Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Annar maður féll í jökulsprungu á Langjökli Lögreglan á Selfossi barst tilkynning á þriðjudag í síðustu viku um vélsleðaslys austan til á Langjökli en þá féll maður ofan í sprungu og handleggsbrotnaði. 1.2.2010 15:23
Ríkissaksóknari kærir meiðyrði gegn SS Ríkissaksóknari hefur ákært fyrrverandi starfsmann Sláturfélags Suðurlands (SS) fyrir meiðyrði og rógsherferð gegn SS og verður málið tekið fyrir á næsta miðvikudag í Héraðsdómi Reykjavíkur. 1.2.2010 14:34
Lést á Langjökli Konan sem lést eftir að hafa fallið ofan í jökulsprungu á Langjökli um helgina hét Halldóra Benediktsdóttir. Hún var fædd 8. október 1964 og til heimilis að Brekkubyggð 28, Garðabæ. 1.2.2010 14:12
Vill að heilbrigðisnefnd Alþingis fundi með landlækni Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fer fram á fund í heilbrigðisnefnd vegna framkvæmdar fjárlaga. 1.2.2010 13:59
Unglingur handtekinn fyrir að stela upplýsingum um Eið Smára Karlmaður á tvítugsaldri var handtekinn og yfirheyrður í síðustu viku vegna gruns um að hafa stolið trúnaðargögnum frá lögfræðingi Karls Wernessonar, eiganda Milestone ehf., og Eiðs Smára Guðjohnsen. Pilturinn á að hafa selt þær fjölmiðlum samkvæmt heimildum Vísis. Yfirlögregluþjónninn Friðrik Smári Björgvinsson staðfestir að mál af þessum toga sé til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 1.2.2010 13:52
Skipar vinnuhóp til að fjalla um veggjöld Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur skipað vinnuhóp til þess að fjalla um veggjöld. Tilgangurinn er að reifa hugmyndir og ábendingar um hvaðeina sem tengist fjármögnun samgönguframkvæmda til frambúðar. 1.2.2010 13:06
Ákærður fyrir vopnalagabrot og að hóta lögreglumanni Þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa haft í eigu sinni táragasbrúsa og í vörslum sínum stóran veiðihníf þann 7. janúar í fyrra. 1.2.2010 13:00
Sameining Lýðheilsustofnunar og Landlæknis gæti orðið til bóta Sameining Lýðheilsustofnunar og Landlæknisembættisins gæti orðið til mikilla hagsbóta og hagræðingar fyrir samfélagið. Þetta segir Geir Gunnlaugsson landlæknir. 1.2.2010 12:04
Strákunum okkar fagnað í Laugardalshöll Það verður fagnaðarfundur í Laugardalshöll klukkan hálfsex í dag, en þá verður tekið á móti íslenska handboltalandsliðinu sem kemur frá Austurríki. 1.2.2010 11:51
Búið að telja að nýju í Hafnarfirði Kjörnefnd hefur lokið við endurtalningu atkvæða í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði eins og boðað var. Niðurstaðan er óbreytt. 1.2.2010 11:43
Hnífamaður ógnaði lögreglunni Karlmaður vopnaður búrhníf var handtekinn af lögreglunni á Suðurnesjum á fimmta tímanum í nótt. Maðurinn reyndi að komast inn í hús á Hringbrautinni í Reykjanesbæ og lamdi það að utan með skiptilykli. Hann ógnaði síðan lögreglumanni sem hafði af honum afskipti. Maðurinn var nokkuð ölvaður og gistir nú fangageymslur lögreglunnar. Hann verður yfirheyrður á eftir en líklegast sleppt eftir það. 1.2.2010 10:46
Ár liðið frá myndun vinstri stjórnar Ár er liðið í dag síðan að fyrsta vinstri stjórn var mynduð á Íslandi með þátttöku Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. 1.2.2010 09:59
Glæpagengi lét greipar sópa um Akureyri Lögregluna á Akureyri grunar að glæpagengi hafi heimsótt bæinn á laugardagskvöldið, gagngert til að láta greipar sópa í bílum heimamanna. 1.2.2010 08:14
Stoðtækjaframleiðandinn Össur gefur vörur til Haítí Stoðtækjaframleiðandinn Össur ætlar að gefa vörur til jarðskjálftasvæðanna á Haítí, þar sem margir eiga um sárt að binda. Gefnar verða vörur sem læknar á Haítí telja sérstaklega þörf á, meðal annars gervilimir, en margir misstu útlimi í hamförunum. Staðið verður að þessu í samstarfi við Project Medishare samtökin, sem hafa aðgang að flugvellinum í Port au Prince.- 1.2.2010 08:09
Endurtalning atkvæða breytti engu Engin breyting varð á tveimur efstu sætum á lista sjálfstæðismanna í prófkjörinu Hafnarfirði, eftir endurtalningu atkvæða í gærkvöldi. Það var gert þar sem aðeins tvö atkvæði skildu að frambjóðendur í fyrsta og annað sæti, við fyrri talningu. Nýliðinn í bæjarstjórn, Valdimar Svavarsson mun því skipa fyrsta sætið og Rósa Guðbjartdóttir annað sætið,en hún hefur setið í bæjarstjórn allt þetta kjörtímabil.- 1.2.2010 07:32
Vill Guantanamo fangana til Íslands Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ætti að opna herstöð að nýju á Íslandi og koma þar fyrir föngum úr hinum illræmdu Guantanamo fangabúðum. Þetta segir David Hale, stjórnarformaður bandaríska fyrirtækisins, Global Economics, í grein sem birtist í Financial Times. 1.2.2010 07:25
Stórþjófur rændi verslanir Ríflega tvítugur maður hefur verið ákærður fyrir rán, fjölmörg innbrot, þjófnaði og fleiri brot. 1.2.2010 05:30
10 milljarðar í þróun og framkvæmd Rammasamningur milli Akureyrarbæjar og Strokks Energy ehf. var undirritaður á Akureyri í síðustu viku. Samningurinn kveður á um að koma á fót koltrefjaverksmiðju á Akureyri, fyrstu sinnar tegundar á landinu. Akureyrarbær leggur til lóð á Rangárvöllum við rætur Hlíðarfjalls, nálægt höfuðstöðvum Norðurorku. 1.2.2010 04:00
Vefþjónn nefndarinnar við öllu búinn Unnið hefur verið að því undanfarnar vikur að gera vef rannsóknarnefndar Alþingis viðbúinn miklu álagi sem búast má við að verði á honum þegar skýrsla nefndarinnar um bankahrunið verður gerð opinber. Sérstakur viðbúnaður tæknimanna verður fyrstu dagana eftir birtingu en vefurinn verður gæddur þeim eiginleikum að hægt verði að leita eftir efnisorðum, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. 1.2.2010 03:30
Tannheilsu íslenskra barna hrakar stöðugt Fyrsti dagur árlegrar tannverndarviku er í dag. Í ár verður sjónum sérstaklega beint að börnum. Ekki er vanþörf á því, en rannsóknir sýna að tannheilsa íslenskra barna er mun verri en annarra barna á Norðurlöndum. 1.2.2010 03:30
Reykjavík verði gerð að alvöru hjólaborg „Heildarmarkmið áætlunarinnar er að gera Reykjavík að framúrskarandi góðri hjólaborg,“ segir Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og formaður starfshóps um hjólreiðaáætlun sem samþykkt hefur verið í borgarstjórn. „Reykjavík hefur mjög margt til þess að bera að verða góð hjólaborg,“ segir Gísli sem bendir á til dæmis að borgin sé ekki mjög hæðótt, auðvelt sé að ferðast meðfram strönd hennar, götur séu tiltölulega breiðar sem gefi svigrúm til að bæta við hjólastígum og veðurfar sé gott fyrir hjólreiðafólk meirihluta ársins. 1.2.2010 03:00
Mikill skortur á dagforeldrum Leikskólasvið hefur beint tilmælum til þjónustumiðstöðva í 101, 105 og 107 Reykjavík, það er Vesturbæ, Miðbæ og Hlíðum, um að finna dagforeldra til starfa. 1.2.2010 02:30
Íslendingar á bótum sendir til síns heima Dæmi eru um að Íslendingum sem þiggja bætur í Danmörku hafi verið skipað úr landi. 1.2.2010 02:00
Mótmæla afnámi gjaldfrelsis Eldri borgarar í Kópavogi mótmæla harðlega þeirri ákvörðun sveitarfélagsins að afnema gjaldfrelsi eldri borgara í sundlaugar bæjarins. Hefur félag þeirra sent bæjarstjórn Kópavogs bréf þessa efnis. 1.2.2010 01:00
Jöklafræðingur varar eindregið við ferðum um sprungusvæði jökla Enginn ætti að vera á ferð um svæðið á Langjökli þar sem banaslysið varð í gær, segir Helgi Björnsson jöklafræðingur. Sjö ára sonur, konunnar sem lést, er ekki í lífshættu og verður útskrifaður af gjörgæslu nú í kvöld. 31.1.2010 19:45
Tukthúsklefar í kjallara Útvarpshússins Kristján L. Möller samgönguráðherra upplýsti á mótmælafundi á Egilsstöðum í gær að sú hugmynd hefði verið rædd í ríkisstjórn að taka Útvarpshúsið í Efstaleiti undir lögreglustöð, enda væri gott pláss fyrir tukthúsklefa í kjallaranum. 31.1.2010 19:04
Undirbúa virkjun Hvammsfjarðarrastar Stjórnvöld hafa gefið út fyrsta formlega leyfið til að undirbúa virkjun sjávarfalla við Ísland. Fyrirtækið Sjávarorka hefur fengið leyfi til að rannsaka þann möguleika að virkja Hvammsfjarðarröstina út af Stykkishólmi. 31.1.2010 19:23
Merki Eimskipafélagsins heldur áfram að valda misskilningi Gamla merki Eimskipafélags Ísland heldur áfram að valda misskilningi meðal erlendra ferðamanna . Starfsmenn Sjóminjasafnsins á Granda þurftu að setja upp sérstak blað þar sem merkið er útskýrt í íslensku samhengi. 31.1.2010 19:00
Mikilvægt að gera upp Íraksmálið Það er kominn tími á að við áttum okkur á því hvernig sú ákvörðun að lýsa yfir stuðningi við innrásina í Írak var tekin, hver tók hana, með hvaða hætti og af hverju. Þetta segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. 31.1.2010 18:56
Ráðherrar í stjórn Geirs hugsanlega kallaðir fyrir þingmannanefnd Ekki er útilokað að ráðherrar í ríkisstjórn Geirs H. Haarde verði kallaðir fyrir þingmannanefndina sem skoða á sérstaklega brot á lögum um ráðherraábyrgð í aðdraganda hrunsins. Fundirnir verða væntanlega í beinni útsendingu. 31.1.2010 18:35
Bronsið kærkomin upplyfting á erfiðum tímum Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sendi íslenska landsliðinu í handbolta heillaóskaskeyti í dag. Þar þakkaði hún liðinu innilega fyrir frábæra skemmtun og drengilega baráttu. Árangurinn sé kærkomin upplyfting á erfiðum tímum í sögu þjóðarinnar. Í skeytinu kemur fram að ríkisstjórnin ætli að styrkja landsliðið til þátttöku á heimsmeistaramótinu á næsta ári um 10 milljónir króna. 31.1.2010 17:42
Forsetinn og Björgólfur Thor eitruð blanda Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og varaformaður fjáralaganefndar, segir Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, og Björgólf Thor Björgólfsson vera eitraða blöndu. 31.1.2010 16:18
Forsetahjónin meðal áhorfenda í Vín Íslensku forsetahjónin eru meðal áhorfenda á leik Íslands og Póllands um bronsverðlaunin á Evrópumótinu í handbolta sem fer fram í Vín í Austurríki. 31.1.2010 14:56
Drengurinn líklega útskrifaður af gjörgæslu í dag Drengurinn sem bjargaðist úr djúpri sprungu á Langjökli síðdegis í gær er ekki lífshættu. Hann verður líklega útskrifaður af gjörgæsludeild Landspítalans síðar í dag, að sögn vakthafandi læknis. Hann losnaði úr öndunarvél í morgun. 31.1.2010 14:45
Vilja rannsóknarnefnd um Íraksstríðið Steinunn Valdís Óskarsdóttir, varaformaður þingflokks Samfylkingarinnar, og Ögmundur Jónasson, þingmaður VG og fyrrverandi ráðherra, vilja að rannsóknarnefnd verði skipuð um aðdraganda þess að Íslandi lýsti yfir stuðningi við innrásina í Írak árið 2003. Munu þau leggja fram þingsályktunartillögu þess efnis á Alþingi eftir helgi. 31.1.2010 14:17
