Kosningar 2010: Tvö ný framboð í Kópavogi og eitt í Garðabæ 8. maí 2010 16:49 Frambjóðendur Næst besta flokksins, Erla Karlsdóttir, Hjálmar Hjálmarsson og Benedikt Nikulás Anes Ketilsson.
Tvö ný framboð litu dagsins ljós í Kópavogi í dag en frestur til að lýsa yfir framboði til sveitarstjórnakosninga rann út í dag. Eitt framboð kom einnig fram í Garðabæ. Næst besti flokkurinn hefur tilkynnt um framboð í Kópavogi en oddvitasætið skipar Hjálmar Hjálmarsson leikari. „Undanfarin misseri hafa verið erfið fyrir íbúa Kópavogs," segir í tilkynningu frá framboðinu. „Átök innan flokka bæjarstjórnar sem og umræða og framkoma bæjarstjórnamanna hefur verið með þeim hætti að bæjarbúum hefur þótt miður. Íbúar Kópavogs eiga ekki að þurfa sætta sig við það umsátur sem ríkt hefur í bænum. Því kom hópur saman á dögunum og ræddi möguleika á nýju framboði. Fljótt náðist samkomulag þessa hóps og stofnaður var Næst besti flokkurinn," segir ennfremur en framboðið var samþykkt á fundi í gær og mun bjóða fram undir listabókstafnum X. Listi Kópabogsbúa hefur einnig litið dagsljósið en oddviti þar á bæ er Rannveig H. Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri. Á meðal stefnumála flokksins er ráðning faglegs bæjarstjóra, að bæjarfulltrúar sitji í mesta lagi tvö kjörtímabil, farið verði eftir siðareglum Kópavogs, stofnun hverfaráða sem funda reglulega í grunnskólum sinna hverfa að lágmarki einu sinni á ári auk þess sem framboðið vill vinna að því að persónukjör verði að veruleika. Í Garðabæ hefur Framboð fólksins í bænum verið kynnt til leiks. Frambjóðendur listans eiga það sameiginlegt að hafa áhuga á málefnum og velferð Garðabæjar og vilja efla skapandi og gagnrýna umræðu um bæjarmálin. Umræðu sem byggð er á þeirri sjálfsögðu kröfu að gagnsæi og gott siðferði skuli haft að leiðarljósi í íslenskri stjórnsýslu með virkri þátttöku íbúanna. Ragný Þóra Guðjohnsen, lögfræðingur og MA í uppeldis- og menntunarfræðum, leiðir listann.
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Fleiri fréttir Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Sjá meira