Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Forstjóri Magma stoltur af því að geta kallað Össur „félaga“ Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma á Íslandi, segir að hann og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hafi þekkst lengi og samskipti þeirra hafi verið á þeim nótum. Hann segir stjórnvöld aðeins hafa verið að vinna eftir gildandi lögum og ekkert óeðlilegt sé við tölvupóstssamskipti sín við ráðherra og embættismenn vegna fjárfestingar Magma í HS Orku. 27.8.2010 12:14
Böðvar Jónsson: Setjist niður og semjið svo fólkið fái atvinnu Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segir Suðurnesin búa við mesta atvinnuleysi á landinu og krefst þess að ráðamenn setjist niður og tryggi að framkvæmdir komist í gang. 27.8.2010 12:09
Segja aðlögunarferli fólgið í ESB-aðildarviðræðum Samtökin Ísafold, Félags Ungs Fólks gegn ESB-aðild, segja aðlögun fólgna í aðildarviðræðum við ESB. 27.8.2010 12:06
Morð í Hafnarfirði: Karlmaður að nýju í haldi lögreglu Karlmaður á þrítugsaldri er í haldi lögreglu vegna rannsóknarinnar á morðinu á Hannesi Helgasyni. 27.8.2010 12:02
ASÍ gagnrýnir landbúnaðarráðherra Hörð gagnrýni kom fram á Jón Bjarnason, landbúnaðarráðherra, á miðstjórnarfundi ASÍ í gær. Fundarmönnum hugnaðist ekki sú ákvörðun Jóns að gera breytingar á tolli á innfluttum landbúnaðarafurðum, að því er fram kemur á vef ASÍ. Þar segir að Jón hafi tekið ákvörðunina einhliða og að hún gangi gegn hagsmunum neytenda þar sem hún verð komi til með að hækka gríðarlega á innfluttum landbúnaðarafurðum. 27.8.2010 11:32
Samið um frumhönnun nýs Landspítala Gengið hefur verið frá samningi um frumhönnun og gerð útboðsgagna milli SPITAL hópsins, sem bar sigur úr bítum í sumar í hönnunarsamkeppni um nýjan Landspítala, og hlutafélagsins Nýr Landspítali ohf., sem stofnað var í vor til að standa að undirbúningi og útboði á byggingu nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Útboðsgögn vegna fyrstu framkvæmda eiga að liggja fyrir síðsumars 2011. Samkomulagið var undirritað í dag að viðstöddum heilbrigðisráðherra, rektor Háskóla Íslands og forstjóra Landspítalans. 27.8.2010 11:15
Ungir sjálfstæðismenn verðlauna Brynjar Níelsson og InDefence Samband ungra sjálfstæðismanna hefur ákveðið að veita Brynjari Níelssyni, hæstaréttarlögmanni og formanni Lögmannafélagsins, og InDefence hópnum svonefnd Frelsisverðlaun sambandins í ár. Verðlaunin fær Brynjar fyrir að vera ötull baráttumaður gegn pólitískum rétttrúnaði, líkt og það er orðað í tilkynningu SUS. Um InDefence segir að samtökin eigi hvað mestan heiður skilið fyrir að hindra að gengið yrði að kröfum Breta og Hollendinga Icesave málinu. 27.8.2010 10:55
Morðrannsókn: Húsleit hjá grunuðum manni Húsleit var framkvæmd í gærkvöldi heima hjá grunuðum manni, sem var handtekinn og yfirheyrður vegna morðmálsins í Hafnarfirði stuttu eftir að morðið var framið. Þetta kemur fram á fréttamiðlinum Pressan.is. 27.8.2010 10:45
Ökumenn til fyrirmyndar á Fornhaga Ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Fornhaga í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fornhaga í suðurátt, við Hagaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði. 27.8.2010 10:29
Facebook-síðu lokað eftir sjálfsmorðssprengjuhótun Facebook-síðu með yfirskriftinni „Við myndum fórna lífinu fyrir Ísland", hefur verið lokað en samtökin Sterkara Ísland kærðu sjálfsmorðshótun hópsins til lögreglunnar. 27.8.2010 10:03
Vilja mosku í Reykjavík Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu skorar á skipulagsráð Reykjavíkur að koma til móts við óskir Félags múslíma og útvega þeim lóð undir mosku. Á aðalfundinum sem fór fram í gær var Claudia Overesch kjörinn formaður félagsins. 27.8.2010 09:45
