Fleiri fréttir

Krefjast meiri samhljóms í stjórninni

Það hrikti í stoðum stjórnarsamstarfsins í aðdraganda og eftirmála þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Stjórnarliðar eru þó sammála um að stjórnin hafi staðið hvellinn af sér. Samstaða gagnvart Icesave sé meiri og klárist það verði nýju lífi hleypt í ríkisstjórnina með nýju fólki og málum.

Brá þegar ferlíkið birtist úr djúpinu

Línubáturinn Lukka ÍS 357 frá Suðureyri kom með heldur óvenjulegan afla að landi á mánudag, 680 kílóa þungan hákarl sem var tæpir fimm metrar á lengd og rúmir tveir metrar að ummáli. Stærstir verða hákarlar sjö metra langir og um tonn að þyngd. Báturinn er 60 tonna, ellefu metrar að lengd. Hákarlinn slagaði því vel upp í hálfa bátslengdina.

Fleiri sækja í menningu en íþróttaleiki

Fleiri sækja menningar-viðburði en íþróttaviðburði og fleiri sækjast eftir umfjöllun um menningu og listir en íþróttir í fjölmiðlum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á menningarneyslu Íslendinga. Niðurstöður hennar voru kynntar í Þjóðminjasafni Íslands í gær.

Flestir vilja sameinast Garðabæ

Þrír fjórðu Álftnesinga vilja sameinast öðru sveitarfélagi og flestir þeirra vilja helst sameinast Garðabæ. Reykjavík er næstvinsælasti kosturinn. Þetta er niðurstaða könnunar sem bæjaryfirvöld stóðu fyrir meðal bæjarbúa samhliða þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag.

Ætla að upplýsa um raforkuverð á næsta aðalfundi

Landsvirkjun ætlar að upplýsa um orkuverð á aðalfundi sínum sem fram fer í næsta mánuði. Þetta kom fram í tíufréttum RÚV í kvöld. Hörður Arnarson forstjóri fyrirtækisins segir það nauðsynlegt til að ná sátt um fyrirtækið.

Reyndi að lokka litla stelpu upp í bíl í Langholtshverfi

Ókunnur eldri maður reyndi að lokka 8 ára gamla stúlku upp í bíl til sín í Langholtshverfi seinni partinn í dag. Stúlkan hljóp í burtu og lét vita heima hjá sér. Þetta kemur fram í bréfi sem Hreiðar Sigtryggsson, skólastjóri í Langholtsskóla, sendi forráðamönnum barna í skólanum og birt er á fréttavefnum Pressunni.

Eyrnabítur gat ekki útskýrt framferðið

Níu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina. Fimm þeirra áttu sér stað í miðborginni aðfaranætur laugardags og sunnudags og voru þær flestar minniháttar.

Undirbýr friðlýsingu Gjástykkis

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra tilkynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun að hún hefði ákveðið að hefja undirbúning að friðlýsingu Gjástykkis, norðan Mývatns. Vísar hún meðal annars til þess álits Umhverfisstofnunar að svæðið hafi hátt verndargildi og sé einstakt þegar kemur að náttúruupplifun og tækifærum til fræðslu um landrek og eldgos. Friðlýsing gæti raskað áformum Landsvirkjunar, sem hefur fengið rannsóknarleyfi í Gjástykki til að undirbúa þar jarðvarmavirkjun.

Flestir Álftnesingar vilja sameinast öðru sveitarfélagi

Samhliða Icesave-kosningunni voru Álftnesingar spurður út í afstöðu sína til þess hvort sameina eigi Álftanes öðru sveitarfélagi. Tæp 64 prósent íbúa tóku þátt og voru 75,7 prósent þeirra hlynntir því að Álftanes sameinist öðru sveitarfélagi. 17,7 prósent voru á móti og fimm prósent sögðust hlutlausir.

Vilja funda um Icesave hér á landi

Á fundi leiðtoga stjórnmálaflokkanna um stöðuna í Icesave-málinu sem fram fór í Alþingishúsinu í hádeginu var lagt til að frekari fundarhöld í málinu fari fram hér á landi. Hingað til hafa samninganefndirnar fundað í London.

Íslendingar hafa vel efni á að borga Icesave

Hollenski fjármálaráðherrann Jan Kees de Jager segir enga spurningu um að Íslendingar muni borga Icesave-skuldina. Þetta kemur fram í viðtali sem tekið var við de Jager á hollenskri sjónvarpsstöð. Ráðherrann segir ekki í umræðunni að Íslendingar borgi ekki, enda hafi þeir vel efni á því að standa skil á skuldinni.

Ræddu við Buchheit

Leiðtogar stjórnar og stjórnarandstöðu funduðu í dag Stjórnarráðshúsinu þar sem farið var yfir stöðu mála með Lee Buchheit formanni samninganefndarinnar í Icesave málinu. Stefnt er að því að halda fundum við Breta og Hollendinga áfram en engin dagsetning mun vera komin á hvenær hægt verði að halda áfram.

Dældu eldsneyti frá varðskipi yfir í þyrlu - myndir

Nýverið var þyrlueldsneyti í fyrsta sinn dælt á Líf, þyrlu Landhelgisgæslunnar meðan hún var á lofti yfir íslensku varðskipi. Í tilkynningu frá Gæslunni segir að slíkt sé afar mikilvægt að geta gert þegar verið er í aðgerðum á hafi úti og langt fyrir þyrlu að fara til eldsneytistöku.

Verðlækkun á kókaíni og kannabisefnum

Nokkur verðlækkun hefur orðið á kókaíni og kannabisefnum síðustu mánuði ef marka má lista sem SÁÁ birtir mánaðarlega. Í febrúar kostaði gramm af kókaíni 12.420 krónur en í janúar var gangverðið 14.270.

Blessuð blíðan

„Það er blessuð blíðan,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, aðspurður hvaða líkur séu á því að nýtt samkomulag náist milli stjórnar og stjórnarandstöðunnar um næstu skref í Icesave málinu rétt áður en fundur flokksleiðtoganna hófst í hádeginu.

Höfuðpaurarnir í mansalsmálinu ganga lausir

Upplýsingar og gögn sem lögreglan á Suðurnesjum aflaði sér við rannsókn mansalsmálsins svokallaða gætu nýst til að hafa hendur í hári þeirra sem skipulögðu mansalið og sendur fórnarlambið til Íslands en þeir ganga enn lausir.

Fyrsta stóra útboð í vegagerð í heilt ár

Vegagerðin hefur boðið út tvöföldun Suðurlandsvegar við Sandskeið. Þetta er fyrsta stóra útboðið í vegagerð hérlendis í nærri heilt ár. Boðinn er út 6,5 kílómetra kafli milli Lögbergsbrekku og Litlu Kaffistofunnar og verða tilboð opnuð þann 20. apríl.

Funda með samninganefndinni

Forystumenn ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðu setjast á fund nú í hádeginu, ásamt íslensku Icesave samninganefndinni. Þar á að fara yfir stöðu mála eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um helgina. Enn fremur á að reyna að ná nýju samkomulagi um samningsmarkmið og nýjar viðræður við Breta og Hollendinga.

Starfsmenn borgarinnar segja margar stofnanir undirmannaðar

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar krefst þess að viðsemjendur umgangist gerða launasamninga af virðingu og að unnið verði í nánu samráði við starfsmenn og stéttarfélög að finna aðrar leiðir en launaskerðingu og uppsagnir til að hagræða í rekstri. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar félagsins um kjaramál sem haldinn var í gær.

Yfirgefinn gúmbátur í höfninni í Bolungarvík

Lögreglan á Ísafirði lýsir eftir eiganda að Zodiac gúmbát sem verið hefur í höfninni í Bolungarvík frá því í sumar. Að sögn lögreglunnar dúkkaði báturinn upp í sumar og bjuggust menn við því að eigandinn kæmi að vitja hans. Þetta var á svartfuglsveiðitímabilinu og gengu menn út frá því að um veiðimenn hefði verið að ræða enda voru skot um borð í bátnum.

Aukin skjálftavirkni undir Eyjafjallajökli

Skjálftavirknin undir Eyjafjallajökli tók kipp í morgun og mældust 40 til 50 skjálftar á 50 mínútna tímabili til klukkan hálf átta morgun, að fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofunni.

Skallaður á Lundanum

Karlmaður sem reyndi að stilla til friðar á veitingastaðnum Lundanum í Vestmanneyjum aðfaranótt laugardag var skallaður í andlitið með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði.

Stækkunarstjóri ESB: Ekki skemma fyrir Íslendingum

Stefan Fule, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, hvetur Hollendinga og Breta til að koma ekki í veg fyrir og leyfa aðildarviðræðum Íslands að Evrópusambandinu að hefjast fyrir alvöru. Þetta kom fram í máli Fule á fundi með utanríkismálanefnd Evrópuþingsins í Strassborg í gær, að fram kemur á vef Business Week.

