Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ætla að ná í ellefu milljarða Lagt er til í skattatillögum starfshóps á vegum fjármálaráðuneytis að erfðafjárskattur verði hækkaður um fimmtíu prósent, fjármagnstekjuskattur um ellefu prósent, undanþágur fríhafnarinnar frá vörugjaldi og virðisaukaskatti á áfengi og tóbaki verði felldar niður og tekinn verði upp sérstakur bankaskattur líkt og í Svíþjóð og Bretlandi. 25.9.2010 06:00
Þriðjungur Íslendinga mjög andvígur mosku Skiptar skoðanir eru á því meðal landsmanna hvort byggja eigi mosku í Reykjavík. Samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins eru 41,8 prósent andvígir byggingu mosku en 36,6 prósent eru hlynntir því að moskan rísi. 25.9.2010 06:00
Einn var fluttur á sjúkrahús Liðlega tvítugur maður var handtekinn á heimavist Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri um klukkan þrjú aðfaranótt föstudags vegna ógnandi tilburða við samnemendur sína. 25.9.2010 06:00
Sundlaugin sögð vera óráðsía Fulltrúar minnihluta S-lista Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Blönduóss segja meirihluta L-listans leggja „blessun sína yfir stórfellda eyðslu umfram fjárheimildir“ með endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010. 25.9.2010 06:00
Erfiður bardagi framundan hjá Gunnari Nelson Gunnar Nelson bardagaíþróttamaður mætir efnilegasta veltivigtarmanni Englendinga á morgun, Eugene Fadiora. Bardaginn fer fram í Birmingham annaðkvöld. 24.9.2010 21:17
Reykur í lyftugöngum í fjölbýlishúsi Mikinn reyk lagði frá rafmagnsspenni í blokk í Lönguhlíðinni um klukkan sex í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins virðist einhver bilun hafa komið upp í rafmagnsspenninum. 24.9.2010 20:38
Eldur í ruslatunnu Eldur kom upp í ruslatunnu við hús í Bolholti nú fyrir stundu. Slökkviliðsmenn eru búnir að slökkva eldinn. Þeir fóru einnig yfir klæðningu í þaki til að ganga úr skugga um að enginn eldur væri þar. 24.9.2010 20:30
Ætlar að passa að eiginmaðurinn eyði ekki vinningnum aftur Það voru tíu heppnir aðilar sem fengu símhringingu frá Happdrætti Háskóla Íslands í dag og tilkynnt að þeir hefðu unnið eina milljón króna. Hringt var í vinningshafana strax eftir útdrátt eða klukkan hálf fimm. 24.9.2010 19:15
FLE: Ekki verið bent á mistök endurskoðenda Formaður Félags löggiltra endurskoðenda segir stéttina draga þann lærdóm af hruninu að menn þurfi að vara sig á efnahagsástandinu við reikningsskil. Erfitt sé hins vegar að benda á mistök endurskoðenda. 24.9.2010 19:04
Segja lögin standast ákvæði stjórnarskrárinnar Meirihluti allsherjarnefndar Alþingis telur að lög um ráðherraábyrgð og landsdóm standist ákvæði stjórnarskrárinnar um réttláta málsmeðferð. 24.9.2010 18:27
Mikil rigning á Eyjafjallajökli - búist við miklu í ám Veðurstofa Íslands spáir talsverði úrkomu á Suðurlandi á morgun, þá sérstaklega á svæðinu á Eyjafjallajökli. Búist er við því að mikið verði í ám á svæðinu vegna hlýinda sem eru sögð fylgja í kjölfarið. 24.9.2010 17:40
Nemandi í skólanum: „Héldum að það væri einhver að fíflast í okkur“ „Fólki er mjög brugðið, þetta er svo lítið samfélag hérna," segir nemandi í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Maður vopnaður hnífi hélt fjórum nemendum skólans í gíslingu í nótt. Enginn meiddist í atganginum. 24.9.2010 17:29
Gæsluvarðhald framlengt yfir starfsmanni Ríkisskattstjóra Gæsluvarðhald yfir starfsmanni hjá embætti Ríkisskattstjóra var framlengt um tvær vikur í dag. Maðurinn er grunaður um að hafa aðstoðað við fjársvikin, með því að hafa svikið rúmar 270 milljónir króna í formi endurgreiðslu á virðisaukaskatti. 24.9.2010 17:02
