Innlent

Stéttarfélög leggjast gegn launafrystingu

Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ, segir hugmyndir félagsmálaráðherra um frystingu launa ganga út á að sópa vandanum undir teppi.
Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ, segir hugmyndir félagsmálaráðherra um frystingu launa ganga út á að sópa vandanum undir teppi. Mynd/Anton
Forsvarsmenn Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna og BSRB leggjast allir gegn hugmyndum Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra um að frysta laun opinberra starfsmanna næstu þrjú ár.

Í grein í Fréttablaðinu í gær reifaði Árni Páll þá hugmynd að gerð yrði þjóðarsátt um að frysta laun og lífeyrisgreiðslur hins opinbera, þangað til fjárlagagatinu hefði verið lokað.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að með frystingu launa sé verið að sópa vandamálunum undir teppið. „Kaupmáttarskerðingin sem af þessu myndi hljótast myndi leiða af sér mikinn samdrátt. Það myndi lenda verst á þeim sem eru í mestum vanda og koma niður á tekjuöflun ríkisins." Gylfi segir hið opinbera verða að forgangsraða hvaða verkefnum það geti sinnt. „Við hjá verkalýðshreyfingunni erum til viðræðu um hvaða leiðir á að fara í því. En launafrysting er bara skammtímaaðgerð sem tekur ekki á rótum vandans."

Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM, bendir á að félagið hafi verið með lausa samninga síðan um mitt ár 2008. „Okkar félagsmenn hafa því búið við ákveðna launafrystingu og skerðingu síðan þá. Að leggja það til áfram til ársins 2013 er af og frá," segir hún og kallar hugmyndir félagsmálaráðherra árás á háskólamenntað fólk. Hún leggur til að ríkið marki sér skýra stefnu um opinbera þjónustu og ákveði niðurskurð með hliðsjón af því.

„Við erum reiðubúin að taka þátt í slíkri umræðu en frekari frystingar á launum koma ekki til greina af okkar hálfu."

Árni Stefán Jónsson, varaformaður BSRB, tekur í sama streng. „Að frysta laun er ein alvitlausasta aðgerð sem hægt er að fara í. Það þarf að halda við kaupmætti og auka við hann til að koma hjólum efnahagskerfisins af stað en ekki draga úr kaupmætti."

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, spyr sig hvort framsetning Árna Páls á þessum hugmyndum sé heppileg. „Það er betra að tala sig inn á niðurstöðu en að smella þessu fram með þessum hætti, það er að segja ef það er meining að baki þessu hjá ráðherranum." Vilhjálmur bendir jafnframt á að Árni Páll sé að tjá sig um mál sem eru ekki á hans borði, heldur Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra.

Steingrímur sagði eftir ríkisstjórnarfund í gær að málið hefði ekki verið rætt á fundinum og hugmyndirnar ótímabærar með tilliti til þess að unnið væri að fjárlagagerð fyrir árið 2011.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×