Fleiri fréttir

Tilboð í Búðarhálsvirkjun opnuð í næstu viku

Landsvirkjun hyggst standa við þá áætlun að opna tilboð í smíði Búðarhálsvirkjunar í næstu viku, þrátt fyrir að óvissa ríki um fjármögnun. Enn hefur ekki tekist að koma neinum nýjum stórframkvæmdum í gang í landinu eftir efnahagshrunið.

Skelfilegt að tapa fyrir EFTA-dómstól

Fjármálaráðherra segir að það yrði skelfileg staða ef Íslendingar töpuðu máli Eftirlitsstofnunar EFTA vegna Icesave fyrir EFTA-dómstólnum. Stjórnvöld vinna nú að svari til eftirlitsstofnunarinnar og vona að samningaviðræður um Icesave hefjist að nýju í næsta mánuði.

Séra Bjarni: Sjónarmið Geirs Waage varðar brottrekstur

„Það er háskalegt og varðar hreinan brottrekstur úr prestsembætti að halda fram því sem sr. Geir Waage gerir," segir séra Bjarni Karlsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, um þá skoðun Geirs að þagnarskylda presta gagnvart sóknarbörnum sé algjör og þar sé engan milliveg að finna.

Skriftarbarn getur ekki bundið samvisku prestsins

Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna greinar séra Geirs Waage og birtist í Morgunblaðinu í morgun. Þar sagði Sveinn að þagnarskylda presta gagnvart sóknarbörnum væri algjöra og þar væri engan milliveg að finna.

Saksóknari afturkallar handtökuskipun á hendur Assange

Embætti ríkissaksóknarans í Svíþjóð hefur dregið handtökutilskipun á hendur Julian Assange, forsprakka uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks, til baka en hann var eftirlýstur vegna gruns um nauðgun og líkamsárás.

Miklatún verður aftur Klambratún

Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, breytti formlega nafninu á Miklatúni í dag og heitir það nú Klambratún. Hluti túnsins tilheyrði bænum Klömbrum sem þar stóð þar til um miðja 20. öld.

Borgartréð afhjúpað

Klukkan tvö í dag afhjúpaði Jón Gnarr borgarstjóri skilti við Borgartréð 2010 í Víkurgarðinum við Aðalstræti.

Sæbjúgnaflotinn stækkar

Bátum sem veiða sæbjúgu hér við land fer nú ört fjölgandi. Lengi vel stundaði aðeins einn bátur þessar veiðar, Hannes Andrésson SH, en nú eru bátarnir orðnir sex talsins. Hannes Andrésson er gerður út frá Grundarfirði, en þar hefur fyrirtækið Reykofninn verið að þróa vinnslu á sæbjúgum undanfarin sex ár.

Fundar með forsvarsmönnum Magma eftir helgi

Iðnaðarráðherra mun ræða við forsvarsmenn Magma Energy eftir helgi um tilboð fyrirtækisins um að ríkið fái forkaupsrétt á hlutabréfum Magma í HS Orku. Ráðherra segir þetta mun vænlegri leið en þjóðnýtingu eignanna sem gæti skapað ríkinu skaðabótaskyldu.

Rannsókn á morði heldur áfram

Enginn hefur verið handtekinn síðustu daga í tengslum við rannsókn lögreglunnar á morðinu á Hannesi Þór Helgasyni sem var ráðinn bani síðustu helgi.

Eldsvoði í álveri raskar starfseminni talsvert

„Þetta mun raska starfseminni talsvert,“ segir Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi álversins í Straumsvík en eldsvoði á fimmtudagskvöldið stórskemmdi rafmagnskapla í steypuskálanum.

Jón Gnarr setti Menningarnótt

Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, setti Menningarnótt fyrir stundu í tjaldi við Ferðamálastofu Íslands, Geirsgötu 9. Fjölmenni var viðstatt þegar Jón setti hátíðina formlega.

Sigursælir maraþonbræður

Björn Margeirsson sigraði í heilmaraþoni Reykjavíkurmaraþonsins í morgun. Hann hljóp á 2 tímum, 33 mínútum og 57 sekúndum. Bróðir hans, Sveinn, varð fyrstu Íslendinga í marg í hálf maraþoni.

Skotið á jarðýtu

Í nótt var skotið á jarðýtu sem var lagt við þjóðveg í vestur-Húnavatnssýslu.

Segir ásakanir á hendur Julian lykta af ófrægingaherferð

„Þetta gerist á einum sólarhring en það er óvanalega hröð málsmeðferð í Svíðþjóð,“ segir Kristinn Hrafnsson, einn af talsmönnum uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks, en forsvarsmaður síðunnar, Julian Assange, hefur verið eftirlýstur af sænskum yfirvöldum vegna gruns um nauðgun.

Tindur Eyjafjallajökuls snjóhvítur

Hátindur Eyjafjallajökuls er á ný orðinn fannhvítur eftir að þar snjóaði í nótt. Fjallið hefur allt verið öskugrátt frá lokum eldgossins í vor en gosið í toppgíg jökulsins stóð frá 14. apríl til 7. júní.

Erilsöm nótt í borginni

Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Mikið af fólki skemmti sér í miðborginni og talsvert var um pústra og ósætti. Að sögn lögreglu endaði það þó giftusamlega og enginn alvarleg meiðsl hlutust af. Þá gistu fáir fangageymslur lögreglunnar.

Bjóða ríkinu forkaupsrétt

Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra hefur borist formlegt erindi frá Ross Beaty, forstjóra Magma Energy, þar sem íslenska ríkinu er boðinn ótímabundinn forkaupsréttur á meirihluta í fyrirtækinu. Eins er ríkinu boðið til viðræðna um styttingu leigutíma á afnotarétti auðlinda á Reykjanesi.

Yfirborð Bláa lónsins orðið alltof hátt

Vatnsborð Bláa lónsins er orðið allt of hátt og grípa þarf til varanlegra aðgerða til að losna við umframvökva. HS Orka og Grindavíkurbær vinna nú að lausn málsins.

Vilja úttekt á rotþróm við Þingvallavatn

Brýnt er að gera úttekt á neysluvatns- og fráveitumálum við Þingvallavatn að mati Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og þjóðgarðsvarðar. Strangar reglur voru settar 2006 en ekki er vitað hvernig þeim er fylgt.

Ný hjólaleið er í vegi reiðhjólaverkstæðis

„Þetta er auðvitað nokkuð skrýtin staða. Fólk kemst ekki að hjólreiðaverkstæði fyrir nýjum hjólreiðastíg,“ segir James Fletcher, eigandi hjólreiðaverkstæðisins Borgarhjóla á Hverfisgötu 50.

Rænt úr tjöldum tvisvar á ári

„Það er stolið úr tjöldum hjá okkur einu sinni til tvisvar á ári. Það er alltaf ömurlegt að lenda í þessu, bæði fyrir okkur og ekki síst fyrir þá sem verða fyrir þjófnaðinum,“ segir Markús Einarsson, framkvæmdastjóri Farfugla, sem reka tjaldsvæðið í Laugardal. Hann segir erfitt að verjast þessu. Þótt tjaldsvæðið sé afmarkað með girðingu eigi utanaðkomandi greiðan aðgang að því.

Búist við svipaðri þátttöku og síðast

Búist er við að þátttaka í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, sem fram fer í dag, verði svipuð og síðustu tvö ár, eða nálægt ellefu þúsund manns. Skráningarhátíð Reykjavíkur­maraþons Íslandsbanka stóð í gærdag, milli klukkan tíu árdegis og sjö að kvöldi.

Attac taka þátt í menningarnótt

Samtökin Attac á Íslandi sem barist hafa fyrir því að bönd verði sett á fjármálastarfsemi taka þátt í dagskrá menningarnætur. Samtökin hafa tekið höndum saman við aðstandendur undir­skriftasöfnunarinnar orkuaudlindir.is. Meðal listamanna sem koma fram á vegum samtakanna eru KK og Ómar Ragnarsson.

Formaður fjárlaganefndar ánægður með rekstrarafgang Landspítlans

Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, er ánægður með rekstrarafgang Landspítlans sem var jákvæður um tæpar 36 milljónir króna á fyrri hluta þessa árs. Hann segir afar mikilvægt að stofnanir haldi sig innan fjárheimilda. Þá segir Guðbjartur starfsfólks Landspítlans eiga hrós skilið.

Fagnar rannsókn á starfsemi lífeyrissjóðanna

Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, fagnar rannsókn á starfsemi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins. Hann segir lífeyrissjóðina sýna mikilvægt frumkvæði en það hafi stjórnvöld ekki gert.

Slökkvilið kallað út vegna reyks á Flókagötu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðsins var kallað út á tíunda tímanum í kvöld þegar tilkynnt var reyk og skynjara í gangi í íbúð við Flókagötu í Reykjavík. Þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn kom í ljós að reykurinn stafaði frá potti á eldavél. Óverulegar skemmdir urðu á íbúðinni, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá slökkviliði.

Rannsóknin teygir anga sína til Litháens

Rannsókn lögreglu á andláti Hannesar Þórs Helgasonar teygir anga sína til Litháens, en hann átti í viðskiptum þar í landi undanfarið. Hannes kom heim frá Litháen á föstudag, rúmum sólarhring áður en hann fannst látinn.

Biskup: Æðri dómstólar fara yfir mál séra Ólafs

Karl Sigurbjörnsson biskup segir að á Íslandi séu menn saklausir uns sekt þeirra sé sönnuð, kirkjan geti því lítið aðhafst í tengslum við ásakanir á hendur forvera sínum, Ólafi Skúlasyni. Aðrir og æðri dómstólar fari yfir hans mál.

Á annað hundrað milljarðar sparast með evruaðild

Utanríkisráðherra segir ávinninginn af því að komast á evrusvæðið spari þjóðinni á annað hundrað milljarða á ári. Hann er sannfærður um að Íslendingar nái það góðum samningi við Evrópusambandið að aðild verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Stangast á við ákvæði EES-samningsins

Ein stærsta lögmannsstofa landsins telur að bann við gengistryggingu lána í íslenskri mynt sé í andstöðu við ákvæði EES-samningsins, að því er fram kemur í minnisblaði sem stofan vann fyrir fjármögnunarfyrirtæki.

Kyrrsetning eigna rýmkuð

Skattrannsóknarstjóri er að skoða hvort krafist verði kyrrsetningar eigna í um þrjú hundruð málum. Ríkisstjórnin hyggst rýmka heimildir embættisins til að krefjast kyrrsetningar eigna.

Rekstur Landspítalans jákvæður

Rekstrarafgangur Landspítala á fyrstu sex mánuðum ársins 2010 nam rúmum 35 milljónum króna, samkvæmt hálfsársuppgjöri sem Ríkisendurskoðun hefur staðfest. Í byrjun ársins var spítalanum gert að lækka rekstrarkostnaðinn um rúm 9% eða 3400 milljónir króna. Með umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum sem gripið var til á öllum sviðum spítalans um áramót hefur tekist að ná þessu markmiði, að því er fram kemur í tilkynningu frá spítlanum.

Ræðir við borgarbúa í sundskýlunni

Jón Gnarr, borgarstjóri, mun fara vítt og breitt um borgina á Menningarnótt á morgun. Í hádeginu ræsir hann til að mynda skemmtiskokkið í Lækjargötu og klukkan þrjú hyggst hann afhjúpa menningarskilti með upplýsingum um bæinn Klambra á Klambratúni. Klukkustund síðar verður hann í Sundhöll Reykjavíkur þar sem hann mun eiga „pottaspjall" við gesti sundlaugarinnar.

Mun viðra vel til maraþonhlaupa

Það mun viðra ágætlega á hlaupara þegar Reykjavíkurmaraþon hefst í fyrramálið, segir Soffía Sveinsdóttir veðurfréttamaður hjá 365 miðlum. Hún býst við 8 - 9 gráðu hita og bjartviðri með köflum. Hún býst ekki við neinni úrkomu. Vindurinn verði fimm til átta metrar á sekúndu. „Þetta er svona í það svalasta fyrir hlaupara og það gæti orðið mótvindur á Eiðsgranda og Sæbraut, en veðrið verður samt allt í lagi,“ segir Soffía. Þetta þýði samt líka að hálfmaraþonhlauparar fái meðvind á lokasprettinum.

Slökkviliðsmanna að meta gæði samningsins

Sverrir Björn Björnsson, formaður samninganefndar Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, segir að það sé félagsmanna að meta hvort samkomulagið sem landssambandið og Launanefnd sveitarfélaga undirrituðu í dag sé gott. Í samtali við fréttastofu vildi hann ekki greina frá hvað felst í samkomulaginu. „Innihald samningsins er ekki gefið upp að svo komnu máli. Við kynnum það fyrst fyrir okkar félagsmönnum."

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn búnir að semja

Kjarasamningur hefur tekist á milli samninganefnda Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitarfélaga. Verið er að fagna honum í húsnæði Ríkissáttasemjara þessa stundina. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hafa verið samningslausir í heilt ár.

Skrifað undir samning um breikkun Suðurlandsvegar

Skrifað var í dag 20. ágúst undir samning við verktakafyrirtækið Ingileif Jónsson ehf. um framkvæmdir við áfanga við breikkun Suðurlandsvegar. Áfanginn sem um ræðir er frá Lögbergsbrekku að Litlu kaffistofunni.

Samningaviðræður vel á veg komnar

Samningafundur milli Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur staðið yfir frá því um eittleytið í dag. Viðræður hafa gengið vel í dag samkvæmt upplýsingum Vísis.

Vísir sýnir beint frá flugeldasýningunni

Vísir og Vodafone verða með beina útsendingu frá flugeldasýningunni á menningarnótt. Umræða um flugeldasýninguna komst í hámæli í ágúst eftir að Jón Gnarr borgarstjóri reifaði þá hugmynd á fésbókardagbók sinni að sleppa flugeldasýningunni þetta skiptið.

Hannes reyndi að verjast árásinni

Hannes Þór Helgason var með áverka á höndum sem benda til þess að hann hafi reynt að verjast árás morðingja síns. Þetta kom fram á blaðamannafundi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir stundu.

Sjá næstu 50 fréttir