Fleiri fréttir

Ögmundur: AGS afdráttarlaust á móti almennum lausnum

Ögmundur Jónasson alþingismaður VG segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi lagst afdráttarlaust gegn almennum lausnum á skuldavanda heimilanna. Þetta kom fram í morgunþættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun þar sem Ögmundur ræddi meðal annars um sjóðinn ásamt Ragnheiði Elínu Árnadóttur þingmanni Sjálfstæðisflokksins.

Tveir á slysadeild eftir bílveltu

Bíll fór út af þjóðveginum efst í Hveradalabrekkunum í nótt og valt að minnstakkosti eina veltu áður en hann nam staðar á hjólunum.

Ísraelskar vörur verði merktar

Félagið Ísland-Palestína vill að íslenskar verslanakeðjur hætti viðskiptum við Ísrael eða merki að minnsta kosti ísraelskar vörur sérstaklega svo neytendur geti sniðgengið þær.

Létu vindinn ekki stoppa sig

Magnaður miðvikudagur var haldinn í Nauthólsvík í gær þar sem megin viðburðurinn var svokallað Fossvogssund. Sundinu var þannig háttað að synt var frá Nauthólsvík, yfir í Kópavog og aftur í Nauthólsvík. Hópsundið fór vel fram og segir Árni Jónsson, deildarstjóri Yl-strandar, að um 150 manns hafi tekið þátt og allt hafi heppnast vel.

Hirða brauð andanna á Tjörninni

Mávi hefur fjölgað töluvert aftur í Reykjavík á síðustu misserum. Þrjú til fimm þúsund pör af sílamávi eru nú talin verpa á höfuðborgarsvæðinu en mávar leita fæðu í þéttbýli þegar fæða hans í sjó bregst.

Vöruskiptajöfnuður jákvæður

Vöruskiptajöfnuður í júní var hagstæður um 8,6 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofunni sem birtar voru í gær. Vörur voru fluttar út fyrir tæpa 48,0 milljarða króna en innflutningur nam 39,3 milljörðum króna í mánuðinum. Frá áramótum er vöruskiptajöfnuður því hagstæður um 63,5 milljarða króna en á sama tímabili árið 2009 var hann hagstæður um 39,3 milljarða.- mþl

Sakaðir um kókaínsmygl og milljónasölu á fíkniefnum

Tveimur mönnum af fimm, sem ákærðir hafa verið fyrir smygl á tæplega 1,6 kílóum af kókaíni til landsins, er einnig gefið að sök að hafa selt fíkniefni fyrir samtals 8,5 milljónir króna, auk sölu skartgripa fyrir tvær milljónir.

Ákærður fyrir manndráp

Hálffertugur Grindvíkingur hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi, framið í maí í fyrra. Manninum er gefið að sök að hafa ekið ölvaður og próflaus yfir á öfugan vegarhelming á Grindavíkurvegi og framan á annan bíl, með þeim afleiðingum að ökumaður hins bílsins lést.

Brúðarmeyjar í íslenskum kjól

Tískufyrirtækið Emami hefur boðið leikkonunni Anítu Briem að hanna kjóla frítt á sex brúðarmeyjar hennar þegar hún gengur í það heilaga með unnusta sínum Dean Paraskevopoulos á grísku eyjunni Santorini í sumar. Aníta hefur þekkst boðið.

Bankinn fær arð frá Actavis

Stjórnendur Deutsche Bank í Þýskalandi eru sagðir við það að ná samningum við Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar, um uppgjör skulda Nova-tors við bankann sem tilkomnar eru vegna yfirtöku félagsins á Actavis í ágúst fyrir þremur árum.

Báðir geti unað við sjávarútvegssamning

Evrópuþingið samþykkti í gær ályktun, þar sem umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu er fagnað og hún sögð geta orðið bæði Íslandi og ESB til góðs.

Erum eftirbátar í ættleiðingum

Íslensk ættleiðing og Alþjóðleg ættleiðing hafa verið sameinuð undir merkjum Íslenskrar ættleiðingar. Í tilkynningu segir að nú aukist möguleikar umsækjenda til að ættleiða barn í upphafi umsóknarferils. Alþjóðleg ættleiðing var stofnuð fyrir fimmtán mánuðum og hlaut löggildingu til að annast milligöngu um ættleiðingar frá Póllandi en ekkert barn var ættleitt fyrir tilstilli félagsins.

Hef ekki ráðið mig áður til Bandaríkjanna

Sigurður Böðvarsson, sérfræðingur í krabbameinslækningum, segir í yfirlýsingu að Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, hafi tekist að gera lítið úr læknastéttinni og ítrekuðum viðvörunum lækna og áhyggjum af þróun heilbrigðismála hér á landi.

Heppinn Norðmaður vann 900 milljónir

Það var Norðmaður sem hafði heppnina með sér í Víkingalottóinu í kvöld þegar hann fékk rúmlega 900 milljónir í vinning. Hann var eini sem var allar sex tölurnar réttar. Enginn fékk 2. vinning né íslenska bónusvinninginn.

Hús Lárusar líka kyrrsett

Fallist sýslumaður á kyrrsetningu eigna Lárusar Weldings, fyrrverandi forstjóra Glitnis, hafa eignir hans, og annarra Glitnismanna, fyrir nær einn milljarð króna, verið kyrrsettar.

Icesave: Fundir með samninganefndum gengið vel

Fjármálaráðherra segir að fundir með samninganefndum Breta og Hollendinga í Icesave-málinu hafi gengið ágætlega eftir að formlegar viðræður hófust að nýju. Hann segir að málið gleymist ekki og öllum sé fyrir bestu að lausn finnist sem menn geti sætt sig við.

Olíuboranir hafnar við Grænland

Breskt olíufélag hóf í síðustu viku olíuboranir við vesturströnd Grænlands, norðan heimskautsbaugs, og notar bæði borpall og borskip. Olíufundur þar gæti haft umtalsverð áhrif hérlendis.

Mikil umferð um Landeyjarhöfn

Sigurður Áss Grétarsson, forstöðurmaður hafnarsvið Siglingastofnunar, segir að bæjarstjórn Vestmannaeyja hafi ekki fengið leyfi Siglingamálastofnunar til að koma upp lítilli flotbryggju í Landeyjahöfn líkt og sagt var í hádegisfréttum Bylgjunnar. Málið verði í fyrsta lagi afgreitt í lok mánaðarins.

Fundu talsvert magn af fíkniefnum í Vestmannaeyjum - tveir handteknir

Lögreglan í Vestmannaeyjum fann nýverið talsvert magn af ætluðum fíkniefnum. Tveir aðilar voru handteknir vegna málsins og yfirheyrðir af lögreglu. Annar aðilinn viðurkenndi að vera eigandi hinna ætluðu fíkniefna, hluti þeirra er grunaður að vera til sölu.

18 ára piltur dæmdur í fangelsi

Átján ára piltur var í gær dæmdur í 8 mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundið, í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Hann rauf skilorð, dóms sem hann hlaut á síðasta ári, með því að fremja ýmis brot.

Bláu ninjurnar harma skemmdirnar

Þjóðþrifahreyfingin, Bláu ninjurnar, harmar þær skemmdir sem urðu á upplýsingaskilti fyrirtækisins 365, sem Vísir tilheyrir, þegar þær voru að athafna sig fyrir utan fyrirtækið í dag. Í yfirlýsingu frá hreyfingunni segir að að Bláu ninjurnar séu friðsæl hreyfing „og dettur ekki í hug að vekja athygli á hugsjónum sínum með ofbeldi eða skemmdarverkum."

Bláar ninjur brutu upplýsingaskilti fjölmiðlafyrirtækis

Sjö bláar ninjur léku listir sínar fyrir utan höfuðstöðvar fjölmiðlafyrirtækisins 365 í Skaftahlíð, sem Vísir.is tilheyrir, en ekki vildi betur til en að ein ninjan braut upplýsingaskilti fyrirtækisins í leikfimi sinni.

Ófriðarseggur með glóðarauga handtekinn

Karl á fertugsaldri var handtekinn í miðborginni í nótt eftir að hafa látið þar ófriðlega en maðurinn reyndi að stofna til slagsmála samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu

Fátækir fá 15 þúsund króna sumarstyrk

Samþykkt var í velferðarráði í dag að veita þeim sem eru á framfæri borgarinnar 15 þúsund krónu sumarstyrk auk 5000 krónu styrks fyrir hvert barn fjölskyldu. Sjálfstæðisflokkurinn sat hjá við afgreiðslu málsins.

Hundur beit blaðbera

Hundur beit stúlku í Reykjavík í gærmorgun. Stúlkan var að bera út blöð þegar þetta gerðist en stúlkan var bitin í aftanvert lærið og við það eyðilögðust buxurnar hennar. Stúlkan leitaði svo á slysadeild en ekki er vitað frekar um meiðsli hennar. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er ekki er ljóst hvað verður um hundinn.

Björn vill vera forstjóri áfram

Björn Zoega, starfandi forstjóri Landspitalans, segir líklegt að hann muni sækjast eftir því að gegna starfinu áfram. Heilbrigðisráðuneytið auglýsti í dag eftir nýjum forstjóra Landspítalans. Hulda Gunnlaugsdóttir var ráðinn

Ekki fengið leyfi fyrir flotbryggju

Sigurður Áss Grétarsson, forstöðurmaður hafnarsvið Siglingastofnunar, segir að bæjarstjórn Vestmannaeyja hafi ekki fengið leyfi Siglingamálastofnunar til að koma upp lítilli flotbryggju í Landeyjahöfn líkt og fullyrt var í hádegisfréttum Bylgjunnar og á Vísi. Sigurður Áss segir að málið verði í fyrsta lagi afgreitt í lok mánaðarins.

Barist um bæjarstjórastólinn í Árborg

Gunnar Birgisson segist reiðubúinn að söðla um og flytja til Árborgar, reynsla hans muni nýtast vel í þetta starf. Vísir ræddi við nokkra umsækjendur um bæjarstjóraembættið í Árborg, þeir eru sammála um að miklir möguleikar séu á svæðinu og framtíðin sé björt.

Guðrún Norðfjörð ráðin framkvæmdastjóri Listahátíðar

Stjórn Listahátíðar í Reykjavík hefur ráðið Guðrúnu Norðfjörð í stöðu framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík. Í tilkynningu segir að tuttugu og fjórar umsóknir hafi barist um starfið, en umsóknarfrestur rann út 25. júní síðastliðinn.

Margfalda greiðslur til formannsins

Stjórn Blaðamannafélags Íslands (BÍ) samþykkti fyrir skömmu að formaður félagsins yrði framvegis á launaskrá hjá félaginu.

Vill að bæjarstjóri Hveragerðis haldi akstursdagbók

„Okkur finnst bara eðlilegt að menn haldi akstursdagbók,“ segir Róbert Hlöðversson, oddviti A-listans í Hveragerði, en hann gagnrýnir bæjarstjóra Hveragerðis harðlega fyrir há laun. Það var Fréttablaðið sem sagði fyrst frá launum bæjarstjórans en A-listinn lagði fram tillögu um að launin yrðu lækkuð þar sem heildarlaun bæjarstjórans eru ein milljón og fimmtíu þúsund krónur.

Prófmál um gengistryggðu lánin flutt fyrir dómi í dag

Prófmál um uppgjörsvexti gengistryggðra lána var flutt fyrir héraðsdómi Reykjavíkur nú í morgun. Búast má við niðurstöðu í málinu eftir mánuð. Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing vill að myntkörfulán verði uppreiknað miðað við verðtryggða vexti.

Ekki borað í Bobby

Stórblaðið New York Post heldur því fram að borað hafi verið í gegnum kistu Bobby Fischer til að ná lífsýnum hins látna skáksmeistara. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, segir frétt New York Post ranga.

Blaðasalar á kreik á ný

Útgáfufélag DV hefur gefið ungmennum kost á að selja blaðið í lausasölu í miðborg Reykjavíkur aftur eftir hlé um árabil. Bogi Örn Emilsson, framkvæmdastjóri útgáfufélagsins, segist telja að minnst áratugur sé liðinn frá því að þetta fyrirkomulag var við lýði. Hann segir að eftirsjá sé eftir blaðsölufólkinu.

Einn játar sök en segist ekki kannast við Davíð

Einn af fimm sem hafa verið ákærðir fyrir stórfelldan kókaíninnflutning játaði sök í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Maðurinn, sem heitir Pétur Jökull Jónasson, sagðist þó ekki geta staðfest að Davíð Garðarsson hefði átt hlut að máli.

Seldu fíkniefni fyrir milljónir

Tveir af mönnunum fimm sem ákærðir eru fyrir stórfellt fíkniefnasmygl frá Alicante á Spáni í mars og apríl eru einnig ákærðir að hafa staðið að sölu fíkniefna um nokkurt skeið fram í apríl síðastliðinn. Orri Freyr Gíslason er

Hvílast minna og aka lengur

Yfirstjórn ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, hefur samþykkt undanþágur fyrir Ísland frá nokkrum ákvæðum reglna um aksturs- og hvíldartíma atvinnubílstjóra í farmflutningum.

Sjá næstu 50 fréttir