Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þjónusta aukin í niðurskurði Samgöngur Miðaverð venjulegrar ferðar með Herjólfi lækkaði úr um 3.000 krónum í 1.000 þegar farið var að sigla frá Landeyjahöfn. Það var gert samkvæmt ákvörðun samgönguráðuneytis, en ekki af því að kostnaðurinn hefði lækkað svo mjög, að sögn Guðmundar Nikulássonar hjá Eimskip. 10.8.2010 06:00
Veltur á vægi Icesave-málsins Flækist Icesave-málið ekki fyrir þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og íslenskra stjórnvalda er hugsanlegt að stíga einhver skref í afnámi gjaldeyrishafta. Þetta er mat Más Guðmundssonar seðlabankastjóra. 10.8.2010 04:00
Tvö hundruð iðka íþróttina Íslandsmótið í hafnabolta hófst í gær og lýkur á föstudag. Tvö lið keppa sín á milli, Hafna- og mjúkboltafélag Reykjavíkur og lið áhugamanna. Fyrra liðið fór með sigur af hólmi á fyrsta degi, 1-0. 10.8.2010 04:00
Íbúar kjósi um það sama og í mars 2007 Álfyrirtækið Rio Tinto Alcan segist vilja auka við starfsemi sína hér á landi. Þetta kemur fram í svarbréfi félagsins til bæjaryfirvalda í Hafnarfirði. 10.8.2010 04:00
Breytir engu fyrir Bjarna Ben Formaður Sjálfstæðisflokks, Bjarni Benediktsson, segir að orð Adolfs Guðmundssonar, formanns LÍÚ, um að Íslendingar eigi að reyna að ná sem bestum samningi við Evrópusambandið, breyti engu fyrir flokkinn, sem hafi komist að annarri niðurstöðu. 10.8.2010 03:15
Fjöldi fólks við Reykjavíkurtjörn Mikill fjöldi fólks kom saman við Reykjavíkurtjörn í kvöld til að minnast þess að 65 ár eru liðin frá því að kjarnorkusprengjum var varpað á borgirnar Hirosima og Nagasaki. 9.8.2010 23:38
Litla telpan komin á gjörgæslu Litla telpan sem brenndist þegar að hún hrasaði ofan í heitt vatn við Strokk á Geysissvæðinu í Haukadal er kominn af slysadeild á gjörgæsludeild Landspítalans, samkvæmt upplýsingum frá lækni á slysadeild sem Vísir talaði við. 9.8.2010 21:45
Tveggja ára telpa féll í hver Tveggja ára telpa brenndist illa þegar að hún féll ofan í heitan hver við Strokk sem er á svæði Geysis í Haukadal síðdegis í dag. 9.8.2010 20:24
Óli Björn vill opinn fund með háskólarektorum Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur óskað eftir því að haldinn verði fundur í menntamálanefnd Alþingis með rektorum allra 9.8.2010 19:43
Falsaðir peningaseðlar fundust í Eyjum Tvær tilkynningar bárust lögreglunni í Vestmannaeyjum um falsaða peningaseðla í síðustu viku. Þegar verið var að fara yfir uppgjör frá tveimur verslunum komu í ljós tveir falsaðir peningaseðlar, 1.000 krónu seðill og 5.000 krónu seðill. Málin eru í rannsókn hjá lögreglunni. 9.8.2010 18:46
Landlæknir kannar sérstaklega ávísanir á rítalín til fullorðinna Geir Gunnlaugsson, landlæknir, hyggst kanna sérstaklega ávísanir lækna á rítalín til fullorðinna. Hann segist vilja skoða hvort forsendur séu fyrir því að takmarka ávísanir á lyfið, en mikið framboð er af rítalíni í undirheimum. 9.8.2010 18:45
Reykingamenn eyða um 14 milljörðum í sígarettur Íslenskir reykingamenn eyða líklega um fjórtán milljörðum króna í sígarettur á ári. Venjulegur launamaður sem reykir pakka á dag, eyðir heilum mánuði á ári í að vinna fyrir sígarettum. 9.8.2010 18:34
