Fleiri fréttir

Lögreglan rannsakar saurmengun á Þingvöllum

Lögreglurannsókn er hafin á seyrulosunarmálinu á Þingvöllum. Sýnataka úr neysluvatni síðan á miðvikudag bendir ekki til að vatn sé mengað, þó óyggjandi niðurstöður liggi enn ekki fyrir.

Pakistanar á Íslandi kalla eftir aðstoð

Pakistanar hér á landi kalla eftir aðstoð vegna flóðanna í landinu. Þau færi samfélagið áratugi aftur í tímann og mikið fé þurfi til endurbyggingar. Sameinuðu þjóðirnar ítreka ákall sitt til þjóða heims um aðstoð.

Fórnarlamb Ólafs Skúlasonar vill sannleiksnefnd

Sigrún Pálína Ingvarsdóttir skorar á þjóðkirkjuna að setja saman sannleiksnefnd til að komast til botns í máli Ólafs Skúlasonar en Sigrún segir Karl Sigurbjörnsson biskup og Hjálmar Jónsson sóknarprest hafa reynt að sannfæra hana um að láta af ásökunum sínum á hendur Ólafi árið 1996.

Makrílstríð: Breskur þingmaður vill viðskiptabann á Íslendinga

Fyrst hrundu bankarnir, svo gaus Eyjafjallajökull og nú ætla Íslendingar að svipta fiskveiðimenn okkar lífsviðurværinu. Svona hljómar fyrirsögnin á frétt Daily Mail um makrílveiðar Íslendinga. Í greininni rifjar Daily Mail upp þorskastríðið og segir Íslendinga haga sér eins og bandóðir víkingar.

Ábyrgðin hjá biskupi

Þjóðkirkjan verður sjálf að leysa úr þeim málum sem á borði hennar eru núna. Þetta er niðurstaða Rögnu Árnadóttur, dóms- og mannréttindamálaráðherra. Hún fundaði með Karli Sigurbjörnssyni biskupi Íslands um málefni Þjóðkirkjunnar í dag. „Ég hef skoðað þessi mál því ég vildi fullvissa mig um það hverjar skyldur ráðuneytisins eru í þessu máli. Það er alveg ljóst að þau verða alfarið leyst innan Þjóðkirkjunnar,“ segir Ragna.

Hlupu fyrir 30 milljónir króna

Áheit sem safnað var í tengslum við Reykjavíkurmaraþonið sem fram fór um helgina nálgast samtals 30 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum sem fram koma á vef Reykjavíkurmaraþonsins. Það voru 98 góðgerðarfélög sem tóku þátt í áheitasöfnun.

Geisladiskar lifa góðu lifi á Íslandi

Geisladiskar með íslenskri tónlist lifa enn góðu lífi þó að sala á erlendri tónlist hafi dregist saman, segir Ásmundur Jónsson, framkvæmdastjóri Smekkleysu og formaður Félags hljómplötuframleiðenda. Eins og fram kom á Vísi um helgina benda tölur frá Billboard að sala á geisladiskum þar í landi hafi komist í sögulegt lágmark í sumar.

Deila um Hof

Stefna Kirkjumálasjóðs gegn íslenska ríkinu var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Um er að ræða endurflutning á máli sem höfðað var vegna ágreinings um það hvort jörðin Hof í Vopnafirði sé eign kirkjunnar eða í eigu íslenska ríkisins. Dómur mun verða kveðinn upp í málinu þann 20. september næstkomandi.

Gjaldskrárhækkanir OR ná ekki til stóriðjunnar

Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur sér fyrir sér verulegar gjaldskrárhækkanir til að mæta erfiðri rekstrarstöðu fyrirtækisins. Hækkunin á ekki að ná til stóriðju, þar sem orkuverð til hennar er bundið samningum

Biskup harmar rangfærslur

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, harmar mistök sem hann gerði í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum í gær. Þar sagði Karl að hafa verði í huga að Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem sakaði Ólaf Skúlason fyrrverandi biskup um kynferðisbrot gegn sér fyrir fjórtán árum, hefði kært Ólaf til ríkissaksóknara sem hafi ekki talið efni til að birta ákæru í málinu. Hið rétta er að Ólafur krafðist að fram færi opinber rannsókn rangs sakburðar og ærumeiðandi aðdróttana Sigrúnar og annarra kvenna.

Þúsundir gætu þurft að leita á náðir sveitarfélaganna

Þúsundir manna gætu þurft að leita á náðir félagsþjónustu sveitarfélaganna, verði réttur til atvinnuleysisbóta ekki lengdur í fimm ár, segir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Félagsmálaráðherra hefur ekki svarað því af eða á, hvort bótaréttur verði lengdur.

Prestur krefst rannsóknar á þöggun kirkjunnar

Sigríður Guðmarsdóttir sóknarprestur vill að kirkjan viðurkenni vanmátt sinn í máli Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttir og að óháð sannleiksnefnd verði skipuð til að fara yfir málið í heild sinni.

Aukinn áhugi á úrsögnum úr kirkjunni

Starfsfólk Þjóðskrár Íslands verður vart við stíganda í fyrirspurnum frá fólki um það hvernig eigi að bera sig að við úrsagnir úr Þjóðkirkjunni. Þetta segir Haukur Ingibergsson, forstjóri stofnunarinnar, í samtali við Vísi.

Sakar biskup um rangfærslur

Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem sakaði Ólaf Skúlason fyrrverandi biskup um kynferðisbrot gegn sér fyrir fjórtán árum, sakar Karl Sigurbjörnsson núverandi biskup um rangfærslur í orðsendingu til fjölmiðla í gær. Þar sagði Karl að hann hefði ekki tekið þátt í því að þagga mál Sigrúnar Pálínu niður.

Strætó kominn á vetraráætlun

Vetraráætlun Strætó hefur tekið gildi sem þýðir að tíðni ferða eykst á ný og verður svipuð og síðastliðinn vetur. Jafnframt breytist akstur um Grafarvog og Grafarholt nokkuð með nýrri vetraráætlun.

Dagsektum beitt vegna slysagildra á Klukkuvöllum

Hafnarfjarðarbær hyggst beita verktaka dagsettum vegna slæms frágangs á byggingarlóðum í Vallahverfi í bæjarfélaginu. Íbúar á Klukkuvöllum í Hafnarfirði hafa ítrekað kvartað undan slæmum frágangi á lóðum í götunni.

Miðborgin hrein að nýju

Miðborgin er orðin hrein og fín að nýju eftir að um 100 þúsund manns komu saman þar þegar að menningarnótt náði hámarki.

Vilja eigendafund vegna stöðu Orkuveitunnar

Bæjarráð Akraness og byggðarráð Borgarbyggðar samþykktu á fundum sínum síðastliðinn fimmtudag að óska eftir eigendafundi í Orkuveitu Reykjavíkur. Fundurinn yrði haldinn í kjölfar yfirlýsinga stjórnarformanns Orkuveitu Reykjuvíkur um breytta stefnu í rekstri fyrirtækisins vegna atbeina borgarstjóra, brottvikningu forstjóra og ýmissa annarra stjórnarhátta án samráðs við eigendur Orkuveitunnar.

Sigrún Pálína: Karl og Hjálmar reyndu að þagga niður í mér

Sigrún Pálína Ingvarsdóttir segir að eftir misheppnaðar sáttatilraunir við Ólaf Skúlason, þáverandi biskup, hafi Karl Sigurbjörnsson, núverandi biskup, og Hjálmar Jónsson, núverandi Dómkirkjuprestur, reynt að þagga niður í henni. Karl hafi meðal annars vísað til þess að hún ekki gert sjúkri móður sinni það að halda málinu til streitu. Sjálfur segist Karl ekki hafa tekið þátt í að beita Sigrúnu óeðlilegum þrýstingi til að fá hana til að falla frá ásökunum sínum.