Verkfall flugumferðarstjóra hefst að óbreyttu í fyrramálið

Samningaviðræðum fulltrúa flugumferðarstjóra við vinnuveitendur verður haldið áfram hjá ríkissáttasemjara klukkan ellefu fyrir hádegi. Ef ekki næst samkomulag hefst verkfall flugumferðarstjóra klukkan sjö í fyrramálið með tilheyrandi truflun á flugi.

Fiskflutningabíl valt - ökumaðurinn slapp með skrámur

Ökumaður á stórum fiskflutningabíl með tengivagni, slapp með skrámur þegar vindhviða feykti vagninum á hliðina út fyrir veg og dró bílinn með sér, skammt fyrir austan Ólafsvík á sjötta tímanum í morgun.

Yfir 200 strandveiðibátar sektaðir

Fiskistofa hefur lagt gjald á 224 strandveiðibáta af þeim hátt í 600, sem stunduðu strandveiðar í fyrrasumar, vegna þess að þeir komu með of mikinn afla að landi. Gjaldið nemur andvirði umframaflans.

Þjóðin stefnir hraðbyri að næsta hruni

Þjóðin stefnir hraðbyri að næsta hruni ef engin raunhæf úrræði koma fram á næstu vikum, segir meðal annars í ályktun miðstjórnar Samiðnar, sem samþykkt var á fundi hennar í gær.

Jón vill allan afla á land

„Það er mín skoðun að koma eigi með allan afla að landi. Þetta snýr að siðlegri umgengni okkar við sjávarauðlindina og séu á því gerðar undantekningar, þá séu þær vel ígrundaðar,“ segir Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Tilefnið er niðurstaða nýrrar skýrslu Matís um nýtingu sjávarafla, en nýting frystiskipa er talsvert lakari en landvinnslunnar.

Ekki útséð um niðurskurð hjá Stígamótum

Nýjum málum fækkaði um 15 prósent árið 2009 hjá Stígamótum í fyrra, samkvæmt ársskýrslu. Efnahagsástandið kann að hafa áhrif. Dómstólar leggja of mikla áherslu á líkamlega áverka í nauðgunarmálum, segir talskona Stígamóta.

Gleymdu að fá leyfi í friðlandi

„Þetta var einfaldlega yfirsjón af okkar hálfu,“ segir Magnús Jóhannsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Norðvesturlandi, um framkvæmdir án leyfis í friðlandi í Vatnsfirði.

Konur boða verkfall í þriðja sinn

Mánudaginn 25. október hefur kvennahreyfingin öll boðað til endurtekningar á kvennafríi. „Þetta verður hápunkturinn á afmælishátíð okkar,“ sagði Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, þegar hún upplýsti um fyrirætlanina á kynningu á ársskýrslu Stígamóta.

Óskilalampar til Ríkiskaupa

Þeir gróðurhúsalampar sem lögregla hefur lagt hald á þegar kannabisræktanir eru stöðvaðar fara til Ríkiskaupa, eftir að hafa verið gerðir upptækir með dómi. Þar eru þeir seldir eins og aðrir óskilamunir. Andvirðið rennur í ríkissjóð.

Vill nota veiðikvóta til kolefnisjöfnunar

Hvalveiðar hafa losað gríðarlegt magn gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið í gegnum tíðina, þar sem mikið magn kolefnis er geymt í líkama svo stórra dýra. Þetta kom fram á ráðstefnu haffræðinga í Bandaríkjunum nýverið.

Ungt fólk fari ekki í ljósabekki

Landlæknisembættið hefur hafið átak þar sem fermingarbörnum og forráðamönnum þeirra er bent á hættuna sem fylgir því að ungt fólk fari í ljósabekki.

Öll málin berast saksóknara í einu

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, á ekki von á sligandi álagi á starfsmenn sína þegar rannsóknarnefnd Alþingis sendir saksóknara á næstunni yfirlit yfir alla þá gjörninga í aðdraganda bankahrunsins sem nefndin telur hafa verið refsiverða.

Lögreglan nýtur mests trausts

Lögreglan mælist nú með mest traust meðal þjóðarinnar, samkvæmt nýrri mælingu Þjóðarpúls Gallups sem tekur til fjórtán stofnana og embætta. Rúmlega 81 prósent segist nú bera mikið traust til lögreglunnar. Háskóli Íslands sem lengst af hefur verið sú stofnun sem notið hefur mests trausts kemur þar á eftir en 76 prósent bera mikið traust til hans.

Sjá næstu 50 fréttir