Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Strætó yfirgefur Hlemm BSÍ tekur við hlutverki Hlemms sem skipti- og endastöð Strætós bs. verði hugmyndir fyrirtækisins að veruleika. Þá verður hætt akstri stórra strætisvagna um miðborg Reykjavíkur og við taka tíðari ferðir minni vagna 1.9.2010 06:00
Eigendur vilja selja borginni Skáldastíg Listamaður og arkitekt sem eiga lóðir undir göngustíg að Unuhúsi vilja að borgin kaupi stíginn. Menningarsögulegt gildi segir Minjasafn. Sagan lifir þótt stígurinn hverfi, segir framkvæmda- og eignasvið og vill ekki eyða fé í málið. 1.9.2010 06:00
Boltinn er núna hjá Expressferðum Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lögfræðingur Neytendasamtakanna, segir samtökin nú bíða viðbragða Expressferða við þeirri niðurstöðu Neytendastofu að ferðaskrifstofan hafi átt að endurgreiða að fullu pakkaferð til Berlínar. 1.9.2010 05:45
Kennurum fækkar um átta á tveimur árum Stöðugildum í Álftanesskóla hefur fækkað um átta á síðustu tveimur árum. Nú eru 39 stöðugildi í skólanum en voru 47 skólaárið 2008 til 2009, sem er 20 prósenta fækkun. Nemendafjöldinn er sá sami, eða um 460 börn. 1.9.2010 05:30
Enn verið að vinna í hljóðritunarmálinu Hljóðritanir eru óheimilar á bæjarstjórnarfundum Mosfellsbæjar. Birta Jóhannesdóttir, þriðji maður á lista Íbúahreyfingarinnar, bað Karl Tómasson, forseta bæjarstjórnar, um leyfi til þess að hafa hljóðnema á bæjarstjórnarfundi 25. ágúst síðastliðinn, en var neitað. 1.9.2010 05:15
Flóahreppur braut lög með brottrekstri Flóahreppur braut ítrekað lög þegar sveitarstjórn hreppsins vék formanni umhverfisnefndar hreppsins frá og skipaði nýjan formann stuttu fyrir aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna í vor, samkvæmt úrskurði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. 1.9.2010 05:00
Eigum að fylgja fordæmum sem til eru Ísland semur ekki um undanþágur frá meginreglum Evrópusambandsins, heldur verður farið fram á sérlausnir, líkt og fordæmi eru fyrir. Þetta sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrum ráðherra og sendiherra, í viðtali við Morgunútvarp Rásar 2 í gær. 1.9.2010 05:00
Ályktun BHM kemur mjög á óvart Miðstjórn Bandalags háskólamanna (BHM) kallar eftir því í ályktun að Framtakssjóður Íslands sýni fram á með óyggjandi hætti að fjárfestingar sjóðsins fylgi tilgangi og skilmálum sjóðsins og leggst gegn frekari framlögum í sjóðinn. 1.9.2010 05:00
Galdurinn liggur í frostinu „Það er óvenjulega mikið af reyniberjum í ár eins og af öðrum jarðargróðri. Reyniberin eru stórkostlegt haustskraut en líka góð til átu með réttri meðhöndlun,“ segir Hildur Hákonardóttir, höfundur bókarinnar Ætigarðurinn – handbók grasnytjungsins. 1.9.2010 05:00
Einungis munaði níu atkvæðum Kjarasamningur Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) og launanefndar sveitarfélaga (LN) var samþykktur í almennri atvæðagreiðslu í fyrradag. Einungis munaði níu atvæðum, en 100 manns voru ósamþykkir samningum og 109 samþykkir. Talningu lauk laust fyrir hádegi í gær. 1.9.2010 04:30
Útspil stjórnvalda varðandi áfengisauglýsingar fagnaðarefni „Þetta er mikið fagnaðarefni og sérstaklega gaman af því að fólk skuli taka og setja velferðarsjónarmið barna og unglinga í öndvegi,“ segir Árni Guðmundsson, formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum. 31.8.2010 22:32
Flokksstjórn í startholunum Búist er við að flokksstjórn Samfylkingarinnar verði kölluð saman með skömmu fyrirvara í tengslum við fyrirhugaða uppstokkun á ríkisstjórninni. Til stendur að fækka ráðherrum um tvo. 31.8.2010 21:29
Oddný: Veit ekki hvort ég verð ráðherra „Það hef ég ekki hugmynd um,“ segir Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, aðspurð hvort hún taki senn sæti í ríkisstjórn. „Ég heyrði þetta bara í féttunum.“ 31.8.2010 20:10
Samningaviðræðunum verið slitið Stjórn Ungra vinstri grænna skorar á ríkisstjórnina að slíta nú þegar öllum samningaviðræðum við hollenska hernaðarfyrirtækið ECA um að það fái leyfi til að halda uppi starfsemi á Íslandi. 31.8.2010 21:56
Hélt að Össur væri að tala um tollhliðið á Seltjarnarnesi „Fékk nett sjokk, hélt hann væri að tala um mig og tollahlið á Seltjarnarnes. Fjúkkitt,“ segir Jón Gnarr, borgarstjóri, í dagbókarfærslu á samskiptasíðunni Facebook í kvöld. Þar vísar Jón til fréttar á Vísir.is þar sem Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, gagnrýnir harðlega Jón Bjarnason, landbúnaðarráðherra, vegna tollmúrs á innfluttar landbúnaðarvörur. „Össur: Tollmúrar Jóns algert brjálæði,“ er fyrirsögn umræddrar fréttar. 31.8.2010 20:47
Lögregla skoðar myndasafn í tengslum við morðið Fáeinum dögum eftir morðið á Hannesi Þór Helgasyni fékk lögregla afrit af myndasafni Víkurfrétta frá fjölskylduhátíð í Vogum sem fór fram kvöldið fyrir morðið. Á einni myndanna sést Hannes Þór standa einn fyrir aftan unnustu sína. Víkurfréttir greina frá þessu í dag. Þar segir ennfremur að lögregla hafi fengið aðgang að myndunum „með það fyrir augum að finna hugsanlegan morðingja á myndunum." 31.8.2010 19:56
„Ætli við þurfum ekki að drepast til að hætta“ Þjóðin getur tekið gleði sína á ný því í dag var gengið frá því að gömlu, góðu heimilisvinirnir Ragnar Reykás, Kristján „heiti ég" Ólafsson og Geir og Grani verði áfram í sjónvarpi, en nú á Stöð 2. 31.8.2010 19:48
Össur þögull „Þú hefur alltaf haft betri heimildir en ég. Ég rengi það ekki,“ sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, við fréttamann þegar hann kom út af fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur í forsætisráðuneytinu í kvöld. 31.8.2010 19:40
Beinagrind steypireyðarinnar á Skaga bjargað Umhverfis- og menntamálaráðherra fengu samþykkta tveggja milljóna króna fjárveitingu á ríkisstjórnarfundi í morgun til að bjarga beinagrind steypireyðarinnar sem rak á land á Skaga fyrir norðan á dögunum. 31.8.2010 19:07
Össur: Tollmúrar Jóns algert brjálæði Tollmúrar Jóns Bjarnasonar landbúnaðarráðherra á innfluttar landbúnaðarvörur eru algert brjálæði, segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, og hvetur hann til að endurskoða ákvörðun sína. 31.8.2010 19:01
Katrín Júlíusdóttir: Ekki með von í brjósti „Það hefur blasað við að breytingar yrðu gerðar á kjörtímabilinu í tengslum við hugsanlegar breytingar á Stjórnarráðinu. Vonandi erum við að sjá í land með þær og það felur auðvitað í sér breytingar,“ sagði Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, áður en hún gekk í Stjórnarráðshúsið á sjöunda tímanum í kvöld. 31.8.2010 18:58
Afli Samherja hjá ESB Dótturfélög Samherja eru með þúsundir eða tugi þúsunda tonna veiðiheimilda innan Evrópusambandsins. Aflaheimildir dótturfélaganna í útlöndum eru margfalt meiri en móðurfélagið hefur á Íslandi. 31.8.2010 18:40
Ragna og Gylfi hætta Stokkað verður upp í ríkisstjórninni á næstu dögum, jafnvel strax á morgun eða þegar þing kemur saman á fimmtudag. Ráðherrum verður fækkað um tvo. 31.8.2010 18:31
Segir tímann vinna með Íslendingum í Icesave-deilunni Tíminn vinnur með Íslendingum í Icesave-málinu, segir fyrrverandi yfirlögfræðingur hjá EFTA. Málsmeðferð fyrir EFTA-dómstólnum er sjaldan meiri en 6 til 7 mánuðir, samkvæmt athugun á vef dómstólsins, eða minna en helmingurinn af þeim tíma sem liðinn er síðan fyrst var samið um Icesave. 31.8.2010 18:30
Umfangsmikil leit að neyðarsendi sem fannst í ruslinu Landhelgisgæslan og samstarfsaðilar stóðu fyrir mikilli leit að neyðarsendi frá sunnudegi og fram á mánudag eftir eftir að neyðarskeyti hófu að berast frá sendi sem ekki var lengur í notkun. Við eftirgrennslan kom í ljós að honum hafði verið skilað inn til þjónustuaðila sem ekki fór með hann strax til förgunar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Gæslunni. 31.8.2010 17:38
Barnaspítalasjóður Hringsins fær ekki arfinn Hæstiréttur staðfesti í dag niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í júlí í deilu um arf til Barnaspítalans. Landspítalinn fær arfinn samkvæmt erfðaskrá. 31.8.2010 17:25
21 karlmaður og ein kona sækja um starf fiskistofustjóra Þann 27. ágúst 2010 rann út frestur til að skila umsókn um embætti fiskistofustjóra. Alls sóttu 22 um starfið. 31.8.2010 16:15
Íslendingar ánægðir með nágrannana, veðrið og borgarstjórann Mikil ánægja ríkir meðal Íslendinga samkvæmt könnun MMR á ánægju almennings. 31.8.2010 16:11
Leggja til að áfengisauglýsingar verði algjörlega bannaðar Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu heilbrigðisráðherra og dómsmála- og mannréttindaráðherra um að áfengislögum verði breytt þannig að bann við áfengisauglýsingum verði virt. 31.8.2010 15:36
„Ríkisendurskoðun fór óvarlega í fyrirsagnirnar“ „Við urðum strax vör við það að nemendur og starfsfólk höfðu samband og óttuðust að hér væri allt á hausnum. Að sjálfsögðu er ekki svo og mér finnst Ríkisendurskoðun hafa farið óvarlega í fyrirsagnirnar sem höfðu ekki alltaf innistæðu,“ segir Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, en honum finnst framsetning skýrslu Ríkisendurskoðunar heldur hörð og ekki lýsa starfi skólans rétt. 31.8.2010 15:10
Fiskverð hagstætt - mjölverð enn hagstæðara Verð á íslenskum sjávarafurðum, meðaltal allra afurðaflokka, mælt í erlendri mynt, hækkaði um 1,5 prósent í júlí síðastliðnum. Þetta byggir á útreikningi IFS miðað við tölur um framleiðsluverð í júlí sem Hagstofan birti fyrir helgi. 31.8.2010 14:31
Spaugstofan á Stöð 2 Spaugstofan mun verða á Stöð 2 í vetur en fyrsti þátturinn verður sýndur laugardaginn 8. október. Spaugstofan var í tuttugu ár í Ríkissjónvarpinu en sýningum var hætt vegna niðurskurðar. 31.8.2010 14:00
Óvíst að það sé rekstrargrundvöllur fyrir Keili Ríkisendurskoðun telur alls óvíst hvort það sé rekstrargrundvöllur fyrir starfsemi Keilis ehf., sem er í Reykjanesbæ. Í úttekt Ríkisendurskoðunar á skólanum kemur fram að í árslok 2009 nam uppsafnaður halli af rekstri Keilis 136 milljónir og skuldir 463 milljónir. 31.8.2010 13:23
Bakktjón algengasta umferðartjónið Bakktjón (ekið afturábak) er algengarsta orsök umferðartjóna hér á landi eða 31 prósent allra tjóna samkvæmt nýrri skýrslu frá Sjóvá fyrir árið 2009. 31.8.2010 12:55