Geir Waage: Ríkari trúnaðarskylda gildir um presta

Geir Waage, prestur í Reykholti segir að tilkynningaskylda presta hafi litla raunhæfa þýðingu því án trúnaðar verði prestum aldrei trúað fyrir nokkru. Hann segir ríkari trúnaðarskyldu lagða á presta. Þetta kemur fram í grein sem Geir ritar í Morgunblaðið í dag.

HS Orka vill hærra verð

Bæjaryfirvöld í Grindavík og Hafnarfirði hafa ekki lokið breytingum á aðal- og deiliskipulagi á Reykjanesi og í Krýsuvík. Það tefur fyrir fyrirhuguðum tilraunaborunum og raforkuframleiðslu HS Orku. Hægst hefur á framkvæmdum við byggingu álversins í Helguvík af þessum sökum.

Dómsmálaráðherra fundar með biskupi

Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, fundar í dag með Karli Sigurbjörnssyni biskupi um málefni þjóðkirkjunnar. Tilefnið segir Ragna vera þau ummæli Geirs Waage, sóknarprests í Reykholti, að þagnarskylda presta sé hafin yfir landslög, jafnvel í tilfelli kynferðisbrota gegn börnum.

Bölmóður víki fyrir bjartsýni

Vísbendingar eru um að farið sé að sjá til sólar í íslensku efnahagslífi og á bölmóður að víkja fyrir bjartsýni. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í þriðju grein sinni af sex um stöðu mála eftir bankahrunið.

Brúin var orðin ótraust og götótt

Ferða- og útivistarfélagið Slóðavinir tók sig til í sumar og lagaði brú á Mosfellsheiði. Brúin liggur á vegarslóða frá Skálafells-afleggjara og inn á Mosfellsheiði.

Töf forðaði stórum gjaldeyrislánum

Stefnt er að því að ný heilsulind verði opnuð í júní á næsta ári á reit gamla gufubaðsins á Laugarvatni. Framkvæmdir við heilsulindina hófust í sumar en hafa tafist í tvö ár eftir að bankahrunið setti áætlanirnar í uppnám.

Umferðin minnkar stöðugt

Hratt hefur dregið úr helgarumferð til og frá höfuðborgarsvæðinu undanfarnar helgar. Umferðin hefur dregist stöðugt saman frá því um miðjan júlí, en jókst aðeins aftur um verslunarmannahelgina.

Gögn rannsökuð um helgina

Ekkert nýtt kom fram um helgina og enginn var yfirheyrður í tengslum við rannsókn lögreglu á morðinu á Hannesi Þór Helgasyni fyrir viku. „Helgin var nýtt til rannsókna á gögnum,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar. Hann vildi ekki tjá sig nánar um málið en vísaði til upplýsinga, sem fram komu á blaðamannafundi á föstudag.

HB Grandi biðst afsökunar á grút

Mikil mengun frá frystihúsi HB Granda hefur mengað höfn og fjörur á Vopnafirði í sumar. Höfnin og ströndin í grennd við þéttbýlið hafa verið löðrandi í grút. HB Grandi hefur beðið bæjarbúa afsökunar með bréfi sem fyrirtækið lét bera í öll hús í plássinu.

Sagt vinna gegn hagsmunum barna með úreltum kenningum

Ákvörðun menntaráðs Reykjavíkurborgar um að setja af stað stýrihóp til að efla árangur drengja í grunnskólum, var ekki einróma samþykkt innan ráðsins. Líf Magneudóttir, fulltrúi VG, er ósammála aðgerðinni og segir ekkert benda til þess að góður árangur stúlkna í skóla sé á kostnað drengja og hún gagnrýnir ákvörðun menntaráðs harðlega.

Segir íslenska skóga nýtanlega auðlind

Mikið magn af hágæðatimbri hefur fallið til við grisjun í Skorradal í sumar. Skógræktarstjóri segist viss um að markaður sé fyrir timbrið og er bjartsýnn á að koma því í auknum mæli í notkun hér á landi.

