Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flateyrarvegur fær eftir snjóflóð Flateyrarvegur er orðinn fær en snjóflóð féll á veginn í morgun. Samkvæmt Vegagerðinni kom flóðið niður Selabólsurð en það var 70 til 80 metra breitt og fjörtíu sentímetra djúpt. 24.2.2010 13:39
Norðmenn harðari í afstöðu sinni til Icesave Þriðjungur þeirra Norðmanna sem afstöðu tóku í könnun MMR um afstöðu til Icesave-deilunnar segja að Íslendingum eigi að verða gert að endurgreiða Bretum og Hollendingum að fullu. Í tilkynningu frá MMR segir að könnunin hafi verið framkvæmd dagana 11.-15. febrúar 2010 og var heildarfjöldi svarenda 1031 einstaklingar. 24.2.2010 12:54
Fjármálaráðherra vonast eftir hreyfingu á Icesave Talsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fullyrðir að Icesave deilan hafi ekki áhrif á endurskoðun sjóðsins á efnahagsáætlun landsins. Fjármögnun áætlunar sjóðsins sé hins vegar grundvallaratriði við endurskoðun áætlunarinnar. 24.2.2010 12:16
Vitorðsmaður gamla kókaínsmyglarans handtekinn Lögreglan á Suðurnesjum hefur nú í haldi mann sem talinn er vera vitorðsmaður sjötugs manns sem handtekinn var fyrr í mánuðinum með tæpt kíló af kókaíni í Leifsstöð. 24.2.2010 12:10
Telur skipulag virkjana á Hengilssvæði ólöglegt Skipulag jarðvarmavirkjana á Hellisheiði er ólöglegt, að mati Atla Gíslasonar, lögmanns og þingmanns Vinstri grænna. 24.2.2010 12:09
Framkvæmdastjórn ESB mælir með viðræðum Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mælir með því við leiðtoga sambandins að hafnar verði viðræður við Íslendinga um aðild að sambandinu. Íslendingar uppfylli öll helstu skilyrði aðildar en verði að breyta löggjöf sinni varðandi sjávarútveg, landbúnað og fleira. Hluti efnahagsvanda Íslendinga nú, sé að bankarnir hafi verið einkavinavæddir á sínum tíma. 24.2.2010 12:07
Lýst eftir stolnum Polo Glænýrri Volkswagen Polo bifreið var stolið frá Heklu miðvikudaginn 17. febrúar síðastliðinn. Um er að ræða nýja gerð Volkswagen Polo, með skráningarreynslunúmerið RN325 sem er rautt númer. „Bifreiðin sem er mjög áberandi appelsínugul á litinn, er á álfelgum og samlit allan hringin. 24.2.2010 11:39
Beðið fyrir manni sem slasaðist alvarlega í eldsvoða Í kvöld verður haldin bænastund þar sem beðið verður fyrir Þórði Sighvatssyni. 24.2.2010 11:30
Eldri borgari fékk klám í staðinn fyrir sænska ríkissjónvarpið „Þetta er fyrir neðan allar hellur,“ segir sjötug kona frá Akureyri sem var svipt sænska ríkissjónvarpinu síðasta haust en í staðinn fékk hún klámrásina Hustler. 24.2.2010 10:54
Lögreglan æfir forgangsakstur Nokkrir lesendur Vísis hafa haft samband og sagt frá nokkrum fjölda lögreglubíla sem nú aka með blikkandi ljós og vælandi sírenur á Reykjanesbrautinni. Að sögn lögreglu er um að ræða æfingu fyrir lögreglumenn í forgangsakstri. 24.2.2010 10:33
Ólafur Þ. Stephensen ráðinn ritstjóri Fréttablaðsins Ritstjóraskipti verða á Fréttablaðinu í dag. Jón Kaldal, sem verið hefur ritstjóri frá árinu 2007, lætur af störfum. Við starfinu tekur Ólafur Þ. Stephensen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins og 24 stunda. Auk þess að sinna ritstjórn Fréttablaðsins mun Ólafur vinna að því að auka samstarf fréttaritstjórna 365 miðla. 24.2.2010 09:42
Snjóflóð féll á Flateyrarveg Flateyrarvegur er lokaður vegna snjóflóðs sem fallið hefur á veginn. Vegagerðin vinnur nú að því að opna veginn á ný. Ekki er ljóst á þessari stundu hvort um stórt flóð sé að ræða og því óvíst hvenær hægt verður að opna veginn á ný. 24.2.2010 09:26
