Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Alþingi skorar á kínversk stjórnvöld Alþingi skorar á kínversk stjórnvöld að leysa Liu Xiaobo, friðarverðlaunahafa Nóbels í ár, úr haldi. Hann afplánar nú ellefu ára dóm í Kína vegna baráttu sinnar fyrir mannréttindum. Í þingsályktunartillögu sem samþykkt var á Alþingi í dag, með 32 samhljóða atkvæðum, er því fagnað að Xiaobo hafi verið veitt friðarverðlaunin. 21.10.2010 15:12
Síðasta mannlega bensínstöðin mun starfa áfram Skeljungur hefur hætt við að loka bensínstöðinni í Skógarhlíð, skammt fyrir ofan slökkvistöðina. Ákveðið hafði verið að loka henni á sunnudaginn, samkvæmt upplýsingum frá Einari Erni Ólafssyni, forstjóra Skeljungs. 21.10.2010 14:53
Synjað um bætur vegna handtöku Héraðsdómur Reykjavikur hefur sýknað ríkið af skaðabótakröfu manns sem handtekinn var í byrjun júlí 2007 í klúbbhúsi vélhjólasamtakanna Fáfnis. 21.10.2010 14:03
Létust í bílslysi í Tyrklandi Parið sem lést í gær í bílslsysi skammt frá bænum Mugla í Tyrklandi var ungt námsfólk sem bjó í Danmörku. Þau hétu Jóhann Árnason, fæddur árið 1985, og Dagbjört Þóra Tryggvadóttir, fædd árið 1976. 21.10.2010 13:59
Músum fjölgar í Reykjavík „Maður sér það og heyrir það á kvörtunum frá íbúum að þær eru að koma meira inn greyin," segir Guðmundur Björnsson rekstrarstjóri meindýravarna Reykjavíkurborgar. Á haustin fara mýsnar að láta sjá sig og segir Guðmundur að aukning sé á músagangi í Reykjavík í októbermánuði miðað við undanfarin ár. Hann segir að stofninn sé orðinn stór en aðallega eru það húsamýs sem meindýravarnir hafa þurft að hafa afskipti af. 21.10.2010 13:45
Hreyfingin: Fyrningarfrumvarpið fær falleinkunn Þingmenn Hreyfingarinnar segja að nýtt frumvarp til breytinga á lögum um gjaldþrotaskipti sé meingallað og „í raun ónýtt", eins og það liggur fyrir. Þingmennirnir segja að frumvarpið nái ekki tilgangi sínum sem eigi að vera að koma gjaldþrota fólki í skjól frá endurupptöku krafna eftir tvö ár. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að fyrningu megi rifta með dómsúrskurði ef lánadrottin sýnir fram á að hann hafi „sérstaka hagsmuni af því að slíta aftur fyrningu", svo og ef telja má að fullnusta geti fengist á kröfunni á nýjum fyrningartíma. 21.10.2010 13:37
Ögmundur felur nefnd að meta umsækjendur Ögmundur Jónasson, tilvonandi innanríkisráðherra, fól í dag þriggja manna hæfnisnefnd að fara yfir umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra hins nýja innanríkisráðuneytis sem tekur til starfa um áramót. 21.10.2010 13:28
Enn hagrætt á leikskólasviði Reykjavíkurborgar Enn verður hagrætt á leikskólasviði Reykjavíkurborgar samkvæmt tillögu Jóns Gnarr borgarstjóra um fjárhagsramma fyrir fagsvið Reykjavíkurborgar á næsta ári. Tillagan var lögð fram í borgarráði í dag. Í tilkynningu frá Birni Blöndal, aðstoðarmanni borgarstjóra, segir að lögð sé áhersla á að verja þjónustu við börn og ungmenni eftir fremsta megni. Þannig verða framlög til leikskólasviðs hækkuð vegna fjölgunnar barna á leikskólasviði. Þó þarf sviðið að taka á sig hagræðingu. 21.10.2010 13:20
Vilja uppboðsmarkað fyrir eignir bankanna Tíu þingmenn Framsóknarflokksins og Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, vilja að komið verði á fót uppboðsmarkaði fyrir eignir banka og fjármálastofnana. Þingsályktunartillaga þessa efnis hefur verið lögð fram á Alþingi og samkvæmt henni myndi efnahags- og viðskiptaráðherra hafa forgöngu um að stofna óháðan og gagnsæjan uppboðsmarkað fyrir eignir banka og fjármálastofnana, fyrir utan íbúðahúsnæði, sem hafa verið yfirteknar. Í tillögunni segir að markaðnum sé ætlað að „auka skilvirkni efnahagslífsins og trúverðugleika íslensks fjármálakerfis, efla traust almennings og stuðla að gagnsærra samfélagi." 21.10.2010 13:18