Ríkisendurskoðun í saumana á fjárhag Byggðastofnunar Ríkisendurskoðun hefur ákveðið að fara sérstaklega yfir fjárhag Byggðastofnunar í kjölfar frétta um útlán sem tryggð eru með veði í úthafsrækjukvóta. Þá hyggst Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, óska eftir upplýsingum um lánveitingar til fyrirtækja í rækjuvinnslu hjá forstjóra stofnunarinnar. 9.8.2010 18:30
Amfetamínsmygl: Konurnar áfram í varðhaldi Hæstiréttur staðfesti í dag áframhaldandi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir tveimur konum sem voru handteknar 17. júní síðastliðinn á Seyðisfirði. 9.8.2010 16:41
Borgin styrkir sumarbúðirnar í Reykjadal áfram Velferðarsvið Reykjavíkurborgar styrkir þá þjónustu sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra veitir í Reykjadal um 2,5 milljónir króna á þessu ári og hafa framlög ekki verið lækkuð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá velferðarsviði vegna frétta af fjárhagsstöðu sumarbúða í Reykjadal. 9.8.2010 16:06
Barnavernd tilkynnt um hassnotkun á Selfossi Aðfararnótt sunnudags hafði lögreglan á Selfossi afskipti af sex ungmennum á aldrinum 16-19 ára sem urðu uppvís að neyslu kannabisefna í heimahúsi á Selfossi. Ungmennunum var komið til síns heima og forráðamönnum gert viðvart um afskipti lögreglu auk þess sem barnaverndarnefnd hefur verið send skýrsla um málið. 9.8.2010 15:21
Stöðvuðu kannabisrækun Lögreglan á Selfossi lagði í gærkvöldi hald á 18 kannabisplöntur eftir húsleit í íbúðarhúsi í umdæmi lögreglunnar. Ólíklegt er að ræktun af þessari stærðargráðu verði skýrð með eigin neyslu og mun eigandi þeirra þurfa að skýra tilvist þeirra nánar fyrir lögreglu, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á Selfossi. 9.8.2010 15:08
Truflaði sendiherraskipan vegna Wikileaks Bandarískur þingmaður reyndi í síðustu viku að koma í veg fyrir að utanríkismálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings staðfesti tilnefningu Luis Arreaga sem nýs sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. Þingmaðurinn vildi að íslensk stjórnvöld lokuðu vefsíðunni Wikileaks en þar birtust nýverið viðkvæm gögn um framgang stríðsins í Afganistan. Birting gagnanna hefur verið harðlega gagnrýnd og hefur bandaríska varnarmálaráðuneytið krafist þess af forráðamönnum Wikileaks að þeir skili aftur gögnunum. 9.8.2010 14:42
Einokun fest í sessi Með mjólkurfrumvarpi landbúnaðarráðherra verður einokun fest í sessi þar sem nær útilokað verður fyrir nýja aðila að hefja starfsemi með úrvinnslu á mjólkurafurðum. Þetta er mat Samtaka verslunar og þjónustu en samtökin gera alvarlegar gera athugasemdir í umsögn við frumvarpið. 9.8.2010 13:24
Ekki til marks um fjölgun smita Á síðasta ári greindust 13 manns með HIV veiruna, en ekki hafa fleiri greinst á einu ári síðan 1985 þegar 16 greindust. Ekki stefnir í fjölgun smita það sem af er árinu 2010, en sóttvarnalæknir segir toppinn á síðasta ári ekki til marks um fjölgun smita. 9.8.2010 13:07
Mataraðstoð Samverja hætt Matarstoð Samverja hefur verið hætt en ein og hálf vika er í að hjálpastofnanir taki aftur til starfa eftir sumarfríi. 9.8.2010 12:58
Landgræðslunni óheimilt að eyða lúpínu í Þórsmörk Skógræktin neitaði Landgræðslunni um heimild til að eyða lúpínu í Þórsmörk í ár. Landgræðslan segist hafa fengið neitun þrátt fyrir skýra stefnu umhverfisráðuneytsins um að lúpínu skuli eyða þar sem hún sé talin óæskileg. Sviðsstjóri hjá Skógræktinni segir að lúpína í Þórsmörk, sé ekki meðal svæða sem nefnd séu í stefnumörkun ráðuneytisins. 9.8.2010 12:43
Þingmaður Framsóknar: Ekkert nýtt í umsögn Samkeppniseftirlitsins Fulltrúi Framsóknarflokks í landbúnaðarnefnd segir ekkert nýtt í umsögn Samkeppniseftirlitsins um mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra, en eftirlitið gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarpið. Hann segir að reglur þurfi að gilda um markaðinn og óheft samkeppni og markaðshyggja hafi ekki farið vel með Vesturlönd. 9.8.2010 12:26
Útskrifuð af slysadeild Kona sem sem datt af hestbaki í Þjórsárdal í gær hefur verið útskrifuð af slysadeild Landspítalans. Hún var þar yfir nóttina. Vakthafandi læknir segir að hún hafi ekki verið alvarlega slösuð og sé við ágæta líðan. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti konuna á slysstað. 9.8.2010 11:30
Umferð beint um hjáleið af Reykjanesbraut við Grænás Umferð verður í dag beint um hjáleið af Reykjanesbraut við Grænás. Þar eru Vegagerðin og Reykjanesbær að gera hringtorg og þarf að beina umferðinni framhjá á meðan framkvæmdin er í hámarki. 9.8.2010 11:15
BHM styður slökkviliðsmenn Bandalag háskólamanna lýsir yfir stuðningi við kjarabaráttu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og tekur undir réttmæti þess að laun þeirra endurspegli þá sérþekkingu og sérþjálfun sem starf þeirra krefst og ekki síður þá ábyrgð gagnvart bæði verðmætum og mannslífum sem þeir bera í starfi. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn BHM samþykkti á fundi sínum í morgun. 9.8.2010 11:06
Nýjar skólabyggingar teknir í notkun í Reykjavík Í haust hefst skólastarf í þremur nýjum skólabyggingum í Reykjavík; Dalskóla, Sæmundarskóla og Norðlingaskóla. Undirbúningsstarf fyrir skólabyrjun er í fullum gangi og verða á fjórða tug skóla settir mánudaginn 23. ágúst. 9.8.2010 10:44
Ásta Sigrún hefur störf sem umboðsmaður skuldara Ásta Sigrún Helgadóttir tekur við starfi umboðsmanns skuldara í dag. Ingi Valur Jóhannsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu, hefur sinnt starfi undanfarna daga eða frá því að Runólfur Ágústsson lét af embætti í síðustu viku eftir að fjölmiðlar fjölluðu fjármál hans og skuldugt einkahlutafélag sem áður var í eigu Runólfs. 9.8.2010 10:07
Hjólar í kringum landið á tíu dögum Læknaneminn Alissa Rannveig Vilmundardóttir lagði í morgun af stað í tíu daga hjólaferð kringum landið þar sem hún hyggst hjóla til styrktar Rannsóknastofu í krabbameinsfræðum. 9.8.2010 09:41
Hvalveiðimenn bjóða upp á hvalaskoðun Hvalveiðimenn í Kópavogi ætla að bjóða upp á hvalaskoðun samhliða veiðum. Þeir ætla að sýna áhugasömum hvernig hrefnuveiðar fara fram en þó án þess að veiða sjálf dýrin. Innyflin í formalíni verða í sýningarsal á dekkinu. 9.8.2010 09:00
Strandveiðum lýkur væntanlega í dag Strandveiðar eru nú aðeins stundaðar austur af landinu þar sem kvótinn á hinum svæðunum er búinn. 9.8.2010 07:53
Þrír karlmenn teknir í innbroti í nótt Lögrelgumenn handtóku þrjá karlmenn, sem voru að brjótast inn í fyrirtæki í Laugadalnum í Reykjavík í nótt. 9.8.2010 07:49
Fugl olli bifhjólaslysi Ökumaður bifhjóls slasaðist alvarlega, en þó ekki lífshættulega, þegar hann kastaðist af hjóli sínu á móts við Golfvöllinn við Grindavík í gærkvöldi. 9.8.2010 07:46
Ökumaður í tómu tjóni á Grensásvegi Ökumaður, sem lögreglan stöðvaði á Grensásvegi í nótt vegna hraðaksturs, reyndist hafa sitthvað fleira á samviskunni, því hann var líka fullur. 9.8.2010 07:40
Yfir 30 þúsund gestir voru í bænum Yfir þrjátíu þúsund manns lögðu leið sína til Dalvíkur um helgina til að taka þátt í fiskideginum mikla. Hátíðin hélt upp á tíu ára afmæli sitt í ár. 9.8.2010 07:15
Eldur gaus upp í bíl eftir útafakstur Lögreglumenn á eftirlitsför sáu í nótt hvar ökumaður missti stjórn á bíl sínum og ók út af Hafnarfjarðarvegi á móts við Fífuhvammsveg. 9.8.2010 07:10
Menntaskólastærðfræði kennd með hjálp tölvuforrita Kennslubókin Stærðfræði í takt við tímann kom nýlega út en um er að ræða kennslubók í stærðfræði sem byggir á kennslu með notkun tölvuforrita. Bókin er ætluð framhaldsskólanemum en með henni skal nota stærðfræðiforritið Maple. 9.8.2010 07:00
Stefnir allt í svarblátt haust Allt virðist benda til þess að berjatíð verði með endemum góð í ár. Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og sérfræðingur í íslenskum berjum, segir berjatíðina vera almennt farna að lengjast. 9.8.2010 06:30
Formaður stjórnarinnar lofaði nafnleynd Árni Geir Pálsson var einn þriggja umsækjenda sem boðaðir voru í viðtal vegna stöðu framkvæmdastjóra Íslandsstofu, ásamt Margréti Jónsdóttur og Jóni Ásbergssyni. Kom það fram í fréttum RÚV í gærmorgun. Árni er mjög ósáttur með nafnbirtinguna og segir Friðrik Pálsson, formann stjórnar Íslandsstofu, hafa lofað sér nafnleynd sem umsækjanda. 9.8.2010 06:00
Flest tilfelli af HIV í 25 ár Fjöldi tilfella nýrra HIV-greininga hefur ekki verið meiri hér á landi síðan 1985. Á síðasta ári greindust þrettán tilfelli, en árið 1985 voru þau sextán. Mælingar hófust fyrst árið 1983 og var þá einn einstaklingur sem greindist með HIV-veiruna. Kemur þetta fram í skýrslu Landlæknisembættisins. 9.8.2010 05:00
Bændur nýti sitt eigið landsvæði Landgræðslustjóri segir skaðann af lausagöngu sauðfjár á gróður landsins hafa snarminnkað síðustu áratugi. Hross séu höfð innan girðingar að mestu leyti. 9.8.2010 03:00
Óð út í beljandi Krossá og bjargaði ferðamönnum Björgunarsveitarmaðurinn Ásmundur Þór Kristmundsson bjargaði tveimur frönskum ferðamönnum úr sjálfheldu þegar hann óð út í Krossá, tók á móti Frökkunum úr bíl sem þeir voru fastir í og hjálpaði þeim í land. 9.8.2010 00:01
Verðlaus kvótaveð Einu veð Byggðastofnunar fyrir 1,3 milljarða króna lánum sem stofnunin hefur veitt eru í verðlausum rækjukvóta, þrátt fyrir að slíkt stríði gegn lögum. Útlit er fyrir að afskrifa þurfi stóran hluta lánanna og því mun Ríkissjóður enn á ný þurfa að leggja stofnunni til meira fé. Forstjóri Byggðastofnunar segir eðlilegar skýringar á málinu. 8.8.2010 18:43
Ganga 130 kílómetra svo að sumarbúðirnar loki ekki Ég hlakka til þess að komast þangað allt árið. Svona svaraði drengur spurningu fréttamanns um hvernig honum þætti vistin í sumarbúðum sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra rekur í Reykjadal fyrir börn. Búðirnar hafa verið starfræktar í rúm fjörtíu ár en nú blasir við að þeim þurfi að loka vegna fjárskorts. 8.8.2010 20:00
Þeir sem beita heimilisofbeldi dæmdir í sálfræðimeðferð Til greina kemur að dæma menn sem beita maka sína heimilisofbeldi til sálfræðimeðferðar og skylda þá til að yfirgefa heimilið. Meðferð sem þessi hefur staðið til boða hér á landi í nokkur ár og hefur skilað árangri í tæplega 90% tilvika. 8.8.2010 19:20
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent