Fleiri fréttir

Samherji bætir skipi í flotann

Onward Fishing Company, dótturfélag Samherja í Bretlandi, hefur fest kaup á rækjutogaranum Fríðborg frá Færeyjum. Skipið er ísstyrkt og sérútbúið til rækjuveiða.

Tækifæri falin í veiði frá strönd

Bæjarblaðið Jökull í Snæfellsbæ segir kynningarfund um strandstangveiði sem haldinn var í bænum fyrr í mánuðinum hafa leitt í ljós mikinn áhuga á þessu máli.

Telur vegið að jafnræði landsmanna

Bæjarstjórn Hveragerðis kveðst hafa miklar áhyggjur af 130 milljóna króna viðbótarniðurskurði á framlögum til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.

Sjúkdómar eru oftast ástæðan

Helsti orsakavaldur affalla á eldisþorski í sjókvíum eru sjúkdómar af ýmsum toga. Þetta er niðurstaða verkefnis hjá AVS rannsóknasjóði í sjávarútvegi á afföllum í kvíum hjá Hraðfrystihúsinu Gunnvöru hf., sem er með eldi í Álftafirði við Ísafjarðardjúp, og hjá HB Granda hf. í Berufirði.

Hefur ekki kært niðurstöðu skólans

Lögfræðingur sem uppvís varð að ritstuldi í meistararitgerð sinni er enn sagður hafa lokið meistaranámi við Háskólann á Bifröst á vef fyrirtækis hans þrátt fyrir að háskólinn hafi fellt meistaragráðuna úr gildi í janúar.

Verðtryggingin dýrari til lengri tíma

Myntkörfulán kunna til lengri tíma séð að vera hagstæðari en þau verðtryggðu, þrátt fyrir gengishrunið sem hófst fyrri hluta árs 2008. Fólk ætti því að hugsa sig vel um áður en það skuldbreytir slíkum lánum. Einnig gæti það verið fólki bjarnargreiði ef dómstólar breyta þeim yfir í verðtryggð lán, í ljósi hugsanlegs ólögmætis gengistryggingar.

Sibert furðar sig á Sigmundi

Anne Sibert, hagfræðiprófessor og fulltrúi í peningastefnunefnd Seðlabankans, undrast hörð viðbrögð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, við skrifum hennar um Icesave í evrópsku vefriti. RÚV greindi frá.

Ragnheiður íhugar enn

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, íhugar enn hvort hún upplýsi um prófkjörskostnað sinn og þá sem styrktu hana fyrir prófkjör vegna alþingiskosninga 2007.

Stál í stál vegna launakröfu

Flugvirkjafélag Íslands hefur boðað verkfall frá og með mánudeginum sem mun hafa áhrif á ferðir tuttugu þúsund farþega ef af verður. Samningaviðræður standa yfir en flugfélagið treystir sér ekki til að verða við kröfu flugvirkja um 25 prósent launahækkun.

Hyggjast sitja frítt í nefndinni

„Núverandi nefndarmenn afsala sér launagreiðslum vegna fundasetu í tónlistarskólanefnd frá og með 46. fundi og út kjörtímabilið,“ segir í bókun Karólínu Eiríksdóttur, Hjördísar Árnadóttur, Ingibjargar Guðjónsdóttur, Skarphéðins Jónssonar og Sveinbjargar Vilhjálmsdóttur sem öll sitja í tónlistarskóla Álftaness.

Vímuð kona með barn í bíl

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í bílskúr í Hafnarfirði í gær. Við húsleit var lagt hald á tíu kannabisplöntur og ýmsan búnað sem tengdist starfseminni. Karlmaður um fertugt var handtekinn. Hann játaði aðild sína að málinu.

Úrskurður kemur í næstu viku

Kjararáð mun birta úrskurð sinn um laun forstjóra ríkisstofnana í næstu viku, líklega um miðja viku, segir Guðrún Zoëga, formaður kjararáðs. Samkvæmt lögum sem samþykkt voru á Alþingi síðasta sumar mega ríkisstarfsmenn ekki hafa hærri laun en forsætisráðherra, sem hefur um 935 þúsund krónur í mánaðarlaun.

Verðlaun fyrir bestu söguna

Rún Kristinsdóttir bar sigur úr býtum í verðlaunasamkeppninni Reyklaus 2009 sem fram fór á vegum Lýðheilsustöðvar og Reyksímans í annað sinn. Valið var úr innsendum reynslusögum fólks sem hætti að reykja á fyrri hluta árs 2009.

Óvíst með endurskoðun spár

Ekki hefur verið ákveðið hvort þjóðhagsspá Hagstofu Íslands verður endurskoðuð, eða hvort beðið verður nýrrar spár sem gefin verður út um miðjan maí.

Bretar opnir fyrir nýjum samningum

Þokast hefur í átt til nýrra samnninga um Icesave. Bresk stjórnvöld munu, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, vera reiðubúin til að semja upp á nýtt um ýmsa þætti samkomulagsins.

Fjórhjólamaður ók á keðju

Fjórhjólaslys varð á sjötta tímanum í dag við rætur Esjunnar við Esjuberg. Svo virðist sem ökumaður fjórhjólsins hafi ekið á keðju sem var strengd yfir veg.

Smáhundur í óskilum

Smáhundur fannst við Granaskjól en lögreglan á höfuðborgasvæðinu lýsir eftir eiganda hans. Kannist viðkomandi við hundinn þá er hægt að hafa samband við lögregluna á Hverfisgötunni í síma: 444-1104

Meiri líkur en minni á nýjum Icesave-viðræðum

Meiri líkur en minni eru taldar á því að Bretar og Hollendingar fallist á nýjar Icesave viðræður. Fjármálaráðherra segir að hlutirnir þokist í rétt átt og segist vera hóflega bjartsýnn.

Ingunn vel hlaðin með fyrstu loðnuna til Akraness

Menn bíða þess nú spenntir hvort loðnukvótinn verði aukinn á næstu dögum. Tugmilljarða verðmæti eru í húfi. Þessa stundina er verið að landa fyrstu loðnunni á þessari vertíð á Akranesi.

Var handtekin á leiðinni með börnin í öskudagsgleði

Fjögurra barna einstæð móðir var handtekin fyrir utan Kringluna í morgun þar sem hún var að fylgja börnum sínum á Öskudagsgleði. Hún hafði ekki sinnt boðun sýslumanns um fjárnám. Hún neyddist til að skilja tvær dætur sínar sínar, sjö og tólf ára, eftir, þar sem lögregla flutti hana á brott með valdi.

Pólstjörnufangi í flugnámi

Pólstjörnufanginn Guðbjarni Traustason stundar flugnám í fangelsinu á Litla Hrauni þessi misserin, samkvæmt heimildum Vísis. Guðbjarni var einn þeirra sem var dæmdur í fangelsi fyrir smygl á 100 kílóum af fíkniefnum í Pólstjörnumálinu svokallaða á haustmánuðum árið 2007. Heimildir Vísis herma að um bóklega hluta flugnámsins sé að ræða, en ekki eiginlega flugtíma.

Slagsmál á Útvarpi Sögu: Þingmenn gengu á milli

Ráðist var á útvarpsmanninn Guðmund Franklín Jónsson í húsakynnum Útvarps Sögu í dag. Guðmundur var nýkominn úr hljóðveri þar sem hann hafði stýrt þætti um sjávarútvegsmál. Sá sem réðst á hann heitir Eiríkur Stefánsson og er fyrrverandi formaður verkalýðsfélagsins á Fákskrúðsfirði

Velferðakerfið þolir ekki meira

Formaður BSRB, Elín Björg Jónsdóttir, segir frekari niðurskurð á velferðarkerfinu geta valdið varanlegu tjóni. Gylfi Arnbjörnsson, forseti AsÍ, segir ríkisstjórnina nú þegar hafa fullnýtt heimild sína til skattahækkana samkvæmt stöðugleikasáttmálanum og því sé eingöngu hægt að skera niður í ríkisútgjöldum.

Ætlaði að greiða fyrir gistingu með stolnu greiðslukorti

Kona á þrítugsaldri var handtekin fyrir fjársvik á gististað á höfuðborgarsvæðinu í gær. Hún notaði stolið greiðslukort til að borga fyrir gistinguna. Í herbergi konunnar fundust einnig munir sem hún gat ekki gert grein fyrir.

Játaði kannabisræktun

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í bílskúr í Hafnarfirði í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 10 kannabisplöntur og ýmsan búnað sem tengdist starfseminni. Karl um fertugt var færður á lögreglustöð i tengslum við rannsókn málsins og hefur hann játað aðild sína að málinu, að fram kemur á vef lögreglunnar.

Þingmaður segir Alþingi ekki gæta almannahagsmuna

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segir að Alþingi sinni ekki hlutverki sínu og gæti ekki almannahagsmuna. Enn hafi ekki verið gerðar úttektir á ákveðnum stofnunum sem brugðust í aðdraganda bankahrunsins.

Stjórnendur fái ekki fyrirtækin á silfurfati

Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýndi vinnubrögð bankanna á Alþingi í dag og sagði ótækt að stjórnendur stórfyrirtækja sem hafi keyrt þau í þrot geti fengið sömu fyrirtæki á silfurfati. Bankarnir virðist einungis vilja hámarka arðsemi sína til skemmri tíma.

Erpur tjáir sig ekki vegna rannsóknarhagsmuna

Erpur Eyvindarson rappari segist vera búinn að gefa skýrslu til lögreglu um árásina sem hann varð fyrir á mánudaginn. Hann segist ekki geta tjáð sig um árásina að svo stöddu vegna þess að rannsóknin sé enn í fullum gangi. „Þetta er viðkvæmt mál," segir Erpur. Hann útilokar þó ekki að hann muni tjá sig síðar.

Framapotarar í meirihluta með Vöku og Röskvu

Skiptafundur Stúdentaráðs Háskóla Íslands fór fram í gær síða. Á fundinum tók til starfa ný samvinnustjórn sem byggir á samvinnu Vöku, Röskvu og Skrövku innan ráðsins. Vökuliðinn Jens Fjalar Skaptason tók á sama tíma við af Hildi Björnsdóttur sem formaður ráðsins.

Ögmundur: Gleðin er innan viðráðanlegra marka

Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, segist aldrei hafa verið andvígari inngöngu Íslands að Evrópusambandinu en núna. Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, spurði Ögmund á Alþingi í dag hvort hann deili gleði forsætisráðherra vegna frétta af ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB að mæla með aðildarviðræðum við Ísland. Ögmundur sagði að gleði sín væri innan viðráðanlegra marka.

Uppruni lagstúfsins fundinn

Fréttastofa leitaði í gær að uppruna lagstúfsins "saltkjöt og baunir túkall." Þjóðháttafræðingar og starfsmenn þjóðminjasafnsins hvorki skýringar á aldri þessa orðasambands né á því hvernig túkallinn komst inn í borðhaldið. Ómar Ragnarsson elsta hljóðritaða dæmið vera frá miðri öld. Karen Kjartansdóttir reyndi að leysa gátuna.

Erfitt fyrir Breta og Hollendinga að hafna tilboði Íslendinga

Engin fundur hefur verið boðaður milli samninganefndar Íslands og Breta og Hollendinga í dag. Gert er hins vegar ráð fyrir frekari viðræðum á næstu dögum. Formaður Framsóknarflokksins segir að erfitt verði fyrir Breta og Hollendinga að hafna tilboði Íslendinga.

Ákærður fyrir að berja mann með grjóthnullungi

Karlmaður á 22. aldursári hefur verið ákærður fyrir berja annan mann ítrekað með grjóthnullungi í bak, á hnakka og í andlit á Ísafirði þann 1. ágúst í fyrra. Sá sem varð fyrir árásinni vankaðist, hlaut skurð á enni og frekari meiðsl.

Erlendar hótelkeðjur sýna Austurhöfn áhuga

Höskuldur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Situsar systurfélags Portusar, sem heldur utan um rekstarfélag hótels við tónlistarhúsið við Austurhöfnina, segir að fjölmargar erlendar hótelkeðjur sýni rekstri hótels við tónnlistarhúsið áhuga. Stefnt er að því að þar rísi 250 herbergja hótel árið 2013.

Hætta að dreifa klámi

Vodafone hefur ákveðið að hætta dreifingu og sölu á öllu erótísku efni í gegnum vefgátt fyrir farsíma. Sömuleiðis verður hætt að bjóða slíkt efni á Leigunni, sem er stafræn leiga á myndefni fyrir sjónvarp.

Haldið upp á öskudaginn

Það hefur eflaust ekki farið framhjá mörgum að í dag er öskudagur. Af því tilefni hafa eflaust margir, ungir sem aldnir, brugðið sér í margvísleg skemmtileg gervi. Þessir hressu strákar urðu á vegi myndatökumanna 365 í morgun.

Icelandair harmar verkfallsboðun flugvirkja

Icelandair harmar þá ákvörðun Flugvirkjafélags Íslands að boða til verkfalls dagana 22.-28. febrúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair sendi fjölmiðlum. Segir hann að verkfallið geti valdið viðskiptavinum, íslenskri ferðaþjónustu og atvinnulífi miklu tjóni.

Brýnt að breyta innkaupareglum Kópavogs

Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, segir brýnt að breyta innkaupareglum bæjarfélagsins. Hún hefur lagt fram tillögu í bæjarráði sem gerir ráð fyrir að útboð verði viðhaft vegna verklegra framkvæmda umfram 10 milljónir. Viðmiðið í dag er 20 milljónir.

Krefur lögreglustjóra um skýringar á dópleit

Róbert Spanó, umboðsmaður Alþingis, hefur skrifað Stefáni Eiríkssyni, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, bréf þar sem hann krefur hann um svör vegna aðgerða lögreglu í Tækniskólanum á Skólavörðuholti í síðustu viku.

Sprengjugengi HÍ með háskasýningar í Háskólabíó

Djarfur hópur efnafræðinema við Háskóla Íslands, sem gengur undir nafninu Sprengjugengið, verður með tvær háskasýningar í Háskólabíó næstkomandi laugardag. Fyrri sýningin er klukkan 13 og sú seinni klukkustund síðar.

Sjá næstu 50 fréttir