ESB segir að við þurfum 80 túlka i vinnu Fulltrúar Evrópusambandsins leggja áherslu á að Ísland muni þarfnast hið minnsta 80 ráðstefnutúlka að staðaldri ef Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu. Svo margir ráðstefnutúlkar eru ekki til staðar 21.10.2010 12:19
Hrottinn í Laugardal ófundinn Maður sem um hábjartan dag réðst á sextán ára gamla stúlku að tilefnislausu í Laugardalnum er ófundinn og er málið óupplýst. Stúlkan er á batavegi. Stúlkan var að ganga heim úr skólanum, Fjölbrautaskólanum í Ármúla, og stytti sér leið í gegnum Laugardalinn þegar maðurinn réðst á hana upp úr þurru síðdegis hinn 11. október síðastliðinn. 21.10.2010 12:07
Hestamennska og trúarhefðir verði að mæta afgangi Áhugamál eins og hestamennska og trúarhefðir verða að mæta afgangi í fjárlögum á meðan fólk stendur í biðröðum eftir mat. Þetta kom fram í máli Þórs Saari, þingmanns Hreyfingarinnar, á Alþingi í morgun. Hann kallaði eftir breyttri forgangsröðun í fjárlagafrumvarpinu. 21.10.2010 12:01
Síðasti borgarafundur fyrir þjóðfund haldinn í kvöld Stjórnlaganefnd og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarasvæðinu halda borgarafund í dag í Súlnasal á Hótel Sögu frá klukkan hálfsex til hálfátta. Fundurinn er kynningafundur um stjórnlagaþing og Þjóðfund 2010 auk þess sem kallað er eftir sjónarmiðum fundarmanna. 21.10.2010 11:22
Megum veiða 143.000 tonn úr norsk-íslenska síldarstofninum Íslenskum skipum verður heimilt að veiða 143.359 tonn úr norsk-íslenska síldarstofninum á næsta ári. Þetta var ákveðið á fundi strandríkja um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum, sem lauk í Lundúnum í dag. Þar náðist samkomulag um að heildarafli verði 988.000 tonn árið 2011. 21.10.2010 11:18
Reykjanesbær fær 159 milljónir í dag Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga árið 2010 á grundvelli reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Áætluð heildarfjárhæð framlaganna nemur um 1.228 milljónum króna. 21.10.2010 11:15
Gylfi: Algerlega siðlaust að skerða lífeyrissparnað fólks Það er rangt að ASÍ hafi brugðið fæti fyrir almenna lækkun skulda, sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, við upphaf ársfundar sambandsins i morgun. 21.10.2010 11:00
Um 79% alkóhólista reykja Um 79% alkóhólista sem koma til meðferðar á Vogi reykja tóbak, samkvæmt könnun sem gerð hefur verið á meðal þeirra. Um 14% hafa reykt en eru hættir en einungis 7% hafa aldrei reykt. 21.10.2010 09:50
Opinberar stöðuveitingar verði vandaðri Sérstök nefnd verður skipuð til að móta skýrar reglur um skipan í opinber embætti, verði tillaga fjögurra alþingismanna þess efnis samþykkt. 21.10.2010 09:32
Bréf trúlausra til mannréttindaráðs Vantrú, félag trúlausra, hefur sent mannréttindaráði Reykjavíkur bréf þar sem lýst er ánægju vegna hugmynda áðsins um samskipti leik- og grunnskóla við trúfélög. Þar segir ennfremur: „Vantrú hefur í mörg ár reynt að benda á mikilvægi hlutleysis skóla í trúmálum og fyrir vikið höfum við fengið á okkur ásakanir og árásir líkar þeim sem þið megið nú þola. 21.10.2010 09:13