Líklegast mælt með aðildarviðræðum síðar í dag Búist er við því að Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mæli með því í dag að aðildarviðræður við Ísland verði hafnar. Verði þetta niðurstaðan á fundi Framkvæmdastjórnarinnar í dag er gert ráð fyrir að málið verði borið upp á leiðtogafundi Evrópusambandsins sem fram fer dagana 25 og 26 mars, en einróma samþykki leiðtoganna þarf fyrir því að málið komist á rekspöl. Það gæti hins vegar orðið þrautin þyngri verði Icesave-deilan við Breta og Hollendinga ekki útkljáð fyrir þann tíma. 24.2.2010 08:13
Enn leitað að loðnu Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson hélt enn á ný til loðnuleitar í gær og verður einkum leitað austur af Vesmannaeyjum. Fiskiskip hafa víða orði vör við loðnu við Suðurströndina, en veiðisvæðið er nú á Faxaflóa, þar sem nokkur skip fengu all góðann afla snemma í gær. 24.2.2010 08:10
Snjókoma veldur töfum fyrir vestan Flutningabílar á leið til Ísafjarðar töfðust um nokkrar klukustundir í gærkvöldi vegna ófærðar á leiðinni. Eitthvað snjóaði vestra í nótt og var þæfingsfærð á götum Ísfjarðarbæjar í morgun og Vegagerðarmenn eru að ryðja vegi þar í grennd. 24.2.2010 08:01
Brotist inn í bíla Brotist var inn í tvo bíla í Austurborginni i nótt og einhverjum verðmætum stolið ur þeim. Úr öðrum var meðal annars stolið radarvara, en þessháttar tæki ásamt GPS staðsetningartækjum virðast öðru fremur vekja áhuga þjófa, ef marka má hverju hefur verið stolið úr bílum að undanförnu. 24.2.2010 07:58
Mikið álag á húð- og kynsjúkdómadeild Álagstoppur hefur verið á húð- og kynsjúkdómadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss að undanförnu og allnokkur bið eftir að komast að. 24.2.2010 06:00
Umframorka Landsvirkjunar eftirsótt Mikil sókn er í þá umframorku sem til er í raforkukerfi Landsvirkjunar. Að minnsta kosti þrjú stóriðjufyrirtæki sækjast eftir umframorkunni. „Fyrstur kemur, fyrstur fær,“ segir Agnar Olsen, staðgengill forstjóra Landsvirkjunar. 24.2.2010 05:30
Svarfresturinn rennur út í dag Frestur til að gera athugasemdir við efnisatriði í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið rennur út í dag. Tólf manns úr stjórnsýslunni var gefinn kostur á að skila slíkum athugasemdum og hefur fresturinn til þess einu sinni verið framlengdur. 24.2.2010 05:15
Björgunarsveit vill þefhesta Þótt hestar hafi verið notaðir öldum saman hér á landi við leit og smölun á sauðfé hefur minna farið fyrir því undanfarin ár að þarfasti þjónninn sé notaður við leit og björgun á fólki. 24.2.2010 05:00
Hrunsrannsóknin nái til einkavæðingar bankanna Í minnisblaði til rannsóknarnefndar Alþingis mælist Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur og lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, til þess að rannsóknin nái allt til einkavæðingar bankanna. Minnisblaðið er frá í janúar í fyrra. Þá kallaði nefndin fyrir sig hópa hagfræðinga til ráðgjafar. Í erindinu segir Ólafur að kanna þurfi hver hafi verið tildrög þess að bankarnir voru seldir svokölluðum kjölfestufjárfestum en ekki með dreifða aðild fyrir augum eins og boðað hafði verið. 24.2.2010 05:00
Viðbragða við svarbréfi beðið Ekki fengust formleg viðbrögð við svarbréfi íslenskra ráðamanna við tilboði Breta og Hollendinga um lausn Icesave-málsins í gær. Óvíst er að þau fáist í dag en í stjórnkerfinu er vonast til að þau fáist fyrir vikulok. 24.2.2010 04:45