Slökkviliðsmenn samþykktu nýjan kjarasamning Kjarasamningur slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við launanefnd sveitarfélaga var samþykktur naumlega í atkvæðagreiðslu sem lauk um hádegi í gær. Samningurinn var því samþykktur naumlega og boðuðum verkfallsaðgerðum hefur verið aflýst. 31.8.2010 11:59
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald yfir Gunnar Rúnari Hæstiréttur hefur staðfest fjögurra vikna gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir Gunnari Rúnari Sigurþórssyni, 23 ára, sem grunaður er um að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana á heimili hans aðfaranótt 15.ágúst síðastliðinn. 31.8.2010 11:57
Spaugstofan heldur blaðamannafund í Þjóðmenningarhúsinu Spaugstofan hefur boðað til blaðmannafundar klukkan tvö í dag. Athygli vekur að fundurinn fer fram í ÞJóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu, en þar hefur ríkisstjórnin oft haldið blaðamannafundi eftir bankahrun. 31.8.2010 11:26
Brasilísk djass-söngkona svipt atvinnuleyfi vegna atvinnuleysis „Óvissan er verst, ég veit ekki hvað ég á að gera," segir Jussanam da Silva frá Brasilíu en hún segir Vinnumálastofnun hafa hafnað að framlengja vinnuleyfið sitt meðal annars vegna mikils atvinnuleysis. 31.8.2010 11:15
Bandaríski herinn snýr aftur Flugsveit frá bandaríska flughernum sinnir loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér á landi frá 6. - 24. september. Sveitin er hér stödd í boði íslenskra stjórnvalda og starfar í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland. 31.8.2010 10:55
Síbrotamaður tekinn úr umferð Ungur ökumaður var nýverið stöðvaður eftir að hafa mælst á 117 kílómetra hraða innanbæjar á Selfossi, þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar á klukkustund. 31.8.2010 10:07
BHM: Miðstjórn leggst alfarið gegn frekari framlögum til Framtaks Miðstjórn Bandalags háskólamanna leggst alfarið gegn frekari framlögum lífeyrissjóða félagsmanna sinna til Framtakssjóðs Íslands. Í ályktun miðstjórnar segir að af gefnu tilefni geri hún þá kröfu til Framtakssjóðs Íslands, að hann sýni með óyggjandi hætti fram á að fjárfestingar hans fylgi tilgangi og skilmálum sjóðsins. 31.8.2010 08:28
Fundu spænskan ferðamann Björgunarsveitarmenn frá Hellu fundu í gærkvöldi spænskan ferðamann á bílaleigubíl, sem hafði orðið bensínlaus inni á hálendinu i fyrrinótt. 31.8.2010 07:18
Síðbúin hitabylgja á leiðinni Hiti fer nú vaxandi um norðan- og austanvert landið en þar um slóðir stefnir í síðbúna hitabylgju með allt að 20 stiga hita næstu sólarhringana. 31.8.2010 07:16
Nýtt kvótaár á miðnætti Einskonar gamlársdagur er í íslenskum sjáavrútvegi í dag, því nú er síðasti dagur kvótaársins og nýtt kvótaár gengur í garð á miðnætti með nýjum aflaheimildum, eða kvótum. 31.8.2010 07:12
LÍÚ telur nýtt ákvæði í stjórnarskrá óþarft Starfshópur um endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins, að fulltrúum Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) undanskildum, telur aðkallandi að skýrt ákvæði verði sett inn í stjórnarskrá um að auðlindir sjávar séu eign þjóðarinnar. Mælt er með því að sjávarútvegsráðherra komi erindi þessa efnis til nýskipaðrar nefndar sem nú undirbýr stjórnlagaþing. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins kemur þetta fram í drögum að niðurstöðum starfshópsins en hún skilar ráðherra skýrslu í lok vikunnar. 31.8.2010 06:30