Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sést henda hnífnum í sjóinn Myndband sem sýnir Gunnar Rúnar Sigurþórsson henda hnífi í smábátahöfnina í Hafnarfirði er meðal rannsóknargagna vegna manndrápsins í Hafnarfirði í ágúst. Hann mun þá hafa verið að koma beint af heimili Hannesar Þórs Helgasonar eftir að hafa orðið honum að bana. Myndbandið er úr eftirlitsmyndavél við höfnina. 23.10.2010 09:28
Áverkar á höfði eftir átök á 800 bar Karlmaður var fluttur með áverka á höfði til skoðunar á slysadeild eftir átök á 800 bar á Selfossi í nótt. Ágreiningur á milli tveggja manna endaði með því að annar sparkaði í höfuð hins og þótti ráðlegast að flytja hann með sjúkrabifreið til Reykjavíkur þar sem hægt væri að skoða hann. 23.10.2010 09:11
Grunaðir um framleiðslu á marijúana og amfetamíni Karlmennirnir fjórir, sem handteknir voru í fyrradag vegna rannsóknar lögreglu á framleiðslu fíkniefna, eru grunaðir um að hafa bæði framleitt amfetamín og marijúana. 23.10.2010 06:00
Við samningslok liggja kostirnir skýrt fyrir Samstaða var um að ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið (ESB) og að þingmenn kysu um niðurstöðuna, í pallborði og hjá frummælendum á nýafstaðinni morgunráðstefnu samtakanna Sterkara Ísland. 23.10.2010 06:00
EES-samningurinn var versti kostur Finna Juhana Aunesluoma, sem stýrir Evrópufræðastofnun Háskólans í Helsinki, reifaði afstöðu Finna til Evrópusambandsins í gegnum árin. Finnar hefðu, ólíkt Svíum, verið hrifnir af yfirþjóðlegum þætti ESB og fljótir til að finna sinn sess í Brussel. 23.10.2010 06:00
Óttast glæpi en ekki stóra tölvuárás Íslenskum tölvunotendum stafar mun meiri hætta af skipulagðri glæpastarfsemi á netinu en skipulagðri árás sem hefði það að markmiði að setja íslensk fjarskipti á hliðina, að mati sérfræðinga í tölvuöryggismálum. 23.10.2010 06:00
Mannréttindi og öryggi skert Persónuvernd leggst gegn áformum heilbrigðisráðuneytisins um að leggja að mestu af aðkomu stofnunarinnar að leyfisveitingum til aðgangs að sjúkraskrám. 23.10.2010 05:30
Hefur fætt barn í bíl og flugvél „Við náðum ekki á spítalann, það er ekki flóknara en það,“ segir Þórunn Hrund Óladóttir, sem fæddi dreng fyrir utan sjúkrahúsið í Neskaupstað snemma á fimmtudagsmorgun. 23.10.2010 05:15
Byggi stúku eða spili leiki utanbæjar Bæjarfulltrúar í Snæfellsbæ telja að Knattspyrnusamband Íslands hafi stillt bæjarfélaginu upp við vegg þannig að ekki sé umflúið að bærinn styrki byggingu 350 manna stúku í Ólafsvík um sjö milljónir króna. 23.10.2010 05:00
Hópur vildi draga aftur ESB-umsókn Málefnaþing Vinstri Grænna um utanríkismál hófst í gær þar sem mál tengd umsókn Íslands í Evrópusambandið voru meðal þess sem brann á fólki. 23.10.2010 04:30
Bærinn boðar lokun Borgar Bæjaryfirvöld í Kópavogi ætla að loka Steypustöðinni Borg á Kársnesi með valdi næsta föstudag. 23.10.2010 04:00
Hætt að bjóða börnum í sund Hætt verður að bjóða börnum að fara ókeypis í sund á Akureyri og gjaldskrá í Hlíðarfjalli verður hækkuð á næstunni. 23.10.2010 03:30
Elsta vetrarbrautin mynduð „Þetta er fjarlægasta fyrirbæri sem sést hefur í alheiminum hingað til. Ljósið frá þessari vetrarbraut lagði af stað fyrir rúmlega þrettán milljörðum ára, nánar tiltekið aðeins um 600 milljón árum eftir Miklahvell. Það er um átta milljörðum ára áður en jörðin var til," segir Sævar Helgi Bragason, ritstjóri Stjörnufræðivefsins og tengiliður ESO á Íslandi, um nýjustu uppgötvun stjarnvísindanna. 23.10.2010 03:00
