Fleiri fréttir

Sjö vilja stjórna Einkaleyfastofu

Sjö umsóknir bárust um embætti forstjóra Einkaleyfastofu en umsóknafrestur rann út um síðustu mánarðarmót. Forstjóri stofnunarinnar er á leið í tveggja ára leyfi og því var embættið auglýst laust til umsóknar.

Óli Björn: Eins og að pissa í skóinn sinn

Þátttaka lífeyrissjóða í samkeppnisrekstri er eins og að pissa í skóinn sinn að sögn Óla Björns Kárasonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Í dag fór fram umræða utan dagskrár um þátttöku lífeyrissjóðanna í atvinnulífinu. Óli Björn var málshefjandi og til andsvara var Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.

Óvíst hvort lífsýni finnist á meintu morðvopni

Óvíst er hvort lífsýni finnist á veiðihnífnum sem lögregla telur að Gunnar Rúnar Sigurþórsson hafi notað til að bana Hannesi Þór Helgasyni. Hnífurinn var sendur til Svíþjóðar í gærkvöldi.

Vilja semja við kvótaeigendur um nýtingarrétt á aflaheimildum

Meirihluti sáttanefndar um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða leggur til að samið verði við kvótaeigendur um nýtingarrétt á aflaheimildum til ákveðins tíma gegn leigugjaldi. Þetta kemur fram í skýrslu nefndarinnar sem var afhent ráðherra nú í morgun. Þá er einnig lagt til að fiskveiðiauðlindin verði skilgreind sem þjóðareign í stjórnarskrá.

Hlátrasköll á Alþingi: „Hvar hefur þú verið?“

Líf og fjör var á Alþingi í morgun þar sem umræður um störf þingsins voru á dagskrá. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði því skóna að stokkað hefði verið upp í ríkisstjórninni til þess eins að þingmeirihluti fengist fyrir fjárlögum, og vísaði í því sambandi til orða Álfheiðar Ingadóttur, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, á tröppum Bessastaða þegar ný ríkisstjórn var kynnt.

Forsetinn á ferð í Kína

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson er nú á ferð í Kína í tilefni af þjóðardegi Íslands og íslenskri dagskrá á Heimssýningunni í Shanghai. Hann mun einnig eiga fundi með kínverskum ráðamönnum og sérfræðingum ásamt því að taka þátt í tveimur alþjóðlegum þingum.

Allsherjarnefnd vill láta samþykkja frumvarp um fórnarlömb mansals

Allsherjarnefnd Alþingis leggur til að frumvarp um dvalarleyfi fyrir fórnarlömb mansals verði samþykkt. Þær einu breytingar sem nefndin gerir á frumvarpinu er að í stað þess að dvalarleyfi verði allt frá þrjátíu dögum og upp í sex mánuði þá sé tekið fram að dvalarleyfið sé til fullra sex mánaða.

Íslenskar konur taka niður fyrir sig á vinnumarkaði

Á Íslandi eru konur mun líklegri en karlar til að vera í starfi sem krefst minni menntunar en þær hafa lokið. Árið 2007 voru 21% 25-29 ára íslenskra kvenna en 11% karla sem höfðu lokið háskólamenntun í störfum sem ekki krefjast háskólamenntunar, til dæmis í skrifstofustörfum eða þjónustustörfum.

Erlendum ferðamönnum fækkar - Íslendingar meira á faraldsfæti

Erlendum ferðamönnun á Íslandi fækkaði í ágúst miðað við sama tíma í fyrra. Alls fóru 89.600 erlendir gestir frá landinu í nýliðnum ágústmánuði um Leifsstöð eða um 2.500 færri en í ágúst árið 2009. Í tilkynningu frá Ferðamálastofu segir að fækkunin nemi 2,7% millli ára. Íslendingar eru hinsvegar mun meira á faraldsfæti en 23% fleiri fóru utan í ágústmánuði í ár en í fyrra, voru 29.900 í ágúst síðastliðnum en 24.400 á síðasta ári.

Jenis ætti að skammast sín

Færeyski þingmaðurinn, Jenis av Rana, ætti að skammast sín að mati formanns Tjóðveldisflokksins, Högna Hoydal, en þetta skrifar hann í grein sem birtist á vefnum Vágaportalurinn í dag. Forskrift greinarinnar er:

Leigja landspildur undir gæsaveiðar

Vaxandi áhugi er meðal þéttbýlismanna á að taka á leigu landspildur til að stunda gæsaveiðar, en verulega dró úr henni fyrst eftir hrun.

Herjólfi verður siglt eftir sjávarföllunum

Uppsafnað gosefni frá Eyjafjallajökli í innsiglingu Landeyjahafnar stöðvaði ferðir Herjólfs í gær. Ekki verða teknar upp ferðir til Þorlákshafnar á ný. Áfram verða ferðir í Bakkafjöru, en eftir sjávarföllum og í samráði við Siglingastofnun.

Æ færri fást í tvíbýlisherbergi

Stjórn Dvalarheimilisins Höfða á Akranesi segir aðkallandi að byggja tíu hjúkrunarrými til að fækka fjölbýlum á heimilinu

Vissara að slökkva á viðkvæmum tækjum

Alla jafna er orðið of seint að bregðast við þegar almennir notendur verða varir við rafmagnstruflanir, að sögn Sigurðar Geirssonar, skólastjóra Rafiðnaðarskólans. Flökt á ljósum getur til að mynda verið merki um truflun í rafkerfinu. Í síðustu viku olli truflun hjá Norðuráli á Grundartanga keðjuverkandi áhrifum sem komu fram sem flökt í spennu um land allt og rafmagnsleysi á nokkrum stöðum.

Styttist í dóm Hæstaréttar

Málflutningur fór fram í Hæstarétti í gærmorgun í máli Lýsingar um vexti á gengistryggðu bílaláni. Þar með gæti óðum styst í að skorið verði úr óvissunni sem hvílt hefur á þúsundum landsmanna um vaxtakjör slíkra lána.

Stakk sér til sunds að nýju

Rostungurinn sem kom í land við Flateyjardal fyrir helgi var heppinn að sleppa lifandi. Fyrir­hugað var að skjóta dýrið þar sem það var talið illa sært. Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands, segir að um misskilning hafi verið að ræða og við nánari at

Jónas Sen skrifar um tónlist

Jónas Sen, tónlistarmaður og gagnrýnandi, hefur gengið til liðs við Fréttablaðið og mun eftirleiðis skrifa reglulegar greinar um tónlist og tónleika. Í fyrstu grein sinni í dag, skrifar Jónas um afmælistónleika Sigfúsar Halldórssonar í Salnum í Kópavogi.

Fimm milljónir manna voru strandaglópar

Leiðtogar, sérfræðingar og embættismenn, innan Evrópu og utan, ræða hvað betur hefði mátt fara og afleiðingar gossins í Eyjafjallajökli á ráðstefnu Flugakademíu Keilis 15. til 16. þessa mánaðar.

Rannsókn lokið á árásinni i Reykjanesbæ

Lögregla hefur lokið rannsókn á máli tveggja manna sem grunaðir eru um að hafa ráðist á karlmann á sjötugsaldri, eiginkonu hans og dóttur þeirra við heimili fjölskyldunnar í Reykjanesbæ í byrjun maí. Samkvæmt heimildum Vísis hefur málið verið sent Ríkissaksóknara og þar verður tekin ákvörðun um ákæru í málinu.

Skiptar skoðanir um framtíð biskups

Skiptar skoðanir eru um það á meðal presta Þjóðkirkjunnar hvort Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands eigi að segja af sér embætti, víkja tímabundið á meðan að sannleiksnefnd um mál ÓIafs Skúlasonar fyrrverandi biskups er að störfum, eða sitja sem fastast. Þetta segja þeir prestar sem Vísir hefur rætt við í dag.

Herjólfur siglir á morgun

Gert er ráð fyrir að Herjólfur sigli frá Vestmannaeyjum til Landeyjarhafnar klukkan sex í fyrramálið og aftur til baka um einni og hálfri klukkustund seinna.

Launakostnaður lækkaður um milljarð

Launakostnaður á Landspítala hefur dregist saman um 973 milljónir króna á fyrstu átta mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra. Þetta segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, í mánudagspistli sínum.

Stálu loftgæðamælistöð og skildu hana eftir á golfvelli

Loftgæðamælistöð í Vík í Mýrdal, sem Umhverfisstofnun hefur rekið til að fylgjast með öskufalli og síðan öskufoki vegna eldgossins í Eyjafjallajökli, var stolið um helgina. Stöðin, sem vegur um 70 kíló, fannst út á golfvelli bæjarins í um það bil kílómeters fjarlægð þar sem hún stóð.

Ekið á tíu ára dreng

Ekið var á tíu ára gamlan dreng á Hvaleyraholtinu í Hafnarfirði í dag. Drengurinn hlaut skurð á höfði og eymsl í vinstri fæti en slapp við beinbrot samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Sjálfstæðismenn: Stjórnarráðsfrumvarpið vanbúið

Sjálfstæðismenn í allsherjarnefnd, þau Birgir Ármannsson og Ólöf Nordal, hafa lagt fram minnihlutaálit varðandi frumvarp forsætisráðherra til breytinga á lögum um stjórnarráðið. Í álitinu er sett fram hörð gagnrýni á undirbúning og framsetningu frumvarpsins og það sagt fullkomlega vanbúið til afgreiðslu á Alþingi.

Krossgötu-detox sýknað

Eignarhaldsfélagið K 107 ehf. var sýknað af endurgjaldskröfu konu í Héraðsdómi Reykjavíkur í á föstudaginn. Félagi á og rekur Krossgötu-detox sem gerir út sína starfsemi á Hótel Glym.

Ný siglingaáætlun unnin fyrir Herjólf

Siglingastofnun Íslands vinnur nú að nýju útreikningum um við hvaða flóðhæð skal miða fyrir siglingar Herjólfs í Landeyjahöfn. Guðmundur Petersen, rekstarstjóri Herjólfs, segist bíða eftir niðurstöðunni og er hennar líklega að vænta síðar í dag.

Rannsaka hníf sem unglingar fundu í smábátahöfninni

Lögregla rannsakar nú hníf sem fannst við smábátahöfnina í Hafnarfirði. Tveir 15 ára piltar gáfu sig fram við lögreglu um helgina og framvísuðu hnífi sem þeir höfðu fundið í smábátahöfninni í Hafnarfirði.

Starfsmenn biskupsstofu gáfu mótmælanda kaffi

„Við fórum þarna út og gáfum honum kaffi,“ segir Elín Jóhannesdóttir hjá fræðslusviði biskupsstofu á Laugaveginum en hún bauð mótmælanda sem þar stendur, upp á kaffibolla. Það gerði hún ásamt konu sem rekur verslun í sama húsi.

Vill nýjan byskup

Einn mótmælandi stendur fyrir utan Biskupsstofu á Laugaveginum og krefst þess, samvkæmt skilti sem hann heldur á, að nýr biskup taki við starfinu.

Eftirlitsnefnd: Staða Vestmannaeyjabæjar er traust

Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vill árétta að fjárhagsstaða Vestmannaeyjabæjar er traust og að ekki eru fyrirsjáanleg vandkvæði í fjármálum bæjarins. Áréttingin kemur eftir að forsvarsmenn bæjarins lýstu yfir óánægju með umfjöllun um stöðu 12 sveitarfélaga sem eftirlitsnefndin hafði sent fyrirspurnarbréf.

Fundur um Herjólf stendur yfir

Boðað var til fundar klukkan eitt um hvort Herjólfur siglir aftur í dag. Fundurinn stendur enn yfir en að honum loknum verður ljóst hvenær þeir sem hugðust fara með Herjólfi komast á áfangastað.

Gengislánamálið: Ráðherra útilokar ekki lagasetningu

Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir ekki útilokað að gripið verði til lagasetningar eftir að niðurstaða hæstaréttar í gengislánamálinu liggur fyrir. Hart var deilt á ríkisstjórnina á Alþingi í morgun fyrir aðgerðarleysi vegna skuldavanda heimilanna.

Hitametin falla á hlýjustu dögum ársins

Hitamet hafa fallið á földa veðurstöðva, bæði norðanlands og vestan, í hitabylgunni sem leikið hefur um landið undanfarna daga, meðal annars á Akureyri, og laugardagurinn var hlýjasti dagur ársins til þessa yfir landið, sem þykir ótrúlegt, miðað við að komið er fram í septembermánuð.

Sjá næstu 50 fréttir