Handtekinn með amfetamín innvortis Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært rúmlega þrítugan karlmann fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. 24.2.2010 04:30
Framlengt á fimm Litháa Héraðsdómur Reykjaness framlengdi í gær gæsluvarðhald yfir fimm litháískum karlmönnum til 8. mars. Tveir þeirra kærðu úrskurðinn til Hæstaréttar. 24.2.2010 04:15
Schengen-aðild betri en að standa utan samstarfsins Ísland hefur frá 1996 greitt tæpan milljarð króna fyrir þátttöku í Schengen-samstarfinu. Um er að ræða greiðslur til stofnana Evrópusambandsins auk kostnaðar sem sérstaklega er stofnað til hér á landi. 24.2.2010 04:15
Reikna með verkföllum í mars Félagsmenn í Félagi íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) samþykktu á aðalfundi félagsins á mánudagskvöld að fela stjórn og trúnaðarráði félagsins að hefja undirbúning atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls. Í gærkvöldi útfærði svo trúnaðarráð félagsins atkvæðagreiðsluna nánar, það er hvers konar verkfallsaðgerðir félagsmenn fá um að velja. 24.2.2010 04:00
Margt rangt í skýrslu Bandaríkjamannsins Margt í minnisblaði staðgengils sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi af fundi hans með íslenskum embættismönnum er rangt. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra í umræðum um málið á Alþingi í gær. 24.2.2010 04:00
Forsetinn hitti nýja sendiherra Forseti Íslands fundaði í gær með tveimur nýjum sendiherrum. Annars vegar frú Manizha Bakhtari, sendiherra Afganistans, og hins vegar herra Ladislav Pivcevic, sendiherra Króatíu. Bæði afhentu trúnaðarbréf sín í gær. 24.2.2010 04:00
Vinningshafarnir fjórir hafa gefið sig fram Vinningshafar síðasta útdráttar í Lottóinu hafa allir skilað sér til að vitja vinninga sinna. Fjórir voru með allar tölur réttar og fékk hver 10,8 milljónir króna í sinn hlut. 24.2.2010 04:00
Niðurfellingar Kaupþings enn til rannsóknar Embætti sérstaks saksóknara rannsakar enn hvort niðurfelling persónulegra ábyrgða starfsmanna Kaupþings vegna hlutabréfakaupa í bankanum samræmist lögum. 24.2.2010 03:45
Kýldi lögreglumann í andlitið Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir brot gegn valdstjórninni. 24.2.2010 03:45
Bíða eftir viðbrögðum - ræddi við Wouter Bos Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að enn sé beðið eftir viðbrögðum frá Hollendingum og Bretum við ósk íslenskra stjórnvalda um frekari viðræður í Icesave deilunni. Steingrímur ræddi við Wouter Bos áður en hann lét af embætti fjármálaráðherra Hollands í dag. Hann hefur ekki rætt við eftirmann Bos. 23.2.2010 22:02
Mátti ekki upplýsa um dætur Gunnars Ómari Stefánssyni, oddvita framsóknarmanna í Kópavogi, var óheimilt að greina frá því að dætur Gunnars Birgissonar og tengdasynir hans hefðu gengið í Framsóknarflokkinn líkt og hann gerði á bloggsíðu sinni í dag. Uppljóstrun Ómars stangast á við reglur Framsóknarflokksins og þá er talið að hann hafi brotið lög um persónuvernd. Framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins hafði samband við Ómar í dag vegna málsins. 23.2.2010 20:53
Stálu frystikistum, pönnum og flatskjá Frystikistur, flatskjár og pottar voru meðal þess sem stolið var úr vinnubúðum verktaka við Herdísarvík í gærkvöldi eða nótt. Verktakinn vinnur við lagningu Suðurstrandavegar. 23.2.2010 21:07