15% aukning á sölu nautakjöts Sala á nautakjöti jókst um 15,3 prósent í nýliðnum september samanborið við sama mánuð í fyrra, samkvæmt samantekt Bændasamtaka Íslands. 23.10.2010 03:00
Fagfólk skóla virðist vanmeta eineltið Börn sem eiga erlenda foreldra eru helmingi líklegri til að upplifa einelti en þau sem eiga íslenska foreldra. Þetta kemur fram í rannsókn Þórodds Bjarnasonar, prófessors í félagsfræði við Háskólann á Akureyri. 23.10.2010 02:00
Jón Gnarr hvetur konur til að leggja niður vinnu Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, hvetur konur sem starfa hjá Reykjavíkurborg til að taka áskorun kvennahreyfingarinnar og leggja niður störf klukkan 14.25 á mándag. Í bréfi sem borgarstjóri hefur sent öllu starfsfólki borgarinnar segir að stjórnendur hafi verið sérstaklega hvattir til að gera sem flestum konum kleift að taka þátt í kvennagöngu sem farin verður þennan dag í tilefni af kvennafrídeginum. Þannig verða foreldrar beðnir um að sækja börnin sín fyrr þennan dag. 22.10.2010 15:04
Hundur gómaði mink á Reykjanesi „Það var skemmtilegt að lenda í þessu, sérstaklega miðað við það hvernig þetta endaði," segir Þröstur Halldórsson hundaeigandi í Reykjanesbæ. 22.10.2010 14:41
Tilfinningarík stund þegar kraftaverkabarnið var kvatt Það var tilfinningarík stund á ríkisspítalanum í Mugla í Tyrklandi í gær þegar syni hjónanna Dagbjartar Þóru Tryggvadóttur og Jóhanns Árnasonar var komið í umsjá íslenska konsúlsins í Tyrklandi. 22.10.2010 17:59
Fjársvikamál: Farið fram á gæsluvarðhald yfir tveimur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir tveimur einstaklingum sem voru handteknir í tengslum við umfangsmikið fjársvikamál sem upp kom á dögunum. 22.10.2010 15:53
Gunnfríður aðstoðar Jón Bjarnason Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ráðið Gunnfríði Elínu Hreiðarsdóttur í starf aðstoðarmanns ráðherra. Í tilkynningu segir að hún hafi þegar hafið störf. 22.10.2010 15:31
Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir Gunnari Rúnari Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir Gunnari Rúnari Sigurþórssyni, sem hefur játað að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana í ágúst. Fjögurra vikna gæsluvarðhald Gunnars Rúnars rennur út í dag. 22.10.2010 15:24
Signý nýr varaformaður Signý Jóhannesdóttir, frá Stéttarfélagi Vesturlands, var fyrir stundu kjörin varaformaður ASÍ. Signý fékk 159 atkvæði eða 64 prósent. Guðrún J. Ólafsdóttir, úr VR, sem einnig bauð sig fram til varaformanns fékk 91 atkvæði eða 36 prósent. 22.10.2010 14:52
Frumvarp um gengislán lagt fram í ríkisstjórn Frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra um gengisbundin lán var lagt fram í ríkisstjórn í dag. Markmið frumvarpsins er að tryggja öllum einstaklingum sem tóku gengisbundin fasteignaveðlán eða bílalán lægri eftirstöðvar, til samræmis við dóm Hæstaréttar frá 16. september. 22.10.2010 14:30
Tunnum ASÍ - mótmælin hafin Mótmæli undir yfirskriftinni „Tunnum ASÍ" eru hafin fyrir utan Nordica hótel þar sem ársfundur ASÍ stendur yfir. Um 40 mótmælendur hafa safnast þar saman og berst hávaðinn frá börðum tunnum vel inn á fundinn. 22.10.2010 14:10
