Fleiri fréttir

Þúsundir fara í golf á ferðalagi

Golfiðkun ferðafólks skiptir golfklúbba miklu máli um allt land. Ný könnun Ferðamálastofu bendir til að klúbbarnir hafi tugmilljónir í tekjur af þeim sem stunda golf á ferðalagi.

Nú viðurkennt vísindatímarit

Tímaritið Icelandic Agri­cultural Sciences, sem Veiðimálastofnun ásamt fleiri íslenskum stofnunum stendur að, er komið á ISI- gagnagrunninn sem er sá viðurkenndasti í heimi vísindanna. Þar með er ritið staðfest sem fyrsta flokks alþjóðlegt vísindarit.

Ekki sé reiknað með lóðasölu

Marteinn Magnússon, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ, gagnrýnir að meirihluti sjálfstæðismanna og Vinstri grænna geri ráð fyrir 450 milljóna króna tekjum af lóðasölu á þremur árum.

Töluvert minni afli en í fyrra

Fiskafli íslenskra skipa nam 55.445 tonnum í janúar samanborið við 71.520 tonn í sama mánuði í fyrra, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Botnfiskafli dróst saman um rúm 1.700 tonn og nam 31.300 tonnum. Þar af nam þorskaflinn rúmum 17.400 tonnum, sem er aukning um 1.700 tonn frá fyrra ári.

Niðurstaða forvals VG staðfest

Niðurstaða forvals VG í Reykjavík, sem kynnt var á dögunum, hefur verið staðfest, eftir að utankjörfundaratkvæði voru endurtalin.

Ekki bankakerfisins að refsa

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir mikilvægt að reglur réttarríkisins séu hafðar í heiðri við endurreisn fyrirtækja. Það sé dómskerfisins að refsa mönnum hafi þeir brotið lög en ekki bankakerfisins.

Ramos áfram í gæsluvarðhaldi

Gæsluvarðhald yfir brasilíska lýtalækninum Hosmany Ramos var framlengt um tvær vikur í héraðsdómi í gær.

Fundaði með sendiherrum

Þrír nýir sendiherrar afhentu Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, trúnaðarbréf sín í gær.

Dregur mjög úr akstri lögreglu

Rúmlega 160 ökutækjum lögreglunnar var ekið um 600 þúsund kílómetrum minna á árinu 2009 en árið áður, samkvæmt upplýsingum frá starfshópi ríkislögreglustjóra, sem hefur eftirlit með tækjum og búnaði lögreglunnar. Í fyrra voru eknir kílómetrar 4.521.354 talsins sem er um 12 prósent minni akstur en á árinu 2008.

Fjórðungi færri skipta um bíl

Ríflega fjórðungi færri eigendaskipti urðu á ökutækjum fyrstu 45 daga ársins en á sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýsingum Umferðarstofu. Í ár urðu eigendaskipti á 6.861 ökutæki, samanborið við 9.247 í fyrra. Munurinn er 25,8 prósent.

Beittu kylfu og járnkeðju

Fjórir karlmenn eru nú fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, ákærðir fyrir hrottalega líkamsárás.

Félag gegn fyrningarleið

Eyverjar, félag ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, vinna nú að stofnun félags til höfuðs stefnu ríkisstjórnarinnar um fyrningu aflaheimilda. Er félagsskapurinn hugsaður sem framhald af þeim hópi sem kom saman á ráðstefnu í Eyjum fyrir stuttu undir nafninu Fyrnum fyrningarleiðina.

Árni Johnsen búinn að skila

Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefur skilað Ríkisendurskoðun yfirlýsingu um að kostnaður hans vegna prófkjörs fyrir síðustu kosningar hafi verið undir 300.000 krónum.

Voru úrkula vonar

Mæðginin Beata og Jeremy Scott voru búin að gefa upp alla von um að finnast á lífi þegar björgunarsveitarmenn römbuðu fram á þau á Langjökli. Þau áfellast ferðaþjónustufyrirtækið en geta vart orðað þakklætið í garð björgunarmanna.

Halldór Jónsson: Þegar skamma á Moskvu verður Albanía fyrir valinu

Verkfræðingurinn Halldór Jónsson svarar ásökunum eigin flokksmanna um óeðlileg viðskipti fyrirtækis á hans vegum við Kópavogsbæ í pistli á bloggi sínu í dag. Þar lætur hann að því liggja að árásir á hann séu í raun pólitískar árásir á Gunnar Birgisson, fyrrum bæjarstjóra Kópavogs, en hann sækist eftir fyrsta sætinu í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kópavogi.

Skoska konan sá björgunarþyrluna sveima yfir sér

Skoska konan sem týndist á Langjökli ásamt ellefu ára syni sínum hátt í átta tíma segist margsinnis hafa séð þyrlu Landhelgisgæslunnar sveima yfir þeim mæðginum en sökum blindbyls sást ekki til þeirra.

Flóttamenn leita á náðir mæðrastyrksnefndar

Flóttamenn frá Kólumbíu og Palestínu sem komu hingað til lands á vegum íslenska ríkisins fyrir fáum árum hafa þurft að leita á náðir Mæðrastyrksnefndar og fjárhagslegar aðstæður þeirra eru bágar eftir hrunið. Formaður Flóttamannanefndar segir það slæm tíðindi en engu að síður sé það mannúðarverk að taka á móti fólki frá Haítí.

Á sterum með haglabyssuna á lofti

Birkir Arnar Jónsson sem dæmdur var í sex ára fangelsi í dag ætlaði að hræða mann sem kærasta hans hafði kært fyrir kynferðisbrot. Birkir var á sterum og undir áhrifum áfengis þegar hann skaut sex haglabyssuskotum í átt að fyrrum vinnuveitanda kærustunnar.

Össur ræddi við Carl Bildt

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund með Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, í Stokkhólmi samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Braut gróflega gegn reynslulausn

Síbrotamaður var í dag dæmdur í Hæstarétti Íslands til þess að afplána 540 daga eftirstöðvar fangelsisrefsingar sem hann hlaut í Héraðsdómi Reykjavíkur í janúar og september árið 2008.

Lét dólgslega með hníf

Sjö líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina. Fjórar þeirra áttu sér stað í miðborginni aðfaranætur laugardags og sunnudags en þær voru allar minniháttar.

Kynna Ísland fyrir kínverskum ferðamönnum

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra ætlar til Kína ásamt viðskiptasendinefnd ferðaþjónustufyrirtækja til Kína um miðjan júní. Tilgangurinn er að kynna Ísland sem vænlegan áfangastað fyrir kínverska ferðamenn. Ferðin er farin í tengslum við Heimssýninguna Expo 2010. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra mun leiða sendinefndina.

Framkvæmdastjórn ESB mun mæla með aðildarviðræðum við Ísland

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun á fundi sínum þann 24. febrúar næstkomandi mæla með því að hafnar verði aðildarviðræður við Íslendinga. Þetta hefur Reuters fréttastofan eftir ónafngreindum heimildarmönnum. Í fréttinni kemur fram að stjórnvöld á Íslandi hafi sagt að búist væri við að það tæki um 12 - 24 mánuði að ljúka viðræðum.

Við erum komin að þolmörkum velferðarkerfisins, segir Jóhanna

Fjárlagagerð næsta árs mun taka gríðarlega á ekki síst vegna þess að við erum komin að þolmörkum þess sem velferðarkerfið þolir, sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í umræðum um stöðu efnahagsmála á Alþingi í dag.

Áfram unnið að sameiningu ráðuneyta

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að enn sé unnið að sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins í eitt atvinnuvegaráðuneyti. Hún segist gera sér grein fyrir andstöðu við fyrirhugaða sameiningu meðal hluta Vinstri grænna.

Fundi lokið – Engin ákvörðun um nýja samninga

Fundi íslensku Icesave samninganefndarinnar við Breta og Hollendinga er lokið. Fundurinn var gagnlegur, segir Elías Jón Guðjónsson, upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins, og stendur til að halda viðræðum áfram. Hins vegar hafi Bretar og Hollendingar ekki fallist á að taka upp að nýju samningaviðræður um Icesave.

Sex ára fangelsi fyrir skotárás í Þverárseli

Birkir Arnar Jónsson, 23 ára gamall Reykvíkingur, var dæmdur í sex ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir tilraun til manndráps aðfararnótt sunnudagsins 15. nóvember síðastliðinn.

Stofnfundur Lista Grindvíkinga

Stofnfundur Lista Grindvíkinga verður annað kvöld, miðvikudaginn 17.febrúar, á Sjómannastofunni Vör. Að stofnuninni stendur breiður hópur fólks sem vill vinna faglega og lýðræðislega að málefnum bæjarins, að fram kemur í tilkynningu.

Nýi hluti gjörgæsludeildar opnaður formlega

Viðbygging gjörgæsludeildar á Landspítala Hringbraut verður formlega tekin í notkun á morgun klukkan þrjú. Í fréttatilkynningu frá Landspítalanum segir að gjörgæsludeildin við Hringbraut sé í „gamla spítala"

Jóhanna ætlar ekki að víkja Anne

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ætlar ekki að víkja breska hagfræðingnum Anne Sibert úr peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands vegna greinar sem hún skrifaði nýverið á vefritið VoxEu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, spurði Jóhönnu út í málið við upphaf þingfundar í dag. Hann sagði að umrædd grein gangi út að Ísland sé ekki of lítið til að borga allar kröfur Breta og Hollendinga í Icesavedeilunni.

Mun færri bílar nýskráðir

Um 29% færri ökutæki voru nýskráð á tímabilinu 1. janúar til 15 febrúar í ár, miðað við sama tímabil í fyrra. Alls voru 316 ökutæki nýskráð í ár en 444 í fyrra, samkvæmt tölum frá Umferðarstofu.

Þýskt herskip til sýnis almenningi

Stórt þýskt herskip liggur nú í Reykjavíkurhöfn. Þetta er freigátan Meckelnburg-Vorpommern sem kom í kurteisisheimsókn í gær og mun liggja við Miðbakka fram á föstudagsmorgun. Herskipið er opið almenningi til sýnis næstu þrjá daga milli klukkan tvo og fjögur, í dag, á morgun og á fimmtudag. Freigátan er sérstaklega smíðuð til kafbátahernaðar en einnig til loftvarna. Í áhöfn eru 199 manns en auk þess er 19 manna flugáhöfn. Freigátan var smiðuð í Bremen árið 1996 og er 6.275 tonn að stærð. Lengd skipsins er 140 metrar og breidd 16,7 metrar en það ristir 6,8 metra. Meckelnburg-Vorpommern gengur mest 29 hnúta.

Þrjátíu börn fengu ókeypis tannlæknaþjónustu

Þrjátíu börn á aldrinum 6 til 18 ára frá efnalitlum fjölskyldum hafa undanfarið fengið ókeypis tannviðgerðir hjá tíu tannlæknum. Tannlæknarnir buðu börnunum þessa þjónustu í gegnum Fjölskylduhjálp Íslands.

Hæstiréttur er 90 ára í dag

Hæstiréttur Íslands er 90 ára í dag, en hann var stofnaður þann 16. febrúar árið 1920. Af því tilefni efnir Orator, félag laganema við Háskóla Íslands, til málþings. Á málþinginu mun Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra fjalla um frumvarp um dómstóla sem felur meðal annars í sér breytingar fyrirkomulagi við skipan hæstaréttardómara.

Viðskiptaleg rök fyrir lögleiðingu spilavíta

Samtök ferðaþjónustunnar sjá ekkert athugavert við lögleiðingu á starfsemi spilavíta hér á landi. Ferðamálastofa segir viðskiptaleg rök fyrir lögleiðingunni vissulega vera fyrir hendi. Mörgum spurningum er þó ósvarað.

Dvelur enn á Landsspítalanum

Skoska konan, sem bjargað var kaldri og hrakinni af Langjökli í fyrrinótt, dvelur enn á Landsspítalanum, en hún hlaut minniháttar kal á höndum. Samkvæmt heimildum fréttastofu dvelur hún þar til öryggis, á meðan hún er að jafna sig á miklu andlegu losti, sem hún varð fyrir.

Póstatkvæði í forvali VG endurtalin

Að lokinni endurtalningu þeirra atkvæða sem greidd voru bréflega í forvali Vinstri grænna í Reykjavík 6. febrúar er ljóst að niðurstöður talningar eru þær sömu og á kjördag. Þetta kemur fram á vef VG. Viðstaddir endurtalningu voru umboðsmenn frambjóðenda, fulltrúar stjórnar VGR sem framkvæmdu talninguna, auk þess sem fulltrúi forvalsstjórnar mætti til að gera skil á kjörgögnunum.

Löggan keyrir minna

163 ökutækjum lögreglu var ekið um 600 þúsund kílómetrum minna á árinu 2009 en árið áður. Þetta kemur fram í upplýsingum frá starfshópi ríkislögreglustjóra sem hefur eftirlit með tækjum og búnaði lögreglunnar. Í fyrra voru eknir rúmlega 4,5 milljónir kílómetra sem er um 12% minni akstur en á árinu 2008. Þá hefur tjónakostnaður sem fellur á lögregluna lækkað verulega milli ára, eða úr 13 milljónum árið 2008 í 5,4 milljónir á síðasta ári. Undir þennan lið falla öll tjón sem tryggingafélög bæta ekki.

Sjá næstu 50 fréttir