Endurtalið í Hafnarfirði Atkvæði í prófkjörum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði verða endurtalin þar sem fáum atkvæðum munaði milli manna. Tveimur atkvæðum munaði til að mynda á efstu mönnum í prófkjöri sjálfstæðismanna. 31.1.2010 13:46
Leituðu línubáts Fyrir hádegi í dag hvarf 12 tonna línubátur úr fjareftirlitskerfi Landhelgisgæslunnar. Var báturinn síðast staddur um 18 sjómílur norðvestan af Garðskaga. 31.1.2010 12:34
Lögregla athugar ólöglegar arðgreiðslur þingmanns Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur nú ólöglega arðgreiðslu sem Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, greiddi sér út úr útgerðarfélaginu Nesveri til athugunar. 31.1.2010 12:31
Drengurinn ekki lengur í öndunarvél Drengurinn sem bjargaðist úr hyldjúpri sprungu á Langjökli síðdegis í gær er laus úr öndunarvél. Að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans er drengurinn vakandi og líðan hans eftir atvikum góð. 31.1.2010 12:19
Skurðstofum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja verður lokað Skurðstofum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í Reykjanesbæ verður lokað þann 1. maí næstkomandi samkvæmt uppsagnarbréfi til starfsmanna á skurðstofum. Þetta kemur fram á fréttvef Víkurfrétta. 31.1.2010 12:15
Langjökull krosssprunginn á slysstaðnum Sjö ára drengur liggur nú á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi eftir að hann bjargaðist úr hyldjúpri sprungu á Langjökli síðdegis í gær. Móðir hans var látin þegar hún náðist upp úr sprungunni. 31.1.2010 12:11
Opið í Hlíðarfjalli og á Siglufirði Fínt skíðafæri er nú sagt í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar og nægur snjór, enda allar snjóvélar keyrðar á fullu, að sögn ráðamanna þar. Þar var sjö stiga frost í morgun og lítilsháttar gola og það verður opið í Hlíðarfjalli til klukkan fjögur í dag. Skíðasvæðið á Siglufirði verður einnig opið í dag til klukkan fjögur. Þar er sagt logn og heiðskírt og 5 stiga frost, og færið er einnig sagt mjög gott, troðinn þurr snjór. 31.1.2010 11:51
Sigrún Elsa: Útkoman ekki sú sem stefnt var að Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir útkomu sína í prófkjöri sú sem að var stefnt. Hún sóttist eftir öðru sætinu ásamt tveimur borgarfulltrúum og einum varaborgarfulltrúa en hafnaði í sjöunda sæti. Sigrún Elsa var varaborgarfulltrúi á árunum 1998 til 2007 þegar hún tók sæti í borgarstjórn sem aðalmaður þegar Steinunn Valdís Óskarsdóttir var kjörin á þing. 31.1.2010 11:15
Bræla hamlaði loðnuveiðum Bræla á loðnumiðunum út af Austfjörðum kom í veg fyrir að skipverjar á Vilhelm Þorsteinssyni gætu veitt eins og þá langaði í gærkvöldi. Þeir köstuðu þó einu sinni og fengu 50 tonn, að sögn Kristjáns Vilhelmssonar, útgerðarstjóra Samherja. Menn búast þó að veðrið gangi niður í dag. Fleiri skip eru nú að tygja sig til loðnuveiða, þannig er Hornafjarðarbáturinn Jóna Eðvalds nú á leið á miðin. 31.1.2010 10:27
Íslendingur sigraði á stærsta snjóbrettamóti heims Halldór Helgason, 18 ára gamall Akureyringur, sigraði snjóbrettakeppni á stærsta íþróttamóti heims þar sem keppt er í jaðaríþróttum og fer fram um helgina í Aspen í Colorado. Síðar í dag keppir hann til úrslita í annarri grein á mótinu. Á föstudaginn var hann valinn nýliði ársins á ráðstefnu tveggja stærstu snjóbrettablaðanna í Bandaríkjunum sem fór fram í Denver í Colorado. 31.1.2010 10:21