Ísland í hvað minnstri hættu vegna loftslagsbreytinga Ísland er í hópi þeirra fimm þjóða sem taldar eru í hvað minnstri hættu á að fara illa út úr breytingum á veðurfari heimsins í kjölfar hlýnunar jarðar vegna gróðuhúsalofttegunda. 21.10.2010 08:00
Þjófur gleymdi bíl sínum á vettvangi Þjófur braust inn í nokkra bíla við ofanverðan Laugaveg í Reykjavík á sjötta tímanum í nótt. 21.10.2010 07:58
Refir drepa fé af bæjum í Borgarfirði Talið er að þrír refir , hið minnsta, séu farnir að drepa fé af bæjum í Borgarfilrði. 21.10.2010 07:56
Fjölskylduhjálpin vill frá 50 tonna þorskkvóta Sjávarútvegsráðuneytið skoðar nú hvort flötur sé á því að Fjölskylduhjálpin megi semja við útgerðarfyrirtæki um að veiða fyrir sig 50 tonn af þroski, sem yrði viðbótarkvóti við útgefinn heildarkvóta. 21.10.2010 07:48
Notuðu bíl til að brjóta sér leið inn í fyrirtæki Þjófar notuðu bíl til að brjóta sér leið inn í fyrirtæki í Seljahverfi í Reykjavík í nótt. Þeir óku bílnum á stóra rúðu og brutu hana. Síðan fóru þeir þar inn og höfðu einhver verðmæti á brott með sér. 21.10.2010 07:41
Alhvítt á Akureyri Alhvítt er nú á Akureyri eftir að þar fór að snjóa í gærkvöldi og þurfa ökumenn að bursta af bílum sínum og skafa rúður í morgunsárið, að sögn lögreglu. 21.10.2010 07:39
Flóð frambjóðenda drekkir kjósendum Fyrirkomulag persónukosninganna til stjórnlagaþings er meingallað og veldur því að kosningarnar munu ekki þjóna tilgangi sínum, heldur þvert á móti grafa undan honum. Þetta segir Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðiprófessor. 21.10.2010 06:00
Óttast flótta lækna til einkasjúkrahúss heilbrigðismál Geir Gunnlaugsson landlæknir telur fyrirhugað einkasjúkrahús á Ásbrú ógn við heilbrigðiskerfið. 21.10.2010 06:00
Skuldafyrning gæti umbylt samfélaginu Stjórnarfrumvarp um styttri fyrningartíma skulda við gjaldþrot – niður í tvö ár – gæti umbylt íslensku fjármálakerfi og þjóðlífi. 21.10.2010 05:45
Netglæpamenn geta notað óvarðar tölvur til innbrota Fjarskipti Íslenskur almenningur verður sjálfur að gæta að öryggi eigin tölvubúnaðar, bæði til að verja eigin upplýsingar og til að tölvur þeirra séu ekki notaðar til árása eða innbrota í tölvukerfi annars staðar í heiminum, segir sérfræðingur í netöryggi. 21.10.2010 05:30
Icesave dæmi um stuttan fyrirvara Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, lagði í gær fram á Alþingi frumvarp til að breyta lögum um þjóðaratkvæðagreiðslur þannig að hægt sé að halda slíkar atkvæðagreiðslur með skemmri fyrirvara en þremur mánuðum. 21.10.2010 05:00
Nauðugur kostur að sögn bænda „Þetta er gert í skugga þess að það þarf að skera niður, og okkur var bara nauðugur sá kostur að taka þátt í því,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, um nýjan búnaðarlagasamning sem fulltrúar ríkis og bænda undirrituðu í gær. 21.10.2010 04:30
Einkareknir skólar gagnrýna breytingar Formaður Samtaka sjálfstætt starfandi skóla, Margrét Pála Ólafsdóttir, segir jákvætt að borgaryfirvöld hugsi um fjölbreytileika nemenda í leik- og grunnskólum Reykjavíkur og mikilvægi þess að réttur allra sé virtur. Aftur á móti þykir Margréti Pálu óheppilega farið að hugmyndinni. 21.10.2010 04:00
Skýra þarf betur lög um félagagjöldin Óvíst er hvort dómur Hæstaréttar um töku félagsgjalds af útgerðarmanni til Landssambands smábátaeigenda sem ekki á aðild að sambandinu hafi áhrif á búnaðargjald sem bændur greiða af búvöruverði til Bændasamtakanna. 21.10.2010 04:00
