Fleiri fréttir

Jóhanna útilokar ekki þjóðstjórn

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ætlar að boða formenn stjórnmálaflokkanna á fund á morgun. Hún útilokar ekki þjóðstjórn.

Páll Óskar með pönnu á Austurvelli - myndir

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson er einn hinna fjölmörgu sem mættir eru fyrir utan Alþingishúsið á Austurvelli. Hann ber þar pönnu með sleif, taktfastur að vanda.

Golfkúlum og grjóti kastað í lögreglumenn - myndskeið

Golfkúlum og grjóti var kastað í lögreglumenn á Austurvelli í mótmælunum í kvöld. Þetta sagði Geir Jón Þórisson við fréttamann Stöðvar 2 og Vísis fyrir stundu. Eftir það ákváðu lögreglumennirnir að taka upp hjálma til að skýla sér. Hann segir að grindurnar sem lögreglan setti upp hafi hjálpað lögreglunni mjög mikið.

Magna upp hávaðann með skemmtistaðagræjum

Þúsundir manna mótmæla nú við þinghúsið á Austurvelli. Forsvarsmenn skemmtistaðarins Hvítu Perlunnar í Austurstræti, þar sem English Pub var áður til húsa, taka virkan þátt í mótmælunum og magna upp hávaðann á Austurvelli. Fjölmörgum hátölurum skemmtistaðarins hefur verið komið fyrir í gluggum sem snúa að þinghúsinu.

Fannst í Kleifarvatni

Andrés Tómasson, maðurinn sem leitað hefur verið að síðastliðna tíu daga, er fundinn. Fréttavefur Morgunblaðsins fullyrðir að hann hafi fundist látinn í bifreið sinni í Kleifarvatni nú undir kvöld.

Mótmælendur sitja fyrir þingmönnum

Hluti mótmælenda færði sig af Austurvelli og aftur fyrir þinghúsið eftir að þingfundi lauk í kvöld. Þingfundi lauk um tíuleytið í kvöld og mótmælendur búast við að þingmennirnir fari bakdyramegin út úr húsinu.

Þingmenn VG fara oftast í frí

Þingmenn Vinstri grænna eru duglegastir í því að taka sér leyfi frá þingstörfum samkvæmt samantekt fréttastofu. Frá kosningum hafa þeir alls verið fjarverandi í rúma sex mánuði.

Ólíklegt að ein ræða geti sefað reiði almennings

Mjög ólíklegt er að einhver ein ræða, sama hversu góð hún er, geti sefað þá reiði sem virðist komin í almenning, segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, um stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í kvöld. Hann segir ræðu Jóhönnu hafa verið mjög dæmigerða miðað við hvernig stefnuræður forsætisráðherra hafa verið hingað til.

Segir Jóhönnu uppiskroppa með lausnir

„Við búum í landi þar sem 90% þjóðarinnar bera ekki traust til þjóðþingsins og stórhluti þjóðarinnar telur að þingmenn hafi ekki lengur umboð til að sitja á þingi. Hluti þessa fólks var hér fyrir utan á föstudaginn og vildi tjá þingmönnum það. En hvað gerðu þingmenn? Jú, þeir flúðu undan almenningi með lögregluvernd inn í þinghúsið þar sem þeir ávörpuðu ekki fjöldann heldur hvern annan,“ sagði Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í kvöld.

Óeirðarlögreglumenn öllu viðbúnir

Fjöldi lögreglumanna er á Austurvelli í kvöld. Þeir héldu sig til hlés í byrjun. Nú hefur hins vegar að minnsta kosti einn mótmælandi verið handtekinn, samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Engar upplýsingar hafa borist um það hvers vegna hann var handtekinn. Þúsundir manna eru saman komnir í miðbænum. Sjaldan hafa fleiri verið þar á einum tíma ef undaskildir eru hátíðisdagar.

Sigmundur Davíð: Ofbeldi verður aldrei liðið

„Það verður að viðurkennast að í samfélaginu er að skapast hættuástand,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, á Alþingi þegar fram fóru umræður um stefnuræðu forsætisráðherra.

„Það er órói í samfélaginu“

„Það er órói í samfélaginu eins og við heyrum glöggt hér. Réttlát gremja og reiði er útbreidd vegna alls þess sem gerst hefur á Íslandi. Margir eiga um sárt að binda. Við skulum sína því skilning,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra.

Bjarni: Ríkisstjórnin gefur enga von

„Á Íslandi starfar ríkisstjórn sem gefur enga von,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðum um stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á Alþingi í kvöld. Hann sagði ræðu Jóhönnu ekki vera í takt við veruleikann.

Lögreglumenn aðhafast ekki

Fjöldi lögreglumanna er á Austurvelli en þeir hafa allir haldið sig til hlés enn sem komið er. Það sem af er kvöldi hafa mótmælin farið friðsamlega fram. Flugeldum hefur verið skotið á loft og kveikt í blysum.

Jóhanna: Stendur ekki á mér að víkja

„Það hefur að sjálfsögðu ekki farið framhjá mér að ýmsir þingmenn kalla nú eftir kosningum. Muni nýtt þing, ný ríkisstjórn og tafarlausar kosningar auðvelda úrlausn þeirra viðamiklu verkefna sem framundan eru, þá mun ekki standa á mér að víkja til hliðar,“ sagði Jóhanna Siguðardóttur, forsætisráðherra, í stefnuræðu sinni á Alþingi í kvöld. „Ég og ríkisstjórn mín munum hins vegar ekki skorast undan því að ljúka þeim verkefnum sem við blasa, sé það vilji þingsins.“

Fleiri mótmæla í kvöld en á föstudag

Verulega hefur fjölgað á Austurvelli eftir því sem liðið hefur á kvöldið. Blaðamaður Vísis sem er á staðnum telur að fjöldinn sé meiri en var síðastliðinn föstudag. Búið er að skjóta úr nokkrum kúlublysum og málningu hefur verið skvett á Alþingishúsið.

Bein útsending frá Austurvelli hafin

Bein útsending frá stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og mótmælunum á Austurvelli er hafin á Vísir.is Mikill fjöldi er nú saman kominn Austurvelli en Jóhanna flytur ræður sína klukkan 19:50.

Þyrla Gæslunnar enn við Kleifarvatn

Verið er að kanna hvort bílflak sem fannst í Kleifarvatni síðdegis í dag tilheyri Andrési Tómassyni sem leitað hefur verið að undanfarna tíu daga. Kafarar og lögreglumenn af höfuðborgarsvæðinu kanna nú aðstæður og er þyrla Landhelgisgæslunnar enn á staðnum.

Dómarar við Hæstarétt íhuga hæfi sitt

Tveir af fimm Hæstaréttardómurum sem sitja í landsdómi, störfuðu með Geir H. Haarde í fjármálaráðuneytinu, áður en þeir voru skipaðir í Hæstarétt. Fjórir hæstaréttardómarar til viðbótar kynnu að verða vanhæfir til að dæma í máli Geirs.

Greiðslur til mjólkur- og sauðfjárbænda hækka

Greiðslur til mjólkur- og sauðfjárbænda hækka um rúmar 300 milljónir króna á næsta ári samkvæmt fjárlögum. Á sama tíma er heilbrigðisstofnun Suðurlands gert að skera niður um 400 milljónir en forstjóri stofnunarinnar segir að þetta muni færa þjónustuna áratugi aftur í tímann.

Geir Jón vonar að mótmælin fari vel fram

Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, vonar að fyrirhuguð mótmæli fyrir utan Alþingi í kvöld fari vel fram. Lögreglan er með mikinn viðbúnað á Austurvelli þar sem búist er við fjölmennum mótmælum í kvöld. Varnargirðing var reist um þinghúsið seinnipartinn.

Valgeir til liðs við Hreyfinguna

Valgeir Skagfjörð, fyrrverandi formaður Borgarahreyfingarinnar, hefur lýst yfir stuðningi við Hreyfinguna og starfar nú með þinghópi hennar, að því er fram kemur í tilkynningu. Valgeir er varaþingmaður Þórs Saari.

Mikill viðbúnaður við Alþingi

Lögregla hefur komið upp varnargirðingu fyrir framan Alþingishúsið en boðað hefur verið til mótmæla klukkan hálf átta í kvöld fyrir utan þinghúsið þegar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flytur stefnuræðu sína. Boðað hefur verið til svokallaðra „Tunnumótmæla" á samskiptavefnum Facebook hafa tæplega 2300 manns boðað komu sína.

Eldur í sendibíl

Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að Nýbílavegi í Kópavogi klukkan fimm í dag eftir að tilkynnt var um eld í sendibíl. Bíllinn sem er talsvert skemmdur var mannlaus og engin meiðsl urðu á fólki, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá slökkviliðinu. Vel gekk að slökkva eldinn.

Bílflak fannst í Kleifarvatni

Bílflak fannst í Kleifarvatni síðdegis í dag. Kafarar og lögreglumenn af höfuðborgarsvæðinu eru komnir á staðinn til að kanna aðstæður. Meðal annars er verið að kanna hvort um sé að ræða bíl Andrésar Tómassonar sem leitað hefur verið að undanfarna daga. Ekki hefur fengist staðfest að um þann bíl sé að ræða.

Baldvin leysir Birgittu af

Baldvin Jónsson, varaþingmaður Birgittu Jónsdóttur, tekur sæti á Alþingi í dag og mun leysa hana af í 2 vikur. Í tilkynningu frá Hreyfingunni kemur fram að Baldvin Jónsson hefur reynslu af ferðaþjónustu, er viðskiptafræðinemi og starfar að auki fyrir Fréttatímann.

Varað við snörpum vindhviðum

Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll víða um land með kvöldinu og eru vegfarendur því beðnir um að sýna sérstaka aðgát samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Þyrlan leitar Andrésar í dag

Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið á sveimi yfir suðvesturlandi í dag í leit að Andrési Tómassyni sem saknað hefur verið síðan 24. september

Blind börn fá loksins réttu hjálpartækin

Kristinn Halldór Einarsson, formaður Blindrafélags Íslands, fagnar skjótum viðbrögðum hjá Reykjavíkurborg eftir að hann benti á að mannréttindi væri brotin á blindum og sjónskertum börnum í grunnskólum borgarinnar.