Refir fjölga sér meira en nokkru sinni fyrr Hagur villtra refa hefur vænkast mjög vegna breytinga á orðalagi í relgugerð, og fjölga þeir sér nú meira en nokkru sinni fyrr. 22.10.2010 14:08
Gylfi ánægður með endurkjörið - Guðrún vill varaformanninn Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segist ánægður með endurkjörið en hann fékk um 73 prósent atkvæða, en 183 greiddu honum atkvæði sitt. Kosningin fór fram á ársfundi ASÍ sem nú stendur yfir. Mótframbjóðandinn, Guðrún J. Ólafsdóttir, fékk 64 atkvæði. Gylfi bendir á að þetta sé betri kosning en hann hlaut síðast þegar kosið var um embættið en hann fékk um 10 prósent fleiri atkvæði í þetta sinnið. 22.10.2010 13:26
Sýking í tattúinu: „Reykjavík er þung byrði að bera“ „Hann fékk sýkingu í handlegginn og pensilín í æð," segir Björn Blöndal, aðstoðarmaður borgarstjóra. Sem kunnugt er fékk Jón Gnarr sér nýverið húðflúr með skjaldarmerki Reykjavíkur og virðist sýking hafa hlaupíð í húðflúrið. „Reykjavík er þung byrði að bera,“ segir Björn. 22.10.2010 13:07
Gylfi endurkjörinn forseti ASÍ Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, var endurkjörinn með miklum yfirburðum á ársfundi félagsins sem stendur nú yfir. Gylfi fékk um 73 prósent atkvæða, en 183 greiddu honum atkvæði sitt. Mótframbjóðandnn, Guðrún J. Ólafsdóttir, fékk 64 atkvæði. 22.10.2010 12:56
Suðurland: Löggæslan uppfyllir ekki lágmarks öryggiskröfur Löggæsla á Suðurlandi uppfyllir ekki lengur lágmarks öryggiskröfur að mati lögreglufélags Suðurlands. Formaður félagsins segir að boðaður niðurskurður á næsta muni bitna á eftirliti. 22.10.2010 12:27
Guðbjartur: Margar ástæður fyrir töfum Guðbjartur Hannesson félagsmálaráðherra segir margar ástæður fyrir því að stórframkvæmdir hafi tafist og ekki sé hægt að kenna ríkisstjórninni alfarið um tafirnar. Forseti Alþýðusambandsins segir ríkisstjórnina í gíslingu fámenns hóps sem komi í veg fyrir framkvæmdir. 22.10.2010 12:24
Banaslys í Tyrklandi: Drengurinn kominn til aðstandenda Litli drengurinn sem lifði af bílslysið í Tyrklandi í fyrradag er kominn í hendur fjölskyldu sinnar. Foreldrar drengsins létust bæði í slysinu, en málið hefur vakið mikla athygli ytra. 22.10.2010 12:14
Býður sig fram gegn forseta ASÍ Guðrún J. Ólafsdóttir, stjórnarmaður í VR, býður sig fram gegn sitjandi forseta ASÍ, Gylfa Arnbjörnssyni. Ársfundur ASÍ stendur nú yfir. 22.10.2010 12:13
Fimm mæðrastyrksnefndir á landinum öllu Mæðrastyrksnefndir eru starfandi á fimm stöðum á landinu. Sú elsta er í Reykjavík en auk hennar eru nefndir í Hafnarfirði, Kópavogi, Akureyri, auk Mæðrastyrksnefndar Vesturlands á Akranesi. Sú síðastnefndar er einnig sú nýjasta en eins og Vísir sagði frá í gær fengu um tíu prósent íbúa Akraness þar aðstoð fyrir síðustu jól. 22.10.2010 11:12
Baldur: Ég lýsi mig saklausan Baldur Guðlaugsson fyrrverandi ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins lýsti sig saklausan við þingfestingu ákæru á hendur honum í morgun. Hann er ákærður fyrir meint innherjasvik og brot í opinberu starfi. 22.10.2010 10:17
Heróín- og morfínfíklum fækkar Heróín- og morfínfíkn var nær óþekkt á íslenskum meðferðarstofnunum fram til ársins 1998. En árið 1999 birtust allt í einu sjúklingar á Vogi sem voru að sprauta morfíni í æð. Þessum sjúklingum fjölgaði fram til ársins 2005 og úr varð mikill og alvarlegur vandi. 22.10.2010 09:00
„Mestu fjöldauppsagnir í sögu Reykjavíkurborgar“ Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins harma að fjöldauppsagnir hjá Orkuveitu Reykjavíkur séu nú orðnar að veruleika. „Með þessum fjöldauppsögnum hefur nýr meirihluti Samfylkingarinnar og Besta flokksins í borgarstjórn Reykjavíkur horfið frá þeirri stefnu, sem mörkuð var og samþykkt af öllum flokkum í borgarstjórn Reykjavíkur haustið 2008, til að bregðast við áföllum í efnahagslífi landsins. Sú stefna fól meðal annars í sér að ekki yrði gripið til fjöldauppsagna hjá Reykjavíkurborg og fyrirtækjum hennar heldur lögð áhersla á að verja störf fastráðinna starfsmanna," segir í tilkynningu. Á grundvelli þessarar stefnu hefur verið hagrætt um milljarða króna á vegum Reykjavíkurborgar og náðst hefur að fækka starfsmönnum verulega án þess að grípa til fjöldauppsagna. Hjá Orkuveitunni einni hefur verið hagrætt fyrir á annan milljarð króna síðan haustið 2008 og þar hefur starfsmönnum fækkað verulega 22.10.2010 08:49
Innbrot í þrjá sumarbústaði við Álftavatn Brotist var inn í þrjá sumarbústaði við Álftavatn í Grímsnesi í vikunni , en þess varð fyrst vart í gærkvöldi. 22.10.2010 07:47
Landeyjahöfn áfram lokuð yfir helgina Dælubúnaður um borð í sanddæluskipinu Perlu, bilaði í gær þegar efnisfarg neðansjávar, hrundi á dælurörið og það festist í botni. 22.10.2010 07:44
Fjórir Litháar í haldi vegna umfangsmikils dópmáls Fjórir litháískir karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir að tvo kíló af marijuana , auk anfetamíns og Kókaíns fundust í fórum þeirra við húsleit á fimm stöðum í Grímsnesi, Reykjanesbæ og Reykjavík á miðvikudag. 22.10.2010 07:21
Folöld enn veik af hóstaveiki Folöld hafa reynst afar móttækileg fyrir sýkingu af völdum smitandi hósta í sumar og haust. 22.10.2010 06:00
Skilningur að aukast á þörfinni til aðgerða - Fréttaskýring Hvernig félagsskapur er Hagsmunasamtök heimilanna? 22.10.2010 06:00
Launin geta fælt frá Störfum í réttarkerfinu hefur verið fjölgað um um það bil eitt hundrað til að mæta auknu álagi við rannsókn og saksókn og í dómstólum vegna hruns bankanna. 22.10.2010 06:00
Málið ekki á dagskrá fyrr en í nóvember Flutningsmenn tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort draga skuli til baka aðildarumsókn Íslands að ESB samhliða stjórnlagaþingskosningu gagnrýndu fundarstjórn Alþingis harðlega í gær. 22.10.2010 05:00
Milljón tonn á land sjávarútvegur Það eru liðin 50 ár frá því að tog- og nótaskipið Víkingur AK 100 kom í fyrsta sinn til heimahafnar á Akranesi. Þessa var minnst á Akranesi í gær með pompi og prakt. Víkingur hefur fært rétt tæplega milljón tonna afla að landi og því leitun að öðru eins happafleyi. 22.10.2010 04:00
Mælt gegn notkun tækjanna Göngugrindur eru sú barnavara sem orsakar flest slys á börnum í Evrópu. Níutíu prósent slysa í göngugrindum orsaka áverka á höfði og yfir 30 prósent valda áverka á heila barna. Kemur þetta fram í nýrri rannsókn evrópsku öryggissamtakanna The European Child Safety Alliance og evrópsku neytendasamtakanna Anec. 22.10.2010 04:00