Breytir engu fyrir Bjarna Ben 10. ágúst 2010 03:15 Bjarni Benediktsson
Formaður Sjálfstæðisflokks, Bjarni Benediktsson, segir að orð Adolfs Guðmundssonar, formanns LÍÚ, um að Íslendingar eigi að reyna að ná sem bestum samningi við Evrópusambandið, breyti engu fyrir flokkinn, sem hafi komist að annarri niðurstöðu. Adolf, sem er andsnúinn ESB-aðild, sagði á Rás 2 í síðustu viku að hann teldi ekki að umsókn Íslands yrði dregin til baka. Því væri „algjört lykilatriði“ að ná ítrustu kröfum fram fyrir Íslands hönd. Fólk þurfi að geta tekið afstöðu og fylgi við aðild gæti aukist þannig að ákveðið yrði að ganga inn í ESB. Þá þyrfti að hafa besta mögulega samning í höndunum. Landsfundur Sjálfstæðisflokks samþykkti í lok júní að krefjast þess að ESB-umsóknin verði dregin til baka. „Hann [Adolf] getur bara haft þá skoðun,“ segir Bjarni: „Við teljum að ekki sé stuðningur við málið og að það sé glapræði að standa í þessu þegar við þurfum að vera í öðrum björgunaraðgerðum.“ Adolf sagði einnig að hann teldi „mjög lítil líkindi á að menn nái ásættanlegri lausn fyrir íslenskan sjávarútveg. En það sem ég vonast til þess að komi fram er að það verði upplýst umræða og öfgalaus um það sem er að gerast.“ Evrópusamtökin íslensku fagna yfirlýsingu Adolfs, hún sýni að LÍÚ „vill virða lýðræðislegan rétt þjóðarinnar til að vega og meta kosti og galla aðildar“. - kóþ
Mest lesið Mörg hundruð minkar sluppu úr búrum sínum Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Veður Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fleiri fréttir Mörg hundruð minkar sluppu úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Sjá meira