Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir bandarísk stjórnvöld ósamkvæm sjálfum sér Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir hvorki lagalegan né vísindalegan grundvöll fyrir aðgerðum Bandaríkjanna vegna hvalveiða Íslendinga. Viðskiptaráðherra Bandaríkjanna útnefndi Ísland samkvæmt svonefndu Pelly-ákvæði í júlí síðastliðnum og lagði til við Bandaríkjaforseta að gripið yrði til diplómatískra aðgerða gegn Íslandi vegna hvalveiða Íslendinga. Forsetinn ákvað í gær að fara að tillögu viðskiptaráðherrans og tilkynnti jafnframt að ekki yrði gripið til neinna viðskiptalegra aðgerða. 16.9.2011 11:15
Þrjátíu og fjögur brot á dag á þessu ári Fíkniefnabrotum hefur fjölgað um 35 prósent frá árinu 2009, samkvæmt nýrri afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra sem gefin verður út í haust. 16.9.2011 11:08
Þingflokkar stilla saman strengi Þingfundi var frestað í morgun um klukkutíma. Fundurinn átti að hefjast klukkan hálfellefu en nú er gert ráð fyrir að hann hefjist klukkan hálftólf. Fundað hefur verið á Alþingi langt fram á nótt undanfarna daga vegna frumvarps um breytingar stjórnarráðinu. Samkvæmt upplýsingum Vísis er ástæðan fyrir frestun þingfundarins nú sú að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, vildi gefa þingflokkum tækifæri til að fara yfir málin áður en fundurinn hæfist. Samkvæmt upphaflegri dagskrá Alþingis átti að slíta haustþingi fyrr í þessari viku, en sú áætlun hefur ekki gengið eftir. 16.9.2011 10:44
Tófan að útrýma rjúpunni Tófan er að útrýma rjúpunni norðan Ísafjarðardjúps, segir Indriði Aðalsteinsson bóndi á Skjaldfönn í grein í Bændablaðinu í dag. Hann segir að ófremdarástand ríki vegna fjölgunar refs. Sjálfur hefur hann verið iðinn við að halda ref og mink í skefjum í kring. 16.9.2011 10:24
Undrast ekki aðgerðir Obama Þær þvingunaraðgerðir gegn Íslendingum sem Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti um í gær ættu ekki að koma mönnum á óvart, segir Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis. Hann kvaðst ekki hafa séð tilkynninguna frá Obama en vissi af því í gær að hún væri komin. 16.9.2011 09:45
Ben Stiller á Austurlandi Stórleikarinn Ben Stiller er á Austurlandi. Þangað fór hann í gærkvöld, eftir því sem fram kemur á Twittersíðu kappans. 16.9.2011 09:13
Ögmundur með efasemdir um stjórnarráðsfrumvarp Umræðu um frumvarp um breytingar á stjórnarráðinu var frestað í nótt rétt fyrir klukkan tvö en til stóð að þing lyki störfum í gær. Fundur hefur aftur verið boðaður í dag klukkan hálf ellefu og þá á enn að ræða málið. Í umræðunum í nótt kom fram í máli Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra að hann hefði ákveðna fyrirvara gagnvart frumvarpinu þar sem í því fælist aukin miðstýring stjórnarráðsins sem hann sé andvígur. Þá hefur Jón Bjarnason sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra einnig gagnrýnt frumvarpið. Alls liggja fjörutíu og átta mál fyrir þinginu í dag. 16.9.2011 08:58
Kominn að bryggju í Seyðisfirði Báturinnn sem tilkynnti um bilun úti á Seyðisfirði í morgun er kominn til hafnar. Bátur frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu dró bátinn til hafnar á Seyðisfirði. Fjórir voru í áhöfn bátsins og amaði ekkert að þeim enda veður gott á svæðinu og höfðu dælur bátsins vel undan við að dæla vatni. Rannsóknarnefnd sjóslysa mun nú taka atvikið til skoðunar. 16.9.2011 08:45
Enn kom lyktin upp um kannabisrækt Síðdegis í gær uppgötvaði lögreglan kannabisræktun í í Barmahlíð. Þrjátíu og þrjár plöntur uppgötvuðust í íbúðarhúsnæði í hverfinu en fyrr um daginn hafði lögreglan upprætt ræktun í Síðumúla. Líkt og í Síðumúlamálinu þá runnu lögreglumennirnir á lyktina frá ræktuninni þegar þeir voru við störf í hverfinu. Eigandi íbúðarinnar hefur verið yfirheyrður vegna málsins. 16.9.2011 07:25