Sólkross tengist ekki rasisma Trúmál Ásatrúarmönnum sárnaði verulega þegar þjóðernissinnar báru fána með sólkrossi á mótmælunum við Alþingishúsið í upphafi mánaðar. Það kemur fram í grein Jóhönnu Harðardóttur Kjalnesingagoða í nýjasta tölublaði fréttabréfs safnaðarins. 21.10.2010 03:45
Taldi amfetamínvökva vera vín Ríkissaksóknari hefur ákært pólskan karlmann á fertugsaldri fyrir að reyna að smygla til landsins einum lítra af amfetamínvökva. 21.10.2010 03:00
Vilja geta selt hingað landbúnaðarvörur Fjórir þingmenn vilja að utanríkisráðherra óski eftir viðræðum við ríkisstjórn Bandaríkjanna um tvíhliða fríverslunarsamning milli ríkjanna. Þau Birgir Þórarinsson, Ragnheiður Elín Árnadóttir, Jón Gunnarsson og Ásmundur Einar Daðason lögðu fram þingsályktunartillögu þess efnis á þriðjudag. 21.10.2010 02:00
Íslandsvika BBC - tökulið á Þingeyri Tökulið á vegum BBC var stadd á Þingeyri á mánudag við tökur á heimildarmynd um Laxdælasögu samkvæmt frétt á vef Bæjarins besta, bb.is. 20.10.2010 21:24
Rafiðnaðarskólinn í nýtt húsnæði Þrátt fyrir að mjög margir iðnaðarmenn finni nú tímabundið fyrir verkefnaskorti, eftir að efnahagsóveðrið skall á Íslandi af fullum þunga fyrir tveimur árum síðan, hefur nemendum ekkert fækkað í Rafiðnaðarskólanum. Þar stunda nú um 1000 manns nám á hverju ári, samkvæmt upplýsingum frá Rafiðnaðarsambandinu. 20.10.2010 21:24
Hjón létust í bílslysi í Tyrklandi - barnið slapp ómeitt Ung íslensk hjón létust í morgun í bílslysi nálægt bænum Mugla í suðvesturhluta Tyrklands. 20.10.2010 17:42
Búið að endurreikna samninga 25 - 30 þúsund einstaklinga Efnahags- og viðskiptaráðuneytið áætlar að fjármálafyrirtæki hafi nú þegar endurreiknað gengisbundna lánasamninga 25 til 30 þúsund einstaklinga. Þeir lántakendur sem um ræðir hafa fengið tilkynningu um lækkun eftirstöðva 20.10.2010 16:36
Ríkisstjórnin hefji þegar viðræður við Alcoa og BMG 25 þingmenn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingarinnar hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar þess efnis að ríkisstjórninni verði falið nú þegar að hefja viðræður við Alcoa á Íslandi og kínverska álfyrirtækið Bosai Mineral Group. 20.10.2010 16:23
Fimm mánaða fangelsi fyrir hnífaárás Tvítugur karlmaður hefur verið dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á mann með hnífi og veita honum áverka. Árásin var gerð í heimahúsi í Kópavogi í byrjun apríl 2008. Pilturinn sem ráðist var á hlaut skurði í hársverði, á vinstri öxl og sár á hægri síðu. 20.10.2010 15:14
Heimili og skóli: Niðurskurður harmaður Stjórn Heimilis og skóla fagnar þeim orðum mennta- og menningarmálaráðherra, Katrínar Jakobsdóttur að fyrir þjóð sem er að byggja sig upp skipti öflugt menntakerfi sköpum. Í tilkynningu frá samtökunum segir að ráðherra hafi sent bréf þess efnis til skóla á öllum skólastigum, sveitarfélaga, skólanefnda, foreldrafélaga og ýmissa hagsmunaaðila á dögunum. 20.10.2010 15:12
Tilkynnt um færri nauðganir Tilkynnt hefur verið um færri nauðganir það sem af er ári en á sama tíma í fyrra. Fyrstu níu mánuði ársins var embætti ríkislögreglustjóra tilkynnt um 40 nauðganir. Á sama tíma í fyrra höfðu embættinu borist 47 tilkynningar og 48 árið þar á undan. 20.10.2010 15:02
Sólskinsdrengurinn fékk heiðursverðlaun Sólskinsdrengurinn, heimildarmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar um einhverfa drenginn Kela, vann til Heiðursverðlauna á Voice-verðlaunahátíðinni sem voru afhent í Paramount Studios í Hollywood. Friðrik gat ekki veitt verðlaununum viðtöku en hann var að kynna síðustu mynd sína Mömmu Gógó í Suður-Kóreu. 20.10.2010 13:52