Lausnir verði raunverulegar

Er þörf á sérstökum úrræðum til að efla námsárangur drengja? Menntaráð Reykjavíkur skipaði í síðustu viku átta manna stýrihóp með fulltrúum skólastjóra, kennara, foreldra og sérfræðinga, sem ætlað er að vinna markvisst að því að efla námsárangur drengja í grunnskólum.

Magma mun ávallt eiga mest

Viðræður standa yfir á milli kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy og nokkurra lífeyrissjóða um kaup þeirra á 25 til 40 prósenta hlut í HS Orku. Áætlað verðmæti hlutarins er á bilinu átta til þrettán milljarðar króna. Magma Energy á 86 prósenta hlut í félaginu.

Stórhættulegar slysagildrur á Klukkuvöllum

Íbúar á Klukkuvöllum í Hafnarfirði hafa ítrekað kvartað undan slæmum frágangi á byggingarlóðum í götunni. Eftir hrunið hafa húsgrunnar staðið ókláraðir, byggingarkranar eru orðin leiktæki krakkana í hverfinu og stór gryfja þar sem blokk átti að rísa er nú slysagildra við hlið leikskóla. Og fyrir ofan götuna má sjá glitta í ljósastaura og gangstéttir - en engin hús.

Óstarfhæf ríkisstjórn

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ríkisstjórnina óstarfhæfa og hún ráði ekki við Magma-málið með neikvæðum áhrifum á atvinnulífið á Reykjanesi. Enginn meirihluti sé fyrir því á Alþingi að þjóðnýta HS Orku eins og Vinstri grænir virðist vilja.

Vill stuðning ESB við krónuna

Utanríkisráðherra leggur áherslu á það í viðræðum Íslands við Evrópusambandið að krónan verði bökkuð upp af Seðlabanka Evrópu strax við aðild, áður en evran verði síðan tekin upp sem gjaldmiðill á Íslandi. Hann telur viðræðurnar taka lengri tíma en bjartsýnustu menn geri sér vonir um.

Ölgerðin vill auglýsingu á slökkviliðsstöð

„Það er búið að gera samkomulag um þetta en samningurinn hefur ekki verið samþykktur,“ segir Páll S. Brynjarsson, sveitastjóri Borgarbyggðar, en auglýsingasamningur á milli Ölgerðar Egils Skallagrímssonar og slökkviliðsins í sveitarfélaginu liggur fyrir í byggðarráði.

Tekist á fram á síðustu stundu

Tekist var á um það fram á síðustu stundu innan Evrópusambandsins áður en formlegar aðildarviðræður hófust við Íslendinga, hvort hefja ætti viðræðurnar án þess að niðurstaða hefði fengist í Icesave-deilunni. Utanríkisráðherra segir Íslendinga eiga öfluga bandamenn innan sambandsins og ekki muni slitna upp úr viðræðunum vegna Icesave.

Öllum umsækjendum hafnað í Skagafirði

Öllum þeim 17 umsækjendunum sem sóttu um stöðu sveitarstjóra hjá sveitarfélaginu Skagafirði hefur verið hafnað af hálfu meirihlutans samkvæmt fréttavef Feykis. Það segir að leit sé hafin að nýju að sveitarstjóraefni.

Vandræðabarnið Christoph Schlingensief látinn

Þýski listamaðurinn Christoph Schlingensief er látinn. Schlingensief var einn umdeildasti listamaður Þýskalands en samstarf hans við Klink og Bank á Íslandi vakti á sínum tíma mikla athygli.

Kuldakast á landinu

Kuldalegt var í morgun í flestum landshlutum og norðanlands hafa fjöll gránað. Þannig var Hlíðarfjall ofan Akureyrar grátt niður undir skíðahótel, að sögn lögreglu, en fimm stiga hiti var á Akureyri klukkan níu í morgun.

Sjá næstu 50 fréttir