Gíslataka á Hvanneyri - maðurinn enn í haldi Maður vopnaður hnífi hélt fjórum nemendum við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri í gíslingu í nótt. Lögregla fékk tilkynningu um málið um klukkan hálfþrjú og fór strax á vettvang. 24.9.2010 14:15
Sólstafir starfa áfram - vonast eftir fjármagni „Það er rétt er að við höfum ekki fengið neitt fjármagn og sáralítið er eftir af því sem við eigum í okkar sjóði en við höfum þó tekið þá ákvörðun að gefast ekki upp og reyna að halda rekstrinum gangandi áfram," segir í tilkynningu frá Sólstöfum, systursamtökum Stígamóta á Vestfjörðum. 24.9.2010 14:03
Gunnar Rúnar áfram í gæsluvarðhaldi Gunnar Rúnar Sigurþórsson hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 22. október að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. 24.9.2010 13:31
Sex mánaða skilorð fyrir árás með skiptilykli Karlmaður á fertugsaldri var í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að berja vinnufélaga sinn með skiptilykli. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi og í ljósi þess að hann er með hreint sakavottorð að öðru leyti fannst dómara hæfilegt að skilorðsbinda dóminn. Árásin átti sér stað í maí í húsnæði fiskverkunnar í Reykjavík. 24.9.2010 13:05
Hjartastuðtæki í flutningabílum eykur öryggi Í tilefni alþjóðlega Hjartadagsins, sem haldinn er í tíunda sinn á heimsvísu á sunnudaginn, hafa Landflutningar-Samskip ákveðið að koma fyrir alsjálfvirkum hjartastuðtækjum í flutningabílum á öllum helstu akstursleiðum félagsins. Þetta er gert til að auka almennt öryggi vegfarenda en hver mínúta getur skipt máli ef einstaklingur fær hjartastopp og þá er mikilvægt að hafa réttan búnað við höndina. 24.9.2010 12:53
Berjast fyrir endurbyggingu Vestfjarðavegar 60 Baráttuhópurinn „Áfram vestur" fagnar því að jarðgöng milli Hnífsdals og Bolungarvíkur opna á morgun en með tilkomu gangnanna batna samgöngur mjög á norðanverðum Vestfjörðum. 24.9.2010 12:42
Vilja gjörbylta húsnæðislánakerfinu Hagsmunasamtök heimilanna vilja gjörbreyta húsnæðislánakerfi landsmanna - þar sem þak yrði meðal annars sett á verðbætur svo bankar verði virkari þátttakendur í að halda stöðugleika í landinu. Samtökin lögðu fram kröfugerð um leiðréttingar og hugmyndir um nýtt húsnæðislánakerfi á blaðamannafundi í morgun - og kölluðu grunn að þjóðarsátt. 24.9.2010 12:01
OR vill að Hveragerði borgi framkvæmdir aftur í tímann Orkuveita Reykjavíkur setur það sem skilyrði fyrir sölu á Hitaveitu Hveragerðis til Hveragerðisbæjar að bæjarfélagið borgi fyrir allar framkvæmdir svæðinu frá árinu 2004. 24.9.2010 11:56
Gömlu fartölvurnar líktust saumavélum Saumavélin, ein fyrsta IBM fartölvan, sem kom á markað árið 1984, verður kynnt til sögunnar á Vísindavöku Rannís sem verður í Listasafni Reykjavíkur í kvöld. Tölvan, sem heitir IBM Portable, var hins vegar oft nefnd saumavélin þar sem hún þótti minna frekar á vél til notkunar fyrir saumaskap heldur en tölvu. 24.9.2010 11:18
Stálu úr söfnunarbauknum og kveiktu í Krýsavíkurkirkju Tveir piltar og tvær stúlkur á aldrinum 17 til 20 ára hafa játað að hafa kveikt í Krýsuvíkurkirkju í ársbyrjun en kirkjan gjöreyðilagðist í brunanum. 24.9.2010 10:59
Kostar á fimmta þúsund að nota smokk daglega Þrjú ungmenni undir 25 ára aldri smitast að meðaltali af klamydíu á degi hverjum hér á landi. Á sama tíma eru smokkar flokkaðir sem munaðarvara í hæsta skattþrepi. 24.9.2010 10:33