Vélarvana bátur á Seyðisfirði Landhelgisgæslunni barst rétt eftir klukkan sex neyðarkall frá vélarvana skipi sem leki hafði komið að í miðjum Seyðisfirði. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að fjórir menn séu um borð í bátnum og segja þeir að dælur bátsins hafi vel undan auk þess sem ágætt veður er á svæðinu. 16.9.2011 07:05
Ben Stiller endurgerir sígilda kvikmynd á Íslandi Bandaríski gamanleikarinn, leikstjórinn og framleiðandinn Ben Stiller undirbýr gerð kvikmyndar á Íslandi. 16.9.2011 07:00
Ísland ekki tapað verðmætum sínum Robert Z. Aliber, prófessor á eftirlaunum við Háskólann í Chicago, heimsótti Ísland þrisvar sinnum á árunum 2007 og 2008 og vakti nokkra athygli í hvert sinn. Sumarið 2007 sagði hann íslenskt efnahagslíf hafa öll merki bóluhagkerfis og spáði harðri lendingu. Vorið 2008 málaði hann aftur upp dökka mynd af stöðu efnahagsmála og sagði íslensku bankana berskjaldaða gagnvart áhlaupi sem væri jafnvel þegar hafið. Því þyrfti að grípa til róttækra ráðstafana og jafnvel skipta bönkunum í tvennt. 16.9.2011 06:30
Þingkona kærir ákvörðun til ráðuneytis Eygló Harðardóttir, þingkona Framsóknarflokks, hefur lagt fram stjórnsýslukæru til innanríkisráðherra vegna SP fjármögnunar og Umferðarstofu. 16.9.2011 06:15
Almannagjá er eins og svissneskur ostur Kárastaðastíg um Almannagjá hefur verið lokað vegna sprungunnar sem þar birtist í mars og nú stækkar dag frá degi. Unnið er að því að hreinsa upp úr nýju gjánni. 16.9.2011 06:00
Grunaður um aðild að e-töflusmygli Karlmaður um tvítugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. september vegna gruns um aðild hans að umfangsmiklu e-töflusmygli, sem upp kom í síðasta mánuði. 16.9.2011 05:30
Afnám prófa getur leitt til ójöfnuðar Afnám samræmdra prófa í grunnskólum hefur mögulega leitt til ójöfnuðar og jafnvel brots á jafnræðisreglu. 16.9.2011 05:00
Ekkert gefið eftir þótt ánægjan sé í fyrirrúmi „Hér er alls ekkert gefið eftir. Síður en svo,“ segir Bragi Halldórsson, einn af þátttakendum á Norðurlandamóti öldunga sem fer fram þessa dagana. 16.9.2011 05:00
Viðskiptavinir borguðu brúsann Slitastjórn VBS Fjárfestingarbanka hefur sent mál tengd sölu á veðskuldabréfum frá einu sviði bankans til annars til Fjármálaeftirlitsins (FME) og embættis sérstaks saksóknara. Ekki er útilokað að fleiri mál verði send þangað. 16.9.2011 04:30
Fagna hugmyndum um aukinn innflutning Ef samningar takast milli íslenskra stjórnvalda og Evrópusambandsins (ESB) um rýmkaðar heimildir til inn- og útflutnings á landbúnaðarafurðir verður það til góðs, að mati formanns Neytendasamtakanna. Fréttablaðið sagði frá því í gær að könnunarviðræður við framkvæmdastjórn ESB um aukinn tollkvóta myndu hefjast síðar í þessum mánuði. 16.9.2011 04:00
Heilsustofnun starfi áfram Ekki kemur annað til greina en að Heilsustofnunin í Hveragerði starfi áfram eftir áramót, sagði Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra á Alþingi í gær. 16.9.2011 03:00
Lögreglan rann á kannabisfnyk Lögreglan upprætti í gær kannabisræktun sem fannst í lokuðu og gluggalausu rými við Síðumúla. Málið var í rannsókn síðdegis og var meðal annars verið að telja plönturnar og leggja hald á búnað, þar sem meðal annars var að finna viftur, sterka lampa og vökvunarkerfi. 16.9.2011 02:00
Obama samþykkir pólitískar aðgerðir gegn Íslandi vegna hvalveiða Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, hefur samþykkt aðgerðir gegn Íslendingum vegna hvalveiða. Leikkonan Hayden Panettiere fagnar aðgerðunum og þakkar forsetanum fyrir að sýna hugrekki gegn Íslendingum. 15.9.2011 21:16