Þorvaldur Lúðvík beðinn afsökunar Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi starfsmaður Kaupþings, fékk engar skuldir afskrifaðar hjá Kaupþingi líkt og sagt var í frétt Stöðvar 2 í kvöld. Þorvaldur hætti hjá bankanum árið 2006, seldi öll bréf sín í bankanum og gerði upp lán. Fréttastofa harmar þessi mistök og biður Þorvald afsökunar. 23.2.2010 19:12
Einhleypum konum verði heimilt að nota gjafaegg Frumvarp um breytingu á lögum um tæknifrjóvgun þess efnis að einhleypum konum með skerta frjósemi verði heimilt að nota gjafaeggfrumu við glasafrjóvgun er nú í undirbúningi og gert er ráð fyrir að það verði lagt fram á vorþingi. 23.2.2010 21:35
Jóhannes í Bónus skynjar ekki óánægju „Skoðanakönnun sú, sem lesa má í netmiðlum í dag, þar sem lýst er að 80,1% aðspurðra séu frekar eða mjög andvíg því að ég, Jóhannes Jónsson, starfandi stjórnarformaður Haga, fái að kaupa allt að 10% hlut í Högum af Arion banka, er vægast sagt annað viðmót en ég finn fyrir í verslunum Haga,“ segir Jóhannes í fréttatilkynningu. 23.2.2010 19:40
Var með klám í tölvunni - segir málið einn stóran misskilning 65 ára starfsmaður Oddeyraskóla á Akureyri liggur undir grun um að hafa haft barnaklám í vörslu sinni. Hann viðurkenndi í samtali við fréttastofu í dag að hafa verið með klámefni í tölvu sinni en segir málið einn stóran misskilning. 23.2.2010 19:29
Kærði Steingrím fyrir meinsæri Einn af stjórnendum Milestone kærði Steingrím Wernersson, sem átti 40% hlut í fyrirtækinu, til lögreglu í nóvember síðastliðnum fyrir rangar sakargiftir og meinsæri í yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara síðasta sumar. Þetta kom fram í Kastljósi í kvöld en ekki var greint frá nafni viðkomandi. 23.2.2010 20:08
Listaverksafn Kaupþings í eigu Arion banka Listaverkasafn gamla Kaupþings verður áfram eigu Arion banka samkvæmt samkomulagi sem undirritað var í dag. 23.2.2010 19:23
Hreiðar og Sigurður gætu þurft að borga á þriðja milljarð Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson gætu þurft að greiða skattinum á þriðja milljarð króna úr eigin vasa vegna niðurfellinga á lánum. 23.2.2010 18:59
Ríkið leggur hundrað milljónir í einkasjúkrahús Róberts Ríkið leggur hundrað milljónir króna í endurbyggingu gamla hersjúkrahússins á varnarsvæðinu, sem Róbert Wessman ætlar að leigja undir einkasjúkrahús. 23.2.2010 18:53
Samninganefndin í viðbragðsstöðu Íslenska Icesave samninganefndin undir forystu Lee Bucheit fór til Bretlands í morgun og bíður þar í viðbragðsstöðu, óski Bretar og Hollendingar eftir frekari viðræðum. Engir fundir hafa verið ákveðnir, segir Elías Jón Guðjónsson, talsmaður fjármálaráðherra. 23.2.2010 18:32
Ítrekar fyrri yfirlýsingu - lak ekki upplýsingum um Gunnar Gunnsteinn Sigurðrsson, bæjarstjóri í Kópavogi, segist ekki hafa lekið upplýsingum um Gunnar Birgissonar, fyrrverandi bæjarstjóra, til fjölmiðla til koma höggi á sig. Í samtali við fréttastofu í gær vísaði Gunnsteinn því á bug og í tilkynningu sem hann hefur sent frá sér ítrekar hann þá yfirlýsingu. 23.2.2010 18:01
Grunnskólastarfsmaður grunaður um vörslu barnakláms Starfsmaður við Oddeyrarskóla á Akureyri var yfirheyrður í gær vegna gruns um vörslu barnakláms. Lögregla hefur meðal annars lagt hald á vinnutölvu mannsins sem ekki er kennari. Maðurinn er ekki grunaður um að hafa misnotað börn í skólanum en rannsóknin er á frumstigi, að sögn varðstjóra lögreglunnar á Akureyri. Ekki fengust frekari upplýsingar um málið. 23.2.2010 17:25