Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjórar líkamsárásir í Reykjavík Fjórar líkamsárásir voru kærðar til lögreglu í nótt. Tvær þeirra áttu sér stað í heimahúsum og tvær á miðborgarsvæðinu. Ekki er vitað til þess að neinn hafi meiðst alvarlega í þeim en tveir menn gistu fangageymslur vegna aðildar að þeim. 8.8.2010 09:03
Umferðartafir við Bólu Árekstur á milli að minnsta kosti fimm bíla varð á Þjóðvegi 1 um Blönduhlíð, við Bólu, rétt við Öxnadalsheiði eftir hádegi í dag. 8.8.2010 13:43
Á slysadeild eftir dráttarvélarslys Karlmaður og barn voru flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild í Reykjavík eftir að dráttarvél sem þau voru í valt á mótum Snæfellsvegar og Vatnaleiðar á sjöunda tímanum í gærkvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítala var maðurinn lagður inn á skurðlækningadeild en barnið fór heim að lokinni skoðun á slysadeild. 8.8.2010 09:31
Maður stunginn á Dalvík Ungur maður var stunginn í bakið á Dalvík í nótt en lögreglan segir að áverkar hans hafi ekki verið alvarlegir. Sá sem grunaður var um verknaðinn var handtekinn. Mennirnir eru báðir um tvítugt. 8.8.2010 09:01
Kirkjan samþykkir ekki niðurskurðarkröfur Kirkjuþing samþykkir ekki 9% niðurskurðarkröfu sem ríkisstjórnin gerir til þjóðkirkjunnar en samþykkir 5% niðurskurð með skilyrðum. 7.8.2010 20:11
Bjóða allri þjóðinni að varðeldi Skátar bjóða allri þjóðinni að skátavarðeldi sem hefst klukkan hálfníu í kvöld. Varðeldurinn markar hápunkt afmælismóts sem stendur núna yfir en íslenskir skátar ásamt gestum frá Bretlandi og Svíþjóð taka þátt í mótinu. 7.8.2010 19:56
Lottópotturinn gekk ekki út Lottópotturinn gekk ekki út að þessu sinni og því er ljóst að hann verður tvöfaldur næst. Þá gekk Jókerpotturinn heldur ekki út. 7.8.2010 19:33
Ritalinneyslan líkist faraldri Landlæknir segir að verið sé leita leiða til að draga úr mikilli misnotkun fullorðinna á lyfinu rítalíni. Yfirlæknir á Vogi líkir þróuninni við faraldur og segir lækna hafa ávísað lyfinu í óhófi. Heilbrigðisráðherra vill taka á málinu hið fyrsta. 7.8.2010 18:30
Þyrlan aðstoðaði Breka Leki kom að bátnum Stormur-Breki, sem er 70 tonna trébátur, laust fyrir klukkan fjögur í dag. Sjór var kominn í lest, vélarrými og framskip bátarins þar sem hann var staddur 8 sjómílur af Herdísarvík og stefndi til Þorlákshafnar. 7.8.2010 18:06
Fjöldinn jafnmikill og í fyrra Þúsundir eru saman komnar í miðbæ Reykjavíkur í tilefni af gleðigöngu Hinsegin daga sem fram fór í dag. Lögreglumaður sem fréttastofa ræddi við sagðist ekki þora að fullyrða nákvæmlega um fjöldann en sagði að minnsta kosti óhætt að fullyrða að fjöldinn væri jafnmikill og í fyrra. 7.8.2010 16:47
Þúsundir á Dalvík Þúsundir manna eru nú á Dalvík enda er fiskidagurinn haldinn hátíðlegur þar í dag. Lögreglumaður á Dalvík sem Vísir talaði við segir að allt gangi samkvæmt áætlun og engin óvænt tilvik komið upp samkvæmt sinni vitund. 7.8.2010 16:02
Tekinn fyrir ólöglegar veiðar Baldur, eftirlits- og sjómælingabátur Landhelgisgæslunnar stóð í morgun línubát að meintum ólöglegum veiðum innan bannsvæðis á Fljótagrunni. 7.8.2010 15:46
Jón Gnarr á fyrsta vagni í gleðigöngunni Gleðigangan hófst klukkan tvö en hún er hátindur Hinsegin daga. Gengið er frá Hlemmi niður Laugaveginn og lýkur göngunni við Arnarhól, þar sem ýmsir skemmtikraftar stíga á svið undir stjórn Páls Óskars. 7.8.2010 15:06
„Pabbi, ég sit bara á gólfinu“ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af yfirfullri rútu sem var á leið frá Selfossi til Reykjavíkur rétt fyrir hádegi í dag. Tilkynnt var um að minnsta kosti þrír farþegar væru sitjandi á gólfinu. Áhyggjufullur faðir hafði samband við fréttastofu í dag og sagði að strákurinn sinn sem er 11 ára gamall hefði hringt í sig og sagt: „Pabbi, ég sit bara á gólfinu.“ 7.8.2010 14:49
Aðgerðirnar skýrt verkfallsbrot Annar hluti boðaðra verkfallsaðgerða Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fór fram í gær. Verkfallið stóð í sextán klukkutíma. Í þeim fólst meðal annars að varðstöðu á Akureyrarflugvelli var ekki sinnt og hamlaði flugi. Flugfélag Íslands brá þá það ráð að flýta tveimur fyrstu ferðum dagsins og aðrar ferðir voru færðar til Aðaldalsflugvallar á Húsavík. 7.8.2010 14:01
Aurskriða undir Eyjafjöllum: „Auðvitað bregður manni“ „Við sáum þetta bara beint út um gluggann hjá okkur þegar við komum á fætur í morgun,“ segir Heiða Björg Scheving húsfreyja á bænum Krossafell. Aurskriða féll undir Eyjafjöllum í morgun. Heiða varð vör við skriðuna snemma í morgun og lét húsfreyjuna á bænum Steinar 4 vita, en sá bær er aðeins ofar í hlíðinni. 7.8.2010 12:59
Innkoma Delta á flugmarkaðinn jákvæð tíðindi Það eru jákvæð tíðindi fyrir íslenska ferðaþjónustu að bandaríska flugfélagið Delta ætli að hefja flug á milli New York og Íslands á næsta ári, segja forsvarsmenn Icelandair og Iceland Express. Express lítur ekki á Delta sem keppinaut. Aðrir ættu að hafa áhyggjur, segir framkvæmdastjóri Express. 7.8.2010 12:15
Endurskoða verður ávísun lækna á rítalín Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann segja að tölulegar upplýsingar frá Vogi og könnun á örvandi vímuefnaneyslu sjúklinganna sýni að endurskoða verði ávísun lækna á lyfið rítalín. 7.8.2010 11:57
Ísjaki sem er tuttugu sinnum Heimaey brotnaði frá Grænlandi Gríðarlega stór ísjaki hefur brotnað frá Grænlandsjökli. Samkvæmt frétt BBC um málið er jakinn 260 ferkílómetrar að stærð, eða tæplega tuttugu sinnum Heimaey. 7.8.2010 11:10
Gleðigangan hefst klukkan tvö Hinsegin dagar ná hámarki sínu í dag með gleðigöngu hinsegin fólks klukkan tvö síðdegis. Gangan fer frá Hlemmi og niður Laugaveginn og lýkur við Arnarhól, þar sem ýmsir skemmtikraftar stíga á svið á hinsegin hátíð undir stjórn Páls Óskars. Alls taka um 35 atriði þátt í göngunni, en það er svipaður fjöldi og undanfarin ár. 7.8.2010 10:18
Trésmiðja brann í Sandgerði í nótt Eldur kviknaði í Trésmiðjunni Mosfell í Sandgerði í nótt og var húsið alelda þegar boð um brunann barst um klukkan tvö í nótt. Húsið er gerónýtt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum. 7.8.2010 10:00
Gisti fangageymslu vegna líkamsárásar Nóttin var mestu leyti róleg hjá lögregluembættum landsins. Karlmaður um tvítugt var tekinn grunaður um ölvunarakstur á Selfossi upp úr klukkan fjögur í nótt. Hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Bæjarhátíðin Sumar á Selfossi fer þar fram í dag og í kvöld og býst varðstjóri lögreglunnar í bænum við mikið af fólki. 7.8.2010 09:56
Pústrar á Fiskideginum mikla Margt fólk er á Fiskideginum mikla á Dalvík, en að sögn lögreglunnar á Akureyri fór allt vel fram þrátt fyrir talsverða ölvun í gærkvöldi og nótt. Eitthvað var um pústra, en engin líkamsárás hefur verið kærð. 7.8.2010 09:52
Tekinn dópaður fyrir hraðakstur Mikil umferð var í gegnum Borgarnes í gær. Samkvæmt lögreglunni í bænum var hraðinn ekki mikill en þó hafi einhverjir ökumenn kvartað yfir frammúrakstri ökumanna. 7.8.2010 09:47
Vill setja veiðibann á svæðinu Mun færri hreindýr eru nú á syðsta veiðisvæðinu, svokölluðu svæði 9, en reiknað var með þegar ákveðið var hversu mörg dýr ætti að veiða á svæðinu, segir Sigurður Guðjónsson, hreindýraleiðsögumaður á svæðinu. Hann segir að banna ætti veiðar alfarið til að stofninn nái sér á strik. 7.8.2010 07:30
Sjóðurinn þolir myntkörfuskellinn Fjárhagslegri endurskipulagningu Sparisjóðs Norðfjarðar er lokið. Seðlabankinn leggur honum til 150 milljóna króna stofnfé og Byggðastofnun 240 milljóna króna víkjandi lán í skiptum fyrir 49 prósenta eignarhlut. Við það verður stofnfé sparisjóðsins rúmar 620 milljónir króna og verður eiginfjárhlutfall hans 22 prósent. 7.8.2010 06:15
Vill ekki útiloka Hreyfinguna Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, segir „algjörlega ótímabært“ að tala um hvort hún sameinist að einhverju leyti Hreyfingunni. Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, bauð þá flokksmenn VG sem vildu velkomna í sinn flokk í blaðinu í gær. Lilja segist finna fyrir miklum stuðningi almennra kjósenda VG og vilji ekki bregðast þeim nema nauðbeygð. 7.8.2010 06:00
Á 170 kílómetra hraða á Dalvík Ökumaður mótorhjóls mældist á 170 kílómetra hraða skammt frá Dalvík seint á fimmtudagskvöld. 7.8.2010 06:00
Afþakkar laun eftir uppsögn Runólfur Ágústsson afþakkaði laun á uppsagnarfresti í bréfi til félagsmálaráðuneytisins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Runólfur sendi frá sér í gær. 7.8.2010 06:00
Festir í sessi fákeppni á mjólkurmarkaði Samkeppniseftirlitið gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarp um breytingar á búvörulögum sem lagt hefur verið fram. Í fréttatilkynningu um málið segir að með frumvarpinu sé fyrirhugað að lögfesta refsifyrirkomulag gagnvart tilteknum rekstraraðilum sem hafi hug á að framleiða mjólkurvörur fyrir íslenska neytendur. 7.8.2010 05:15
Ekki hægt að útiloka neinar tillögur Huginn Freyr Þorsteinsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, segir að fyrirfram sé ekki hægt að útiloka neinar tillögur í skattamálum. Í skýrslu um íslenska skattkerfið, sem AGS vann að ósk fjármálaráðuneytisins, var lagt til að lægri skattþrep virðisaukaskattsins yrðu hækkuð upp í 25,5 prósent ef frá væru skildar matvörur sem yrðu með fjórtán prósenta virðisaukaskatt. 7.8.2010 05:00
Geitungar áberandi þessa dagana Sá tími ársins þegar geitungar eru mest áberandi er nú runninn upp. „Þetta gerist á svipuðum tíma á hverju ári. Þeir verða áberandi á þessum tíma þegar karldýr og nýjar drottningar myndast í búunum. Karldýrin frjóvga drottningarnar sem fljúga svo í burtu og dreifa sér,“ segir Þóra Hrafnsdóttir, sérfræðingur á Náttúrufræðistofu Kópavogs. 7.8.2010 05:00
Alcoa sagt slegið út af borðinu Standi yfirlýsingar Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra um að tekin verði ákvörðun um uppbygginu á Bakka fyrir 1. október, er ljóst að Alcoa hefur verið útilokað frá henni. Katrín lýsti þessu yfir í Kastljósi á fimmtudag. 7.8.2010 02:30
Jón Gnarr í dragi - myndband Uppátæki Jóns Gnarr, borgarstjóra, að mæta sem klæðskiptingur við setningu Hinsegin daga í gær vakti mikla lukku meðal viðstaddra og hefur einnig vakið athygli út fyrir landsteinana. BBC var meðal annars með frétt um Jón Gnarr á forsíðu bresku fréttastofunnar í dag. Hún var um tíma sjötta mest lesna fréttin. 6.8.2010 19:17
Tölvum og sjónvörpum stolið á höfuðborgarsvæðinu Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni í Reykjavík hafa þrjú innbrot verið tilkynnt frá hádegi í dag. Brotist var inn á tvö heimili í Grafarvogi í dag og eitt í Kópavogi. 6.8.2010 21:24
Bílvelta á sleipum vegi Bíll valt á Þingvallavegi, rétt hjá þjónustumiðstöðinni á Þingvöllu, um klukkan fimm í dag. Kona á þrítugsaldri var í bílnum og hlúðu vegfarendur að henni þangað til að sjúkra- og lögreglubíll kom á staðinn. Mikil rigning var á svæðinu og samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Selfossi virðist vegurinn hafa verið gífurlega háll enda mikið rignt í dag. 6.8.2010 21:14
Kanna heimildir um birtingu á lögfræðiáliti Í tilkynningu sem Seðlabanki Íslands hefur sent fjölmiðlum segir að þegar að álit, um það hvort að gengistryggð lán væru hugsanlega ólögleg vorið 2009, var unnið hafði átt sér stað töluverð umræða á opinberum vettvangi um hugsanlegt ólögmæti gengistryggðra lána. 6.8.2010 20:35
Lýsa áhyggjum af skipan Ástu Sigrúnar Nokkur fjöldi fólks hefur haft samband við Hagsmunasamtök heimilanna og lýst yfir áhyggjum sínum vegna ráðningar Ástu Sigrúnar Helgadóttur í embætti umboðsmanns skuldara. Hún er gagnrýnd fyrir að hafa ekki tekið nægilega afgerandi afstöðu með skuldurum í störfum sínum sem forstjóri Ráðgjafastofu heimilanna. 6.8.2010 18:30
Gagnrýnir framkomu stjórnvalda gagnvart erlendum fjárfestum Framkoma íslenskra stjórnvalda við þau fáu erlendu fyrirtæki sem vilja fjárfesta hér á landi er algerlega óviðunandi að mati Samtaka iðnaðarins. Helgi Magnússon, formaður samtakanna, segir að framkoma stjórnvalda við fyrirtæki eins og Magma Energy og Alcoa á Íslandi sé með þeim hætti að orðspor þjóðarinnar út á við skaðist og líkur á samstarfi við erlenda fjárfesta minnki til mikilla muna einmitt á þeim tíma þegar við þurfum mest á öflugu og farsælu samstarfi við erlenda fjárfesta að halda. 6.8.2010 17:01
Runólfur átti ekki frumkvæði að kaupum og er sagður „fórnarlamb“ Menn sem áttu frumkvæði að því að kaupa hluti Byrs og Spron í Sparisjóðabankanum höfðu samband við Runólf Ágústsson að fyrra bragði til að bjóða honum að fjárfesta, án nokkurrar áhættu. Einn þeirra segir Runólf „fórnarlamb." Runólfur hefur ákveðið að þiggja ekki laun fyrir hálfan dag í embætti umboðsmanns skuldara. 6.8.2010 19:00
Lítið eftirlit með utangarðsfólkinu úti á Granda Lítið sem ekkert eftirlit er með heimilislausum sem dveljast í smáhýsum á Granda. Unnin var skýrsla fyrir velferðarsvið borgarinnar á síðasta ári og var það niðurstaða hennar að efla þyrfti eftirlit, en það var ekki gert. Heimilislaus maður sem þar dvelst segir að reglulega brjótist út slagsmál meðal vistmanna. 6.8.2010 18:45
Flutt á sjúkrahús eftir bílveltu Fólksbíll valt við Öxará um fimmleytið í dag. Bíllinn endaði á hvolfi og skemmdist hann eitthvað að sögn lögreglu. Ein kona var í bílnum. Að sögn lögreglunnar kenndi hún sér ekki meins en var engu að síður flutt með hraði til skoðunar á sjúkrahús í Reykjavík. 6.8.2010 18:20
Forsetinn sendi Medvedev samúðarkveðju Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í dag Dmitry Medvedev, forseta Rússlands, samúðarkveðju vegna hörmunganna sem orðið hafa í Rússlandi. Fjöldi landsmanna, bæði almennir borgarar og björgunarfólk, hefur látið lífið vegna hörmulegra elda sem herjað hafa á landið. 6.8.2010 16:00
Grilluðu 300 pylsur Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn grilluðu um 300 pylsur í miðbænum í hádeginu. Bjarni Ingimarsson, sem er einn þeirra, segir að þeir hafi komið saman til þess að stytta sér stundir í verkfallinu sem hófst í dag. „Það kom mikið af fólki sem átti leið þarna framhjá, túristar og fólk sem býr í nágrenninu,“ segir Bjarni. 6.8.2010 15:36
Vélhjólamenn söfnuðu fyrir Aflið Mótorhjólafólk hvaðanæva af landinu hittist í Súpupartýi um verslunarmannahelgina á Akureyri. Þetta er í annað sinn sem Súpupartý Mótórhjólafólks er haldið í bakgarði einum á Akureyri. Elduð var súpa, sungið og spilað fram eftir kvöldi og peningar settir í bauk. Forsvarsmenns Aflsins, samtaka gegn kynferðis- og heimilisofbeldi segjast vera afskaplega þakklátir fyrir þetta framtak því hver króna telji. 6.8.2010 15:12
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent