Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samþykktu frestun á nauðungarsölu Alþingi samþykkti í dag breytingar á lögum um nauðungarsölu. þannig að ákvörðun um nauðungarsölu á íbúðarhúsnæði verður ekki tekin fyrr en eftir þrjá mánuði. 25.2.2010 15:23
Eldur í bíl við Ásvallagötu Eldur kom upp í bifreið á Ásvallagötu rétt fyrir klukkan þrjú. Slökkviliðsbifreið og sjúkrabifreið eru á leiðinni á staðinn, en ekki er vitað hversu umfangsmikill eldurinn er eða hvort einhver hafi hlotið meiðsl af. 25.2.2010 15:04
Ríkisstjórnin úthlutar um 90 milljónum til dagskrárgerðar Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita 88,5 milljónum króna til innlendrar dagskrárgerðar fyrir hljóðvarp og sjónvarp. 25.2.2010 14:10
Fólk ferðist ekki að óþörfu á höfuðborgarsvæðinu í kvöld Það mun bæta í vind og því má búast við skafrenningi á höfuðborgarsvæðinu þegar líður á daginn og fram á kvöld, segir Elísabet Margeirsdóttir, veðurfréttamaður á 365 miðlum. 25.2.2010 13:54
Tafir á flugi frá landinu Eins til tveggja tíma seinkun hefur orðið á flugi frá landinu á Keflavíkurflugvelli í morgun sökum veðurs. Að sögn Friðþórs Eydal upplýsingafulltrúa flugvallarins stafar seinkunin af töfum við afísingu flugvéla en mikið hefur snjóað á Suðurnesjum það sem af er degi. 25.2.2010 13:27
Vill takmarka heimildir til að beita dráttarvöxtum Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill að heimildir lánadrottna til að beita dráttarvöxtum séu takmarkaðar. Þetta sagði Illugi í atkvæðagreiðslu eftir aðra umræðu um frumvarp um frestun á nauðungarsölum íbúða. 25.2.2010 13:25
Stjórnsýsla landbúnaðarráðuneytisins allt of veik að mati ESB Afnema verður tolla á landbúnaðarafurðum milli Íslands og aðildarríkja Evrópusambandsins gangi Ísland í sambandið og samræma tolla í viðskiptum við ríki utan sambandsins. Þá þarf að styrkja stjórnsýslu landbúnaðarráðuneytisins verulega sem er allt of veik að mati framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. 25.2.2010 13:16
Frjálshyggjan orsakavaldur hrunsins Meginorsök hrunsins er ekki að finna í aðgerðum eða aðgerðarleysi banka, eftirlitsaðila og stjórnvalda á Íslandi árið 2008. Þetta kemur fram í grein Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í nýjasta tímariti Máls og Menningar. Að hennar mati var það óheft frjálshyggja í tæpa tvo áratugi undir stjórn Sjálfstæðisflokks sem gerði það að verkum að Ísland var berskjaldað þegar alþjóðlega fjármálakreppan reið yfir. 25.2.2010 11:58
Undirbúningur atkvæðagreiðslunnar í fullum gangi Undirbúningur þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave er í fullum gangi, eftir því sem fram kom í umræðum á Alþingi í morgun. 25.2.2010 11:29
Sigurbjörg ráðin lektor Dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir hefur verið ráðin lektor í opinberri stefnumótun við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands frá og með 1. júlí 2010. 25.2.2010 11:25
Endurskoðar þjónustusamning ríkisins við RÚV Menntamálaráðherra hefur tekið til endurskoðunar þjónustusamning ríkisins við RÚV. Þetta kom fram í máli Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra á Alþingi í dag. 25.2.2010 11:21
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skipar heiðurssæti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri og utanríkisráðherra, skipar heiðurssæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Listinn var samþykktur á fundi Fulltrúaráðs Samfylkingarinnar á Grand Hótel í gærkvöld. 25.2.2010 11:06
Útilokað að hafa tvo karla efsta Ekki kemur til greina að hafa karla í tveimur efstu sætunum á lista Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ, að mati oddvita flokksins, Jónasar Sigurðssonar. 25.2.2010 10:45
Björgunarsveitamenn við störf fram eftir degi Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Vestmannaeyjum, Sandgerði og á Suðurnesjum hafa haft í nógu að snúast í morgun vegna snjókomu og ófærðar. 25.2.2010 10:06
Grunnskólanemum fækkar næstu árin Nemendur í grunnskólum á Íslandi voru 42.929 haustið 2009, auk þess sem 89 börn stunduðu nám í 5 ára bekk í 5 skólum. Grunnskólanemendum hefur fækkað um 582 frá síðastliðnu skólaári, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Nemur fækkunin um 1,3%. 25.2.2010 09:39
Leiðtogar Indverja og Pakistana hittast Leiðtogar Indlands og Pakistans hittast í dag á fundi til þess að ræða samskipti ríkjanna sem ávallt hafa verið stirð. 25.2.2010 09:31
Ökumenn í vandræðum á Suðurnesjum Lögreglan á Suðurnesjum þurfti í nótt að aðstoða þónokkra ökumenn á vanbúnum bílum, sem lent höfðu í vandræðum vegna snjóþyngsla, en töluvert hefur snjóað syðra í nótt og víða hefur skafið í skafla. 25.2.2010 09:21
Ráðherrar víki af Alþingi Gert er ráð fyrir að Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, mæli í dag fyrir frumvarpi þess efnis að ráðherrar víki sæti á Alþingi á meðan þeir gegna ráðherraembætti. 25.2.2010 09:00
Stórtækir þjófar á ferð á Nesjavöllum Lögreglan í Árnessýslu rannsakar nú innbrot í Hótel Ásbúð við Nesjavelli, sem uppgötvaðist í gær, en þar er ekki rekstur í vetur. Þaðan var stolið sófum, rúmum, stólum og borðum, svo það helsta sé nefnt, og er ekki vitað hverjir þar voru á ferð. 25.2.2010 07:21
Allt á kafi í snjó í Eyjum - skólahaldi aflýst Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út í Vestmannaeyjum undir morgun til að aðstoða vaktavinnufólk, sem sat fast í bíllum sínum vegna ófærðar. Öllu skólahaldi hefur verið aflýst í bænum í dag og segir lögreglan að kolófært sé víðast hvar. Fólki er því ráðlagt að halda sig heima verði því við komið. 25.2.2010 07:19
Fleygðu manni fram af svölum í Vogum Fimm menn á aldrinum 20 til 22 ára hafa verið ákærðir fyrir hrottalega árás á rúmlega þrítugan mann í Vogum á Vatnsleysuströnd fyrir ári. 25.2.2010 05:30
Litlir fjárfestar geta illa leitað réttar síns „Eftir að stjórn hlutafélags hefur verið skipuð á hinn einstaki hluthafi nánast enga möguleika á að hreyfa við einu eða neinu,“ segir Guðni Á. Haraldsson lögmaður og telur dæmi um að blokkir stærri eigenda fyrirtækja hafi farið offari í nokkrum tilvikum. „Þannig komu til dæmis upp svona blokkir og eyðilögðu stór félög á borð við Eimskipafélag Íslands og Icelandair.“ 25.2.2010 05:30
Stuðnings- og traustsyfirlýsing við Ísland „Mér finnst þetta jákvætt álit og í því felst viðurkenning á Íslandi sem samstarfsríki innan EFTA og EES og jafnframt á aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að endurreisa íslenskt efnahagslíf. Vissulega kemur fram að margt sé eftir en líka að við séum á réttri leið. Þess vegna finnst mér felast í þessu stuðnings- og traustsyfirlýsing við Ísland.“ Þetta segir Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel og aðalsamningamaður, um álit framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um aðildarumsókn Íslands. 25.2.2010 04:45
Segist ekki setja skattfé í einkaspítalann Tekist var á um yfirlýsingar Ögmundar Jónassonar, þingmanns VG, um væntanlegt einkasjúkrahús á gamla varnarsvæðinu á Alþingi í gær. Fram hefur komið að leggja þurfi eitt hundrað milljónir króna til að endurbyggja gamla hersjúkrahúsið á svæðinu. Hefur Ögmundur lýst því yfir að þeir peningar hljóti að koma úr vösum skattgreiðenda og það á sama tíma og skera þurfi niður í heilbrigðiskerfinu. 25.2.2010 04:30
Fara kettir og hundar í bann? Íbúar í Hrísey og Grímsey munu kjósa um bann við hunda- og kattahaldi samfara sveitarstjórnarkosningum í maí ef tillaga framkvæmdaráðs Akureyrar verður samþykkt af bæjarráði. 25.2.2010 04:30
Angraður með hávaða í átta ár Íbúi einn í Kópavogi segist ætla að leggja fram kæru vegna mikils ónæðis frá Sporthúsinu. „Í tæplega sjö ár hef ég kvartað undan þessu við bæjaryfirvöld, forráðamenn Sporthússins og lögreglu án árangurs og ekkert breytist. Ég get ekki hugsað mér að eyða enn einu sumrinu í garðinum undir látlausum drunum frá Sporthúsinu,“ segir í bréfi íbúans sem sent var undir yfirskriftinni„Endalaus hávaði“ og barst bæjaryfirvöldum í maí í fyrra. 25.2.2010 04:15
Sjálfstæðisflokkur á meiri eignir en áður Framlög lögaðila til Sjálfstæðisflokksins árið 2008 námu 8,6 milljónum króna, samkvæmt ársreikningi flokksins. Þessi framlög námu tæpum 57 milljónum árið 2007. Á sama tíma fóru eignir flokksins úr því að vera tæpar 462 milljónir og í rúmar 705 milljónir króna. Eigið fé flokksins fer úr 386,3 milljónum og í 662,7 milljónir, sem er aukning um 71 prósent. 25.2.2010 04:15
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 40 milljónir í styrki Fyrirtæki og einstaklingar styrktu Sjálfstæðisflokkinn um 40 milljónir árið 2008. Flokkurinn hefur birt á heimasíðu sinni samantekinn ársreikningur sinn og aðildarfélaga.Aðrir flokkar hafa birt sína ársreikninga. 24.2.2010 21:32
Flugumsjónamenn sömdu við Icelandair Stjórn og samningarnefnd Félags Flugumsjónarmanna á Íslandi samdi í dag við Icelandair um nýjan kjarasamning og gildir hann til 31. janúar 2011. Kjarasamningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki félagsmanna, segir Karl Friðriksson, formaður félagsins, í tilkynningu. 24.2.2010 23:02
Hollensk sendinefnd á leið til London Hollensk sendinefnd heldur til London á morgun til fundar við íslensku samninganefndina um Icesave. Þetta kemur fram á vef Reuters. Hluti íslensku samninganefndarinnar hélt til London í gær og hefur beðið þar reiðubúinn til að ganga á fund með Bretum og Hollendingum. 24.2.2010 20:49
Ragnheiður Elín: Ögmundur reynir að koma í veg fyrir atvinnusköpun Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, sem er að fullu í eigu ríkisins, ætlar að leggja 100 milljónir til endurbóta á gamla hersjúkrahúsinu að Ásbrú. 24.2.2010 22:00
Ikea-vaskur í lúxusíbúð Jóns Ásgeirs - leigjandi höfðar mál Leigjandi lúxusíbúðar Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Ingibjargar Pálmadóttur í New York hefur höfðað skaðabótamál gegn hjónunum vegna innréttinga sem þau létu setja upp í íbúðinni. Fjallað er um málið vef New York Daily News í kvöld og þar kemur fram að meðal þess sem umræðir sé ljótur eldhúsvaskur úr Ikea. 24.2.2010 21:50
Viðskiptaþvinganir gegn Ísrael ekki til skoðunar Í málefnum Ísraels og Palestínu hafa viðskiptaþvinganir á Ísrael ekki komið til alvarlegrar skoðunar, að minnsta kosti enn sem komið er. Þetta kemur fram í svari Össur Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, við fyrirspurn Önnu Pálu Sverrisdóttur, varaþingmanns Alþingis. Hann útilokar þó ekki að nýjum úrræðum verði beitt á næstu missirum. 24.2.2010 21:15
Reykjanesbær fær mest úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaða úthlutun framlaga til jöfnunar á tekjutapi einstakra sveitarfélaga á árinu 2010 vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti. Reykjanesbær fær hæsta framlagið. 24.2.2010 20:33
Einn heilbrigðisstarfsmaður sviptur starfsleyfi í fyrra Einn heilbrigðisstarfsmaður var sviptur starfsleyfi á árinu 2009, en það er alvarlegasta aðgerðin er sem gripið er til af hálfu heilbrigðisyfirvalda ef kærumál er staðfest. Auk þess var tveimur heilbrigðisstarfsmönnum veitt lögformleg áminning í framhaldi kvörtunarmáls og afrit sent til ráðherra eins og lög gera ráð fyrir. Þetta kemur fram í Talnabrunni, fréttabréfi landlæknis. Ekki kemur fram fyrir hvað starfsmaðurinn var sviptur starfsleyfi né hvar hann starfaði. 24.2.2010 20:15
Byssubardagar í Reykjavík fái Hells Angels að festa rætur Borgarstjórinn í Kaupmannahöfn varar Íslendinga við komu Hells Angels hingað til lands. Ekki líði að löngu þangað til glæpagengi skiptist á skotum á götum Reykjavíkur, eins og gerst hafi í Danmörku. 24.2.2010 19:34
Segja Helguvík fara á fullt í sumar Bjartsýni ríkir nú á Suðurnesjum um að álversframkvæmdir í Helguvík komist brátt á fulla ferð en eigendur Norðuráls segja það gerast í kringum mitt ár. 24.2.2010 19:24
Varað við hálku á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar ökumenn við mikilli hálku á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni. Ökumenn eru beðnir um að aka varlega. 24.2.2010 19:15
Eignamenn sem vissu af hruninu munu ekki sleppa Eignamenn, sem höfðu pata af hruninu og færðu eigur sínar yfir á fjölskyldumeðlimi fyrir örlagadaginn 6. október í hittiðfyrra, munu ekki sleppa ef nýtt frumvarp nær fram að ganga. 24.2.2010 18:49
Segir son sinn ekki hafa látist af slysförum Faðir Harðar Heimis Sigurðssonar sem lést á sunnudag, ári eftir að hann hlaut mikla áverka þegar ekið var á hann, segir son sinn ekki hafa látist af slysförum. Hann er mjög ósáttur við dóm yfir ökumanninum, en sá var undir áhrifum vímuefna og flúði af vettvangi. 24.2.2010 18:42
Vitorðsmaðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Karlmaður sem talinn er vera vitorðsmaður sjötugs manns sem handtekinn var fyrr í mánuðinum með tæpt kíló af kókaíni í Leifsstöð var í dag úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald. 24.2.2010 18:03
Ræningi úrskurðaður í síbrotagæslu Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í síbrotagæslu til 23. mars að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem hefur ítrekað komið við sögu hjá lögreglu, var handtekinn um helgina en þá hafði hann bæði brotist inn og framið rán í verslun í austurborginni þar sem hann ógnaði afgreiðslustúlku. 24.2.2010 17:49
Faðir sjö ára stúlku sýknaður af ásökunum um barnaníð Faðir sjö ára stúlku var sýknaður í Héraðsdómi Suðurlands af ásökunum að hafa beitt hana grófu kynferðislegu ofbeldi. Meðal annars með því að láta stúlkubarnið hafa við sig munnmök, nauðgað henni og í eitt skiptið sýnt telpunni klámmynd. 24.2.2010 16:23
Kringlan flokkaði hundrað tonn af sorpi Verslunareigendur og starfsfólk Kringlunnar flokkaði um hundrað tonn af sorpi árið 2009. Þetta lætur nærri að vera 23% af öllu sorpi sem féll til í tengslum við rekstur verslunarmiðstöðvarinnar samkvæmt tilkynningu frá Kringlunni. 24.2.2010 16:07
170 yfirheyrðir vegna bankahrunsins Sérstakur saksóknari hefur tekið skýrslur af 170 einstaklingum vegna bankahrunsins en þar af njóta 40-50 einstaklingar stöðu sakbornings en það gæti hæglega breyst. 24.2.2010 15:39
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent