Fleiri fréttir

Detox: Kvartað til Landlæknis

Á annan tug kvartanna hafa borist til Landlæknisembættisins vegna detox-meðferða. Von er á skýrslu frá embættinu vegna þessa síðar í mánuðinum.

Hörður: Tengist ekki samningum Seðlabankans

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að viljayfirlýsing sem fyrirtækið undirritaði ásamt China International Water & Electric Corporation og EXIM bankans kínverska tengist ekki samningnum sem Seðlabanki Íslands gerði í morgun. Unnnið hefur verið að viljayfirlýsingunni við Kínverjana í hálft annað ár, að sögn Harðar.

Vilja ekki ríkisstyrki á strandsiglingar

Starfshópur samönguráðherra um mat á hagkvæmni strandsiglinga skilaði niðurstöðum sínum fyrir helgi en á morgunverðarfundi á Grandhóteli í morgun voru þær kynntar fyrir hagsmunaðilum. Helsta niðurstaða skýrsluhöfunda er að hagkvæmt sé að hefja strandsiglingar, en þar er bent á að stjórnvöld víða um heim vinni nú að því að færa flutninga af vegum á sjó, fljótabáta og járnbrautir. Ástæðan sé m.a sú að raunverulegur samfélagslegur kostnaður við landflutninga sé oft vanmetinn hvað varði slit á vegum, slysahættu, mengun og önnur umhverfisáhrif.

Fráleitt að átta þúsund ríkisstarfsmenn missi vinnuna

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segist hafa heyrt tölur þess efnis að boðaður niðurskurður í ríkisfjármálum þýði að opinberum störfum muni fækka um allt að 8 þúsund. Þetta kom fram í máli Bjarna á Alþingi í morgun.

Hæsta bensínverðið á Ísafirði - Gríðarlegur munur á milli landshluta

Alls munar tólf og hálfri krónu á hæsta bensínverði á landinu og því lægsta. Hæsta bensínverðið er að finna á Ísafirði en samkvæmt heimasíðunni GSM bensín þá er bensínverð þar 198,70 krónur. Allnokkurt verðstríð er að eiga sér stað á Suðurlandi sem gerir það að verkum að bensínlítrinn er ódýrastur þar, eða 186.20 krónur.

Ekki hægt að fresta 17. júní eins og Kastró frestaði jólunum

„Við munum ekki fresta 17. júní þó ónefndur maður hafi frestað jólunum. Það er ekki á mínu verksviði að fá ESB til þess að breyta sínu fundarplani,“ svaraði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, þegar Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hvatti hann til þess að beita sér gegn því að aðildarviðræður yrðu ákveðnar 17. júní, í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í morgun.

Dagpeningar ríkisstarfsmanna hækka

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga fyrir ríkisstarfsmenn á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Þá munu falla úr gildi upphæðir sem voru samþykktar 1. nóvember 2009. Þetta kemur fram á vef Fjármálaráðuneytisins.

Meirihluti myndaður í Vogunum

H – Listi óháðra borgara og E – Listi Stranda og Voga hafa komist að samkomulagi um að starfa saman í meirihluta í Vogum við Vatnsleysuströnd næsta kjörtímabil.

Kínverjar í hádegismat á Bessastöðum

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson mun nú fyrir hádegi eiga fund með kínversku sendinefndinni sem nú heimsækir Ísland. Sendinefndin er undir forystu He Guoqiang og í henni eru fulltrúar frá Seðlabanka Kína, Útflutnings-innflutningsbanka Kína og kínverskum orkufyrirtækjum.

Fjórir teknir fyrir hraðakstur á Hellisheiði

Fjórir ökumenn voru stöðvaðir á Hellisheiðinni í gærkvöld fyrir of hraðan akstur. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var um fjóra karlmenn að ræða og ók sá sem hraðast fór á 116 kílómetra hraða á klukkustund.

Áhrif eldgossins eitt af helstu verkefnum

Nýr meirihluti tekur við í Rangárþingi eystra á þriðjudaginn kemur en Framsóknarmenn og aðrir framfarasinnar fengu hreinan meirihluta í sveitarstjórnarkosningunum.

Þyrla sótti slasaðan sjómann

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um klukkan tvö í nótt eftir að tilkynnt var um slys um borð í togara úti fyrir Vestfjörðum. Vel gekk að hífa manninn um borð og var hann fluttur á sjúkrahús. Ekki hafa borist fregnir af því hvers eðlis slysið var eða af líðan mannsins.

Þúsundir ágreiningsmála á leið fyrir dóm næstu misseri

Mörg þúsund ágreiningsmál um kröfur í þrotabú föllnu bankanna gætu verið á leið fyrir dóm á næstu misserum. Formenn skilanefnda bankanna eru sammála um að útilokað sé með öllu að íslenska dómskerfið valdi álaginu. Til samanburðar voru í fyrra höfðuð samtals 124 ágreiningsmál vegna gjaldþrotaskipta á landinu öllu.

Fréttaskýring: VG skoði sín mál vandlega

VG hefur opinberlega lýst yfir bæði ánægju með aukinn fjölda sveitarstjórnarfulltrúa eftir kosningarnar og vonbrigðum með skellinn sem flokkurinn fékk, sérstaklega í þéttbýlinu. Svipað hljóð er í innanflokksmönnum, þótt því sé ekki að leyna að vonbrigðin eru víðast meiri en ánægjan.

Dómnum verður áfrýjað

Hilmar Gunnarsson, lögmaður Rauðsólar (365 miðla), segir að dómnum verði áfrýjað. „Við teljum að fullnaðaruppgjör hafi farið fram en ekki hafi verið tekið tillit til greiðslna sem fóru frá félaginu til Íslenskrar afþreyingar," segir Hilmar.

Stéttarfélög leggjast gegn launafrystingu

Forsvarsmenn Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna og BSRB leggjast allir gegn hugmyndum Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra um að frysta laun opinberra starfsmanna næstu þrjú ár. Í grein í Fréttablaðinu í gær reifaði Árni Páll þá hugmynd að gerð yrði þjóðarsátt um að frysta laun og lífeyrisgreiðslur hins opinbera, þangað til fjárlagagatinu hefði verið lokað.

Almenningur ber allan herkostnaðinn

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, var annarrar skoðunar og sagði aðgerðir ríkisstjórnarinnar vega upp hrun heils efnahagskerfis. Ágætur árangur hafi náðst á alla mælikvarða, þótt betur megi ef duga skuli.

Fangar rækta tré, matjurtir og rósir

Fangar á Kvíabryggju eru önnum kafnir við ræktunarstörf þessa dagana. Þeir hafa sett niður 200 kíló af kartöflum. Í dag eða á morgun verður hafist handa við að planta sjö til átta hundruð trjágræðlingum.

Steingrímur: Engin eftirspurn eftir málþófi

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á von á því að flest þau mál sem bíði afgreiðslu á Alþingi verði kláruð fyrir þinglok. Störf þingsins verði undir smásjánni og engin eftirspurn sé á meðal þjóðarinnar eftir málþófi og upplausn, segir í frétt RÚV.

Forsetinn veitti Íslensku menntaverðlaunin

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, veitti Íslensku menntaverðlaunin í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi í kvöld en þau eru bundin við grunnskólastarfið og eru veitt í fjórum flokkum, segir í tilkynningu.

Formaður viðskiptanefndar gagnrýnir viðskiptaráðherra

Formaður viðskiptanefndar gagnrýnir viðskiptaráðherra harkalega fyrir aðgerðaleysi gagnvart skuldugum heimilum og málefnum HS Orku á Fésbókarsíðu sinni. Ráðherrann segist ekki ætla að elta ólar við ummæli af slíku tagi.

Einstæð móðir óttast breytingar LÍN

Fjögurra barna einstæð móðir veit ekki hvernig endar eiga að ná saman gangi breytingartillögur Lánasjóðs íslenskra námsmanna eftir. Framfærsla til fjölskyldna með fleiri en eitt barn skerðist og námsmenn þurfa að ljúka fleiri einingum á önn en áður til að vera lánshæfir.

Endurreisn á öskusvæðunum hafin

Landgræðslan og Vegagerðin hófu í dag endurreisnina á öskusvæðunum eftir eldgosið með sáningu grasfræs og með aðgerðum til að hemja Svaðbælisá.

Heyskapur hafinn á Þorvaldseyri

Heyskapur hófst í dag á Þorvaldseyri, þeim bæ sem mátti hefur þola hvað mest öskufall úr Eyjafjallajökli. Ólafur Eggertsson bóndi segir stórkostlega hluti vera að gerast í framvindu gróðursins og íhugar nú að falla frá fyrri ákvörðun um að gera hlé á búskap.

Spá MMR rættist

Niðurstöður könnunar MMR á fylgi stjórnmálaflokkanna fyrir nýliðnar borgarstjórnarkosningar í Reykjavík vöktu mikla athygli enda mældist Besti flokkurinn með nærri 36 % fylgi og um leið stærsti flokkurinn. Niðurstöður kosninganna endurspegluðu nær fullkomnlega og reyndist skipting borgarfulltrúa milli framboðanna að loknum kosningum nákvæmlega hin sama og spáð hafði verið samkvæmt könnun sem MMR framkvæmdi.

Árni spyr hvort Árni ætli í stríð

Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, spyr hvort að Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra ætli í stríð við opinbera starfsmenn í tilkynningu sem hann sendi fjölmiðlum nú síðdegis. Árni Páll sagði í viðtali við Fréttablaðið í morgun að ein aðferðin til sparnaðar fyrir ríkið sé að frysta laun opinberra starfsmanna í þrjú ár.

Segir ríkisstjórnina hafa mætt skuldavanda heimilanna

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði skuldavanda heimilanna hafa að mörgu leytinu til hafa verið til staðar fyrir hrun. Hún bendir á að 23 prósent heimila geta lent í fjárhagsvandræðum samkvæmt mati Seðlabanka Íslands þegar almenn skuldaúrræði ríkisstjórnarinnar eru tekin með í reikninginn.

Óli Björn krefst nærveru Jóhönnu vegna stjórnlagafrumvarps

Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi harðlega að enginn ráðherra væri í þingsalnum þegar önnur umræða um stjórnlagaþing fór fram í dag. Þá sá hann sérstaklega að því að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, væri ekki í salnum.

Jón vill að Atli Gíslason segi af sér

Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður, segir að Atli Gíslason formaður þingmannanefndarinnar eigi að segja af sér sem og nefndin öll. Hann segir hana óhæfa.

Strípalingar og brennuvargar í Vestmannaeyjum

Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði afskipti af fjórum strípalingum sem hlupu naktir á Ráðhúströð. Lögreglan ræddi við þá þegar þeir voru komnir í húsaskjól en þá gáfu þeir þá skýringu á athæfi sínu að þeir hefðu verið í svokölluðum drykkjuleik sem leiddi til strippsins.

Forseti Eistlands í opinbera heimsókn til Íslands

Forseti Eistlands Toomas Hendrik Ilves og eiginkona hans frú Evelin Ilves verða í opinberri heimsókn á Íslandi 10. og 11. júní næstkomandi. Forsetahjónin og fylgdarlið þeirra koma til landsins síðdegis á morgun, miðvikudaginn 9. júní.

Daily Star biður Eið Smára afsökunar

Eiður Smári Guðjohnsen fyrrverandi landsliðsfyrirliði hefur ákveðið að hætta við málshöfðun gegn breska blaðinu Daily Star. Blaðið hefur nú beðið Eið Smára afsökunar á frétt sem það birti um hann í byrjun maí síðastliðnum. Þar sagði blaðið að Eiður Smári hefði heilsað með nasistakveðju þar sem hann var á bar með vinum sínum.

Ætla að borga ofurstyrki á sjö árum

Tug milljóna styrkir FL Group og Landsbankans við Sjálfstæðisflokkinn, sem voru í umræðunni fyrir rúmu ári, komu til umræðu á Alþingi í morgun, þegar þingmenn hreyttu ónotum hver í annan vegna meintra lyga og spillingar.

Segir ráðningu Lúðvíks vanvirðingu við kjósendur

„Þetta er vanvirðing við vilja kjósenda. Það er alveg ljóst,“ segir Valdimar Svavarsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði um ráðningu Lúðvík Geirssonar, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, en hann hefur hingað til leitt lista Samfylkingarinnar í bænum. Hann bauð sig hinsvegar fram í sjötta sæti í ár og fékk ekki kosningu og ætti því að öllu jöfnu að detta út úr bæjarstjórn.

Sjá næstu 50 fréttir