Meirihluti telur hag sinn betri innan ESB Ný könnun Eurobarometer sýnir að meirihluti íbúa Norðurlandaþjóðanna í ESB telja hag sinn betri vegna aðildar að ESB. 27.8.2010 09:43
Jón Gnarr: Sjálfstæðismenn sýna mér hroka Jón Gnarr, borgarstjóri, segist efast um að hann geti unnið með Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðismenn sýni honum hroka og fálæti. Hann segist fá lítið til baka frá þeim nema töffaragang. Jón spyr lesendur dagbókar sinnar á samskiptavefnum Facebook hvort hann eigi að hætta að brosa til þeirra sem beri ekki virðingu fyrir honum. 27.8.2010 08:28
Urða verslunarhöll á meðan kreppan ríkir Reginn, dótturfélag Landsbankans, sem leysti til sín risavaxna lóð með sökkli að tólf þúsund fermetra verslunarmiðstöð er nú að láta moka yfir allan grunninn. 27.8.2010 08:00
Leyfi til stækkunar bíður deiliskipulags Gert er ráð fyrir að breyting á deiliskipulagi Reyjaness og Grindavíkur verði staðfest um mánaðamótin október nóvember þegar Skipulagsstofnun hefur farið yfir hana, að sögn Magneu Guðmundsdóttur, formanns umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar. 27.8.2010 07:30
Með skýrt umboð til að breyta borginni Besti flokkurinn er með skýrt umboð til breytinga í Reykjavík og tími kominn til að láta verkin tala, í góðri sátt við íbúa. Þetta má lesa í viðtali blaðsins við nýjan formann skipulagsráðs, Pál Hjaltason. 27.8.2010 06:45
Sumar skoðanir Beatys taldar birtingarhæfar en aðrar ekki Iðnaðarráðuneytið hefur afhent Fréttablaðinu hluta af bréfi sem Ross Beaty, forstjóri Magma, sendi Katrínu Júlíusdóttur iðnaðaráðherra 18. ágúst síðastliðinn. Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, var sent afrit af bréfinu. 27.8.2010 06:45
Segja tuttugu upp störfum Jarðboranir hafa sagt upp tuttugu starfsmönnum og tilgreina tafir á framkvæmdum vegna álvers í Helguvík sem ástæðu uppsagna í fréttatilkynningu sem send var út í gær. 27.8.2010 05:30
Umdeilt málverk af Ólafi Skúlasyni fært Búið er að færa málverkið af Ólafi Skúlasyni, fyrrverandi biskupi, til á biskupsstofu. Málverkið öðlaðist óvænta frægð þegar mynd af þeim Karli Sigurbjörnssyni og Geir Waage birtist á Vísi og í Fréttablaðinu þar sem Ólafur Skúlason horfði yfir öxl þeirra. 26.8.2010 21:56
Alvarlegt ef ekki má tryggja börn með ADHD Björk Þórarinsdóttir, formaður ADHD samtakanna, segir alvarlegt ef börn með ADHD njóti ekki sömu tryggingaréttinda og önnur börn. Hún segir það geta hvatt til þess að fólk forðist greiningu og meðhöndlun á röskuninni. 26.8.2010 21:32
Neysluvatn í Hveragerði ekki mengað Ekki er arsenikk í drykkjarvatni Hvergerðinga. Þetta segir Elsa Ingjaldsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands en bóndi í sveitinni segist hafa misst tvær kýr vegna arsenikk mengunar í drykkjarvatni. 26.8.2010 20:47
Dregur umsókn til baka vegna hugmynda ráðherra Ásta Bragadóttir starfandi framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, hefur ákveðið að draga umsókn sína um starf framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs til baka í kjölfar hugmynda félagsmálaráðherra að skipa valnefnd til að meta hæfi umsækjanda um stöðu framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs. 26.8.2010 22:15
Segir Suðurnes í heljargreipum Vinstri grænna Viðræður um orkusölu til álversins í Helguvík eru komnar í loft upp og kveðst forstjóri HS Orku líta svo á að orkusölusamningur við Norðurál sé runninn úr gildi. Bæjarstjórinn í Garði segir Suðurnesjum vera að blæða út í atvinnuleysi og þau séu í heljargreipum Vinstri grænna. 26.8.2010 18:55