Árvakur íhugaði að kaupa út nágranna sem eru tengdir Wikileaks Framkvæmdastjóri Data Cell, Ólafur Sigurvinsson, segir að forsvarsmenn Árvakurs, eiganda Morgunblaðsins, hafi íhugað að borga fyrirtækinu 25 milljónir fyrir að flytja úr höfuðstöðvum Morgunblaðsins í Hádegismóa, þar sem fyrirtækið leigir skrifstofur. Þetta kemur fram í Fréttatímanum sem verður dreift í hús á morgun. 15.9.2011 20:36
Færri feður heima Feðrum sem taka fæðingarorlof heldur áfram að fækka og þeir sem fara í orlof eru í sífellt skemmri tíma. Lægri greiðslur til foreldra í orlofi og efnahagsástandið ráða þar mestu um, segir framkvæmdastjóri Fæðingarorlofssjóðs. 15.9.2011 20:00
Skyndiskoðun á vélhjólum - eitt hjól sent í skoðun Umferðarstofa, í samstarfi við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og skoðunarstöðvar, stendur nú fyrir skyndiskoðunum á bifhjólum. 15.9.2011 19:34
Telja innistæðu fyrir helmingslækkun á fasteignaverði Sérfræðingar telja að innistæða sé fyrir allt að 50 prósenta lækkun á fasteignaverði ofan á þá leiðréttingu sem þegar hefur komið fram frá hruni. Eina leiðin til að breyta horfunum sé að lækka vexti og auka kaupmátt. 15.9.2011 19:30
Tugur þingmanna á mælendaskrá - líklega fundað fram á nótt Enn hefur ekki verið samið um þinglok, en önnur umræða um breytingar á stjórnarráðinu stendur nú yfir. Yfir tugur þingmanna er á mælendaskrá og búist er við að þeir fundi fram á nótt, en umræður stóðu yfir í þingsal til klukkan fjögur í morgun. 15.9.2011 19:15
Leyfi fengið til stækkunar Reykjanesvirkjunar Virkjunarleyfi vegna stækkunar Reykjanesvirkjunar, sem tekist hefur verið á um í tvö ár, var gefið út nú síðdegis. Ein stærsta hindrun í vegi álversframkvæmda í Helguvík er þar með úr sögunni. 15.9.2011 18:34
Kyrrsettu flutningavagn vegna óviðunandi frágangs Lögreglan kyrrsetti flutningavagn í vikunni vegna óviðunandi frágangs á farmi. Eins og sést á meðfylgjandi mynd þá var ekki skjólborð fremst á vagninum og því ekkert sem hindraði framskrið stálbitans. Hér hefði getað farið illa samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 15.9.2011 17:22
Best að fjárfesta í Bordeaux Öruggasta leiðin til þess að fjárfesta í rauðnvíni er að kaupa Bordeaux vín segir Ólafur Örn Ólafsson, forseti vínþjónasamtaka Íslands. 15.9.2011 15:16
Hafnfirski milljónamæringurinn hefur ekki gefið sig fram Vinningshafinn í Víkingalottóinu í gærkvöldi hefur ekki gefið sig fram við Íslenska getspá. Hann varnn um fimmtíu milljónir króna og var miðinn keyptur í söluturninum Jolla í Hafnarfirði. Sá sem keypti miðann keypti einungis eina röð sem kostaði fimmtíu krónur. 15.9.2011 15:14
Í farbann fyrir meinta nauðgunartilraun Hæstiréttur hefur staðfest farbann yfir karlmanni frá Lettlandi sem hefur verið ákærður fyrir tilraun til nauðgunar. 15.9.2011 17:16
Langflestar kostaðar stöður við Háskóla Íslands Tuttugu og sex stöður í háskólum á Íslandi hafa verið kostaðar af aðilum öðrum en skólunum sjálfum frá árinu 2000. Þetta kemur fram í svari Svandísar Svavarsdóttur, setts menntamálaráðherra, við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur, þingmanns Framsóknarflokksins. Langflestar stöðurnar eru við Háskóla Íslands, eða 21 samtals. Fjórar stöður eru við Háskólann í Reykjavík og ein við Háskólann á Akureyri. 15.9.2011 15:59
Hundur beit stúlku á reiðhjóli Stúlka var bitin af hundi í suðurbænum í Hafnarfirði í gær. Stúlkan var á reiðhjóli og beit hundurinn hana í fótinn svo á sá en flúði svo af vettvangi. Hann fannst svo eftir leit lögreglu í nágrenninu og var fangaður. Eigandinn var hinsvegar hvergi sjáanlegur en hann var með hundinum þegar hann beit stúlkuna. Síðdegis í gær fékk lögreglan aðra tilkynningu þar sem hundur kom við sögu. Sá glefsaði í konu í Ártúnsholti í Reykjavík með þeim afleiðingum að fatnaður hennar skemmdist. 15.9.2011 14:33
