Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Matið lægst á Patreksfirði Fasteignamat er lægst á Patreksfirði, samkvæmt samanburði Fasteignaskrár Íslands. Fasteignaskrá reiknaði út fasteignamat og fasteignagjöld á sams konar fasteign víðs vegar um landið að beiðni Byggðastofnunar. 10.5.2010 06:00
Fjármál og velferð í forgrunni Kosningabaráttan í Hafnarfirði mun að mestu snúast um fjármálin, að mati flestra heimildarmanna Fréttablaðsins. Þau munu verða Samfylkingunni, sem er með hreinan meirihluta í bæjarstjórn, skeinuhætt, en tromp hennar eru vinsældir Lúðvíks Geirssonar bæjarstjóra. 10.5.2010 05:00
Rænulitir laxar eftir veturinn Bræðurnir Viktor og Hannes Arnar gengu fram á níu dauða laxa í Elliðaánum í gær þar sem þeir voru á labbi með pabba sínum. Einn laxanna var lifandi þegar feðgana bar að en drapst fljótlega. 10.5.2010 05:00
Áfram flogið um Akureyri Flugsamgöngur víðs vegar um Evrópu komust í uppnám vegna eldgossins í Eyjafjallajökli um helgina. Flugvöllum var meðal annars lokað um tíma í Frakklandi, Sviss, Þýskalandi, Spáni, Ítalíu og Írlandi í gær. Um 24.500 flug fóru um Evrópu í gær, en það er 500 færri flug en venja er. Þá urðu talsverðar seinkanir þar sem fljúga þurfti lengri leiðir til að forðast öskuský. 10.5.2010 04:00
Umræður um bætt samfélag Fátækt rædd á jafnræðisgrundvelli var yfirskrift fundar sem haldinn var á Grand Hóteli í gær. Fundurinn var haldinn í tilefni af Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun, en þar var stefnt saman stjórnmálamönnum, fagfólki í félagsþjónustu og fólki sem upplifað hefur fátækt og félagslega einangrun sjálft. 10.5.2010 04:00
Vaxtarsprotinn til Nox Medical Fyrirtækið Nox Medical hlaut fyrir helgi Vaxtarsprotann. Hann er viðurkenning sem veitt er árlega á vegum Samtaka iðnaðarins, Rannsóknarmiðstöðvar Íslands og Háskólans í Reykjavík til sprotafyrirtækja. 10.5.2010 03:30
Afnám verðtryggingar ekki lausn á vanda skuldugra Ólíklegt er að breytingar á fyrirkomulagi verðtryggingar gætu á þessu stigi mála leitt til snöggs viðsnúnings hjá einstaklingum í skuldavanda, segir í niðurstöðum nýrrar skýrslu sem nefnist „Verðtrygging á Íslandi: kostir og gallar“. Hverfi verðtryggingin hækka vextir á móti. 10.5.2010 03:15
Eyjafjallajökull: Álag á starfsfólki Akureyrarflugvallar Mikið álag hefur verið á starfsfólki Akureyrarflugvallar en þar er nú miðstöð fyrir millilandaflug. Flugvallastjórinn segir að þær aðstæður sem þar hafi skapast undanfarnar vikur sýni að stækka þurfi flugvöllinn. Flugsamgöngur til og frá landinu eru aftur í uppnámi með tilheyrandi óþægindum fyrir þúsundir Íslendinga. 9.5.2010 18:59
Lítil mengun í fiski á Íslandsmiðum Mengun í fiski á Íslandsmiðum er lítil miðað við niðurstöður nýrrar skýrslu frá Matís. Ekkert hafsvæði í heiminum er laust við mengun en afleiðingar hennar í sjávarfangi geta til dæmis haft áhrif á þroska heila í fóstrum. 9.5.2010 19:19
Ríkisstjórnarfundur hafinn Ríkisstjórn Íslands hittist á fundi sem hófst klukkan sex í dag í ráðherrabústaðnum. Horfur í ríkisfjármálum og sameining ráðuneyta verða til umræðu. 9.5.2010 18:06
Kosningar 2010: VG með félagslegt réttlæti að leiðarljósi Vinstri grænir í Reykjavík, undir forystu Sóleyjar Tómasdóttur, kynntu stefnumál sín síðdegis í dag. Sóley sagði kosningarnar snúast um hugmyndafræði en Vinstri grænir hefðu félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Flokkurinn boðaði fleiri úrræði í húsnæðismálum með leigu- og kaupleigumarkaði, fjölbreyttari atvinnusköpun á vegum borgarinnar, strætó sem grunnþjónustu og sorpflokkun við heimili fólks. 9.5.2010 17:58
Kosningar 2010: H - listinn kynnti framboð sitt í dag H-listi Ólafs F. Magnússonar, fyrrverandi borgarstjóra, sem kallar sig framboð um heiðarleika og almannahagsmuni, kynnti frambjóðendur og stefnumál á heimili Ólafs í Fossvogi nú síðdegis. 9.5.2010 17:54
Fundað gegn fátækt Í dag var haldinn fundur á Grand Hótel þar sem fólk úr ýmsum hópum samfélagsins ræddi um fátækt og félagslega einangrun og hvaða leiðir séu færar til að vinna gegn slíkri stöðu. Fundurinn, sem var með þjóðfundarsniði, var haldinn í tilefni af Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun og er skipulagður af stýrihópi á vegum félags- og tryggingamála-ráðuneytisins. 9.5.2010 17:15
Eyjafjallajökull: Iceland Express flýgur frá Akureyri á morgun Vélar Iceland Express til London, Kaupmannahafnar og Berlínar fara frá Akureyrarflugvelli á morgun sökum öskufalls frá Eyjafjallajökli. Vélarnar til London og Kaupmannahafnar fara um og eftir hádegi, en sú til Berlínar annað kvöld. Sætaferðir verða frá BSÍ norður í land. 9.5.2010 16:57
Hjálmar: Engin slagsíða gegn konum í BÍ Hjálmar Jónsson formaður Blaðamannafélags Íslands gerir athugasemdir við ályktun Félags fjölmiðlakvenna sem sagt var frá hér á Vísi í gær. Í ályktuninni sagði að konur væru í minnihluta í stjórnum og nefndum Blaðamannafélagsins. 9.5.2010 15:39
Eyjafjallajökull: Framleiðsla gosefna fer hægt dvínandi Framleiðsla gosefna virðist hafa farið hægt dvínandi í eldgosinu í Eyjafjallajökli ef mið er tekið af síðustu sjö dögum. Gosvirknin hefur þó gengið í bylgjum og búast jarðfræðingar á Veðurstofu Íslands við því að þær sveiflur haldi áfram. Ekkert bendir þó til þess að gosinu sé að ljúka að því er fram kemur í stöðuskýrslu frá Veðurstofunni og Jarðfræðistofnun Háskóla Íslands. 9.5.2010 14:08
Landstjórinn tók rútuna norður Það vakti athygli farþega sem þurftu að taka rútuna norður til Akureyrar í nótt að Franek Rozwadowski, sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var á meðal farþega. Franek, sem af gárungum hefur stundum verið kallaður Landstjóri Íslands, hefur því gert sér að góðu sama ferðamáta og „þegnar“ hans. 9.5.2010 13:29
Eyjafjallajökull: Icelandair breytir áætlun fyrir morgundaginn Icelandair hefur tilkynnt breytingar á flugi á morgun, mánudaginn 10. maí, vegna áframhaldandi óvissu um hvort Keflavíkurflugvöllur verður opinn fyrir flugumferð. 9.5.2010 13:21
Ríkisstjórn líklega kölluð á fund í dag Búist er við að ríkisstjórnin verði kölluð saman til aukafundar síðar í dag eða í kvöld þar sem lagðar verði meginlínur um ríkisfjármál og fækkun ráðuneyta. 9.5.2010 12:19
Eyjafjallajökull: Drunurnar heyrast í Dölunum Drunurnar úr Eyjafjallajökli hafa heyrst víða um land í dag. Fólk í Dölunum segist heyra drunur og sprengingar mjög greinilega og þá hafa lætin í gosinu heyrst vel til Vestmannaeyja. 9.5.2010 11:47
Manndráp: Hinn grunaði í gæsluvarðhald Maðurinn sem Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gær vegna rannsóknar á ætluðu manndrápi í Reykjanesbæ var úrskurðaður í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness klukkan 10 í morgun. Hann mun því sitja í gæsluvarðhaldi til mánudagsins 17. maí hið minnsta. 9.5.2010 10:56
Truflanir á útsendingu Bylgjunnar á Suðurlandi Truflanir eru á útsendingum Bylgjunnar á hluta Suðurlands. Sendir í Vestmannaeyjum var uppfærður í nótt og er bilunin rakin til þess. Unnið er að viðgerð og ætti útsendingin að komast í samt lag á næsta klukkutímanum. 9.5.2010 10:41
Fundað um fátækt á Grand Hótel Fundur um fátækt er að hefjast nú klukkan tíu á Grand Hótel Reykjavík og verður haldinn með þjóðfundarsniði. Fundurinn er á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins og er haldinn í tilefni af Evrópuári gegn fátækt. Áformað er að hann standi til klukkan fjögur í dag. 9.5.2010 10:07
Yfirheyrslum haldið áfram í dag Yfirheyrslur vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á málefnum Kaupþings munu halda áfram í dag, en stíft er unnið að rannsókn málsins hjá embættinu um helgina. 9.5.2010 10:00
Eyjafjallajökull: Enn gýs af krafti Ennn gýs af krafti úr Eyjafjallajökli. Gosórói mælist svipaður og undanfarna daga, samkvæmt upplýsingum Veðurstofu, en skjálftavirkni er ekki mikil. Gosmökkinn leggur undan hægri norðvestanátt til suðausturs, eins og undanfarna daga, í átt að Skógum og Mýrdal. 9.5.2010 09:59
Eyjafjallajökull: Millilandaflug um Akureyri - háloftaumferð yfir Skagafirði Allt millilandaflug fer um Akureyrarflugvöll í dag þar sem Keflavíkurflugvöllur er enn lokaður vegna ösku. Fimm vélar fara með farþega Icelandair til Glasgow í dag þaðan sem þeir verða ferjaðir áfram. Fyrsta Glasgow flugið frá Akureyri er þegar farið. IcelandExpress flýgur einnig í dag frá Akureyri bæði til London og Kaupmannahafnar. 9.5.2010 09:49
Aldrei eins mikil umferð á íslenska flugstjórnarsvæðinu Mikill straumur flugvéla hefur verið inn á íslenska flugstjórnarsvæðið í dag og síðustu nótt, búist er við áframhaldandi mikilli umferð í nótt og á morgun. „Vegna umferðarinnar sem er í meira lagi óvenuleg vegna umfangs og flækjustigs hefur mönnun á flugumferðarstjórum tvöfaldast í dag og voru tuttugu og tveir á vaktinni í þegar mest var að gera,“ segir í tilkynningu frá Isavia (áður Flugstoðir). 8.5.2010 20:54
Heitavatnslaust í Reykárhverfi Í kjölfar rafmagnsbilunar í gærkveldi bilaði hraðastýring á dælu sem þjónar Reykárhverfi sem ollu truflunum í rekstri dreifikerfis á svæðinu. Í dag varð síðan bilun í stofnæð sem veldur því að heitavatnslaust er í Reykárhverfi að því er fram kemur í tilkynningu frá Norðurorku. 8.5.2010 19:56
Fjármagnsflutningar til Lúx meðal annars til rannsóknar Hundrað milljarðar króna voru millifærðir úr sjóðum Kaupþings inn á erlenda bankareikninga skömmu fyrir hrun. Fjármagnsflutningarnir frá móðurfélagi bankans hér á landi til Lúxemborgar og annarra landa teygja anga sína inn í rannsókn sérstaks saksóknara. Yfirheyrslur hafa staðið yfir í dag. 8.5.2010 18:30
Eyjafjallajökull: Iceland Express flýgur frá Akureyri á morgun Iceland Express hefur ákveðið að vélar félagsins sem fara til London og Kaupmannahafnar á morgun fara frá Akureyrarflugvelli. Vélin til Kaupmannahafnar fer klukkan 13:00 og sú til London klukkan 15:00. Sætaferðir verða til og frá Akureyri. 8.5.2010 18:03
Manndráp í Keflavík: Liðlega tvítugur maður í haldi Lögreglan á Suðurnesjum hefur nú staðfest að maður sé í haldi, grunaður um að hafa orðið öðrum manni að bana í bænum. Hinn handtekni er liðlega tvítugur og verður hann yfirheyrður síðar í dag. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu en borin hafa verið kennsl á hann. Hann var á sextugsaldri. 8.5.2010 15:28
Kópavogsdagar hófust í dag Kópavogsdagar, árleg menningarhátíð Kópavogsbæjar, hófust í dag með opnun sýningarinnar, Fúsi á ýmsa vegu, sem sett hefur verið upp í Tónlistarsafni Íslands á Kópavogsholti til heiðurs listamanninum Sigfúsi Halldórssyni. 8.5.2010 20:27
Lottó: Tveir með allar tölur réttar Tveir heppnir Lottóspilarar voru með allar tölur réttar í útdrætti kvöldsins. Þeir skipta því með sér fyrsta vinningi og koma rúmar fimm milljónir króna í hlut hvors. Annar vinningsmiðinn var áskriftarmiði en hinn var keyptur í verslun Samkaupa-Úrvals á Selfossi. Þá var einn heppinn þáttakandi með Jókertölurnar réttar og fær sá tvær milljónir í sinn hlut. Sá miði var keyptur í Skýlinu í Vestmannaeyjum. 8.5.2010 20:03
Félagsmálaráðherra: Lögreglan taki á stórfelldum bótasvikum Félagsmálaráðherra segir að það sé lögreglunnar en ekki Tryggingastofnunar að taka á stórfelldum bótasvikum. Hins vegar þurfi að einfalda almannatryggingakerfið og skýra betur réttindi fólks til að koma í veg fyrir misskilning. 8.5.2010 19:41
Starfshópur leggur til fækkun ráðuneyta Breytingar gætu orðið á ráðherraliði ríkisstjórnarinnar í lok sumars en frumvarp um fækkun ráðuneyta verður væntanlega lagt fram á yfirstandandi þingi. 8.5.2010 19:23
Svifrykið vel undir mörkum í Reykjavík Styrkur svifryks var vel undir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag. Styrkurinn mældist l8 míkrógrömm á rúmmetra á mælistöðinni á Grensásvegi klukkan 16.00 og 12 í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum að því er fram kemur í tilkynningu frá borginni. 8.5.2010 17:29
Eyjafjallajökull: Kröftugt sprengigos enn í gangi Enn er kröftugt sprengigos í gangi í Eyjafjallajökli að því er fram kemur í stöðuskýrslu frá Veðurstofunni og Jarðfræðistofnun Háskólans. Lítið sem ekkert hraunrennsli er niður Gígjökul og gufuvirkni þar í lágmarki. Dregið hefur úr sprengivirkni og gosið líkist nú því sem var fyrir aukninguna að kvöldi 5. maí og 6. maí. 8.5.2010 16:58
Kosningar 2010: Tvö ný framboð í Kópavogi og eitt í Garðabæ Tvö ný framboð litu dagsins ljós í Kópavogi í dag en frestur til að lýsa yfir framboði til sveitarstjórnakosninga rann út í dag. Eitt framboð kom einnig fram í Garðabæ. 8.5.2010 16:49
Eyjafjallajökull: Mjög slæmt skyggni á Sólheimasandi Mjög slæmt skyggni er nú á Sólheimasandi sökum öskufalls auk þess sem askan úr Eyjafjallajökli sem þegar er fallin fýkur mikið upp. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli er því í raun ekkert ferðaveður á svæðinu en þrátt fyrir það hefur umferð um sandinn verið töluverð. 8.5.2010 16:22
Mannslát: Lögreglan staðfestir ekki handtöku Lögreglan verst enn allra frétta af rannsókn á mannsláti í Keflavík í morgun. Vefmiðillinn Víkurfréttir segist hafa heimildir fyrir því að einstaklingur hafi verið handtekinn í tengslum við málið en í samtali við fréttastofu vildi Jóhannes Jensson yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum hvorki játa því né neita. Von er á yfirlýsingu frá lögreglunni um málið síðar í dag. 8.5.2010 14:28
Eyjafjallajökull: Icelandair breytir áætlunum fyrir morgundaginn Icelandair hefur tilkynnt breytingar á flugi á morgun, sunnudaginn 8. maí, vegna áframhaldandi óvissu um hvort Keflavíkurflugvöllur verður opinn fyrir flugumferð. 8.5.2010 14:18
BÍ: Konur vilja aukaaðalfund Félag fjölmiðlakvenna hefur sent frá sér ályktun þar sem átök innan Blaðamannafélags Íslands eru hörmuð. „Félag fjölmiðlakvenna harmar átök í stjórn Blaðamannafélagi Íslands sem leiddu til þess að þrjár þungavigtarkonur í blaðamennsku hurfu úr stjórninni,“ segir meðal annars og bætt við að í þeirra stað hafi verið valin nærri hrein karlastjórn. 8.5.2010 13:50
Kosningar 2010: Frestir framlengdur í Mývatnssveit og á Súðavík Frestur til að skila inn framboði í Mývatnssveit vegna komandi sveitarstjórnarkosninga hefur verið framlengdur um tvo daga. 8.5.2010 12:58
Skemmdir unnar á leiðum Skemmdarvargar hafa verið á ferð í kirkjugarðinum við Suðurgötu í nótt eða í morgun. Krossar hafa verið rifnir upp á tveimur leiðum auk þess sem blómaker hefur verið mölbrotið. Leiðin sem um ræðir eru í vesturenda garðsins. Lögregla kannaðist ekki við málið þegar fréttastofa hafði samband en ætlaði að kanna málið. 8.5.2010 12:26
70 þúsund lentu í rafmagnsleysi Áætla má að um 70 þúsund íbúar landsbyggðarinnar, allt frá Vesturlandi og norður til Austfjarða, hafi mátt þola rafmagnsleysi í allt að tvær klukkustundir í gærkvöldi. Bilunin var það víðtæk að Almannavarnir og Fjarskiptamiðstöð lögreglu sáu ástæðu til að koma að málum. 8.5.2010 12:11