Jóhanna tók þátt í ráðstefnu kvenleiðtoga Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tók í gær þátt í ráðstefnu kvenleiðtoga í New York. Yfirskrift ráðstefnunnar var „Konur sem mikilvægt afl í lýðræðislegri stjórnsýslu". Forseti Litháen, Dalia Grybauskaite og forseti Finnlands, Tarja Halonen voru gestgjafar ráðstefnunnar. 24.9.2010 10:22
Rússar heiðra Ólaf Ragnar Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands var í gær gerður að heiðursfélaga í Rússneska landfræðifélaginu við hátíðlega athöfn á Alþjóðaþingi um Norðurslóðir sem haldið er í Moskvu. 24.9.2010 10:10
Heilbrigðisstarfsfólki finnst hnýsni að spyrja um ofbeldi Dæmi eru um að heilbrigðisstarfsfólk upplifi það sem hnýsni ef það spyr konu sem til þess leitar hvort hún hafi verið beitt ofbeldi. Heilbrigðisstofnanir leita ekki með skipulegum hætti að konum sem búa við ofbeldi og er vandamálið afar falið. Innan heilbrigðiskerfisins hefur þó safnast upp þekking á því hvaða merkjum ber að veita sérstaka eftirtekt, svo sem ef kona kemur alltaf í viðtöl með maka, ef hann svarar spurningum fyrir hana og hún fær varla að fara ein á salernið. 24.9.2010 09:04
Sex af tíu vilja fyrrverandi ráðherra fyrir landsdóm Ríflega sex af hverjum tíu landsmönnum vilja að einhverjir af ráðherrunum í ríkisstjórn Geirs H. Haarde sem sat í hruninu verði ákærðir fyrir landsdómi. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar Fréttablaðsins sem gerð var í gærkvöldi. 24.9.2010 06:30
Fylgismenn Samfylkingar klofnir í afstöðu til ákæra Stuðningsmenn Samfylkingarinnar eru klofnir í afstöðu sinni til þess hvort draga eigi einhverja af þeim ráðherrum sem sátu í hruninu fyrir landsdóm. Meirihluti stuðningsmanna Vinstri grænna og Framsóknarflokks vill ákæra ráðherrana, en stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru því almennt andstæðir. 24.9.2010 06:30
Árni fór á fund Samfylkingarinnar Árni Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, mætti á fund þingflokks Samfylkingarinnar á miðvikudag og útskýrði afstöðu sína til kæruefna í þingsályktunartillögum um að hann og fleiri yrðu ákærðir fyrir landsdómi. 24.9.2010 06:15
Áhrif Íslands yrðu meiri innan ESB Ísland hefur tiltölulega oft fengið undanþágur og haft áhrif á stefnumótun ESB í gegnum EES-samstarfið, en innleiðir samt flestar reglur ESB, jafnvel þótt þær séu óþægilegar þjóðinni. Undantekningar eru helst gerðar þegar brýnir hagsmunir eru í húfi. 24.9.2010 06:00
Farið fram á lengri gæslu Farið verður að öllum líkindum fram á framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir Gunnari Rúnari Sigurþórssyni að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Gæsluvarðhaldið yfir Gunnari Rúnari rennur út í dag. 24.9.2010 06:00
Flestir látast 3. janúar Talsverðar sveiflur má sjá þegar dánartíðni á Íslandi er skoðuð eftir dögum. Flestir hafa látist í janúar á ári hverju síðastliðin fjórtán ár, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. 24.9.2010 05:30
Stöðvaði stéttargerð með aðkomusteypu Björn Steinar Pálmason bæjarstjóri stöðvaði í fyrradag steypuvinnu við endurnýjun á gangstéttum utan við bygginguna þar sem bæjarstjórnarskrifstofurnar í Grundarfirði eru til húsa. 24.9.2010 05:30
Át og drakk fyrir fé vistmanna Ríflega fimmtug kona hefur verið ákærð fyrir að draga sér tæpar 400 þúsund krónur af sameiginlegum bankareikningi vistmanna verndaðs heimilis þar sem hún starfaði. Hún hafði prókúru fyrir reikninginn til matarinnkaupa. 24.9.2010 05:00