Alsæl með verðlaunin „Ég er alsæl með þetta. Svo er maður líka bara svo þakklátur af því að það voru svo margir sem komu að þessu," segir Katrín Júlíusdóttir, ráðherra ferðamála, um þá viðurkenningu sem Inspired by Iceland átakið hefur fengið. Átakið vann í gærkvöldi til gullverðlauna á European Effie awards, en verðlaunin eru þau virtustu sem evrópsku auglýsingafólki getur hlotnast. 15.9.2011 13:57
Íslendingar keppa um Bermúdaskálina Landslið Íslands í Bridge mun keppa á ný um Bermúdaskálina eftirsóttu eða heimsmeistaratitilinn í veitakeppni í bridge í ár. Tuttugu ár eru síðan að íslenska liðið hreppti titilinn eftirsótta. 15.9.2011 13:33
Segir ríkisstjórnina þrýsta Alcoa út af borðinu Formaður bæjarráðs Norðurþings kennir núverandi ríkisstjórn um að Alcoa íhugi nú að hætta við álver á Bakka og segir hana engan áhuga hafa á verkefninu. Ríkisstjórnin noti friðun Gjástykkis meðal annars til að koma álveri út af borðinu. 15.9.2011 12:16
Um 60% vilja Hönnu Birnu en 13% vilja Bjarna Um 59% aðspurðra í skoðanakönnun MMR segjast frekar vilja Hönnu Birnu Kristjánsdóttur en Bjarna Benediktsson sem formann Sjálfstæðisflokksins, sé einungis litið til svara þeirra sem tóku afstöðu. Um 13,4% sögðust heldur vilja Bjarna en 27,9% sögðust hvorugt þeirra vilja. 15.9.2011 12:15
Reknir úr skólanum vegna fíkniefnaneyslu „Þetta er sorglegt mál og reynir eðlilega mikið á alla í svona samfélagi," segir Páll Magnús Skúlason, aðstoðarskólameistari Menntaskólans á Laugarvatni, en þrír nemendur skólans hafa verið reknir úr skólanum vegna fíkniefnaneyslu. 15.9.2011 11:59
Ósæmandi að segja upp starfsfólkinu í Hveragerði Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra segir ekkert annað koma til greina en að Heilsustofnunin í Hveragerði verði áfram starfandi. Hann segir ósæmandi að beita uppsögnum til að þrýsta á um rekstrarsamninga. 15.9.2011 11:49
Fölsuð skilríki á Keflavíkurflugvelli Karlmaður á fertugsaldri var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir framvísa fölsuðu vegabréfi á Keflavíkurflugvelli á mánudaginn. Maðurinn er íraskur ríkisborgari en á vegabréfinu sem hann framvísaði kom fram að hann væri portúgalskur. Maðurinn krafðist sýknu á grundvelli samningsa Sameinuðu þjóðanna um stöðu flóttamanna og játaði brot sitt fyrir dómi. Það er útlendingastofnun sem tekur ákvörðun um það hvort að honum verður vísað úr landi eða veitt hæli hér á landi. 15.9.2011 11:21
Ráðleggur lottóvinningshafa að kaupa rauðvín Menn eiga að kaupa rauðvín, segir Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Háskóla Íslands, aðspurður um það hvað einstaklingar geti gert við 50 milljónir króna. Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum vann Íslendingur 50 milljónir í Víkingalottó í gær. Þótt flesta dreymi eflaust um svo góða glaðninga er ekki víst að allir sem vita hvernig skynsamlegast er að verja sliku fé. 15.9.2011 10:49
Veist þú um Ben Stiller? Það er ekki á hverjum degi sem frægir leikarar frá Hollywood koma til Íslands en það gerist þó annað slagið. Stórstjarnan Ben Stiller er nú staddur hér á landi og sást til hans í miðborg Reykjavíkur í gær ásamt vinum sínum. 15.9.2011 09:55
Heimilum haldið í skuldaspennitreyju Heimilum og litlum fyrirtækjum er haldið í skuldaspenntreyju á meðan bankarnir sýna methagnað vegna afslátta af skuldum, segir Guðlaugur Þór Þórðarson. Guðlaugur Þór, sem er þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur farið fram á fund í viðskiptanefnd til að ræða árshlutauppgjör bankanna. 15.9.2011 09:50
Funduðu til að verða fjögur í nótt Litlar líkur eru á því að þingmönnum við Austurvöll takist að klára þingstörfin í dag eins og til stóð. Enn er tekist á um frumvarp um breytingar á stjórnarráðinu og var fundað til að ganga fjögur í nótt. 15.9.2011 07:19