Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Morð í Reykjanesbæ: Yfirheyrslur hafnar - málið á viðkvæmu stigi Yfirheyrslur eru hafnar yfir Ellerti Sævarssyni, 31 árs gömlum manni sem er grunaður um að hafa orðið karlmanni á sextugsaldri að bana aðfaranótt laugardags. Lögreglan á Suðurnesjum verst allra frétta af málinu og hefur ekki gefið upp hvort Ellert hafi játað verknaðinn. 10.5.2010 14:39
Slökkti eld með ísmolum Kona brenndist fyrsta og annars stigs bruna í andliti og á hendi þegar hún var að bæta etanóli á arinn á veitingastaðnum Riverside í Hótel Selfoss. 10.5.2010 14:07
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hafin Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga 29. maí næstkomandi er hafin í Laugardalshöll. 10.5.2010 13:02
Dómsmálaráðherra: Ósamræmi milli dóma Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt lögmanni sem ekki fékk starf héraðsdómara sömu miskabætur og fjórum ungum stúlkum sem var nauðgað voru dæmdar samanlagt í bætur. Dómsmálaráðherra segir ósamræmi á milli dómanna. 10.5.2010 12:25
„Þetta er í vinnuferli“ Ráðherrar ríkisstjórnarflokkanna tókust á um fækkun ráðuneyta á fimm klukkustunda löngum fundi í gærkvöldi. Fækkunin er hitamál en engin ákvörðun var tekin á fundinum þrátt fyrir hreinskiptar umræður. 10.5.2010 12:20
Ofsótti fyrrverandi eiginkonu vopnaður flökunarhnífi Snemma á laugardagsmorgun fékk lögreglan á Selfossi tilkynningu um mann sem hafði reynt að brjótast inn til fyrrverandi eiginkonu sinnar á Selfossi. Lögreglumenn fundu manninn skammt frá heimili konunnar. 10.5.2010 12:19
Hæstiréttur tekur afstöðu til gæsluvarðhalds á næstu dögum Hæstiréttur úrskurðar að öllum líkindum í dag eða á morgun í gæsluvarðhaldsmáli Hreiðars Más Sigurðssonar og Magnúsar Guðmundssonar en þeir kærðu gæsluvarðhaldið til réttarins síðastliðinn föstudag. Skýrslutökur sérstaks saksóknara vegna meintra lögbrota í Kaupþingi verður haldið áfram í dag. 10.5.2010 11:59
Skjálftahrina undir Eyjafjallajökli skjálftahrina varð undir Eyjafjallajökli um klukkan ellefu í morgun, en virðist vera að hjaðna á ný. Nokkrir skjálftar mældust rúmlega tveir á Richter. 10.5.2010 11:55
Smábátar streymdu til strandveiða Litlir fiskibátar streymdu í hundraða tali til svo nefndra strandveiða í nótt og í morgun og voru yfir 800 fiskiskip af öllum stærðum skráð á sjó við landið. Samanborið við 300 til 400 skip að meðaltali á dag allt árið. 10.5.2010 11:53
Fíkniefnaleitarhundurinn Skuggi dauður Fíkniefnaleitarhundurinn Skuggi kvaddi þennan heim um helgina eftir stutt veikindi. Hann var 12 ára gamall. Skuggi vann að fjölmörgum fíkniefnamálum, að því er fram kemur á vefsíðu tollstjóra. 10.5.2010 11:22
Kveikt í slöngubát í Bolungarvík Talið er að kveikt hafi verið í slöngubáti fyrir utan gistiheimili í Bolungarvík í nótt. 10.5.2010 11:09
Eldgosið í Eyjafjallajökli - myndir Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, var á ferð undir Eyjafjöllum um helgina og myndaði það sem fyrir augun bar. Nokkrar myndanna má sjá í myndasafni hér fyrir neðan. Í safninu má meðal annars smá sjá myndir af dýrum, mönnum, bílum og Eyjafjallajökli. 10.5.2010 10:29
Nefbraut kærustuna og myndbirtir kynferðisbrotamenn „Þetta eru allt myndir sem hafa verið birtar áður í fjölmiðlum og mennirnir hafa verið dæmdir,“ segir Skúli Steinn Vilbergsson, en hann heldur úti síðu á samskiptavefnum Facebook, þar sem hann nafn- og myndbirtir barnaníðinga og nauðgara. 10.5.2010 10:07