Helmingur sneri aftur í ofbeldissambúðina Um það bil helmingur kvenna, sem dvöldu í Kvennaathvarfinu á síðasta ári vegna ofbeldis í nánum samböndum, fór aftur heim í óbreyttar aðstæður. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri rannsókn á þjónustu félagasamtaka sem aðstoða konur sem beittar hafa verið ofbeldi af hendi karla í nánum samböndum. 24.9.2010 05:00
Kveiktu viljandi í fornri kirkju Fjögur ungmenni stóðu á bak við brunann þegar Krýsuvíkurkirkja brann til kaldra kola í janúar síðastliðnum. Þetta upplýsti Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfirði, á bloggsíðu sinni í gær. Segir Þórhallur að ungmennin hafi farið til Krýsuvíkur í þeim eina tilgangi að kveikja í kirkjunni, sem var byggð árið 1857. 24.9.2010 05:00
Hótaði að skera börnin á háls Karlmaður um tvítugt hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í sjö mánaða fangelsi, þar af fjóra á skilorði, fyrir fjölda brota. Hann var meðal annars dæmdur fyrir að hrækja á lögreglumann, hóta honum og öðrum lögreglumönnum lífláti og að skera börn þeirra á háls. 24.9.2010 04:00
Danir setja hundrað milljónir í fyrstu mynd Rúnars Einsdæmi þykir að kvikmyndaleikstjórinn Rúnar Rúnarsson fái hundrað og fjórar milljónir króna í styrk fyrir myndina The Volcano frá kvikmyndasjóðnum New Danish Screen, sem er stofnun innan dönsku kvikmyndamiðstöðvarinnar. 24.9.2010 00:01
Sigmundur Ernir: Embættismenn eiga ekki að ráða „Embættismenn hafa ekki lýðræðislegt umboð og nema, að ég tel, síður hjartslátt þjóðarinnar en þingmenn. Embættismenn eiga ekki að ráða löggjöfinni. Framkvæmdavaldið má þó hafa tillögurétt að nýjum lögum. En ekki meir,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Hann hyggt leggja fram tillögu ásamt Pétri H. Blöndal, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, um aukið sjálfstæði Alþingis. 23.9.2010 20:45
Ráðherra fagnar áhuga Reykjavíkurborgar Guðbjartur Hannesson, heilbrigðisráðherra, fagnar áhuga Reykjavíkurborgar á samstarfi um útfærslu á þjónustu heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins enda sé það í samræmi við óskir hans um að heilsugæslan eigi samvinnu við borgina. 23.9.2010 20:15
Bjarni Ben opinn fyrir viðræðum um myndun nýs meirihluta á Alþingi Formaður Sjálfstæðisflokksins er opinn fyrir viðræðum um myndun nýs meirihluta á Alþingi og útilokar ekki samstarf við Samfylkinguna. Hann segist skynja óánægju meðal þingmanna stjórnarflokkanna en segir hins vegar engar viðræður hafa átt sér stað. 23.9.2010 18:30
„Peningar vaxa ekki á neinum trjám í Reykjavík“ Peningarnir vaxa ekki á trjánum í Reykjavík segir formaður velferðarráðs sem fyrr í vikunni felldi tillögu um að auka fjárhagsaðstoð til einstaklinga. Sveitarfélagið eigi ekki eitt og sér að glíma við fátæktina. 23.9.2010 19:16
Tugir skattamála voru í biðstöðu vegna Jóns Ásgeirs og félaga Tugir skattamála sem hafa verið í biðstöðu á meðan beðið var dóms í skattamáli Jóns Ásgeirs Jóhannessarsonar og viðskiptafélaga hans, komast aftur á skrið í dómskerfinu eftir að Hæstiréttur hafnaði að fella niður ákæru í málinu. Fjárhæðirnar í málunum hlaupa á tugum milljóna króna. 23.9.2010 19:02
Steingrímur J. bauð fram aðstoð við hugmyndafræðilega endurnýjun Viðskiptaráðs Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands segir að samtökin hafi farið of geyst fyrir bankahrunið og verið of meðvirk með útrásarvíkingum. Fjármálaráðherra gagnrýnir samtökin fyrir að líta ekki í eigin barm og bauð fram aðstoð við hugmyndafræðilega endurnýjun samtakanna. 23.9.2010 18:45