Fleiri fréttir

Kostar á fimmta þúsund að nota smokk daglega

Þrjú ungmenni undir 25 ára aldri smitast að meðaltali af klamydíu á degi hverjum hér á landi. Á sama tíma eru smokkar flokkaðir sem munaðarvara í hæsta skattþrepi.

Jóhanna tók þátt í ráðstefnu kvenleiðtoga

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tók í gær þátt í ráðstefnu kvenleiðtoga í New York. Yfirskrift ráðstefnunnar var „Konur sem mikilvægt afl í lýðræðislegri stjórnsýslu". Forseti Litháen, Dalia Grybauskaite og forseti Finnlands, Tarja Halonen voru gestgjafar ráðstefnunnar.

Rússar heiðra Ólaf Ragnar

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands var í gær gerður að heiðursfélaga í Rússneska landfræðifélaginu við hátíðlega athöfn á Alþjóðaþingi um Norðurslóðir sem haldið er í Moskvu.

Heilbrigðisstarfsfólki finnst hnýsni að spyrja um ofbeldi

Dæmi eru um að heilbrigðisstarfsfólk upplifi það sem hnýsni ef það spyr konu sem til þess leitar hvort hún hafi verið beitt ofbeldi. Heilbrigðisstofnanir leita ekki með skipulegum hætti að konum sem búa við ofbeldi og er vandamálið afar falið. Innan heilbrigðiskerfisins hefur þó safnast upp þekking á því hvaða merkjum ber að veita sérstaka eftirtekt, svo sem ef kona kemur alltaf í viðtöl með maka, ef hann svarar spurningum fyrir hana og hún fær varla að fara ein á salernið.

Sex af tíu vilja fyrrverandi ráðherra fyrir landsdóm

Ríflega sex af hverjum tíu landsmönnum vilja að einhverjir af ráðherrunum í ríkisstjórn Geirs H. Haarde sem sat í hruninu verði ákærðir fyrir landsdómi. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar Fréttablaðsins sem gerð var í gærkvöldi.

Fylgismenn Samfylkingar klofnir í afstöðu til ákæra

Stuðningsmenn Samfylkingarinnar eru klofnir í afstöðu sinni til þess hvort draga eigi einhverja af þeim ráðherrum sem sátu í hruninu fyrir landsdóm. Meirihluti stuðningsmanna Vinstri grænna og Framsóknarflokks vill ákæra ráðherrana, en stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru því almennt andstæðir.

Árni fór á fund Samfylkingarinnar

Árni Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, mætti á fund þingflokks Samfylkingarinnar á miðvikudag og útskýrði afstöðu sína til kæruefna í þingsályktunartillögum um að hann og fleiri yrðu ákærðir fyrir landsdómi.

Áhrif Íslands yrðu meiri innan ESB

Ísland hefur tiltölulega oft fengið undanþágur og haft áhrif á stefnumótun ESB í gegnum EES-samstarfið, en innleiðir samt flestar reglur ESB, jafnvel þótt þær séu óþægilegar þjóðinni. Undantekningar eru helst gerðar þegar brýnir hagsmunir eru í húfi.

Farið fram á lengri gæslu

Farið verður að öllum líkindum fram á framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir Gunnari Rúnari Sigurþórssyni að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Gæsluvarðhaldið yfir Gunnari Rúnari rennur út í dag.

Flestir látast 3. janúar

Talsverðar sveiflur má sjá þegar dánartíðni á Íslandi er skoðuð eftir dögum. Flestir hafa látist í janúar á ári hverju síðastliðin fjórtán ár, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands.

Stöðvaði stéttargerð með aðkomusteypu

Björn Steinar Pálmason bæjarstjóri stöðvaði í fyrradag steypuvinnu við endurnýjun á gangstéttum utan við bygginguna þar sem bæjarstjórnarskrifstofurnar í Grundarfirði eru til húsa.

Át og drakk fyrir fé vistmanna

Ríflega fimmtug kona hefur verið ákærð fyrir að draga sér tæpar 400 þúsund krónur af sameiginlegum bankareikningi vistmanna verndaðs heimilis þar sem hún starfaði. Hún hafði prókúru fyrir reikninginn til matarinnkaupa.

Helmingur sneri aftur í ofbeldissambúðina

Um það bil helmingur kvenna, sem dvöldu í Kvennaathvarfinu á síðasta ári vegna ofbeldis í nánum samböndum, fór aftur heim í óbreyttar aðstæður. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri rannsókn á þjónustu félagasamtaka sem aðstoða konur sem beittar hafa verið ofbeldi af hendi karla í nánum samböndum.

Kveiktu viljandi í fornri kirkju

Fjögur ungmenni stóðu á bak við brunann þegar Krýsuvíkurkirkja brann til kaldra kola í janúar síðastliðnum. Þetta upplýsti Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfirði, á bloggsíðu sinni í gær. Segir Þórhallur að ungmennin hafi farið til Krýsuvíkur í þeim eina tilgangi að kveikja í kirkjunni, sem var byggð árið 1857.

Hótaði að skera börnin á háls

Karlmaður um tvítugt hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í sjö mánaða fangelsi, þar af fjóra á skilorði, fyrir fjölda brota. Hann var meðal annars dæmdur fyrir að hrækja á lögreglumann, hóta honum og öðrum lögreglumönnum lífláti og að skera börn þeirra á háls.

Danir setja hundrað milljónir í fyrstu mynd Rúnars

Einsdæmi þykir að kvikmyndaleikstjórinn Rúnar Rúnarsson fái hundrað og fjórar milljónir króna í styrk fyrir myndina The Volcano frá kvikmyndasjóðnum New Danish Screen, sem er stofnun innan dönsku kvikmyndamiðstöðvarinnar.

RIFF hófst í kvöld

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin RIFF hófst í Reykjavík í kvöld. Hátíðin stendur yfir í ellefu daga og hefur hún aldrei verið stærri. Það var Jón Gnarr, borgarstjóri, sem setti kvikmyndahátíðina.

Kynna grunn að þjóðarsátt og nýju húsnæðislánakerfi

Hagsmunasamtök heimilanna hafa boðað til kynningarfundar á morgun um „Grunn að þjóðarsátt,“ líkt og það er orðað í tilkynningu. Þar ætla samtökin að kynna kröfur um leiðréttingu á húsnæðislánum heimilanna og tillögur að nýju húsnæðislánakerfi. Fundurinn fer fram í Þjóðmenningarhúsinu og hefst klukkan tíu.

Telur ummæli Sveins Andra um barnaníð ekki sæma lögmanni

Hæstaréttarlögmaður gagnrýnir Svein Andra Sveinsson, hæstaréttarlögmann, fyrir ummæli hans á samskiptavefnum Facebook. Þar sagðist Sveinn Andri upplifa það sem höfnun að hafa ekki verið áreittur kynferðislega af presti í æsku og bætti broskalli við.

Sigmundur Ernir: Embættismenn eiga ekki að ráða

„Embættismenn hafa ekki lýðræðislegt umboð og nema, að ég tel, síður hjartslátt þjóðarinnar en þingmenn. Embættismenn eiga ekki að ráða löggjöfinni. Framkvæmdavaldið má þó hafa tillögurétt að nýjum lögum. En ekki meir,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Hann hyggt leggja fram tillögu ásamt Pétri H. Blöndal, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, um aukið sjálfstæði Alþingis.

Ráðherra fagnar áhuga Reykjavíkurborgar

Guðbjartur Hannesson, heilbrigðisráðherra, fagnar áhuga Reykjavíkurborgar á samstarfi um útfærslu á þjónustu heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins enda sé það í samræmi við óskir hans um að heilsugæslan eigi samvinnu við borgina.

„Peningar vaxa ekki á neinum trjám í Reykjavík“

Peningarnir vaxa ekki á trjánum í Reykjavík segir formaður velferðarráðs sem fyrr í vikunni felldi tillögu um að auka fjárhagsaðstoð til einstaklinga. Sveitarfélagið eigi ekki eitt og sér að glíma við fátæktina.

Tugir skattamála voru í biðstöðu vegna Jóns Ásgeirs og félaga

Tugir skattamála sem hafa verið í biðstöðu á meðan beðið var dóms í skattamáli Jóns Ásgeirs Jóhannessarsonar og viðskiptafélaga hans, komast aftur á skrið í dómskerfinu eftir að Hæstiréttur hafnaði að fella niður ákæru í málinu. Fjárhæðirnar í málunum hlaupa á tugum milljóna króna.

Rússar vilja Drekann

Þótt Ísland geri engar kröfur um yfirráð á Norðurheimskautinu gæti landið haft umtalsverðar tekjur af umsvifum sem þar verða á komandi árum. Pútín Rússlandsforseti lýsir áhuga rússneskra orkufyrirtækja á olíuleit á Drekasvæðinu.

Upplýst um frambjóðendur í byrjun nóvember

Landskjörstjórn mun upplýsa fyrir 3. nóvember næstkomandi hverjir bjóða sig fram til stjórnlagaþings en framboðsfrestur rennur út 18. október. Í tilkynningu frá dóms- og mannréttindaráðuneytinu kemur fram að þingið skuli skipað minnst 25 og mest 31 þjóðkjörnum og persónukjörnum fulltrúa. Þeir sem ætla að bjóða sig fram verða að vera með minnst 30 meðmælendur en kosið verður til þingsins þann 27. nóvember næstkomandi.

Gjaldeyristekjurnar dafna í Dýrafirði

Þrjúhundruð þúsund regnbogasilungar vaxa nú upp í sjókvíum á Dýrafirði, sem vonast er til að breytist í sex til sjöhundruð milljóna króna útflutningsverðmæti og skapi tíu störf á Þingeyri.

Mugabe svæfði Össur

Robert Mugabe, forseta Zimbabwe, tókst að svæfa Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, og sendinefnd Íslands á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna þegar hann tók til máls í gær. Fjallað er um málið á þýska fréttavefnum Die Ziet en myndin sem birtist með fréttinni hefur vakið mikla athygli.

Sjálfstæðismenn vilja ræða önnur mál

Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sendi Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, bréf í morgun þar ítrekuð var krafa formanns flokksins frá því í gær um að rædd verði áríðandi mál sem brenna á þjóðinni á meðan þingnefndir fjalla um þingsályktanir um málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherrum. Ásta hefur ekki svarað bréfinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.

Börn náttúrunnar sýnd í Malaví

Börn náttúrunnar, kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, verður sýnd á kvikmyndahátíð í Malaví sem er að hefjast. Þetta er önnur kvikmyndahátíðin sem haldin er í landinu.

Sjófugli fækkar við Ísland

Sjófuglinum stuttnefju hefur fækkað um 44 prósent hér við land frá miðjum níunda áratugnum. Fýl og langvíu hefur á sama tíma fækkað um 30 prósent, álku um 18 prósent og ritu um 16 prósent.

Bátur laus af strandstað

Bátur með fjóra í áhöfn strandaði í dag rétt sunnan við Raufarhöfn. Björgunarsveitirnar Pólstjarnan frá Raufarhöfn og Hafliði frá Þórshöfn voru kallaðar út auk þess sem björgunarskip Landsbjargar, Gunnbjörg frá Raufarhöfn var á staðnum.

Forsetinn fundaði með Putin

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fundaði í dag með Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússlands, í Rússlandi í dag. Þar eru þeir staddir á Alþjóðaþingi um Norðurslóðir sem haldið er í Moskvu.

Strandaði nálægt Raufarhöfn

Bátur með fjóra í áhöfn strandaði í dag rétt fyrir utan höfnina í Raufarhöfn. Að sögn lögreglu er Landhelgisgæslan í viðbragðsstöðu og lögreglumaður er á leið á vettvang. Að því er fram kemur á mbl.is eru fjórir í áhöfn bátsins.

Stígamót þurftu að loka á sex stöðum á landsbyggðinni

Konur á landsbyggðinni hafa minni möguleika á að leita sér aðstoðar vegna ofbeldis í nánum samböndum en konur á höfuðborgarsvæðinu. Fjárhagur þeirra félaga sem aðstoða konur sem eru beittar ofbeldi er af mjög skornum skammti og fer minnkandi.

Steingrímur J: Ranghugmyndir hafa litað skattaumræðuna

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir ranghugmyndir hafi litað umræðu um skatta á síðustu misserum. Að hans mati setja ranghugmyndirnar nokkuð mark sitt á tilllögur forsvarsmanna Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs Íslands í skattamálum.

Jón Stóri gæti krafið ríkið um skaðabætur

Fari svo að rannsókn á máli gegn Jóni Hilmari Hallgrímssyni, eða Jóni Stóra, verði látið niður falla eða hann sýknaður af ákæru um ofbeldi gegn kúbverskum feðgum getur hann átt skaðabótakröfu á hendur íslenska ríkinu vegna ólögmætrar frelsissviptingar. Jón hefur verið sakaður um að hafa

Sjá næstu 50 fréttir