Ingibjörg Sólrún flaug með þotu Kristínar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, flaug í einkaþotu á vegum Kristínar Ólafsdóttur, eiginkonu Björgólfs Thors Björgólfssonar, milli Barbados og Jamaíka í mars 2008. „Mér fannst þetta ekki óeðlilegt þá og mér finnst það ekki óeðlilegt nú,“ segir Ingibjörg Sólrún í DV sem fjallar um málið í dag. 10.5.2010 09:36
Flogið frá Keflavík og Reykjavík Keflavíkurflugvöllur verður opnaður eftir rúma klukkustund og innanlandsflug um Reykjavíkurflugvöll hefst um og upp úr klukkan tíu, en völlurinn var lokaður í morgun vegna ösku í háloftunum. Fjöldi flugfarþega er á leið til Akureyrar og þangað eru einhverjar vélar komnar eða a leiðinni þangað. Ekki liggur fyrir hvort þeim verði snúið til Keflavíkur. 10.5.2010 08:56
Reiknað með töluverðri umferð um Akureyri Millilandaflugvélar komu og fóru frá Akureyrarflugvelli fram á nótt, en hlé varð undir morgun. Umferðin er aftur að fara í fullan gang og er reiknað með töluverðri umferð um völlinn í dag. Verulegt álag hefur verið á starfsliði vallarins og aukaliði frá Reykjavík og Keflavík, en engin alvarleg vandamál hafa komið upp, að sögn starfsmanna í morgun. Nánari upplýsingar um flugið er á heimasíðum flugfélaganna. 10.5.2010 08:19
Verðmætum stolið úr gistiheimili Brotist var inn í herbergi í gistiheimili í Reykjavík í nótt og þaðan stolið verðmætum frá erlendum ferðamanni sem ekki var í herberginu. Þjófurinn komst undan, meðal annars með farsíma og fartölvu. 10.5.2010 07:40
Tóku ekki ákvörðun um fækkun ráðuneyta Engin endanleg ákvörðun um breytingar á stjórnarráðinu og fækkun ráðuneyta, var tekin á tæplega fimm klukkustunda lögnum ríkisstjórnarfundi, sem hófst í Ráðherrabústaðnum klukkan sex síðdegis og stóð til klukkan að verða ellefu í gærkvöldi. 10.5.2010 07:38
Krókódíll át boltann „Þegar ég kom að boltanum sá ég að hann hafði ekki lent í tjörninni eins og hélt. Hann hafði stoppað á hryggnum á krókódíl sem lá þarna í makindum sínum,“ segir Guðlaug K. Pálsdóttir, sem nýlega var við golfleik á Providence-golfvellinum í Flórída í Bandaríkjunum. „Ég fullyrði að krókódíllinn glotti í áttina til mín þegar hann tók boltann í kjaftinn og stakk sér í tjörnina.“ 10.5.2010 06:45
Kaupþingsstjórar yfirheyrðir um helgina Starfsmenn á vegum sérstaks saksóknara yfirheyrðu þá Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjóra Kaupþings í Lúxemborg, um helgina. Magnús var jafnframt bankastjóri Banque Havilland, sem reistur var á rústum 10.5.2010 06:00
Matið lægst á Patreksfirði Fasteignamat er lægst á Patreksfirði, samkvæmt samanburði Fasteignaskrár Íslands. Fasteignaskrá reiknaði út fasteignamat og fasteignagjöld á sams konar fasteign víðs vegar um landið að beiðni Byggðastofnunar. 10.5.2010 06:00
Fjármál og velferð í forgrunni Kosningabaráttan í Hafnarfirði mun að mestu snúast um fjármálin, að mati flestra heimildarmanna Fréttablaðsins. Þau munu verða Samfylkingunni, sem er með hreinan meirihluta í bæjarstjórn, skeinuhætt, en tromp hennar eru vinsældir Lúðvíks Geirssonar bæjarstjóra. 10.5.2010 05:00
Rænulitir laxar eftir veturinn Bræðurnir Viktor og Hannes Arnar gengu fram á níu dauða laxa í Elliðaánum í gær þar sem þeir voru á labbi með pabba sínum. Einn laxanna var lifandi þegar feðgana bar að en drapst fljótlega. 10.5.2010 05:00
Áfram flogið um Akureyri Flugsamgöngur víðs vegar um Evrópu komust í uppnám vegna eldgossins í Eyjafjallajökli um helgina. Flugvöllum var meðal annars lokað um tíma í Frakklandi, Sviss, Þýskalandi, Spáni, Ítalíu og Írlandi í gær. Um 24.500 flug fóru um Evrópu í gær, en það er 500 færri flug en venja er. Þá urðu talsverðar seinkanir þar sem fljúga þurfti lengri leiðir til að forðast öskuský. 10.5.2010 04:00
Umræður um bætt samfélag Fátækt rædd á jafnræðisgrundvelli var yfirskrift fundar sem haldinn var á Grand Hóteli í gær. Fundurinn var haldinn í tilefni af Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun, en þar var stefnt saman stjórnmálamönnum, fagfólki í félagsþjónustu og fólki sem upplifað hefur fátækt og félagslega einangrun sjálft. 10.5.2010 04:00
Vaxtarsprotinn til Nox Medical Fyrirtækið Nox Medical hlaut fyrir helgi Vaxtarsprotann. Hann er viðurkenning sem veitt er árlega á vegum Samtaka iðnaðarins, Rannsóknarmiðstöðvar Íslands og Háskólans í Reykjavík til sprotafyrirtækja. 10.5.2010 03:30
Afnám verðtryggingar ekki lausn á vanda skuldugra Ólíklegt er að breytingar á fyrirkomulagi verðtryggingar gætu á þessu stigi mála leitt til snöggs viðsnúnings hjá einstaklingum í skuldavanda, segir í niðurstöðum nýrrar skýrslu sem nefnist „Verðtrygging á Íslandi: kostir og gallar“. Hverfi verðtryggingin hækka vextir á móti. 10.5.2010 03:15
Eyjafjallajökull: Skólahaldi aflýst í Vík á morgun Vegna þess mikla öskufalls sem gekk yfir Vík í Mýrdal um helgina verður allt skólahald í grunn-, leik- og tónskóla bæjarins fellt niður mánudaginn 10. maí. 9.5.2010 19:30
Jóhanna: Ljóst að fjárlögin verða mjög erfið Ríkisstjórnin ætlar að funda fram á kvöld í ráðherrabústaðnum en á fundinum verða horfur í ríkisfjármálum og sameining ráðuneyta verða í forgrunni. 9.5.2010 18:32
Eyjafjallajökull: Álag á starfsfólki Akureyrarflugvallar Mikið álag hefur verið á starfsfólki Akureyrarflugvallar en þar er nú miðstöð fyrir millilandaflug. Flugvallastjórinn segir að þær aðstæður sem þar hafi skapast undanfarnar vikur sýni að stækka þurfi flugvöllinn. Flugsamgöngur til og frá landinu eru aftur í uppnámi með tilheyrandi óþægindum fyrir þúsundir Íslendinga. 9.5.2010 18:59
Lítil mengun í fiski á Íslandsmiðum Mengun í fiski á Íslandsmiðum er lítil miðað við niðurstöður nýrrar skýrslu frá Matís. Ekkert hafsvæði í heiminum er laust við mengun en afleiðingar hennar í sjávarfangi geta til dæmis haft áhrif á þroska heila í fóstrum. 9.5.2010 19:19
Ríkisstjórnarfundur hafinn Ríkisstjórn Íslands hittist á fundi sem hófst klukkan sex í dag í ráðherrabústaðnum. Horfur í ríkisfjármálum og sameining ráðuneyta verða til umræðu. 9.5.2010 18:06
Kosningar 2010: VG með félagslegt réttlæti að leiðarljósi Vinstri grænir í Reykjavík, undir forystu Sóleyjar Tómasdóttur, kynntu stefnumál sín síðdegis í dag. Sóley sagði kosningarnar snúast um hugmyndafræði en Vinstri grænir hefðu félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Flokkurinn boðaði fleiri úrræði í húsnæðismálum með leigu- og kaupleigumarkaði, fjölbreyttari atvinnusköpun á vegum borgarinnar, strætó sem grunnþjónustu og sorpflokkun við heimili fólks. 9.5.2010 17:58
Kosningar 2010: H - listinn kynnti framboð sitt í dag H-listi Ólafs F. Magnússonar, fyrrverandi borgarstjóra, sem kallar sig framboð um heiðarleika og almannahagsmuni, kynnti frambjóðendur og stefnumál á heimili Ólafs í Fossvogi nú síðdegis. 9.5.2010 17:54
Fundað gegn fátækt Í dag var haldinn fundur á Grand Hótel þar sem fólk úr ýmsum hópum samfélagsins ræddi um fátækt og félagslega einangrun og hvaða leiðir séu færar til að vinna gegn slíkri stöðu. Fundurinn, sem var með þjóðfundarsniði, var haldinn í tilefni af Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun og er skipulagður af stýrihópi á vegum félags- og tryggingamála-ráðuneytisins. 9.5.2010 17:15
Eyjafjallajökull: Iceland Express flýgur frá Akureyri á morgun Vélar Iceland Express til London, Kaupmannahafnar og Berlínar fara frá Akureyrarflugvelli á morgun sökum öskufalls frá Eyjafjallajökli. Vélarnar til London og Kaupmannahafnar fara um og eftir hádegi, en sú til Berlínar annað kvöld. Sætaferðir verða frá BSÍ norður í land. 9.5.2010 16:57
Hjálmar: Engin slagsíða gegn konum í BÍ Hjálmar Jónsson formaður Blaðamannafélags Íslands gerir athugasemdir við ályktun Félags fjölmiðlakvenna sem sagt var frá hér á Vísi í gær. Í ályktuninni sagði að konur væru í minnihluta í stjórnum og nefndum Blaðamannafélagsins. 9.5.2010 15:39
Eyjafjallajökull: Framleiðsla gosefna fer hægt dvínandi Framleiðsla gosefna virðist hafa farið hægt dvínandi í eldgosinu í Eyjafjallajökli ef mið er tekið af síðustu sjö dögum. Gosvirknin hefur þó gengið í bylgjum og búast jarðfræðingar á Veðurstofu Íslands við því að þær sveiflur haldi áfram. Ekkert bendir þó til þess að gosinu sé að ljúka að því er fram kemur í stöðuskýrslu frá Veðurstofunni og Jarðfræðistofnun Háskóla Íslands. 9.5.2010 14:08
Landstjórinn tók rútuna norður Það vakti athygli farþega sem þurftu að taka rútuna norður til Akureyrar í nótt að Franek Rozwadowski, sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var á meðal farþega. Franek, sem af gárungum hefur stundum verið kallaður Landstjóri Íslands, hefur því gert sér að góðu sama ferðamáta og „þegnar“ hans. 9.5.2010 13:29
Eyjafjallajökull: Icelandair breytir áætlun fyrir morgundaginn Icelandair hefur tilkynnt breytingar á flugi á morgun, mánudaginn 10. maí, vegna áframhaldandi óvissu um hvort Keflavíkurflugvöllur verður opinn fyrir flugumferð. 9.5.2010 13:21
Ríkisstjórn líklega kölluð á fund í dag Búist er við að ríkisstjórnin verði kölluð saman til aukafundar síðar í dag eða í kvöld þar sem lagðar verði meginlínur um ríkisfjármál og fækkun ráðuneyta. 9.5.2010 12:19
Eyjafjallajökull: Drunurnar heyrast í Dölunum Drunurnar úr Eyjafjallajökli hafa heyrst víða um land í dag. Fólk í Dölunum segist heyra drunur og sprengingar mjög greinilega og þá hafa lætin í gosinu heyrst vel til Vestmannaeyja. 9.5.2010 11:47
Manndráp: Hinn grunaði í gæsluvarðhald Maðurinn sem Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gær vegna rannsóknar á ætluðu manndrápi í Reykjanesbæ var úrskurðaður í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness klukkan 10 í morgun. Hann mun því sitja í gæsluvarðhaldi til mánudagsins 17. maí hið minnsta. 9.5.2010 10:56
Truflanir á útsendingu Bylgjunnar á Suðurlandi Truflanir eru á útsendingum Bylgjunnar á hluta Suðurlands. Sendir í Vestmannaeyjum var uppfærður í nótt og er bilunin rakin til þess. Unnið er að viðgerð og ætti útsendingin að komast í samt lag á næsta klukkutímanum. 9.5.2010 10:41
Fundað um fátækt á Grand Hótel Fundur um fátækt er að hefjast nú klukkan tíu á Grand Hótel Reykjavík og verður haldinn með þjóðfundarsniði. Fundurinn er á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins og er haldinn í tilefni af Evrópuári gegn fátækt. Áformað er að hann standi til klukkan fjögur í dag. 9.5.2010 10:07