„Þörfnumst þess að málið sé upplýst" Útför Hannesar Þór Helgasonar sem fannst myrtur á heimili sínu á sunnudaginn fyrir viku fór fram í dag. Fjöldi listamanna söng við afhöfnina. Kirkjan var þétt setin. 26.8.2010 18:42
Kennir aresenikkmengun frá Hellisheiðarvirkjun um skepnudauða Bændur í nágrenni Hveragerðis óttast að neysluvatn hafi mengast af arsenikki, sem hugsanlega komi frá Hellisheiðarvirkjun. Tvær kýr drápust á bænum í fyrra af ókunnum ástæðum. 26.8.2010 18:30
„Sæll félagi Össur“ - Magma bað ráðherra um frið fyrir Vinstri grænum Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hlutaðist til um kaup Magma Energy í HS Orku nokkuð eftir að hann hætti sem iðnaðarráðherra, þótt orku- og auðlindamál heyrðu ekki undir hann. Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma á Íslandi, bað iðnaðarráðherra um frið fyrir Vinstri grænum í bréfi sem hann sendi á síðasta ári. 26.8.2010 18:30
Arsenikkmengun: Vísindamenn vilja rannsókn Vísindamenn telja að rannsaka þurfi betur arsenikkmengun í tengslum við gufu frá Hellisheiðarvirkjun. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands fullyrðir að neysluvatn á Friðarstöðu og í Hveragerði sé í lagi. 26.8.2010 18:20
Óttast greiðsluþrot Reykjanesbæjar Kristinn Jakobsson, oddviti Framsóknarmanna í Reykjanesbæ, segist óttast að bærinn gæti verið settur undir eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaganna. Hann segir skuldir bæjarsjóðs nema um 400% prósent af árstekjum og þetta hlutfall fari hækkandi. Bærinn hafi bjargað sér fyrir horn vegna gengishagnaðar en reksturinn sé of dýr. 26.8.2010 17:33
Óttast arsenikkmengun i neysluvatni Bændur í nágrenni Hveragerðis óttast að neysluvatn hafi mengast af arsenikki, en tvær kýr drápust á bænum í fyrra af ókunnum ástæðum. 26.8.2010 17:09
Pétur Guðgeirsson má dæma í máli níumenninga Hæstiréttur hefur staðfest að Pétur Guðgeirsson héraðsdómari mun ekki þurfa að víkja sæti í máli fólksins sem ákært er fyrir árás á Alþingi. 26.8.2010 16:54
Öllum brugðið í Vesturbæjarskóla Fólki var brugðið þegar að það sá tvo skúra sem voru svona illa útlítandi, segir Hildur Hafstað, skólastjóri í Vesturbæjarskóla. Vísir sagði frá því fyrr í dag að foreldrar barna í Vesturbæjarskóla væri reiðir vegna tveggja hrörlegra skúra sem settir voru upp við Vesturbæjarskóla í gærkvöld. Þeir eiga að hýsa sjö ára gamla nemendur skólans. 26.8.2010 16:30
Morðrannsóknin: Þriðji karlmaðurinn látinn laus Karl á fertugsaldri, sem verið hefur í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því gær vegna rannsóknar á andláti Hannesar Þórs Helgasonar, hefur verið látinn laus. 26.8.2010 15:34
Fjölmenni við útför Hannesar Fjölmenni var við útför Hannesar Þórs Helgasonar sem var gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði klukkan eitt í dag. Færri komust að í kirkjunni en vildu og var athöfninni því varpað á skjá í íþróttasal Víðistaðaskóla. 26.8.2010 15:22
Breytingar hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóri hefur gefið út nýtt skipurit fyrir efnahagsbrotadeild embættisins sem gerir ráð fyrir að tveir saksóknarar starfi á rannsóknar- og ákærusviði deildarinnar. Eins og Vísir greindi frá í vor hefur Sigríði Elsu Kjartansdóttur, sem skipuð er saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara, verið falið að gegna starfi saksóknara við efnahagsbrotadeild. Þá hefja fleiri nýir starfsmenn störf við deildina á næstunni. 26.8.2010 14:02
Foreldrar í Vesturbæjarskóla æfir yfir aðstöðuleysi Mikil reiði ríkir á meðal foreldra í Vesturbæjarskóla eftir að færanlegar skólastofur voru fluttar á lóð Vesturbæjarskóla í gærkvöld. Skúrarnir voru fluttir á lóðina í gærkvöld. Þeim er ætlað að hýsa sjö ára gömul börn á meðan að skólastarfið stendur yfir í vetur. 26.8.2010 13:35
Svíar kanna einnig tengsl milli bólusetningar og drómasýki Sænska lyfjastofnunin er að athuga hvort samhengi geti verið milli bólusetningar við svínaflensu með bóluefninu Pandemrix og svefnflogum eða drómsýki. Hætt hefur verið að gefa bóluefnið við svínaflensu tímabundið í Finnlandi eða þar til endanlegar niðurstöður liggja fyrir um tengsl þess við sjúkdóminn. 26.8.2010 13:05
Kjör bænda skerðast um mánaðamótin Bændur verða fyrir kjaraskerðingu um þessi mánaðamót þegar ríkið hættir að greiða mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð þeirra. Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bænda segir erfitt fyrir þá að vega skerðinguna upp með hækkun afurðaverðs. 26.8.2010 12:12
Mistök gerð hjá Greiðslustofu lífeyrissjóðanna Tæknileg mistök hjá Greiðslustofu lífeyrissjóðanna höfðu í för með sér að upp undir þúsund ífeyrisþegar fengu rangan útreikning. Þar var tilkynnt um lækkun eða jafnvel niðurfellingu á lífeyrisgreiðslum. Öryekjabandalagið vekur athygli á þessu og segir að leiðréttingarbréf sé væntanlegt frá greiðslustofunni. 26.8.2010 11:47
Svíakóngur drakk kampavín á Austur Karl Gústav, konungur Svíþjóðar, ákvað að gera sér dagamun á veitingastaðnum Austur í gærkvöld. Þar var hann í nokkuð fjölmennum hópi fólks og drakk kampavín, samkvæmt heimildum Vísis. Starfsfólk Austur staðfesti fréttirnar þegar Vísir hafði samband þangað en vildi að öðru leyti ekkert láta hafa eftir sér um málið. 26.8.2010 11:40
Morðið í Hafnarfirði: Karlmaður í haldi Íslenskur karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglu í tengslum við morðið á Hannesi Þór Helgasyni. Hann hefur ekki verið yfirheyrður áður í tengslum við morðið. 26.8.2010 11:26
Össur í Ríga Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, tekur þátt í árlegum samráðsfundi utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem að þessu sinni er haldinn í Ríga í Lettlandi í dag og á morgun. 26.8.2010 11:15
Auðveldara að meta börn eftir átta ára aldur Tryggingafélagið Sjóvá metur hvort hægt sé að tryggja börn með þroskaröskun, eins og ofvirkni með athyglisbrest, eftir að barnið hefur náð átta ára aldri, samkvæmt vinnureglum fyrirtækisins. Þetta segir Valborg Sveinsdóttir, sérfræðingur í persónutryggingum hjá Sjóvá. Hún segir að ástæðan sé sú að eftir þann aldur sé auðveldara að meta barnið. 26.8.2010 11:11
Fleiri fóru til hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra Skráðum viðtölum hjá hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum á heilsugæslustöðvum fjölgaði töluvert milli áranna 2008 og 2009. Þetta kemur fram í Talnabrunni, fréttabréfi landlæknis um heilbrigðistölfræði. 26.8.2010 11:08
KFC og Góu lokað vegna útfarar Hannesar Vegna útfarar Hannesar Þórs Helgasonar, sem myrtur var á heimili sínu í Hafnarfirði fyrir ellefu dögum, verður lokað í dag hjá Sælgætisgerðinni Góu-Lindu, á veitingastöðum KFC og Taco Bell ásamt skrifstofum þessara fyrirtækja. Hannes verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag klukkan 13. 26.8.2010 10:43
Ásta fundar með kvenþingforsetum ESB Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, situr fund kvenþingforseta aðildarríkja Evrópusambandsins í Varna í Búlgaríu á morgun í boði Tsetsku Tsachevu, forseta búlgarska þingsins. Til fundarins er boðið öllum kvenþingforsetum aðildarríkja ESB auk umsóknarríkja. Aðalumræðuefni fundarins eru samskipti ólíkra menningarheima í Evrópu og notkun veraldarvefsins í því samhengi, að því er fram kemur á vef Alþingis. 26.8.2010 10:01