freyja um borð í flugvélum félagsins sé frá flugfélaginu. Enda gegnir fyrsta freyja mikilvægu starfi um borð í flugvélum sem öryggisfulltrúi og þarf lengri og ýtarlegri þjálfun en almennir flugliðar. Í samningi Iceland Express við Holidays Czech Airlines er gert ráð fyrir að fyrsta freyja komi frá félaginu um það bil fyrstu sex mánuðina, talið frá áramótum. Að þeim tíma liðnum hyrfu flugliðar Holidays Czech Airlines á braut og íslenskir flugliðar tækju þá einnig við starfi fyrstu freyju. Iceland Express verður eins og aðrir í flugheiminum að virða þau lög og reglur sem gilda um flugrekstur, einnig hjá þeim félögum sem sjá um flug fyrir hönd Iceland Express. Ítrekað hefur verið reynt undanfarna mánuði að fá fram skilning á þessari stöðu félagsins hjá Flugfreyjufélagi Íslands án árangurs. Það er alvarlegt mál þegar boðað er til vinnustöðvunar skömmu fyrir háannatíma í ferðaþjónustunni með kröfur um að bæði Iceland Express og Holidays Czech Airlines fari á svig við lög og reglur," segir í tilkynningunni.
Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Innlent Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Fleiri fréttir Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Bein útsending: Kynna verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Sjá meira