Bein útsending á Vísi frá Alþingi og Austurvelli

Bein útsending verður á Vísi í kvöld frá Alþingi og Austurvelli en Jóhanna Sigurðardóttir mun klukkan 19:50 flytja stefnuræðu forsætisráðherra. Boðað hefur verið til svokallaðra „Tunnumótmæla" á sama tíma á Austurvelli og á samskiptavefnum Facebook hafa um tvö þúsund manns boðað komu sína.

Lögðu glæsibílunum ólöglega en sluppu við sektir

„Mér finnst þetta nú svolítið eins og þeir fátæku séu rukkaðir en ekki hinir ríku," segir Andres Zoran Ivanovic sem tók myndir af glæsibifreiðum sem var ölöglega lagt fyrir utan Laugardalshöllina þegar árshátíð Landsbankans fór fram.

World Class mátti miðla upplýsingum úr augnskanna

Persónuvernd hefur úrskurðað að líkamsræktarstöðinni World Class hafi verið heimilt að miðla upplýsingum til manns sem varð fyrir tjóni á bifreið sinni á bílastæði við líkamsræktarstöðina. Upplýsingarnar voru sóttar í augnskanna líkamsræktarstöðvarinnar.

Skoða viðurlög við barngervingu í klámi

Refsiréttarnefnd hefur verið falið að skoða mögulegar breytingar á lögum um bann við vörslu og dreifingu á barnaklámi. Í því felst meðal annars að athuga hvort og þá hvernig unnt væri að heimfæra undir refsiákvæðið tilvik þar sem fullorðinn einstaklingur er barngerður í kynferðislegum tilgangi en slík lagaákvæði er meðal annars að finna í norsku hegningarlögunum.

Minnsta kosti sex vikur í framsal

Alþjóðadeild Ríkislögreglustjórans hefur engin viðbrögð fengið vegna framsalsbeiðni á hendur Steingrími Þór Ólafssyni, sem er í haldi í Venesúela, grunaður um að vera höfuðpaur í fjársvikamáli hér á landi.

Ríkissaksóknari: Hættulegar hausaveiðar í kynferðisbrotamálum

Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari segist undrandi á yfirlýsingu Femínistafélags Íslands þar sem hann er vændur um að skorta skilning á eðli nauðgana og sé hreinlega óhæfur til að gegna starfi sínu. „Viðbrögð þeirra kvenna sem standa að baki þessarar yfirlýsingu koma mér á óvart og hljóta að vera umhugsunarefni ekki síst fyrir þær sjálfar og málstaðinn. Ég hef haft mikinn áhuga á þessum málaflokki ekki síst sem dómari um árabil. Í því starfi sem og í starfi ríkissaksóknara tel ég mig hafa unnið samkvæmt lögum og viðurkenndum sjónarmiðum,“ segir Valtýr.

Hverfisgatan hreinsuð í dag

Verið er að vinna í því í dag að þrífa græna litinn af Hverfisgötunni í dag. Liturinn var settur á götuna til að afmarka hjólreiðastíg á götunni.

Bætt réttarstaða fórnarlamba mansals og hælisleitenda

Útlendingastofnun hefur fengið heimild til að veita tímabundið dvalarleyfi til sex mánaða til einstaklings sem grunur leikur á að sé fórnarlamb mansals. Auk þess er mælt fyrir um endurnýjanlegt dvalarleyfi til eins árs þegar talið er að dvöl fórnarlambs mansals hérlendis sé nauðsynleg vegna persónulegra aðstæðna viðkomandi, eða vegna samvinnu viðkomandi við yfirvöld í tengslum við rannsókn eða við meðferð sakamáls.

Óvíst hve margir hafa boðið sig fram til stjórnlagaþings

Framboðsfrestur til stjórnlagaþings rennur út á hádegi eftir hálfan mánuð, samkvæmt upplýsingum frá Þórhalli Vilhjálmssyni, ritara landskjörstjórnar. Hvorki Þórhallur né Ástráður Haraldsson, formaður landskjörstjórnar, segjast hafa tiltækar upplýsingar um það hversu margir hafi þegar boðið sig fram.

Krefst skýringa frá ráðherra velferðarmála

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fulltrúi í fjárlaganefnd Alþingis, telur að Guðbjartur Hannesson, ráðherra velferðarmála, þurfi að skýra betur ummæli sín um að hann hafi komið of seint inn í ráðuneytin til að móta niðurskurðartillögur í velferðarmálum.

Meintir fjársvikarar áfram í varðhaldi

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að sex einstaklingar sem sæta nú rannsókn vegna umfangsmikilla fjársvika skuli sitja í gæsluvarðhaldi til 8. október.

30 sagt upp hjá Háfelli

Um þrjátíu manns hefur verið sagt upp hjá verktakafyrirtækinu Háfelli síðustu mánuði þegar líða tók að lokum Héðinsfjarðarganga sem Háfell hefur unnið við.

Sjá næstu 50 fréttir